Dagur - 18.02.1999, Síða 1
“T
1'
m
W
t'*
Stjániféllfyrir snjóbrettinu
fyrir tveimurárum og sést nú
gjaman í unglingofansi í
brekkunum íBláfjöllum...
„Veistu hvað ég er kallaður? Afi dissi! Þeir
segja þetta strákarnir, nú kemur afi dissi,
nú verður fjör í brekkunni," segir Kristján
Vídalín, skrúðgarðyrkjumaður, sem er hátt
á sextugsaldri og skellihlær. Það hefur
sennilega farið framhjá mörgum sem ekki
stunda „skíðasvæði" landsins stíft að hug-
takið er að verða úrelt. Kristján giskar á að
um 60-70% þeirra sem eru að renna sér í
brekkunum í t.d. Bláijöllum séu á snjó-
brettum. Samkvæmt nýlegri grein í Neyt-
endablaðinu er haft eftir umsjónarmönn-
um skíðasvæða um Iand allt að unglingar
með skíði séu að verða sjaldgæfir, sjáist
þeir séu það nær eingöngu krakkar sem
eru að æfa íþróttina skipulega. Restin er á
snjóbrettum, sem virðast hafa farið eins
og eldur í sinu síðastliðin tvö ár.
Fyrst á hausnum
Fjölskyldan hefur lengi iðkað skíðaíþróttina
af krafti en fyrir um tveimur árum fóru þeir
feðgar, Kristján og Sævar sonur hans, að
taka eftir snjóbrettingum á stangli í brekk-
unum. „Þetta kitlaði okkur með það sama,“
segir Kristján. „Svo ég ákvað að gefa honum
bretti, skó og bindingar í fermingargjöf.“
Þegar feðgarnir fóru að kanna verð á
brettaútbúnaði lá leiðin á endanum niður
í verslunina Týnda hlekkinn við Laugaveg-
inn, þar sem afgreiðslumaðurinn vindur
sér að þeim og heilsar Kristjáni kumpán-
lega. I ljós kom að foreldrar stráksins
höfðu verið mikið á skíðum með Kristjáni
og í Ijósi kunningsskapar gerði pilturinn
honum tilboð sem Kristján átti þágt með
standast. Strákurinn sagðist vita að Krist-
ján væri dellukarl og bauð honum að prófa
notað bretti. Ef honum Iíkaði það ekki
mætti hann skila brettinu, annars mætti
hann borga það. Kristján gekk út með
brettið og fór upp í Bláfjöll þar sem allt
gekk á afturfótunum. „Eg var þarna í 3
tíma og það gekk ekld neitt því ég var alltaf
að reyna að vera á skíðum."
„Þetta er svo mikið rokk líka, “ segir Kristján og skælbrosir. Segist yfirleitt vera með vasadiskó í
brekkunni og setji svo Deep Purple í botn áður en hann æðir niður brekkuna og tekur skarpar
beygjur svo sem mestur snjór frussist yfir. „Það er kúl, “ segir hann og Htur svo ögn vandræðalega
til hliðar, minnugur þess að hann er að nálgast sextugt. Bæði börnin, Sævar 15 ára og Ásdís 6
ára, fara með föður sínum í brekkurnar og mun Kristján duglegur við að segja kunningjum
Sævars til.
Nokkrum dögum síðar fer Kristján aftur
niður í Týnda hlekk og biður afgreiðslu-
manninn vinsamlegast um að hvetja ekki
gamlan karl til að verða að aðhlátursefni
upp í Bláfjöllum. Afgreiðslumaðurinn
gafst ekki upp og lánaði Kristjáni mynd-
band með byrjendanámskeiði á snjóbretti.
Kristján og sonurinn skoða myndbandið
gaumgæfilega um eftirmiðdaginn. „Svo
bara upp í fjall aftur og þá kom þetta.
Þetta er enginn vandi," segir Kristján. „Eg
hef ekki stigið á skíði síðan."
Elsti snjóbrettmguriim?
Sævar, sem nú er orðinn 15 ára, segir eng-
an skólafélaga sinna vera á skíðum, þeir
sem eru að renna sér séu allir á brettum.
„Það er bara einhverjar svona stelpur á
skíðum.“
Enda er fljótlært á brettin og segir Krist-
ján að eftir um klukkutíma kennslu sé fólk
búið að ná undirstöðuatriðunum á brett-
inu, aðalatriðið er að hafa jafnvægisskynið
í góðu lagi en hreyfingunum svipar mjög
til þeirra sem þarf til að vera á hjólabretti.
En Kristján er ekki alls kostar sáttur við
hve lítið er gert fyrir bretta- og skíðafólk á
skíðasvæðunum. Að vísu hafi verið útbúin
sérbrekka fyrir brettinga í Bláíjöllum í vor
en hún sé ekki nægilega vel troðin, né
nógu skemmtilega útbúin. Það þurfi að
búa til svigbrautir og Iitla hóla, alls ekki
stóra stökkpalla, sem geti verið stórhættu-
legir fyrir óvana.
Kristján er sennilega einn elsti snjó-
brettingur landsins og honum hefur ekki
tekist að draga neinn jafnaldra sinn í
þetta. „Fólk sem er komið yfir þrítugt er
svo hrætt við að detta. Það er svo hrætt við
að verða að athlægi. En þetta er eins og
með allt sem maður er að byrja á - maður
dettur. Eg veit ekki hvað ég datt oft til að
byrja með,“ segir hann og eiginkona hans
Sigríður skýtur því inn að hann hafi verið
marinn og blár á afturendanum og staul-
ast um eftir fyrsta daginn á brettinu. En
eftir að dettitímabilinu lauk hefur áhugi
feðganna verið slíkur að Sigríður er við
það að smitast. Segist kannski munu
laumast upp í Bláfjöll einhvern daginn
þegar enginn sér til og fá að detta þar í
friði þar til hún geti farið að renna sér
áfallalaust við hlið Ijölskyldunnar... LÓA
Pú þarf ekki a ð bíða eftir næsta tilboði. Þú færð okkar laga INDESIT verð alia daga
Kæliskápur CG 1340
Kælir 216 Itr.
• Frystir 71 Itr. a*.**)
Tværgrindur
Sjálfvirk afþýöing í kæli
Orkunýtni B
Mál hxbxd: 165x60x60
Kr. 59.900.- stgr.
Kæliskápur RG1145
Kælir 114 Itr.
• Klakahólf 14 Itr.
• Orkunýtni D
• Mál hxbxd: 85x50x56
Kr. 26.900
stgr.
Kæliskápur CG 1275
Kælir 172 Itr.
* Frystir 56 Itr. P***]
• Tvær grindur
Sjálfvirk afþýöing í kæli
OrkunýtniC
Mál hxbxd: 150x55x60
Kr. 53.900.- stgr.
Kæliskápur RG
Kælir 184 Itr
- Frystir 46 Itr
- Sjálfvirk afþýöing í kæli
Orkunýtni C
Mál hxbxd: 139x55x59
Kr. 39.900.- stgr.
x
'r / j,
i >\ \
fíft