Dagur - 23.02.1999, Blaðsíða 4
20- ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1999
jyactwr
BRÉF TIL KOLLU
„Uppi á stórum kletti við ströndina á milli Trieste og Feneyja stendur ævintýralegur kastali, Miramar. Á hverju sumri í
mörg ár ók ég þarna fram hjá með heila farma afíslenzku ferðafólki. Á sólheitum sumardögum bar hvíta kastalaveggina
við bláan himininn. Ég sagði söguna af Maximilian og Karlottu."
Prins í leit að
konungdæmi
Elsku Kolla.
Hugsaðu
þér, að heita
Maximilian.
Þvílíkt nafn.
Hvað held-
urðu, að hann
hafi verið
kallaður sem
strákur?
Maxi, komdu
inn að borða. Eða kannski
Milli! Maximilian var svo ólán-
samur að vera fæddur tveimur
árum á eftir bróður sínum,
Franz Jósef. Franz Jósef fékk
heilt heimsveldi í arf, og varð
keisari bæði í Austurríki og
Ungverjalandi og víðar. Maxi-
milian varð að láta sér nægja
metorð í hernum. Hafði ofan af
fyrir sér með ferðalögum um
Qarlæg lönd og álfur. Unni
fögrum listum og þótti frjáls-
lyndur í skoðunum. Tuttugu og
fimm ára kvæntist hann
Karlottu Amalíu Leopoldsdótt-
ur, konungs af Belgíu.
Ég veit ekki, Kolla, hvort þú
hefur nokkru sinni farið um
héruð við norðanvert Adríahaf.
Uppi á stórum kletti við
ströndina á milli Trieste og
Feneyja stendur ævintýralegur
kastali, Miramar. Á hverju
sumri í mörg ár ók ég þarna
fram hjá með heila farma af ís-
lenzku ferðafólki. Á sólheitum
sumardögum bar hvíta kast-
alaveggina við bláan himininn.
Ég sagði söguna af Maximilian
og Karlottu. Mig grunaði ekki
þá, að ég ætti eftir að feta í fót-
spor þeirra alla leið til Mexíkó.
Já, Kolla mín, Maximilian,
glaumgosinn, sem fæddist
tveimur árum of seint, varð
síðar keisari í Mexíkó.
Mig grunar, að Karlotta hafi
verið eins konar lafði Macbeth.
Ættgöfug, skapmikil, metnað-
argjörn. Rak bónda sinn
áfram, æsti upp í honum löng-
un til valda. En hvar og hvern-
ig? Hvar í heiminum fannst sú
þjóð, sem vildi lyfta þeim á
stall hinnar keisaralegu tign-
ar? Maximilian var prins í leit
að konimgdæmi.
Tekinn upp í skuld
Eins og þú veizt, Kolla, þá voru
konungar og keisarar gömlu
Evrópu allir hver undan öðrum.
Maximilian var náfrændi Vikt-
oríu Bretadrottningar. Karlotta
var skyld Evgeníu, hinni
spænsku, eiginkonu Napoleons
þriðja, Frakkakonungs. Allar
þessar þjóðir, Bretar, Frakkar og
Spánverjar, höfðu lánað miklar
fúlgur til nýja landsins vestan Atlantshafsins,
La Nueva Espagna. Nú var komið að skulda-
dögum. Bandamenn Evrópu voru ekki borg-
unarmenn. Við samningaborðið ákváðu Bret-
ar og Spánvetjar að draga kröfur sínar til
baka. Frakkar fengu í sárabót að senda her
inn í landið. Vildu treysta völd sín. Hinn
ólánsami sonur Soffíu erkihertogaynju, móð-
ur Franz Jósefs keisara af ætt Habsborgara,
skyldi hreppa æðstu tign. Það má því segja,
að Maximilian hafi verið tekinn upp í skuld.
Og hvernig áttu nú þessi dekurbörn af
úrkynjuðum ættstofnum evrópskrar yfir-
stéttar að pluma sig í nýja landinu? Þau
voru skjólstæðingar forréttindastéttarinnar.
Forréttindastéttin átti líf sitt undir keisar-
anum og hinum franska her. En í eigin aug-
um var Maximilian fulltrúi allrar þjóðarinn-
ar. Hann afneitaði raunveruleikanum.
„Mexíkanar, þið hafið óskað eftir nærveru
minni. Þið hafið kosið mig til æðstu met-
orða. Frá deginum í dag hef ég líf ykkar í
hendi mér.“ Þannig komst hann að orði í
ávajrpi til þjóðarinnar.
Níaximilian gerði allt til þess að koma sér
í mjúkinn hjá þjóðinni. Hann var ekki bara
keisari forréttindastéttarinnar, heldur allra
Mexíkana. Hann klæddi sig að þeirra hætti,
bar stóran hatt á höfðinu og ferðaðist um á
hestbaki. Indíánarnir dýrkuðu Maximilian. í
fyrsta skipti var hlustað á þá, tekið tillit til
vilja þeirra. Þeir áttu meiri rétt til landsins
en afkomendur innflytjenda. Réttur þeirra
var byggður á vilja Guðs og þúsunda ára
sögu. Maximilian skilaði aftur landi, sem
hafði verið tekið eignarnámi.
Karlotta var mjög gestrisin. Á mánudög-
um hélt hún dansiböll. Þar var hún í essinu
sínu. Oftar en ekki rufu skothvellir hátíða-
höldin. Maximilian lét þau eins og vind um
eyru þjóta. Hann lifði í ímyndaðri veröld.
Trúði því, að öll þjóðin stæði að baki sér. En
byltingin var hafin. Það styttist í endalokin.
Úti er ævintýri
Ollu er afmörkuð stund. Ævintýrið hafði
staðið í þijú ár. Snemma árs 1867 ákvað
Napoleon þriðji að kalla heim herdeild sína.
Allt Iagðist á eitt. Almenningsálitið heima
fyrir, eyðslusemi Maximilians og Karlottu,
hótanir Prússa, hótanir Bandaríkjamanna.
Maximilian var á báðum áttum. Átti
hann að leggja upp laupana? Átti hann að
snúa sér eitthvað annað? Karlotta sýndi
hvað í henni bjó. Hún sýndi þann kjark,
sem mann hennar skorti. Saga eigin ættar,
saga allra konunga Evrópu, gaf bara eina
vísbendingu - aldrei að gefast upp.
Karlotta lagði land undir fót. Hún ætlaði
að tala um fyrir Evgeníu frænku, sem skyldi
tala um fyrir Napóleon frænda. Hún ætlaði
að ná tali af páfanum í Róm. Hún skildi
mann sinn eftir í Mexíkó, einan og varnar-
lausan.
Karlotta átti aldrei afturkvæmt. Henni
tókst ekki að tala um fyrir Napóleon. Hún
komst alla leið til Rómar. Páfinn veitti henni
áheyrn, en það var of seint. Karlotta hafði
misst vitið. Hún var flutt til heimabyggða í
Belgíu. Hún lifði lengi. Hún lifði mann sinn,
Maximilian, og mág sinn, Franz Jósef. Hún
lifði Napóleon og Evgeníu, jafnvel Juarez,
sem varð banamaður manns hennar, og
næsti forseti Mexíkó.
Saga mannkyns er eins og hafið. Ekkert
fær rofið volduga hrynjandi þess. Það veltist
áfram óháð vilja mannsins, stjórnlaust,
ógnvekjandi. í öldurótinu þyrlast upp loft-
bólur. Þær springa jafnóðum, feykjast út í
vindinn.
Maximilian og Karlotta voru eins konar
loftbólur. Ruddust inn á sviðið, rufu framrás
sögunnar, höfðu engan aðdraganda, áttu
enga framtíð. Framandi, utangátta, litrík.
Maximilian og Karlotta lifa áfram. Þau lifa í
sögusögnum, leikritum og ljóðum. Afkára-
legt ævintýri um prins í leit að konungdæmi
er óþrjótandi yrkisefni. Enn eru menn ekki
á eitt sáttir um endalok Habsborgaranna í
Mexíkó.
Var þetta of hátíðlegt, elskan?
En ég er enn með hugann við Mexíkó.
Jörundur hundadagakonungur er kannski
loftbólan í sögu okkar þjóðar.
Þín Bryndís
IMENNINGAR
LÍFIfl
Lóa
Aldísardóttir
Vinnuskipta-
sanrnmgur MM
og Bjarts
Míní-útgáfan Bjartur hefur sótt
í sig veðrið á síðustu 2-3 árum,
gaf út fjölda titla í flokki fagur-
bókmennta fyrir jólin og á
t.a.m. 3 af 5 bókum sem eru til-
Snæbjörn Arngrímsson.
nefndar til Menningarverð-
launa DV. Fastur starfsmaður
útgáfunnar hefur verið einn,
Snæbjörn Arngrímsson útgef-
andi, hönnuður, lagerstjóri, bíl-
stjóri auk annarra hlutverka
sem einyrki í bókaútgáfu þarf
að taka að sér. En nú hefur
hann tekið höndunt saman við
risann á bókamarkaðnum,
sjálfa Mál og menningu. Fyrir-
tækin skrifuðu undir vinnu-
skiptasamning fyrir skömmu.
Samkvæmt samningnum tekur
Mál og menning að sér dreif-
ingu á bókum Bjarts en á móti
mun Snæbjörn sjá um uppsetn-
ingu og frágang fyrir prentun á
einhverjum bókum útgáfuris-
ans...
Aukning hjá
ListasaSiinu
í fyrsta sinni í sögu Listasafns
Islands (og gott ef ekki í sögu
íslenskra listásafna yfirhöfuð)
hefur safnið auglýst sjálft sig í
sjónvarpi. Auglýsingaherferðin,
sem Landssfminn kostar, hófst í
sjónvarpinu fyrir rúmri viku.
Aðsókn mun hafa aukist á síð-
asta hálfa mánuði en starfs-
maður safnsins vildi fara mjög
varlega í að draga þá ályktun að
máttur auglýsinganna væri svo
mikill. Tvær nýjar sýningar voru
settar upp á þessu tímabili og í
samræmi við nýja stefnu safns-
ins um að sinna ljósmyndun
sem listgrein var önnur þeirra
ljósmyndasýning. Hvort það eru
sýningarnar sem draga svona að
eða kynning auglýsinganna sem
veldur aukningunni er að sjálf-
sögðu ekki vitað.
Netfang: loa@ff.is
V_______________________________/