Dagur - 03.03.1999, Blaðsíða 1
T
m
k
fi|.
p
fete
Midvikudagur 3. mars 1999
er engin
iptiniynt
Hákon Gunnarsson, madur
BryndísarHlöðversdóttur
þingkonu, hefurverið ráðinn
framkvæmdastjóri kosninga-
stjómar Samfylkingarinnar.
Hann segist ekki vera stjóm-
málamaður og heldur ekki
kosningastjóri þó að hann
hafi atvinnu afstjómmála-
vafstri. Rekstur stjómmála-
flokks sé ekki ósvipaður
rekstri fyrirtækis.
„Ég hef alltaf haft áhuga á stjórnmálum
en ég hef eingöngu unnið við mitt fag. Ég
er viðskiptafræðingur að mennt með
framhaldsmenntun frá Verslunarháskól-
anum i Kaupmannahöfn. Eg hef starfað
innan íþróttahreyfingarinnar og í atvinnu-
rekstri, nú síðast sem íjármálastjóri hjá Is-
Ienska járnblendifélaginu. Eg hef verið fé-
lagi í Alþýðubandalagsfélaginu Birtingu,
gerðist það fyrir fjórum árum síðan en var
mjög óvirkur þar,“ segir Hákon.
Ekki kosningastjóri!
- Hvað kemur þá til að þú tekur að þér
þetta starf?
„Eg var ekki að leita mér að vinnu þegar
þetta kom upp enda hafði ég aðeins unn-
ið hjá Járnblendifélaginu í eitt ár. Það var
leitað mjög skyndilega til mín, mér fannst
þetta vera sögulegt tækifæri og ég ákvað
að slá til.“
- Þýðir þetta ekki það að þú munt hafa
alla tauma íþinni hendi?
„Ég starfa fyrir kosningastjórn Samfylk-
ingarinnar sem nú þegar hefur hafið störf.
I það heila tekið mun ég reyna að sam-
ræma kosningabaráttuna á landsvísu. Þar
kemur aðallega þrennt til; Ijármál, kynn-
ingarstarfsemi, sem er veigamesti þáttur-
inn í þessum rekstri, og sfðan þessi al-
menna kosningavinna. Síðan mun ég nátt-
úrulega gera dæmið upp þegar því lýkur.“
Lóð á vogarskálamar
- Nýlega kom mjög skyndilega upp að Mar-
grét Frímannsdóttir var skipuð talsmaður
Samfylkingarinnar og svo kom þitt nafn
upp - er þetta hluti af einhverjum pakka,
aðfriða allaballana til að þeir dragi sig ekki
út?
„Nei. Ég er þarna fyrst og fremst út af
mínum bakgrunni. Það var samstaða allra
aðila, sem standa að Samfylkingunni, að
ég skyldi ráðinn. Ég læt ekki nota mig sem
einhverja skiptimynt í svona dæmi. Það
kemur ekki til greina. Mér finnst þetta
óhemjuspennandi og heillandi verkefni að
sjá þessa þróun verða að veruleika. Ef ég
get Iagt lóð á vogarskálarnar þá er ég bara
feginn og ánægður.“
Hákon segir að ráðdeild í peningamál-
um eigi að vera grunntónn í þessari kosn-
ingabaráttu. Henni verði náð með því að
auka tekjur og lágmarka kostnað. Meira
vill hann ekki segja. Kveðst hafa tekist
þetta þar sem hann hefur starfað hingað
til og gengið ágætlega þannig að hann hafi
ákveðnar hugmyndir í samstarfi við sína
yfirboðara um hvernig það takist.
Þetta er alveg hægt
„Það er alveg hægt. Þetta er það öflug
hreyfing að eiginfjáröflun á að vera mjög
vænleg. Ef maður sýnir hagsýni í rekstri
þá á þetta alveg að vera hægt. Það er allt
annað að reka eitt stórt og öflugt batterí
en þrjá smærri flokka."
- Hvað gerirðu ráð fyrir að kosningabar-
áttan muni kosta t vor?
„Hún hleypur á tugum milljóna. Ég hef
Hákon mun reyna að samræma kosningabaráttuna á landsvísu. „Þar kemur aðallega þrennt til;
fjármál, kynningarstarfsemi, sem er veigamesti þátturinn í þessum rekstri, og síðan þessi almenna
kosningavinna. Stðan mun ég náttúrulega gera dæmið upp þegar því lýkur."
ekki skilað fjárhagsáætlun til kosninga-
stjórnar ennþá, ég er það nýtekinn til
starfa, en þetta eru tugir milljóna króna
sem um ræðir.“
Hákon hefur verið ráðinn til eins árs og
hann hefur skrifstofuaðstöðu í húsnæði
Alþýðubandalagsins við Austurstræti 10 í
Reykjavík. Kosningastjórn Samfylkingar-
innar skipa: Ari Skúlason formaður, Reyn-
ir Ólafsson, alþýðuflokksmaður úr Reykja-
nesbæ, og Hulda Ólafsdóttir Kvennalista.
- GHS
Kæliskápur CG 1340
- Kælir 216 Itr.
■ Frystir 71 Itr. IFrn
Tværgrindur
Sjálfvirk afþýðing í kæli
Orkunýtni B
Mál hxbxd: 165x60x60
Kr. 59.900.- stgr.
Kæliskápur CG 1275
• Kælir 172 Itr.
• Frystir 56 Itr. b** *j
• Tvær grindur
• Sjálfvirk afþýðing í kæli
• Orkunýtni C
Mál hxbxd: 150x55x60
Kr. 53.900.- stgr.
H O IM N U N
Kæliskápur RG1145
Kælir 114 Itr.
• Klakahólf 14 Itr.
9 Orkunýtni D
Mál hxbxd: 85x50x56
Kr. 26.900.- stgr.
^►índesíf
lilboðsverð
- sem er komið
til eð vera!
B R Æ Ð U R N I R
m ORMSSON
LágmúIa 8 • Sími 533 2800
T Ö
Kæliskápur RG2190
Kælir 134 Itr.
* Frystir 40 Itr.
* Sjálfvirk afþýðing í kæli
* Orkunýtni C
Mál hxbxd: 117x50x60
Kr. 37.900.- stgr.
Kæliskápur RG 2250
Kælir 184 Itr
* Frystir 46 Itr
* Sjálfvirk afþýðing í kæli
* Orkunýtni C
Málhxbxd: 139x55x59
Kr. 39.900.- stgr.
Kæliskápur RG 2290
Kælir 211 Itr.
* Frystir 63 Itr. a*.**)
* Sjálfvirk afþýöing í kæli
‘ Orkunýtni C
Mál hxbxd: 164x55x60
Kr. 48.900.- stgr.
P ú þarf ekki að biða eftir næsta tilboði. Þú færð pkkar lága INDESIT verð a 11 a daga
JiJlJfl
I