Dagur - 03.03.1999, Blaðsíða 2
18 - MIÐVIKUDAGU K 3. MARS 1999
Ðagur
LÍFIÐ í LANDINU
SMÁTT OG STÓRT
UMSJÓN:
BJÖRN
ÞORLÁKSSON
Barastytting
Fyrsta Islandsmótið í erótískum dönsum vakti
nókkra athygli og f jallaði þetta blað m.a. um
mótið. Ofanritaður átti skemmtilegt samtal við
yfirþjón Þórscafés þegar blaðið var að falast
eftir myndatöku af aðalæfingu. Yfirþjónninn
treysti sér ekki til að gefa leyfið sjálfur, en vís-
aði á yfirmann sem héti Sistó. Blaðamaður
Rósa Ingólfsdóttir. hváði og spurði síðan hvernig nafnið væri
skrifað. „S- I- S- T- 0,“ svaraði yfirþjónninn.
„nei fyrirgefðu, S-I-S-TÓ," leiðrétti hann sig
síðan. „Og talar hann íslensku?" spurði blaða-
maður. „Já, hann heitir Sigursteinn. Þetta er
bara stytting," svaraði þá yfirþjónninn....
„Það er mikil aukn-
ing meðal eldri
borgara og svo er
þessi Grand rokk
klúbbur. Áhuginn
hefur líka verið að
aukast núna útaf
netinu, “ segir
Ágúst Sindri Karls-
son, formaður
skáksambandsins.
„Það er vandlif-
að.“ Guðmundur
Bjamason land-
búnaðarráðherra
á Alþingi þegar
samflokksmenn
hans gerðu harða
hríð að honum og
gagnrýndu ótíma-
bæra sölu Aburð-
arverksmiðjunnar.
Hið kvenlega...
Og meira af mótinu. Rósa Ingólfsdóttir var
kynnir hátfðarinnar og fór mikinn. Athygli
vakti að hún vildi frekar kalla mótið keppni í
kvenlegri mýkt en að kenna það við erótík.
Rósa var greinilega að reyna að eyða fordóm-
um áhorfenda enda eflaust fengið borgað fyrir
það. Hitt vakti furðu áhorfenda að sjmingar-
dömurnar skyldu sjálfar þurfa að taka til á
sviðinu eftir sig. Lítil reisn var yfir því að
dansa, strippa, taka við Iófaklappi og bregða
sér síðan í hlutverk rótara og sviðsmanna og
tína upp eftir sig er þær gengu út af sviðinu....
Frábær framsýni
Um fátt er nú meira rætt í auglýsingaheimin-
um en framsýni auglýsingastofunnar Gott
fólk, sem lét gera aukaauglýsingar um Thule-
bjórinn eftir því hvernig Hæstiréttur myndi
dæma áfengisauglýsingar. Þar er m.a. Iímt yfir
munninn á Dönunum tveimur og hafa að-
standendur eflaust látið gera tvær aukagerðir
af auglýsingum eftir niðurstöðunni. Nú Ieikur
enginn vafi á að bannað er að auglýsa bjór á
Islandi en Thulemenn virðast á þurrum sjó
með þessum þagnarauglýsingum sínum. Her-
kænska eins og hún gerist best.
Veitti vitlaus verðlaun
Helgi Ass Grétarsson varð um helgina Islands-
meistari í atskák í fyrsta sinn. Mótinu var sjón-
varpað beint hjá RÚV og var hin besta
skemmtun. Ekki síst verðlaunaafhendingin
sem virtist ekki allt of vel undirbúin. Þannig
afhenti forstjóri Visa, Einar S. Einarsson,
skákmanninum sem varð í 3.-4. sæti sigur-
launin, en sá var grandvar og skilaði þeim aft-
ur með þeim orðum að hann ætti engan rétt á
fyrstu verðlaununum. Hemmi Gunn kynnir
gerði gott úr öllu saman og fengu hlutaðeig-
andi rétt verðlaun áður en yfir lauk.
Skákáhugiim að aukast
Skáksambandið opnaði um
helgina svokallað mátnet. Það er
svæði á veraldarvefnum þar sem
menn geta komið og teflt. Agúst
Sindri Karlsson, Iögfræðingur,
er formaður Skáksambands Is-
lands.
„Kosturinn er að þú getur
bara stokkið þarna inn og farið á
hvaða tíma sem er, verið heima
hjá þér. Þetta er sérstaklega gott
fyrir fjölskyldumenn sem kom-
ast síður út til þess að tefla. Það
eru alltaf skákmenn þarna inni
og þú getur farið þegar þér sýn-
ist og verið eins lengi og þér
sýnist," segir Agúst.
Fríx aðgangur að Mátnetinu
Skáksambandið er í samvinnu
við internetþjónustu Landssímans og ekki þarf
að borga sérstakan aðgang til þess að tefla á
netinu. Slóð mátnetsins er http://matnet.sim-
net.is. Agúst segir netskák vera tíðkaða útum
allan heim og bendir þeim á sem vilja fræðast
nánar um skáknetið að hringja í Skáksambandið
eða skoða heimasíður taflfélaganna.
„Sá skákklúbbur sem er hvað þekktastur í þessu
er kallaður ICC, skammstöfunin stendur fyrir
Intemet Chess Club. ICC rukkar um aðgangs-
gjald sem er um 2-3 þúsund krónur á ári, svo er
til annar klúbbur sem heitir FICS, þar er frír að-
gangur', segir Agúst. Hann bætir við að fólk all-
staðar að úr heiminum tefli í þessum klúbbum.
Safna ELO-stigum í netskákinni
Agúst segir að skákáhugi landsmanna sé að
aukast og segist hafa orðið var við grasrótar-
hrejTingu í skákinni. „Það er mikil aukning
meðal eldri borgara og svo er þessi Grand rokk
klúbbur. Áhuginn hefur líka verið
að aukast núna útaf netinu. Tafl-
félagið Hellir hefur verið með Is-
landsmeistaramót í netskák. Það
eru líka veitt verðlaun á þessum
mótum.
Svo fá menn ELO stig í net-
skákinni. Það er tölva sem að
reiknar þau út eftir ákveðinni
formúlu. Allir sem eru komnir
með aðgang þarna inni geta safn-
að stigum. Þá hækka menn eða
Iækka eftir því hvernig gengur, ef
þú vinnur þá bæturðu við þig
stigum en ef þú tapar þá taparðu
stigum. Það fer eftir því við
hveija þú ert að tefla hvað mörg
stig eru í húfi.“
Ber lítið á einmanaleikanum
Ágúst segir netskák ekki vera eins og að tefla við
tölvuna. Heldur sé þetta meira eins og menn
séu staddir í húsi innanum fjölda skákmanna,
sem geta talað saman með því að vélrita texta á
lyklaborðið hjá sér. „Menn geta skorað hver á
annan í skák eða boðið sig fram til að tefla.
Menn eru líka að spjalla.
Það er ekki eins gaman og að tefla í hóp og
hitta aðra skákmenn. Á skákmótum fer allt
kvöldið í þetta. Munurinn er að þú getur skot-
ist heima hjá þér og teflt tvær þijár skákir á net-
inu. Þetta er ótrúlega skemmtilegt. Netskákin
kemur kannski aldrei í staðinn fyrir að hitta
aðra yfir borðum en það ber lítið á einmanaleik-
anum. Þú getur verið að tefla við marga skák-
menn þarna inni. Þetta er svipað og að vera á
irkinu. Menn hafa verið að hittast þarna inni,
sérstaklega ef menn eru erlendis og svona,“ seg-
ir Ágúst. -PJESTA
„Munurinn eraðþúget-
urskotist heima hjá þér
og teflt tværþrjár sliákir
á netinu. Þetta erótrú-
lega skemmtilegt. Net-
skákin kemurkannski
aldrei ístaðinn fyrirað
hitta aðra yfirborðum. “
SPJALL
■ FRÁ DEGI TIL DAGS
„Skemmtun er gleði þeirra sem ekki
hugSá.“ Alexander Pope
Þaufæddust 3.mars
• 1911 fæddist bandaríska kvikmynda-
leikkonan Jean Harlow.
• 1914 fæddist danski málarinn Asger
Jorn.
• 1918 fæddist bandaríski ljósmyndarinn
Arnold Newman.
• 1923 fæddist Óli blaðasali Þorvaldsson.
Þetta gerðist 3.mars
• 1974 fórust nærri 350 manns þegar
tyrknesk farþegaflugvél fórst skömmu
eftir flugtak í París.
• 1978 var líkinu af Charles Chaplin
rænt úr gröfinni í Sviss, en það fannst
nærri tveimur mánuðum síðar við Genf-
arvatn.
• 1991 misþyrmdu lögregluþjónar í Los
Angeles manni að nafni Rodney King,
og náðist atburðurinn á myndbands-
töku sem varð til þess að þijótarnir
voru sakfelldir á endanum eftir miklar
óeirðir í hverfum blökkumanna.
Merkisdagurirm 3.mars
I dag er Jónsmessa Ögmundssonar Hóla-
biskups. Andlátsdagur Jóns var 23. apríl
árið 1121, en bein hans voru tekin upp 3.
mars árið 1200 og Jón Iýstur helgur mað-
ur á alþingi um sumarið. Jón var frægur
fyrir að stilla veður. Hann þótti góður til
áheita en náði aldrei hylli á við heilagan
Þorlák.
Vísan
Vísa dagsins er úr erfiljóðum Símons
dalaskálds um Níels Skálda
Hagur t' munutu hvað eitt vann
um hyggju grunda vega,
smíðaði stundum hluti hann
heldur undarlega.
Afmælisbam dagsins
Bandaríski uppfinningamaðurinn
Alexander Graham Bell fæddist í
Edinborg í Skotlandi árið 1847, en
flutti til Kanada árið 1870 og síðan
til Bandaríkjanna árið eftir. Hann
hlaut bandarískan ríkisborgararétt
árið 1882. Hann er þekktastur fyr-
ir að hafa fundið upp símann.
Hann hafði gert tilraunir með að
flytja mannsröddina með hjálp raf-
magns allt frá 18 ára aldri, og tókst
það loks þann 10. mars árið 1874.
Bell lést 2. ágúst 1922.
Lögfræðingar
Tveir lögfræðingar voru staddir á veitinga-
stað og pöntuðu sér kaffi. Svo fóru þeir í
skjalatöskurnar sínar og náðu í tvær sam-
lokur og bitu hvor í sína samloku.
Eigandinn kom til þeirra rauður í fram-
an og sagði: „Þið getið ekki borðað ykkar
eigin samlokur hérna!“
Lögfræðingarnir litu hvor á annan,
ypptu öxlum og skiptust á samlokum.
Veffang dagsins
Breti nokkur, búsettur á Neslcaupstað,
heldur úti forvitnilegri síðu um Iífið þar í
bæ, með nýjum fréttum og myndum í viku
hverri: www.islandia.is/~reynir-
neil/nesk.htm