Dagur - 04.03.1999, Qupperneq 1
ir hælar.“ Lýsing á þessum flíkum hljómar
nokkuð óvenjuleg enda tók Helga þátt í
Avant Garde flokki - eins konar framúr-
stefnuhönnun.
Yngsti Versace
„Þessi keppni er mjög stór og fær mikla at-
hygli á Italíu,“ segir Helga. „Dómararnir
sem völdu í keppnina eru mjög frægir og
þeirra á meðal var til dæmis Santo Ver-
sace, sem er yngsti bróðir Gianni Ver-
sace.“
- Þetta hýtur að snúa öllum þinum
áformum við?
„Já, þetta gerir það. Núna þarf ég að
sauma þetta allt og búa til áður en keppn-
in verður haldin, sem verður 29. maí.“
- Verður þetta ekkert erfitt með náminu?
„Jú, en þetta er bara svo spennandi. Það
kemur ekki til greina að sleppa þessu. Það
eru líka í þessu svo margir möguleikar.
Það eru í boði mörg peningaverðlaun,
skólavist í ítölskum skólum og störf hjá
fimm eða sex þekktum hönnuðum á Ital-
íu.“
- Hvernig i ósköpunum datt þér i hug að
senda inn þínar teikningar, þrátt fyrir skil-
yrðin sem þú nefndir?
„Eg hugsaði bara með mér að einhvers-
staðar verður maður að byrja. Þetta er góð
æfing í að teikna, ganga frá og senda inn.
Þetta þarf allt að vera á ensku og maður
þarf að hugsa út í svo margt.“
Úr félagsfræðiimi
Helga tók stúdentspróf frá MS og hóf síð-
an nám í félagsfræði í Háskólanum. Eftir
að hún hafði lokið fyrsta árinu þar ákvað
hún að flytja með kærastanum til Kaup-
mannahafnar þar sem hann var að fara í
nám. „Þannig að ég ákvað að kíkja á
möguleikana hér og fann Jrennan skóla
sem ég er í,“ segir Helga. „Eg sótti um og
komst inn. Eg hef alltaf haft áhuga á fata-
hönnun, ég hef alltaf prjónað og saumað
en kannski ekki hugsað svona langt áður.
Síðan átti þetta alveg við mig, betur en fé-
lagsfræðin að minnsta kosti.“
- Þannig að þú sérð ekki eftir því að hafa
fylgt kærastanum til Kaupmannahafnar?
„Nei, alls ekki.“
- Það kemur svo kannski í hans hlut að
fylgja þér til ltalíu?
„Já, ég vona það.“ - III
Hún sendi inn teikningarí
fatahönnunarkeppni á Ítalíu.
Fjörutíu hlutu nað afyfirfjög-
urhundurð. Hún fylgdi kærast-
anum upphaflega til Kaup-
mannahafnar vegna nams.
Fylgirhann henni tilítalíu?
Helga Ólafsdóttir frá Akureyri er á öðru
ári við nám í Helierup Textil Seminarium.
Hún sendi nýlega inn teikningar f fata-
hönnunarkeppni á Italíu sem ætluð er
nemum á síðasta ári og nýútskrifuðum.
Fjörutíu voru valdir af yfir fjögur hundruð
og er Helga þeirra á meðal þrátt fyrir að
vera aðeins á öðru ári. Hönnun hennar
þótti það góð.
„Það var þannig að í febrúar kom aug-
lýsing í skólann um þessa keppni á Italíu,"
segir Helga þegar slegið er á þráðinn til
hennar út til Köben. „Mér fannst þetta
náttúrulega mjög spennandi. Það er að
vísu skilyrði að maður þarf að vera að
klára fatahönnun, vera á síðasta ári eða
vera útskrifaður til að fá að taka þátt. En
ég ákvað að reyna samt og þeir sem sjá um
keppnina samþykktu það bara,“ segir
Helga. „Síðan var hringt í mig fyrir
nokkrum dögum og mér sagt að ég hefði
verið valin. Það hefur aldrei neinn frá
Danmörku komist inn í þessa keppni,
þannig að þetta þykir mjög merkilegt."
Keppnin heitir Mittelmoda Awards og er
haldin í bæ í norðaustur hluta Ítalíu,
Gorizia. Þess má geta að upplýsingar um
keppnina núna má finna á Netinu á slóð-
inni www.mittelmoda.com
Helga sendi inn teikningar af kjól og
sokkum úr Alafosslopa annars vegar og
svo eins konar leðurblökukjól ásamt
óvenjulegum skóm.
„A ullarkjólnum eru tvö stykki sem ég
kalla fyrir skjöld," segir Helga spurð nánar
út í hönnun sína. „Þau eru fest á en hægt
að taka þau af. Þau eru úr neonbleiku
næloni með silfurþráðum þannig að það
er eins og kóngulær skríðandi á því. Það
sem mig langaði að gera var að búa til
Fjörutíu voru vatdir afyfir fjögur hundruð og er Helga þeirra á meðai þrátt fyrir að vera aðeins á
öðru ári. Hönnun hennar þótti það góð.
flottan og glæsilegan kjól úr lopanum. Ég
vann lopann með aðferð sem kölluð er að
fílta. Þá er lopinn settur í mjög heitt vatn
með sápu og þá þéttist hann svolítið. Hin
flíkin er eins konar leðurblökukjóll og við
hann eru skór sem eru eiginlega fastir
saman. Það eru perlur á teygju á milli
þeirra, perlunet, og á hvorum skó eru íjór-
Betri prentun meiri myndgæði!
Hágæða umhverfisvænar Ijósritunarvélar
Leitið ndnari npplýsinga hjá sölumönnum okkar
BRÆÐURNIR
Láqmúla 8 • Sími 533 2800