Dagur - 04.03.1999, Qupperneq 2

Dagur - 04.03.1999, Qupperneq 2
18 - FIMMTUDAGUR 4. MARS 1999 rD^tr LÍFIÐ I LANDINU k A SMÁTT OG STÓRT UMSJÓN: SIGURDÓR SIGURDÓRSSON „Nú eru menn að flytja suður af því þeir vilja dansa þar á haustball- inu, vegna þess að þeim finnst rétt- Iætið hafa yfirgef- ið þá og lífsbarátt- an verði léttari og öryggið meira á eftir.“ Guðni Ágústsson alþingismaður í grein í Mbl. Göng alla leið Mikil umræða hefur orðið um jarðgangagerð hér á landi eftir að Halldór Blöndal sam- gönguráðherra hélt frægan fund á Siglufirði á dögunum og beitti gömu kosningabrellunni að segja við aðstoðarmann sinn „skrifaðu jarð- göng,“ þegar heimamenn impruðu á þörfinni fyrir jarðgöng yfir til Olafsfjarðar. Rökin sem færð eru fyrir nauðsyn þess að grafa þarna á milli eru þau að búið sé að sameina fisk- vinnslufyrirtæki í Ólafsfirði og Siglufirði. Sig- ríður Dóra Sverrisdóttir á Vopnafirði er fyrir löngu landsfræg orðin fyrir hið mikla menn- ingarlíf sem henni hefur tekist að halda uppi á Vopnafirði. Þegar hún heyrði rökin fyrir göng- unum frá Siglufirði til Ólafsíjarðar lagði hún til að Tangi hf. á Vopnafirði og Borgey hf. á Höfn í Hornafirði yrðu sameinuð. „Þá fyrst hæfist nú gangagerð fyrir alvöru samkvæmt siglfirsku rökunum," sagði Sigríður. Stórmenni Það kom fram í fréttum á dögunum að Jón Ólafsson fjáraflamaður hefði verið í skfða- ferðaiagi með fjölskyldu sinni í Ölpunum þeg- ar allar samgöngu á landi tepptust vegna snjóa. Hann brá á það ráð að leigja sér þyrlu sem flutti hann til Þýskalands en slíkt kostar enga vasapeninga. Það fylgir sögunni að ein- ungis þri'r aðilar af þeim þúsundum sem þarna urðu innlyksa hafi pantað þyrlu. Það var drottning Hollands, Karolína Monaco- prinsessa ogjón Ólafsson. Reiknaðu nú Það er ekki að spauga með þá Hafnfirðingana. Einn þeirra varð sjötugur í fyrra. Hann hélt upp á afmælið með pompi og pragt enda mað- urinn nokkuð kunnur í sinni heimabyggð. Svo leið ár en þá hitti hann annan Hafnfirðing á förnum vegi. Þeir tóku tal saman og þar kom að sá síðarnefndi spurði hinn hvað hann væri gamall. Sá hugsaði sig lengi um en sagði svo: „Eg varð sjötugur í fyrra, og reiknaðu nú!“ Veislustjórimi Sverrir Hermannsson spurð í grein í Mbl. á dögunum hvort kjördagurinn 8. maí væri ekki rétti dagurinn til að „pelsa þau marðardýr," sem farið hafi með lyklavöldin hér á landi þetta körtímabil. Aðalsteinn Jónsson á Víði- völlum í Fnjóskadal orti af þessu tilefni: Með pels við hæft punta má, pantar marðar hjóra. Líkan minkum síðan sjá Sverri veislustjóra. „Ég byrjaði út frá þessari hugmynd með kristnitökuna og hef áreiðan- lega skrifað ein 40-50 handrit síð- an. Ég fer inní goðsagnaheiminn og bý til litla sögu um fjöreggið og átök mannsins við fortíð, framtíð og nútíð, “ segir Hörður Torfason, leikstjóri og leik- ritahöfundur. Hefgaman af ævintýnun Leikflokkurinn á Hvammstanga frumsýnir á laugardagskvöldið nýtt leikverk eftir Hörð Torfason, sem hann samdi sérstaklega fyrir flokkinn. „Ég hafði sett upp hjá þeim fjórum sinnum áður. Það var gott samstarf hérna og þess vegna fengu þau mig til þess að semja leikrit og setja það upp,“ segir Hörður. Leikflokkurinn á Hvamms- tanga á 30 ára afmæli um þessar mundir. Fyrir um einu og hálfu ári síðan fóru þau þess á leit Mð Hörð að hann skrifaði leikverk fyrir þau. Það eina sem hann segist hafa farið fram á hafi verið að fá frjálst efnisval. Vættimar vemda fjöreggið Leikritið heitir: „Arið 999 ef þér kemur það við“. Það fjallar um krisnitökuna. Hörður segist einhvern tímann hafa heyrt kenningar um það að sá atburður hafi átt sér stað það ár. Leikritið gerist árið 999. „Ég byrjaði út frá þessari hug- mynd með kristnitökuna og hef áreiðanlega skrifað ein 40-50 handrit síðan. Ég fer inní goð- sagnaheiminn og bý til litla sögu um ijöreggið og átök mannsins við fortíð, framtíð og nútíð. Verkið gerist upp í fjöllum. Ég læt vætti kalla manninn fyrir til þess að hjálpa sér að verjast óvini sem er að ráðast inní landið. Svo segi ég sögu mannsins, þegar hann fer að sækja hjálp og fer að ráða niðurlögum óvinarins. Þetta er dálítið flókin saga ég blanda þarna inní hugmyndinni um fjöreggið. Vættirn- ar óttast að kristur sé að koma til þess að taka þetta fjöregg. Maðurinn er send- ur í leiðangur til þess að vernda þetta fjöregg, og það er það sem þær eru að sækjast eftir." Hörður segir að þó verkið gerist árið 999 sé það mjög nútímalegt. Hann segist vona að það höfði til nútímafólks. „Þetta er íslenskt ævintýri. Persónulega hef ég mjög gaman af ævintýrum, þess vegna heillaði það mig að fara þessa leið. Maður er náttúrulega búinn að gera margar atrennur, maður er orðinn geysilega flækt- ur inní þessa sögu. Það er mín reynsla að fólk vilji miklu frekar íslensk verk.“ Dálítill „Ha!“ tónn Hörður er sjálfmenntaður leikstjóri, hann út- skrifaðist árið 1970 sem leikari frá Ieiklistar- skóla Þjóðleikhússins. Síðan þá hefur hann sett upp um 70 leikverk víða um Iand. „Arið 999 ef þér kemur það við“, er fimmta leikritið sem Hörður skrifar. Hann segist auk þess hafa unnið nokkra leikþætti með unglingum áður. Hann segir það vera mjög gaman að setja upp á Hvammstanga. Hann hafi sett upp verk þar fjór- um sinnum áður. „Ég skrifaði leikritið vegna þess að ég þekki fólk hérna. Ég skrifaði það fyrir ákveðna leikara.“ Hörður segir að áferðin á verkinu sé dálítið sérkennileg. I því séu fjórar persónur sem leiki með grímur. „Fólk er dálítið undrandi sem kem- ur og fylgist með æfingum. Það er dálítill „HA!“ tónn í þeim,“ segir Hörður. Leikritið verður frumsýnt laugardaginn 6. mars en Hörður segir að þegar séu átta sýningar bókaðar. Þetta er íslenskt æv- intýrí. Persónulega hefég mjög gaman af ævintýrum, þess vegna heillaði það mig aðfara þessa leið. SPJflLL ■ FRÁ DEGI TIL DflGS „Skömm er óhófs ævi.“ Úr Hrafnkel$sögu. Þau fæddust 4. mars • 1859 fæddist rússneski eðlisfræðingur- inn og uppfinningamaðurinn Alexander Popov. • 1875 fæddist argentínski rithöfundur- inn Enrique Rodríguez Larreta. • 1876 fæddist Ásgrímur Jónsson list- málari. • 1928 fæddist bandaríski rithöfundur- inn Alan Sillitoe. • 1949 fæddist bandaríski rokkarinn Shakin Stevens. • 1954 fæddist bandaríska Ieikkonan Kay Lenz. Þetta gerðist 4. mars • 1945 lýstu Finnar yfir stríði á hendur Þýskalandi. • 1952 kvæntist Ronald Reagan henni Nancy Davis. • 1955 kom jazzfuglinn Charlie „Bird“ Parker síðast fram opinberlega (í New York), en hann lést átta dögum síðar. • 1959 komst bandaríski kjarnorkukaf- báturinn Nautillus til Norðurpólsins með því að sigla undir ishelluna. • 1964 léku fimm íslenskar bitlahljóm- sveitir á tónleikum í Háskólabíói, þar á meðal Hljómar. • 1971 var uppstoppaður Geirfugl keypt- ur handa íslendingum á uppboði í London. • 1977 fórust yfir 1500 manns í jarð- skjálfta sem reið yfir í suðausturhluta Evrópu. • 1983 tók Menningarmiðstöðin Gerðu- berg í Breiðholti til starfa. Vísan Vísa dagsins er eftir Stein Steinarr: Seiðir lýði sævarhlik sjá má víða hát áfloti. Þykir tíðum þungt um vik þeim sem htður heima í koti. Afmælisbam dagsins Suðurafríska söngkonan Miriam Makeba fæddist árið 1932. Hún náði miklum vinsældum á Vestur- löndum með Iögum á borð við „Pata Pata“, sem kom út 1967. Hún var gerð útlæg frá Suður-Afr- íku árið 1960, og eftir að hún gift- ist róttæklingnum Stokey Carmich- ael árið 1968 féll hún einnig í ónáð í Bandaríkjunum og hélt þá til Gíneu. 1990 sneri hún svo aftur til hcimalands síns, og er enn sem fyrr dugleg við plötuútgáfu og tón- Ieikaferðir. Ef hönd þín móðgar þig... Lögfræðingur sem var að verja sakborning í skartgripaþjófnaðarmáli ákvað að reyna að vera skapandi. „Skjólstæðingur minn setti höndina inn- um rúðuna og fjarlægði nokkra skartgripi. Það var hönd hans en ekki hann sjálfur og ég get ekki séð hvernig þú getur dæmt ein- staklinginn fyrir eitthvað sem að einstakur útlimur hans framkvæmdi." „Jæja þá,“ svaraði dómarinn. „Með þín- um rökum þá dæmi ég hönd sakbornings- ins í árs fangelsi. Hann má fylgja með ef hann kýs að gera það.“ Sakborningurinn brosti. Með aðstoð lögfræðings síns skrúfaði hann af sér gerfihöndina, lagði hana á sakamannabekkinn og gekk út. Veffang dagsins 100 málverk eftir Paul Cezanne eru nú til sýnis á veflistasafninu WebMuseum, sem má finna á watt.emf.net/wm

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.