Dagur - 04.03.1999, Blaðsíða 3

Dagur - 04.03.1999, Blaðsíða 3
 FIMMTVDAGUR 4. MARS 1999 - 19 „Börn eiga rétt á að líða vel í skólanum “ var fyrirsögnin á umfjöllun Dags um samskipti nemenda og kennara. Myndin sem birtist með tengist umfjöllunar- efninu ekki beint, einungis var tekin mynd af skólakrökkum við leik. í Helgarblaði Dags laugardaginn 20. febrúarvarjjallað um einelti, einkumþá hlið sem snýrað einelti kennara gagnvart nem- endum. Leitað var svara viðþví hvaða ráð nemendur ogforeldrar þeirra hafa til að bregðastvið slíku. Les- andiDags, 22 ára gamall maður, segir hérsögu sína en af skiljanlegum ástæðum óskar höfundur nafn- leyndar. I grein Dags um einelti var með- al annars varpað fram þeirri spurningu hvaða ráð nemandi og þá foreldrar hefðu þegar samskipti kennara og nemenda hefðu verulega slæm áhrif á allt líf nemandans. Eg get náttúr- Iega ekki svarað þessari spurn- ingu fyrir fullt og allt, einungis sagt mína sögu. Berja erfiða nemendur Ég er á 22. aldursári og síðari hluti skólagöngu minnar mér því í fersku minni. Fyrri part og reyndar lengst af minni grunn- skólagöngu var alls ekkert að. Ég gekk i skóla frá 6 ára aldri og þar til ég náði 13 árum. Öll þau ár var hvorki mér eða nokkrum öðrum sagt að þegja, hvað þá annað. Okkur var sagt að loka munninum. Það felst óneitan- lega meiri virðing í þeim orðum, virðing sem kennararnir fengu líka endurgoldna. Að þessum tíma liðnum flyst ég í skóla í öðru bæjarfélagi og þar með upphófst neikvæðari kafli skólagöngu minnar. Mér leið frekar illa sem unglingi, var kvíðinn vegna skólaskiptanna og raunar gat ég stuttu seinna flokkast undir hinn svokallaða „vandræðaungling". En hvað um það, allt virtist ætla að ganga upp og ég féll vel inn í hópinn. Eftir einnar viku setu varð ég fyrst var við ofbeldi þegar líf- fræðikennarinn „Ó“ lagði hend- ur á bekkjarbróður minn og síð- ar góðan vin fyrir að blaðra í tíma. Þetta gerði hann eftir að hafa tvisvar sagt honum að halda kjafti. Það var búið að segja mér sögur af ofbeldisverk- um þessa tiltekna kennara sem ég trúði ekki þar sem ég hafði aldrei kynnst neinu misjöfnu í fari kennara áður, bar ákveðna virðingu fyrir stéttinni þó ég hafi kannski verið ólátabelgur í barnaskóla. Ekki löngu síðar fékk bekkurinn að hlusta á yfir- lýsingar „G“ stærðfræðikennara, á einni af mörgum kjaftatörn- um, að hann tryði á og hefði reyndar sannreynt þá aðferð í öðrum skóla að eigin sögn, að berja þyrfti mjög erfiða nemend- ur. Það væri jú það eina sem þessir moðhausar skildu (óbein hótun af grófasta tagi). Gerður að athlægi Um þetta leyti var þessi kennari að taka einn í bekknum fyrir, eins og stóð í greininni, með þeim hætti að oft og iðulega gekk „G“ til þessa nemanda, sem var fyrirfram mjög lítill í sér, tók heimaverkefni eða út- reikninga undir lok tímans og byrjaði hárri raust að telja upp villurnar, stundum voru útreikn- ingarnir skrifaðir upp á töflu og bekkurinn síðan óbeint hvattur til að hlæja að öllu saman. Drengurinn sem var til umfjöll- unar hló aldrei. Ég sá þennan kennara aldrei berja neinn, heyrði bara frásagn- ir sem ég get ekki staðfest, en annað sá ég og get staðfest að oft réðst hann að nemendum, strákum og stelpum, með orðum sem aldrei ættu að heyrast af vörum kennara og rista djúpt hjá krökkum á þessum viðkvæma aldri. Setningar eins og „þú ert skíturinn undir skónum mínum" og „það verður aldrei neitt úr þér auminginn þinn“, voru ekki óalgengar. Ænuneiðandi ummæli Af umsjónarkennara mínum „M“ er það að segja að mér leið skást í tíma hjá honum og trúði raunar engu misjöfnu upp á hann. A þessum tíma hafði ég misst allan áhuga á námi og var farinn að mæta mjög illa. Þetta gerði mig öðruvísi og skuldinni skellt á fíkniefnaneyslu, áfengis- neysla var mikil en engin fíkni- efni. Svo sterk var sannfæring þeirra „G“ og „M“ að þeir voru farnir að tjá foreldrum, ekki að- eins hvaða efna ég neytti, heldur einnig hvernig ég neytti þeirra, þ.e.a.s. með sprautum. Eftir að ég hætti alfarið í skóla fyrir jól í 9. bekk voru vinir mín- ir og skólafélagar margsinnis spurðir af þeim „M“ og „G“ hvort ég væri ekki að selja fíkni- efni. Þetta er það einelti sem ég persónulega lenti í og það var býsna lýjandi. Sem betur fer tókst mér að snúa við blaðinu áður en gróusögurnar urðu að veruleika. Þegar ég fyrst heyrði þessar sögur fór ég til skólastjór- ans og sagðist meðal annars ætla að Ieggja fram kæru á hendur „G“ fyrir ærumeiðandi ummæli. Þegar við ræddum þau og framangreind atvik af hálfu „G“, hallaði skólastjórinn „H“ sér aftur og sagði orðrétt: „Hann „G“ er nú gamall sjómaður. Við verðum nú að fyrirgefa honum kjaftháttinn." Ég gat ekki lýst hneykslan minni og gekk út að svo búnu. Síðasta atvikið sem ég get staðfest átti sér stað nokkru seinna en þá rak „M“ stúlku úr tíma vegna blaðurs og niðrandi ummæla í sinn garð. Hann lét það ekki nægja heldur fylgdi henni eftir út á mannlausan ganginn og lét högg og spörk dynja á henni, jafnvel Iiggjandi í gólfinu og linnti ekki látum fyrr en hún með hjálp núverandi konu minnar gat læst sig inni á klósetti. Þær fóru rakleitt til yf- irkennarans þar sem skólastjór- inn var ekki við og tjáðu henni málsatvik. Hún kvaðst ætla að afgreiða málið en tjáði þeim einnig þá skoðun að svona mál ætti að afgreiða innan skólans og því væri ekki nauðsynlegt að leita læknis vegna áverkanna. Aldrei gerðist neitt og málið koðnaði niður. Úrslitaþýðing „Hvernig getur svona lagað við- gengist?" hljóta flestir að spyrja. Ég held að afstaða skólastjóra skipti höfuðmáli. Þokkalega heilbrigður skólastjóri lætur svona ekki viðgangast og ekki fer þetta fram hjá honum! Ég geri ráð fyrir að næsta spurning sé: „Hvað með foreldrana?" Jú, sum okkar voru eflaust fyrirfram ákveðin í að okkur yrði ekki trú- að. Sumir reyndu en var ekki trúað, til dæmis ég, og það hefur eflaust hjálpað til að flest okkar sem lentum í þessu voru jú erf- iðir nemendur, ólátabelgir og margir röngu megin við lögin. En það réttlætir ekki það sem gerðist, alls ekki! Svona upplifun getur komið alvarlega niður á námsárangri og jafnvel haft úrlsitaþýðingu í því hvort viðkomandi leiti sér áframhaldandi menntunar. Við skorum á ykkur að birta bréf þetta svo það megi verða til þess að vekja foreldra og aðra hlutaðeigendur til umhugsunar um það sem hugsanlega getur gerst innan veggja skólanna. Ég vona að þetta sé með svæsnari tilfellum því ekkert barn á að þurfa að þola svona meðferð hjá hinni virtu uppeldisstofnun sem skólarnir okkar eiga að vera. í tilefni af 50 ára afmæli Evr- ópuráðsins, sem er í maí hef- ur verið ákveðið að halda hér á landi Alþingi unga fólksins í Alþingishúsinu og er stílað á dagana 29. til 31. mars næst komandi. Það gæti þó frestast um viku ef þingslit dragast þar til síðari hluta mars eins og nú er útiit fyrir. Þann 8. maí tekur Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra líka við for- mennsku í Evrópuráðinu og gegnir henni næstu 6 mánuð- ina. Halldór hefur skipað landsnefnd sem standa mun fyrir ýmsum uppákomum í til- efni afmælisins en formaður þessarar nefndar er Hjálmar Arnason. Hann sagði að í tilefni af Alþingi æskunnar hefði nefndin leitað til náms- mannahreyfingarinnar á Is- landi og Æskulýðssambands Islands um samstarf. Hjálmar sagði að þingmenn æskunnar yrðu 63, þrjátíu og ein stúlka og þrjátíu og einn piltur. Þá vantaði einn þingmann og yrði valið með hlutkesti hvort hann verður piltur eða stúlka. Alvöru þingforseti Það verður sjálfur forseti Al- þingis, Olafur G. Einarsson, sem setja mun þingfundinn og stjórna kosningu þingfor- seta æskunnar og annarra starfsmanna þingsins. Síðan er það unga fólkið, sem verð- ur á aldrinum 16 til 20 ára, sem tekur við og mun fjalla um ýmis mál er snerta Evr- ópuráðið, svo sem umhverfis- mál, menntamál, jafnréttis- mál, vernd mannréttinda og baráttu gegn skipulögum glæpum og eiturlyfjum. Hinir ungu þingmenn munu ganga algerlega í störf alþingismanna og fylgja í einu og öllu hefðum og reglum sem í þinghúsinu ríkja. Verk- efnastjóri Alþingis æskunnar verður Marta Nordal leik- kona. -S.DÓR Háðsádeila í bíó I kvöld, fimmtudaginn 4. mars, sýnir Goethe-Zentrum, Lindargötu 46, þýsku kvik- myndina Rossini frá árinu 1997. Myndin hlaut Þýsku kvikmyndaverðlaunin sama ár sem besta mynd en einnig fyr- ir bestu leikstjórn og bestu klippingu. Rossini“ er háðsá- deila á líferni fræga fólksins í þýska kvikmyndageiranum þar sem allt snýst um kynlíf, peninga, framapot og mis- heppnuð ástarsambönd. Leik- arar: Götz George, Gudrun Landgrebe, Mario Adorf. Leikstjóri: Helmut Dietl sem skrifaði handritið ásamt Pat- rick Súskind, höfundi Ilms- ins. Myndin er með enskum texta. Aðgangur er ókeypis. s.________________________/

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.