Dagur - 04.03.1999, Síða 5
FIMMTUDAGUR 4. MARS 1999 - 21
LÍFIÐ í LANDINU
HittusthjáHöldi
„Þetta var góður dagur, “ segir Helena Magneudóttir um brúðkaupsdag henn-
ar og Guðmundar Guðmundssonar á Akureyri sl. sumar. (Ljósm: Norður-
mynd - ÁsgrímurJ
„Við erum bæði héðan frá Akur-
eyri. Fyrst hittumst við sumarið
1987, en þetta fór fyrst af stað
af alvöru sumarið 1990 þegar
við vorum bæði að vinna hjá
Höldi. Guðmundur sem snún-
ingastrákur en ég í sjoppunni á
Tryggvabrautinni,“ segir Helena
Magneudóttir. Þann 9. ágúst á
sl. ári gaf séra Birgir Snæbjörns-
son Helenu og Guðmund Guð-
mundsson saman en þau eru
búsett á Akureyri.
Þau Helena og Guðmundur
hafa unnið sig upp síðan um
sumarið sæla hjá Höldi. Nú er
Guðmundur verslunarstjóri hjá
Sextíu og sex norður á Akureyri
og Helena starfar í apóteki. Þau
eiga íbúð við Holtagötu, á besta
stað í bænum. „Þaðan er stutt í
allt; í vinnu, sund og í pössun
með strákana okkar sem eru
tveir, Patrekur sem fæddur er
1994 og Gabríel 1997,“ segir
Helena.
„Þetta var góður dagur,“ segir
Helena þegar hún rifjar brúð-
kaupsdaginn upp. Að lokinni at-
höfn í Akureyrarkirkju var brúð-
kaupsveisla haldin í Gamla-
Lundi við Eiðsvöll á Akureyri,
en síðan var á brúðkaupsnóttina
gist á Hótel Akureyri. I óform-
legt brúðkaupsferðalag var farið
með synina tvo í Ásbyrgi og
Hljóðakletta, en síðan standa
enn frekari ferðalög til í sumar
þegar farið verður í sæla sólina á
Benidorm. -SBS.
Hulda og Bjöm
Gefin voru saman í heilagt
hjónaband í Garðakirkju á Alfta-
nesi þann 4. júlí á síðastliðnu
ári, af séra Hansi Markúsi Haf-
steinssyni, þau Hulda Hrafns-
dóttir og Björn Herbertsson.
Þau eru til heimilis að Vestur-
holti 4 í Hafnarfirði. (Ljósmynd-
ast. MYND, Hafnarfirði.)
Helena
og Sigurdur
Gefin voru saman í heilagt
hjónaband í Grundarkirkju í
Eyjafirði þann 13. júní á sl. ári,
af séra Svavari Alfreð Jónssyni,
þau Helena Eydal og Sigurður
Jörgensen. Heimili þeirra er að
Kolbeinsgötu 54 á Vopnafirði.
Hanna
og Siguxdur
Gefin voru saman í heilagt
hjónaband í Selfosskirkju þann
17. júní á síðastliðnu ári, af séra
Þóri Jökli Þorsteinssyni, þau
Hanna Steinsdóttir og Sigurður
Pétursson. Heimili þeirra er að
Kambsvegi 27 í Reykjavík (Ljós-
myndst. Sigríðar Bachman.)
Um mlgreni
SVQAIA
ER LIFID
Pjetur St.
flrason
skrifar
©
Pjetur
svarar
í símann!
Ertu með ráð,
þarftu að spyrja,
viltu gefa eða
skipta?
Pjetur svarar í
símann kl. 9—12.
Síminn er
563 1626 (beint)
eða 800 7080.
Póstfang:
Þverholt 14 Rvk.
ða Strandgötu 31
Akureyri.
Netfang:
ritstjori@dagur.is
Um 10% íslendinga þjást af mígreni. Fólk getur fengið mígreni
á öllum aldri en það er algengast hjá fólki á aldrinum 20-40
ára. Mígreni leggst aðalega á konur en talið er að þrír af hverj-
um fjórum mígrenisjúklingum séu kvenkyns.
Lyfjaframleiðandinn Glaxo Wellcome hefur opnað upplýs-
ingalínu um mígreni í samstarfi við Mígrenisamtökin. Síma-
númer þjónustunnar er 570 7700.
Þjónustan er byggð þannig upp að þeim sem hringir inn er
boðið að svara tíu spurningum. Þar sem talin eru einkenni
mígrenis. Þar er fólk spurt hvort það fái oft höfuðverk, hvernig
hann lýsir sér og hversu oft hann varir. Síðan er niðurstaðan úr
þessum tíu spurningum metin eftir sennileika þess hvort að
um mígreni sé að ræða. Þarna er fólk beðið að leggja inn nafn
og heimilisfang og fá þá sent kynningarefni og efni um
Mígrenisamtök-
in.
Mígrenisam-
tökin á Islandi
eru með síma-
tíma milli 6-8
alla virka daga.
Þá getur fólk
bringt í síma
895 7300. Á
vegum samtak-
anna er unnin
mikil sjálfboða-
vinna. I stjórn
samtakanna eru
fjórar konur.
Inga S. Guð-
björnsdóttir er í _______________________________
stjórninni. Hún
vill benda fólki á að ganga í samtökin til þess að fræðast. Inga
segir að mígreni geti verið mismunandi og að fólki sé bent á að
halda dagbók til þess að komast að því hvað það er sem kemur
kastinu af stað.
Heilmikil fræðsla er í gangi á vegum samtakanna. Þau hafa
gefið út bækling sem til er í öllum apótekum og myndband
sem hægt er að nálgast á Námsgagnastofnun en á líka að vera
til á bókasöfnum. Næsti fræðslufundur verður 22. mars í safn-
aðarheimili Háteigskirkju þar verður Finnbogi Jakobsson
taugasjúkdómalæknir og ætlar að fjalla um mígreni hjá börn-
um og fullorðnum.
Til eru sérhæfð mígrenilyf sem fólk tekur þegar kastið er að
byija og nær þannig jafnvel að fyrirbyggja kastið. Onnur með-
ferð við mígreni er slökun. Fólki sem kljáist við höfuðverk er
bent á að leita til Iæknis.
Landlæknir hringir fyrsta símtalið í Mígrenilínuna
þegar hún var opnuð.
■ HVAfl ER Á SEYDI?
HEITT TRÍÓ Á HEITUM FIMMTUDEGI
Tríó Olafs Stephensen leikur á tónleikum á
vegum Jassklúbbs Akureyrar á Heitum
fimmtudegi 4. mars í Deiglunni. Þeir félagar:
Tómas R. Einarsson bassaleikari og tónsmiður,
Guðmundur R. Einarsson trommu- og
básúnuleikari og Olafur „jasspíanisti" Steph-
ensen eru löngu landsþekktir fyrir útfærslur á
„alþýðulögum" sem þeir færa í sveiflubúning.
Einkunnarorð þeirra hefur verið að hafa ánægjuna í fyrirrúmi og kemur það heim
og saman við þær vinsældir sem tríóinu hefur hlotnast. Sérgrein tríósins er að eig-
in sögn, „jass fyrir fólk sem hefur lítinn sem engan áhuga á jass!“Tónleikarnir hefj-
ast kl. 21.00 og er aðgangur kr. 1000 en ókeypis fyTÍr félaga í Jassklúbbi Akureyrar
og skólafólk.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Frá Setbergsskóla, Hafnarfirði
Næstkomandi föstudag og laugardag 5.
og 6. mars verða haldnir fræðslu- og
kynningarfundir um stærðfræði fyrir
kennara og almenning. Dagskrá föstu-
dagsins sem byrjar kl. 8.15 er eingöngu
ætluð kennurum í Hafnarfirði en dag-
skrá laugardagsins þar sem fyrirlestrar
verða kl. 9.30 og 13.00 er ætluð almenn-
ingi og húsið opið öllu áhugafólki um
um stærðfræði.
Álitamál samræmdu prófanna
Föstudaginn 5. mars kl. 14.00 til 18.00
verður haldið málþing um álitamál tengd
samræmdum prófum á Grand Hótel í
Reykjavík. Fjallað verður um ýmsar
breytingar sem munu verða í framtíðinni
á tilgangi og framkvæmd samræmdra
prófa samkvæmt nýrri skólastefnu. Á
þinginu verður einnig velt upp spurning-
unni: Hvarð hefur sagan kennt okkur?
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur stendur að
málþinginu ásamt menntamálaráðuneyti
og Kennarasambandi íslands. Þinginu
lýkur með pallborðsumræðum. Aðgangur
er ókeypis og öllum heimil.
Snfkjudýr f hundum
í dag kl. 12.30 verður á bókasafni
Keldna haldinn fræðslufundur um
Sníkjudýr í hundum á íslandi. Sigurður
H. Richter, dýrafræðingur á Keldum flyt-
ur erindið.
Tónleikar í Háskólabíói
Á tónleikum sínum í Háskólabíói í kvöld
leikur Sinfóníuhljómsveit íslands verk
eftir Mozart og Mendelson. Á efnis-
skránni eru tvær sinfóníur, Sinfónía nr.
31., K 297, Parísarsinfónían eftir Mozart
og Sinfónía nr. 3, skoska sinfónían eftir
Mendelson. Auk þess leikur hljómsveitin
Píanókonsert nr. 27, K595 eftir Mozart.
Einleikari á tónleikunum er Edda Er-
lendsdóttir. Hljómsveitarstjóri á tónleik-
unum er Rico Saccani. Tónleikarnir
hefjast klukkan 20.00.
Svartfugl á Jómfrúnni
Jazztríóið Svartfugl verður með síðdegis-
tónleika á veitingastaðnum Jómfrúnni
dagana 4.-7. mars. Tríóið skipa þeir Sig-
urður Flosason saxófónleikari, Björn
Thorodssen gítarleikari og Gunnar
Hrafnsson kontrabassaleikari. Tónleik-
arnir í dag standa á milli kl. 17.00 og
19.00.
Upplestur í Gerðarsafrii
Olafur Haukur Símonarson, rithöfund-
ur, er gestur Ritlistahóps Kópavogs, milli
kl. 17.00 og 18.00 í dag. Hópurinn hitt-
ist á hverjum fimmtudegi í Gerðarsafni,
Listasafhi Kópavogs. Aðgangur er ókeyp-
is og öllum heimil.
Frá Félagi kennara á eftirlaunum
Bókmenntahópurinn hittist kl. 14.00 í
dag og kórinn kl. 16.00.
Félagið hefur aðstöðu í Kennarahúsinu
við Laufásveg.