Dagur - 06.03.1999, Síða 8

Dagur - 06.03.1999, Síða 8
8- LAUGARDAGU R 6. MARS 1999 LAUGARDAGUR 6. MARS 1999 - 9 .Xfc^ur OMjur. FRETTASKYRING Málverkafölsimarmál- ið svokallaða fer fyrir Hæstarétt, en fjölskip- aður undirréttur dæmdi í gær Pétur Þór Gunnarsson í 6 máu- aða faugelsi fyrir blekkingar og auðguu- arbrot. Pétur Þór Gunnarsson, eigandi Gallerís Borgar, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær sakfelldur og dæmdur í sex mánaða fangelsi íyrir að selja þrjú fölsuð málverk og fyrir stórfelld bókhaldsbrot í rekstri gallerísins. Pétur Þór áfrýjaði málinu þegar í stað. Nið- urstaða Qölskipaðs héraðsdóms er þó á þann veg að ekki komi fram fulinægjandi sönnun um að Pétur Þór hafi sjálfur afmáð höf- undarmerkingu Wilhelms Wils á umræddum málverkum og sett á verkin höfundarmerkingu Jóns Stefánssonar, en dómararnir voru ekki í vafa um að hann hafi vitað að um falsanir væri að ræða þeg- ar verkin voru seld á uppboði Gallerís Borgar. Dómararnir, Ingibjörg Bene- diktsdóttir, Helgi I. Jónsson og listfræðingurinn Þorgeir Olafs- son, eru mjög afdráttarlaus í þeir- ri niðurstöðu sinni hvað tvö mál- verkanna varðar að Pétur Þór hafi selt þau með blekkingum og í auðgunarskyni, eftir „að hann eða einhver annar sem hann fékk til þess breytti málverkunum". Þrátt fyrir þetta orðalag segja dómararnir að ekki hafi verið lögð fram gögn sem sýni að Pétur Þór hafi sjálfur afmáð höfundarmerk- inguna af málverkinu og sett á það höfundamerkingu Jóns Stef- ánssonar. Við ákvörðun refsingar litu dómararnir til þess að Pétur hefði framið brot sín í ávinningsskyni og með þeim „vanvirti hann minningu látins listamanns og Iist hans“ og til þess að bókhalds- brotin væru stórfelld. Engar refsi- Iækkunarástæður þóttu vera fyrir hendi, en litið til þess að Pétur hefði ekki fyrr gerst sekur um refsiverða háttsemi sem máli skipti. Franihurður Jónasar „með óliMndum“ Fölsunarákærurnar voru sem fyrr segir þrjár og skulum við líta á niðurstöðurnar hvað hvetja þeirra varðar. 1. Verk eftir Wilhelm Wils sem Pétur keypti á 1.600 danskar krónur 18. ágúst 1994 var selt á uppboði Gallerís Borgar á Akur- eyri 21. maí 1995 fyrir 50 þúsund krónur sem verk eftir Jón. Höf- undarmerking Wils hafði verið afmáð, en nafn Jóns sett í stað- inn. Kaupandinn var Jón Ragn- arsson hótelhaldari, en hann gerði ekki skaðabótakröfu í mál- inu. Pétur hélt því fram í helstu út- gáfu framburðar síns að hann- hefði tekið myndina eftir Wils úr rammanum, en skilið sjálf verkin eftir hjá Jónasi Freydal Þorsteins- syni. Dómararnir töldu framburð hans bæði óstöðugan og afar ótrúverðugan og að gögn sem hann hefði lagt fram (kvittun og litljósmynd). væru ekki heldur traustvekjandi eða trúverðug. Framburður Jónasar Freydals, um að Wils-myndin sem keypt var á uppboði í Danmörku væri ekki sú sem sýnd var í dómssaln- um, þótti einnig ótrúverðugur og segja dómararnir skýrt: „Vætti hans um sakarefnið í máli þessu var með ólíkindum og frásögn hans lítt trúverðug, svo ekki sé fastara að orði kveðið.“ Sannað þótti að myndin sem keypt var sem Wils-mynd í Dan- mörku af Pétri eða Gallerí Borg væri sama myndin og seld var í Gallerí Borg sem verk eftir Jón Stefánsson. Sannað var að það hefði Pétur gert í blekkingar- og auðgunarskyni, „eftir að hann eða einhver annar sem hann fékk til þess“ hafði breytt málverkinu. Ekki þótti þó sannað að Pétur hefði sjálfur afmáð höfundar- merkinguna. Flóamarkaðssagan „skáld- sögu líkust“ 2. Verk eftir Wilhelm Wils sem Pétur keypti á 2.600 danskar krónur hjá Bruun Rasmussen listmunagalleríi 18. ágúst 1994 £ Kaupmannahöfn var selt á upp- boði Gallerís Borgar 1. septem- ber sama ár fyrir 396 þúsund krónur sem verk eftir Jón Stef- ánsson. Höfundarmerking Wils hafði verið afmáð, en nafn Jóns Stefánssonar sett í staðinn. Kaupandinn var Gunnar S. Gunnarsson sendiherra og gerði hann skaðabótakröfu upp á 370 þúsund krónur. Dómararnir töldu að framburð- ur rannsakenda og annarra vitna ákæruvaldsins hefði hér sem í öðru verið trúverðugur og sjálfum sér samkvæmur. Hér er um að ræða myndina sem Pétur hélt að lokum fram að hann hefði keypt á flóamarkaði árið 1994 af Patriciu Aagren. Framburður Péturs þótti óstöðugur og mjög ótrúverðugur og litljósmyndir sem hann lagði fram ekki traustvekjandi eða trú- verðugar. Dómararnir töldu að framburð- ur Péturs Þórs um kaup myndar- innar og fundi hans og Patriciu Aagren „skáldsögu líkastur" og var Pétur sérstaklega áminntur fyrir að hafa farið til Kaupmanna- hafnar án samráðs við veijanda sinn, gagngert til að reyna að hafa áhrif á þetta vitni. Frásögn hans var að engu höfð. Sömu sögu er að segja um framburð Patriciu, ekki var á honum byggt. Þá þótti dómurunum að framburður Jónasar Freydals um að „réttu“ myndina væri annars staðar að finna „mjög ótrúverðugur og stenst ekki“. Enn þótti dómurun- um framburður Þórhalls Arnórs- sonar, um að hann hefði séð hina kærðu mynd hjá Gallerí Borg í júli 1994 „að engu hafandi, enda var vætti hans ekki trúlegt og fór hann undan í flæmingi er á hann var gengið". Sannað þótti að myndin væri fölsuð og að Pétur Þór hefði selt hana í blekkingar- og auðgunar- skyni „eftir að hann eða einhver annar sem hann fékk til þess“ hafði breytt málverkinu. Ekki þótti þó sannað að Pétur hefði sjálfur afmáð höfundarmerking- Pétur Þór: Framburður hans þótti ótrúverðugur og framburður vitna sem verjandi kallaði fyrir þótti ýmist „út í hött“ eða „skáldsögu tíkastur". Ekki var talið sannað að Pétur hefði sjálfur afmáð höfundar- merkingu myndanna, en hann vissi að um falsanir væri að ræða og hann eða einhver annar sem hann fékk tii þess breytti málverkunum. una. Gunnar fékk skaðabótakröf- una viðurkennda. „Stílæfmgar“ listfræðings- ins viðurkenndar 3. Verk eftir Wilhelm Wils sem Pétur keypti á 4.500 danskar krónur 7. júní 1994 var selt á uppboði Gallerís Borgar 1. sept- ember sama ár fyrir 473 þúsund krónur sem verk eftir Jón. Höf- undarmerking Wils hafði verið afmáð, en nafn Jóns sett í stað- inn. Kaupandinn var Kjartan Gunnarsson framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, en hann gerði ekki skaðabótakröfu í mál- inu. Þessa mynd sagði Pétur fyrst að Jónas Freydal hefði keypt en framburður hans þótti sem fyrr óstöðugur og ótrúverðugur og framburður Jónasar Freydals þótti ekki standast. Sérstaklega er tekið fram, að framburður Jónas- ar Freydals um að hann hefði keypt þessa mynd en látið færa myndina á reikning Péturs Þórs vegna skattamála sé „út í hött“. Dómararnir litu til ótrúverðugs framburðar tvímenninganna og töldu fyllilega sannað að Pétri hafi verið Ijóst að „myndinni hafði verið breytt" og að hann hafi tekið fullan þátt í sölu henn- ar í blekkingarskyni á uppboði Gallerís Borgar. Sem fyrr þótti þó ekki sannað að Pétur hefði sjálfur afmáð höfundarmerkingu á myndinni eða sett á það höfund- armerkingu Jóns Stefánssonar. Þess má geta hvað allar mynd- irnar varðar að dómararnir telja framburð listfræðingsins Júlíönu Gottskálksdóttur mjög traustan, en Björgvin Þorsteinsson veijandi Péturs sagði að hann byggðist á huglægu mati og væru þegar best léti „skemmtilegar og skáldlegar stílæfingar" - líkari skyggnilýsing- arfundi en vitnisburði fyrir dómi. Stórfelld brot á bókhaldslög- u in Pétur Þór var einnig sakfelldur fyrir mest af því sem hann var sakaður um varðandi bókhald Gallerís Borgar, en sumt í ákæru- liðunum þótti þó fyrnt. Fyllilega sannað þótti að hvað fölsuðu verkin þrjú varðar hefði Pétur Þór ekkert fært í bókhald fyrirtækisins um kaup þeirra og móttöku og ekkert fært um kaup eða sölu þeirra listmuna sem seld voru á uppboði á Akureyri í maí 1995. Sannað þótti að Pétur hefði rekstrarárin 1994-96 rekið sölu notaðra lausaljármuna án tilskil- ins leyfis, en sök var hér talin fyrnd og engin refsing gerð. Þá var vísað frá dómi ákæru um að Pétur hefði látið undir höfuð leggjast að halda skipulagða skrá þeirra listmuna sem bárust fyrir- tækinu og að færa uppgjör í sam- ræmi við það, enda þótti dómur- unum að ákæruhættinum væri áfátt og ekki kæmi fram hvers konar skrá halda átti. Sannað þótti að Pétur hefði lát- ið undir höfuð leggjast að skrá viðskipti fyrirtækisins þegar keyptir voru listmunir erlendis, en sökin þótti hins vegar fyrnd og Pétur þvf sýknaður af þessu. Hins vegar þótti fyllilega sannað að Pétur hefði gerst sekur um van- rækslu á því að halda til haga tekjuskráningargögnum rekstrar- árið 1996 og færa bókhald það árið á tilskildum tíma. „Málið endar í slemmu“ Pétur Þór Gunnarsson vildi ekki tjá sig um dóminn í samtali við Dag. Eftir að hafa Iesið yfir hinn yfirgripsmikla 100 blaðsíðna dóm sagði Jón H. Snorrason saksóknari í samtali við Dag að þessi niður- staða um sakfellingu Péturs Þórs væri í samræmi við framkomnar grunsemdir og ákæruna. „Þetta er mál sem á sér enga hliðstæðu, hvorki hjá lögreglu né hjá dómstólum landsins. En nú er búið að reka mál sem er af svipuð- um toga og önnur mál sem nú liggur fyrir að rannsaka og ákæra út af. Meðferð þessa máls hefur því þýðingu fyrir mat dómstóla og vegna rannsóknar annarra þeirra málverka sem kærð hafa verið,“ segir Jón. Olafur Ingi Jónsson, forvörður, vildi ekki úttala sig um málið fyrr en hann hefði lesið dóminn f heild sinni. Hann sagðist þó fagna því að niðurstaða væri fengin. „Dóm- urinn kemst ótvfrætt að þeirri nið- urstöðu að um falsanir er að ræða og það er það sem við lögðum upp með. Það er augljóst og það verð- ur hægt að nota þennan dóm sem stuðul í áframhaldandi rannsókn. Með öðrum orðum leiðbeinir þetta rannsakendum í þeim mál- um sem einnig hefur verið kært út af og er reyndar augljóst af þessari niðurstöðu að rannsakendur hafa unnið sína vinnu vel.“ Segja má að málið hafi hafist á útmánuðum 1996, þegar Ólafi Inga Jónssyni forverði barst verk eftir Kjarval til viðgerðar, verk sem nefndist „Litaspjaíd", sem var að mati forvarðarins augljóslega fals- að. I nokkra mánuði reyndi hann að fá eigendasöguna frá uppboðs- húsinu Bruun Rassmusen í Dan- mörku sem seldi verkið. Þar sem eigendasagan fékkst ekki ákvað Ólafur að kæra meinta fölsun til Ríkislögreglustjóra. Frá þeim tfma hafa alls yfir 80 myndir verið kærðar hér á landi auk nokkurra mynda í Danmörku. Um málið sem nú hefur verið dæmt í sagði Ólafur Ingi Jónsson forvörður sl. sumar: „Málið hefur verið opnað með einu grandi á mjög örugg spil og ég spái því að þetta endi í slemmu". Um svipað leyti sagði hann einnig: „Eg vil að- eins fá fram hið sanna í málinu. Ef þetta reynist fleipur eitt er illa far- ið fyrir mínu mannorði sem fag- maður og kannski ástæða til að loka mig hreinlega jnni,“ FRIDRIK ÞÓR GUÐ- MUNDSSON SKRIFAR SeLdi falsanir 1 auðgunarskjni Viðtalstímar bæjarfulltrúa Mánudaginn 8. mars 1999 kl. 20-22 verða bæjarfulltrúarnir Jakob Björnsson og Vilborg Gunnars-dóttir til viðtals á skrifstofu bæjarstjóra að Geislagötu 9, 2. hæð. Bæjarfulltrúarnir munu svara síma- viðtölum eftir því sem aðstæður leyfa. Síminn er 462 1000. Freyvangs- leikhúsið - frumsýning Hamingjuránið - eftir Benght Alfors í þýðingu Þórarins Eldjárns Leikstjóri: Jón Stefán Kristjánsson Tónlistarstjóri: Garðar Karlsson Frumsýning í Freyvangi, í kvöld laugardagskvöld. 6. mars kl. 20.30 2. sýning sunnud. 7. mars kl. 20.30 Miðapantanir í síma 463-1195 kl. 16.00 - 19.00 F.h. Orkuveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboði í verkið: „Garðabær - Hraunsholt 1. áfangi“. í Hraunsholti í Garðabæ skal leggja dreifikerfi fyrir hitaveitu og annast jarðvinnu fyrir Rafveitu Hafnarfjarðar og Landssímann hf ásamt uppsetningu tengiskápa og Ijósastólpa. Helstu magntölur: Skurðlengd 5.000 m Lengd hitaveitulagna í plastkápu 4.200 m Skurðlengd fyrir strengi án hitaveitu 800 m Tengiskápar 11 stk Ljósastólpar 139 stk Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með 9. mars 1999 gegn 15.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: 23. mars 1999 kl. 14:00 á sama stað. ovr 21/9 F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir til- boðum í viðhaid raflagna í nokkrum leikskólum Reykjavíkur- borgar. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu okkar á kr. 1.000. Opnun tilboða: 30. mars 1999, kl. 11:00 á sama stað. bgd 22/9 F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir til- boðum í viðhald raflagna í nokkrum grunnskólum Reykjavíkur- borgar. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu okkar á kr. 1.000. Opnun tilboða: 6. apríl 1999, kl. 11:00 á sama stað. bgd 23/9 F.h. Orkuveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum f 1000 stk. götuljósastólpa af ýmsum stærðum. Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með 9. mars 1999. Opnun tilboða: 30. mars 1999, kl. 14:00 á sama stað. ovr 24/9 F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í verkið „Malbiksviðgerðir 1999“. Helstu magntölur: Sögun um: 9.600 m Malbikun á grús um: 7.600 m2 Malbikun í fræsun um: 4.400 m2 Verkinu skal að fullu lokið 31. október 1999 Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með 9. mars 1999, gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: 24. mars 1999, kl. 11:00 á sama stað. gat 25/9 F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í verkið „Gangstéttarviðgerðir 1999“. Helstu magntölur: Steyptar stéttar: 5.300 m2 Hellulagðar stéttar: 3.300 m2 Verkinu skal að fullu lokið 1. október 1999 Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með 9. mars 1999, gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: 24. mars 1999, kl. 14:00 á sama stað. gat 26/9 F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í verkið „Fræsun slitlaga 1999“. Helstu magntölur: Gróffræsun: 80.000 m2 Fínfræsun: 5.000 m2 Verkinu skal að fullu lokið 1. september 1999 Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með 9. mars 1999, gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: 25. mars 1999, kl. 11:00 á sama stað.gat 27/9 F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum i „Kaup á gangstéttarhellum árin 1999 t.o.m. 2001“. Áætlað heildamagn er um 90.000 hellur sem skiptist þannig í árlegt magn: 40x40x5 2.000 stk. 40x40x6 28.000 stk. Fyrsta afhending er 15. maí 1999 og afhendingu skal að fullu lokið 1. júlí 2001. Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með 9. mars 1999, gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: 25. mars 1999, kl. 15:00 á sama stað. gat 28/9 INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Pósthólf 878 - I2l Reykjavík - Sími 552 5800 Bréfsími 562 2616/561 1120. Netfang: isr@rhus.rvk.is Veffang: www.reykjavik.is/innkaupa- stofnun - 660169-4079

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.