Dagur - 06.03.1999, Page 9
8- LAUGARDAGU R 6. MARS 1999
LAUGARDAGUR 6. MARS 1999 - 9
.Xfc^ur
OMjur.
FRETTASKYRING
Málverkafölsimarmál-
ið svokallaða fer fyrir
Hæstarétt, en fjölskip-
aður undirréttur
dæmdi í gær Pétur Þór
Gunnarsson í 6 máu-
aða faugelsi fyrir
blekkingar og auðguu-
arbrot.
Pétur Þór Gunnarsson, eigandi
Gallerís Borgar, var í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær sakfelldur og
dæmdur í sex mánaða fangelsi
íyrir að selja þrjú fölsuð málverk
og fyrir stórfelld bókhaldsbrot í
rekstri gallerísins. Pétur Þór
áfrýjaði málinu þegar í stað. Nið-
urstaða Qölskipaðs héraðsdóms
er þó á þann veg að ekki komi
fram fulinægjandi sönnun um að
Pétur Þór hafi sjálfur afmáð höf-
undarmerkingu Wilhelms Wils á
umræddum málverkum og sett á
verkin höfundarmerkingu Jóns
Stefánssonar, en dómararnir voru
ekki í vafa um að hann hafi vitað
að um falsanir væri að ræða þeg-
ar verkin voru seld á uppboði
Gallerís Borgar.
Dómararnir, Ingibjörg Bene-
diktsdóttir, Helgi I. Jónsson og
listfræðingurinn Þorgeir Olafs-
son, eru mjög afdráttarlaus í þeir-
ri niðurstöðu sinni hvað tvö mál-
verkanna varðar að Pétur Þór hafi
selt þau með blekkingum og í
auðgunarskyni, eftir „að hann
eða einhver annar sem hann fékk
til þess breytti málverkunum".
Þrátt fyrir þetta orðalag segja
dómararnir að ekki hafi verið lögð
fram gögn sem sýni að Pétur Þór
hafi sjálfur afmáð höfundarmerk-
inguna af málverkinu og sett á
það höfundamerkingu Jóns Stef-
ánssonar.
Við ákvörðun refsingar litu
dómararnir til þess að Pétur hefði
framið brot sín í ávinningsskyni
og með þeim „vanvirti hann
minningu látins listamanns og
Iist hans“ og til þess að bókhalds-
brotin væru stórfelld. Engar refsi-
Iækkunarástæður þóttu vera fyrir
hendi, en litið til þess að Pétur
hefði ekki fyrr gerst sekur um
refsiverða háttsemi sem máli
skipti.
Franihurður Jónasar „með
óliMndum“
Fölsunarákærurnar voru sem fyrr
segir þrjár og skulum við líta á
niðurstöðurnar hvað hvetja þeirra
varðar.
1. Verk eftir Wilhelm Wils sem
Pétur keypti á 1.600 danskar
krónur 18. ágúst 1994 var selt á
uppboði Gallerís Borgar á Akur-
eyri 21. maí 1995 fyrir 50 þúsund
krónur sem verk eftir Jón. Höf-
undarmerking Wils hafði verið
afmáð, en nafn Jóns sett í stað-
inn. Kaupandinn var Jón Ragn-
arsson hótelhaldari, en hann
gerði ekki skaðabótakröfu í mál-
inu.
Pétur hélt því fram í helstu út-
gáfu framburðar síns að hann-
hefði tekið myndina eftir Wils úr
rammanum, en skilið sjálf verkin
eftir hjá Jónasi Freydal Þorsteins-
syni. Dómararnir töldu framburð
hans bæði óstöðugan og afar
ótrúverðugan og að gögn sem
hann hefði lagt fram (kvittun og
litljósmynd). væru ekki heldur
traustvekjandi eða trúverðug.
Framburður Jónasar Freydals,
um að Wils-myndin sem keypt
var á uppboði í Danmörku væri
ekki sú sem sýnd var í dómssaln-
um, þótti einnig ótrúverðugur og
segja dómararnir skýrt: „Vætti
hans um sakarefnið í máli þessu
var með ólíkindum og frásögn
hans lítt trúverðug, svo ekki sé
fastara að orði kveðið.“
Sannað þótti að myndin sem
keypt var sem Wils-mynd í Dan-
mörku af Pétri eða Gallerí Borg
væri sama myndin og seld var í
Gallerí Borg sem verk eftir Jón
Stefánsson. Sannað var að það
hefði Pétur gert í blekkingar- og
auðgunarskyni, „eftir að hann
eða einhver annar sem hann fékk
til þess“ hafði breytt málverkinu.
Ekki þótti þó sannað að Pétur
hefði sjálfur afmáð höfundar-
merkinguna.
Flóamarkaðssagan „skáld-
sögu líkust“
2. Verk eftir Wilhelm Wils sem
Pétur keypti á 2.600 danskar
krónur hjá Bruun Rasmussen
listmunagalleríi 18. ágúst 1994 £
Kaupmannahöfn var selt á upp-
boði Gallerís Borgar 1. septem-
ber sama ár fyrir 396 þúsund
krónur sem verk eftir Jón Stef-
ánsson. Höfundarmerking Wils
hafði verið afmáð, en nafn Jóns
Stefánssonar sett í staðinn.
Kaupandinn var Gunnar S.
Gunnarsson sendiherra og gerði
hann skaðabótakröfu upp á 370
þúsund krónur.
Dómararnir töldu að framburð-
ur rannsakenda og annarra vitna
ákæruvaldsins hefði hér sem í
öðru verið trúverðugur og sjálfum
sér samkvæmur. Hér er um að
ræða myndina sem Pétur hélt að
lokum fram að hann hefði keypt á
flóamarkaði árið 1994 af Patriciu
Aagren. Framburður Péturs þótti
óstöðugur og mjög ótrúverðugur
og litljósmyndir sem hann lagði
fram ekki traustvekjandi eða trú-
verðugar.
Dómararnir töldu að framburð-
ur Péturs Þórs um kaup myndar-
innar og fundi hans og Patriciu
Aagren „skáldsögu líkastur" og
var Pétur sérstaklega áminntur
fyrir að hafa farið til Kaupmanna-
hafnar án samráðs við veijanda
sinn, gagngert til að reyna að hafa
áhrif á þetta vitni. Frásögn hans
var að engu höfð. Sömu sögu er
að segja um framburð Patriciu,
ekki var á honum byggt. Þá þótti
dómurunum að framburður
Jónasar Freydals um að „réttu“
myndina væri annars staðar að
finna „mjög ótrúverðugur og
stenst ekki“. Enn þótti dómurun-
um framburður Þórhalls Arnórs-
sonar, um að hann hefði séð hina
kærðu mynd hjá Gallerí Borg í
júli 1994 „að engu hafandi, enda
var vætti hans ekki trúlegt og fór
hann undan í flæmingi er á hann
var gengið".
Sannað þótti að myndin væri
fölsuð og að Pétur Þór hefði selt
hana í blekkingar- og auðgunar-
skyni „eftir að hann eða einhver
annar sem hann fékk til þess“
hafði breytt málverkinu. Ekki
þótti þó sannað að Pétur hefði
sjálfur afmáð höfundarmerking-
Pétur Þór: Framburður hans þótti ótrúverðugur og framburður vitna sem verjandi kallaði fyrir þótti ýmist „út í hött“ eða „skáldsögu tíkastur". Ekki var talið sannað að Pétur hefði sjálfur afmáð höfundar-
merkingu myndanna, en hann vissi að um falsanir væri að ræða og hann eða einhver annar sem hann fékk tii þess breytti málverkunum.
una. Gunnar fékk skaðabótakröf-
una viðurkennda.
„Stílæfmgar“ listfræðings-
ins viðurkenndar
3. Verk eftir Wilhelm Wils sem
Pétur keypti á 4.500 danskar
krónur 7. júní 1994 var selt á
uppboði Gallerís Borgar 1. sept-
ember sama ár fyrir 473 þúsund
krónur sem verk eftir Jón. Höf-
undarmerking Wils hafði verið
afmáð, en nafn Jóns sett í stað-
inn. Kaupandinn var Kjartan
Gunnarsson framkvæmdastjóri
Sjálfstæðisflokksins, en hann
gerði ekki skaðabótakröfu í mál-
inu.
Þessa mynd sagði Pétur fyrst að
Jónas Freydal hefði keypt en
framburður hans þótti sem fyrr
óstöðugur og ótrúverðugur og
framburður Jónasar Freydals
þótti ekki standast. Sérstaklega er
tekið fram, að framburður Jónas-
ar Freydals um að hann hefði
keypt þessa mynd en látið færa
myndina á reikning Péturs Þórs
vegna skattamála sé „út í hött“.
Dómararnir litu til ótrúverðugs
framburðar tvímenninganna og
töldu fyllilega sannað að Pétri
hafi verið Ijóst að „myndinni
hafði verið breytt" og að hann
hafi tekið fullan þátt í sölu henn-
ar í blekkingarskyni á uppboði
Gallerís Borgar. Sem fyrr þótti þó
ekki sannað að Pétur hefði sjálfur
afmáð höfundarmerkingu á
myndinni eða sett á það höfund-
armerkingu Jóns Stefánssonar.
Þess má geta hvað allar mynd-
irnar varðar að dómararnir telja
framburð listfræðingsins Júlíönu
Gottskálksdóttur mjög traustan,
en Björgvin Þorsteinsson veijandi
Péturs sagði að hann byggðist á
huglægu mati og væru þegar best
léti „skemmtilegar og skáldlegar
stílæfingar" - líkari skyggnilýsing-
arfundi en vitnisburði fyrir dómi.
Stórfelld brot á bókhaldslög-
u in
Pétur Þór var einnig sakfelldur
fyrir mest af því sem hann var
sakaður um varðandi bókhald
Gallerís Borgar, en sumt í ákæru-
liðunum þótti þó fyrnt.
Fyllilega sannað þótti að hvað
fölsuðu verkin þrjú varðar hefði
Pétur Þór ekkert fært í bókhald
fyrirtækisins um kaup þeirra og
móttöku og ekkert fært um kaup
eða sölu þeirra listmuna sem seld
voru á uppboði á Akureyri í maí
1995.
Sannað þótti að Pétur hefði
rekstrarárin 1994-96 rekið sölu
notaðra lausaljármuna án tilskil-
ins leyfis, en sök var hér talin
fyrnd og engin refsing gerð. Þá
var vísað frá dómi ákæru um að
Pétur hefði látið undir höfuð
leggjast að halda skipulagða skrá
þeirra listmuna sem bárust fyrir-
tækinu og að færa uppgjör í sam-
ræmi við það, enda þótti dómur-
unum að ákæruhættinum væri
áfátt og ekki kæmi fram hvers
konar skrá halda átti.
Sannað þótti að Pétur hefði lát-
ið undir höfuð leggjast að skrá
viðskipti fyrirtækisins þegar
keyptir voru listmunir erlendis,
en sökin þótti hins vegar fyrnd og
Pétur þvf sýknaður af þessu. Hins
vegar þótti fyllilega sannað að
Pétur hefði gerst sekur um van-
rækslu á því að halda til haga
tekjuskráningargögnum rekstrar-
árið 1996 og færa bókhald það
árið á tilskildum tíma.
„Málið endar í slemmu“
Pétur Þór Gunnarsson vildi ekki
tjá sig um dóminn í samtali við
Dag. Eftir að hafa Iesið yfir hinn
yfirgripsmikla 100 blaðsíðna dóm
sagði Jón H. Snorrason saksóknari
í samtali við Dag að þessi niður-
staða um sakfellingu Péturs Þórs
væri í samræmi við framkomnar
grunsemdir og ákæruna.
„Þetta er mál sem á sér enga
hliðstæðu, hvorki hjá lögreglu né
hjá dómstólum landsins. En nú er
búið að reka mál sem er af svipuð-
um toga og önnur mál sem nú
liggur fyrir að rannsaka og ákæra
út af. Meðferð þessa máls hefur
því þýðingu fyrir mat dómstóla og
vegna rannsóknar annarra þeirra
málverka sem kærð hafa verið,“
segir Jón.
Olafur Ingi Jónsson, forvörður,
vildi ekki úttala sig um málið fyrr
en hann hefði lesið dóminn f heild
sinni. Hann sagðist þó fagna því
að niðurstaða væri fengin. „Dóm-
urinn kemst ótvfrætt að þeirri nið-
urstöðu að um falsanir er að ræða
og það er það sem við lögðum upp
með. Það er augljóst og það verð-
ur hægt að nota þennan dóm sem
stuðul í áframhaldandi rannsókn.
Með öðrum orðum leiðbeinir
þetta rannsakendum í þeim mál-
um sem einnig hefur verið kært út
af og er reyndar augljóst af þessari
niðurstöðu að rannsakendur hafa
unnið sína vinnu vel.“
Segja má að málið hafi hafist á
útmánuðum 1996, þegar Ólafi
Inga Jónssyni forverði barst verk
eftir Kjarval til viðgerðar, verk sem
nefndist „Litaspjaíd", sem var að
mati forvarðarins augljóslega fals-
að. I nokkra mánuði reyndi hann
að fá eigendasöguna frá uppboðs-
húsinu Bruun Rassmusen í Dan-
mörku sem seldi verkið. Þar sem
eigendasagan fékkst ekki ákvað
Ólafur að kæra meinta fölsun til
Ríkislögreglustjóra. Frá þeim tfma
hafa alls yfir 80 myndir verið
kærðar hér á landi auk nokkurra
mynda í Danmörku.
Um málið sem nú hefur verið
dæmt í sagði Ólafur Ingi Jónsson
forvörður sl. sumar: „Málið hefur
verið opnað með einu grandi á
mjög örugg spil og ég spái því að
þetta endi í slemmu". Um svipað
leyti sagði hann einnig: „Eg vil að-
eins fá fram hið sanna í málinu. Ef
þetta reynist fleipur eitt er illa far-
ið fyrir mínu mannorði sem fag-
maður og kannski ástæða til að
loka mig hreinlega jnni,“
FRIDRIK
ÞÓR GUÐ-
MUNDSSON
SKRIFAR
SeLdi falsanir 1 auðgunarskjni
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Mánudaginn 8. mars 1999 kl. 20-22
verða bæjarfulltrúarnir Jakob
Björnsson og Vilborg Gunnars-dóttir
til viðtals á skrifstofu bæjarstjóra að
Geislagötu 9, 2. hæð.
Bæjarfulltrúarnir munu svara síma-
viðtölum eftir því sem aðstæður
leyfa.
Síminn er 462 1000.
Freyvangs-
leikhúsið
- frumsýning
Hamingjuránið
- eftir Benght Alfors
í þýðingu Þórarins Eldjárns
Leikstjóri:
Jón Stefán Kristjánsson
Tónlistarstjóri:
Garðar Karlsson
Frumsýning í
Freyvangi, í kvöld
laugardagskvöld.
6. mars kl. 20.30
2. sýning sunnud.
7. mars kl. 20.30
Miðapantanir í
síma 463-1195
kl. 16.00 - 19.00
F.h. Orkuveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboði í verkið:
„Garðabær - Hraunsholt 1. áfangi“. í Hraunsholti í Garðabæ
skal leggja dreifikerfi fyrir hitaveitu og annast jarðvinnu fyrir
Rafveitu Hafnarfjarðar og Landssímann hf ásamt uppsetningu
tengiskápa og Ijósastólpa.
Helstu magntölur:
Skurðlengd 5.000 m
Lengd hitaveitulagna í plastkápu 4.200 m
Skurðlengd fyrir strengi án hitaveitu 800 m
Tengiskápar 11 stk
Ljósastólpar 139 stk
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með 9. mars 1999
gegn 15.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: 23. mars 1999 kl. 14:00 á sama stað.
ovr 21/9
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir til-
boðum í viðhaid raflagna í nokkrum leikskólum Reykjavíkur-
borgar.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu okkar á kr. 1.000.
Opnun tilboða: 30. mars 1999, kl. 11:00 á sama stað.
bgd 22/9
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir til-
boðum í viðhald raflagna í nokkrum grunnskólum Reykjavíkur-
borgar.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu okkar á kr. 1.000.
Opnun tilboða: 6. apríl 1999, kl. 11:00 á sama stað.
bgd 23/9
F.h. Orkuveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum f 1000
stk. götuljósastólpa af ýmsum stærðum.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með 9. mars 1999.
Opnun tilboða: 30. mars 1999, kl. 14:00 á sama stað.
ovr 24/9
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í
verkið „Malbiksviðgerðir 1999“.
Helstu magntölur:
Sögun um: 9.600 m
Malbikun á grús um: 7.600 m2
Malbikun í fræsun um: 4.400 m2
Verkinu skal að fullu lokið 31. október 1999
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með 9. mars 1999,
gegn 5.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: 24. mars 1999, kl. 11:00 á sama stað.
gat 25/9
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í
verkið „Gangstéttarviðgerðir 1999“.
Helstu magntölur:
Steyptar stéttar: 5.300 m2
Hellulagðar stéttar: 3.300 m2
Verkinu skal að fullu lokið 1. október 1999
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með 9. mars 1999,
gegn 5.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: 24. mars 1999, kl. 14:00 á sama stað.
gat 26/9
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í
verkið „Fræsun slitlaga 1999“.
Helstu magntölur:
Gróffræsun: 80.000 m2
Fínfræsun: 5.000 m2
Verkinu skal að fullu lokið 1. september 1999
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með 9. mars 1999,
gegn 5.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: 25. mars 1999, kl. 11:00 á sama stað.gat 27/9
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum i
„Kaup á gangstéttarhellum árin 1999 t.o.m. 2001“.
Áætlað heildamagn er um 90.000 hellur sem skiptist þannig í
árlegt magn:
40x40x5 2.000 stk.
40x40x6 28.000 stk.
Fyrsta afhending er 15. maí 1999 og afhendingu skal að fullu
lokið 1. júlí 2001.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með 9. mars 1999,
gegn 5.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: 25. mars 1999, kl. 15:00 á sama stað.
gat 28/9
INNKAUPASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Pósthólf 878 - I2l Reykjavík - Sími 552 5800 Bréfsími 562
2616/561 1120. Netfang: isr@rhus.rvk.is Veffang: www.reykjavik.is/innkaupa-
stofnun - 660169-4079