Dagur - 13.03.1999, Blaðsíða 10

Dagur - 13.03.1999, Blaðsíða 10
24 - LAUGARDAGUR 13. MARS 1999 Þessi mynd er afrakstur samstarfs íslenska dansflokksins og Landsbankans og er úr einni afþeim auglýsingum sem Landsbankinn hefur birt á sinn kostnad. Það virðast einkum vera fjármálastofnanir landsins, bankar og tryggingafyrirtæki, sem hafa með skipulögðum hætti styrkt menningariíf í landinu. Ýmsir viðmæl- endur blaðsins telja að einhvers konar skattaívilnanir til handa fyrirtækjum myndu hvetja þau til að styrkja þennan þátt samfélagsins. Sumir vildu þó fara varlega svo slíkir skattaafslættir veittu ríkinu ekki tækifæri til að lækka önnur framlög til menningarinnar. Lítið væri unnið með því og taldi enginn viðmælenda blaðsins að framlög til menningar ættu að flytjast alfarið afríki og yfir til fyrirtækja. ingimi raoa for. Ríkið græðir á skattaafslætti Ágúst Einarsson þingmaður hefur tvisvar lagt fram frumvarp urn breytingu á skattalögum. Tillögur hans miða að því að hvetja fyrir- tæki til að leggja fé í menn- ingu, vísindi og kvikmynda- gerð og segir hann Samfylk- inguna styðja þessa hug- mynd. Síðari útgáfa frum- varpsins fól ekki í sér hættu á tekjutapi ríkissjóðs um- fram þá sem er í núgildandi lögum. I frumvarpinu er lagt til að fyrirtæki megi tvöfalda upphæð einstakra gjafa og framlaga til menn- ingar, vísinda og kvik- myndagerðar. Þ.e. ef fyrir- tæki gefur 100.000 krónur þá megi það draga 200.000 kr. frá sínum útgjöldum. Ástæðan íyrir því að ríkis- sjóður verður ekki fyrir meira tekjutapi en núgild- andi lög heimila er að slíkar gjafir og framlög mega ekki nema meira en 0,5% af tekj- um og í frumvarpinu er ekki gert ráð fyrir að það hámark verði hækkað. Fjölmörg samtök og stofnanir lista- manna og vísindamanna sendu jákvæðar umsagnir um frumvarpið. Ágúst segir reynslu annarra þjóða benda til að þessi aðferð ör\ri menningarlífið. „Þetta skapar líka tengsl milli at- vinnufyrirtækja og lista. Menn hafa beitt þessu í bæði Ástralíu og Irlandi gagnvart kvikmynda- iðnaði og það leiddi til mikillar uppsveiflu í þeim grein- um. Þetta þýðir aukin umsvif í menningu, vísíndum og kvikmynd- um sem skapar þá aftur skatttekjur fyrir ríkissjóð. Menning er ekki bara falleg og góð og sálarbætandi heldur Iíka efnahagslega mjög mikilvæg." • Valgeir hjá Islenska dansflokkinum telur að ef hugmyndir sem þessar næðu fram að ganga þá myndi það ýta undir sj álfsbj argarviðlei tn i menningarstofnana. • „Þetta væri spor í rétta átt,“ segir Baldvin Trygg^'ason um tillögur Ágústs „en það sem ég held að myndi gagnast best væri að taka upp svipað kerfi og er t.d. í Ástralíu og á Irlandi þar sem höfundarréttur er skattlagður öðruvísi en aðrar tekjur.“ Baldvin bendir á að þegar listaverk hefur verið skapað, s.s. tónverk, leikrit, ritverk, þá sé það notað aftur og áft- ur. „Þú ert búin að byggja hús, færð leigutekjur af húsinu og borgar 10% skatt af þessum leigutekj- um. Með sama hætti ætti t.d. höfundur ekki að þurfa borga nema 10% tekjuskatt af ritverkinu sínu eins og gerist t.d. með Qármagnsskattinn.“ ■ Engar tölur eru til yfir stuðning fyrirtækja við listsköpun og menningu í landinu. Sumir telja hana hafa verið mjög mikla. Aðrir draga það í efa. En hefur fyrirtæki skyldum að gegna í því samfélagi sem það starfar, umfram þær að veita fólki vinnu og búa til peninga? Ber þeim að styrkja menningarlíf- ið? Eða þurfa fyrirtæki kannski, í harðnandi markaðssamfélagi, að bera ásjónu Eistunnand- ans (eða íþróttaáhuga- mannsins) til að mýkja ímynd sína? Ragnar í Smára (1904-84), for- stjóri smjörlíkisgerðarinnar Smára og stofnandi bókaútgáf- unnar Helgafells, er holdgerv- ingur hins Iistelska fram- kvæmdamanns í huga margra Islendinga. Þegar talað er um stuðning fyrirtækja og peninga- manna við menninguna er þeirri athugasemd gjaman skotið inn að þetta sé nú ekki eins og í tíð Ragnars í Smára þegar menn studdu listir af hugsjón. En Ragnar var peningamaður og fara fáar sögur af þvf að hann hafi tapað á viðskiptum sínum við listamenn. Goðsögnin um listamanninn sem varð að kveljast og svelta til að skapa af einhveiju viti og næmi hafði sennilega öllu meiri áhrif á kjör listamanna fyrr á öldinni en í dag. Hver sá sem kastaði bitum í listamann eða greiddi götu hans varð nokkurs konar vinur „litla" mannsins. Einn viðmælandi blaðsins rifjaði það upp að á tímabili hafi Kjar- val leigt sér svefnherbergiskytru og hafi Ieigan verið eitt olíuverk á mánuði - og taldi sá að fáir hefðu goldið svo háa leigu. En leigusalinn var lengi vel talinn mikill velgjörðarmaður Kjarvals og haldið lífinu í Iistamanninum árum saman. Ein skýringin á ljóma Ragnars í menningarsögunni er þessi lífseiga goðsögn sem hefur nú vikið fyrir almennri viðurkenn- ingu á að listamenn þurfa að éta og borga af húsnæðislánum eins og aðrar Islendingar. Einn við- mælandi blaðsins taldi að Ragn- ar hafi gegnt mikilvægu hlut- verki í að, sérstaklega rithöfund- ar, hafi talist eiga rétt á launum fyrir verk sín. En Ragnar tók að greiða sínum helstu og sölu- hæstu höfundum (Halldóri Lax- ness, Þórbergi Þórðarsyni, Tómasi Guðmundssyni og Davíð Stefánssyni) prósentur af sölu bóka þeirra - nokkuð sem aðrir útgefendur sáu ekki alltaf ástæðu til. En ekki allir voru svo heppnir og greiðslurnar gátu verið stopular og Iítt til að stóla á. Þannig kom Ragnar upp- tendraður og himinglaður í heimsókn eitt aðfangadagskvöld til ónefnds Ijóðskálds. Skáldið hafði ekkert fengið greitt fyrir ljóðabók og varð að vonum glað- ur við heimsóknina. Ragnar var vissulega mættur með greiðsl- una sem var að vísu ekki í pen- ingum eins og skáldið hafði von- ast eftir svo hægt væri að kaupa mat ofan í fjölskylduna - nei, út- gefandinn mætti með fangið fullt af hljómplötum! Fjölmargar sögur af þessu tagi eru eflaust til af Ragnari í Smára. Hinu er ekki að leyna, og viðmælendur blaðsins tóku fram, að hann var öflugur tals- maður fagurra lista og töldu sumir að þar hefði hann unnið menningarlífi landsins mest gagn enda var Ragnar þekktur maður í þjóðlífinu og kynning hans á listamönnum og rithöf- undum hefur haft ómetanlegt gildi. En það er einmitt þessi kynning, og auglýsing á bæði fyrirtækjum og listamönnum, sem felst í framlögum fyrirtækja til menningarinnar sem virðist höfuðatriðið í samstarfi fyrir- tækja og listamanna í dag, þ.e. þeirra fyrirtækja sem ákveðið hafa að styrkja listir með skipu- lögðum hætti. Eins og fram- kvæmdastjóri Islenska dans- flokksins segir þá er ekki ama- legt að hafa stuðningsyfirlýsingu frá stærsta banka Iandsins en Landsbankinn hóf nýlega sam- starf við flokkinn. Samningurinn milli Lands- bankans og íslenska dansflokks- ins og annar sem gerður var milli Landssfmans og Listasafns íslands marka nokkur tímamót í samskiptum fyrirtækja og menn- ingargeirans. Samningarnir mið- ast við að báðir aðilar hafi gagn af og þess er gætt að stuðning- urinn sé sýnilegur og opinber. Þessir samningar eiga varla eftir að hafa víðtæk áhrif á kjör Iista- mannanna sjálfra í bili en gætu haft áhrif á hvernig samskiptum fyrirtækja og menningargeirans verður háttað í náinni framtíð og bent til þess að fyrirtæki séu farin að telja sér það til hags- bóta að styrkja menningu lands- ins. Ekki bara til að mýkja upp ímynd fyrirtækisins og sannfæra viðskiptavini um að fyrirtækið hafi áhuga á fleiru en eigin gróða heldur og til að gera lífið á starfssvæði sínu ánægjulegra. Eimskip, ISAL, Samherji, Hagkaup og önnur stórfyrirtæki í landinu hafa smám saman ver- ið að fá á sig föðurlega ímynd sem er náskyld pabbahlutverk- inu sem Ríkið hefur leikið und- anfarna áratugi. En hvernig lítur samfélagsleg samviska fyrirtækj- anna út? Ber stórfyrirtækjum skylda til að styðja menningu samfélagsins (ekki síst í Ijósi þess að fjöldi fyrirtækja í Iand- inu greiða afar lága skatta og sum stærstu fyrirtæki Iandsins hafa engan tekjuskatt greitt árum saman)? Og hvernig hafa fyrirtækin í landinu, sem högn- uðust um 100 milljarða króna á síðustu þremur árum og greiddu þó aðeins 16 milljarða í tekju- skatt (á sama tíma og einstakl- ingar greiddu um 80 milljarða í tekjuskatt), verið að styrkja menninguna? Hverjir njóta Ijár- framlaga frá fyrirtækjunum? Væri það menningunni og efna- hagslífi landsins til hagsbóta að ríkið beitti skattalögum til að hvetja fyrirtæki til að styðja menninguna, eins og Ágúst Ein- arsson þingmaður hefur lagt til, eða eru aðrar Ieiðir betri? Hvað finnst þeim sem málið snertir? Vaxandi áhugi „Það er nú erfitt að tala um skyldur í þessu efni. Ef menn gera þessa hluti ekki af sæmi- Iega eigingjörnum hvötum, þá verður alltaf holur hljómur. Samstarf af þessum toga bless- ast aldrei ef báðir aðilar hafa ekki þá tilfinningu að þeir hafi hag af. Ég held hins vegar að það sé afar æskilegt fyrir mörg fyrirtæki að koma að sem stuðn- ingsaðilar á sviði lista og menn- ingar," segir Þórarinn V. Þórar- insson, stjórnarformaður Lands- símans, sem nýlega veitti Lista-

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.