Dagur - 13.03.1999, Blaðsíða 16

Dagur - 13.03.1999, Blaðsíða 16
32 - LAUGARDAGUR 13. MARS 1999 ly^tr Fluguveiðar að vetri (108) Fiskur étur fisk sem étur flugu Eitthvert mest notaða sagna- minni veiði- manna, sem kunna sögur, er vísun í lífsbar- áttu náttúrunn- ar, áður en til kastanna kemur í sjálfri frásögn- inni. Hversu oft hefur maður ekki heyrt eða lesið sögur þar sem veiðimaður- inn kemur að veiðistað, Iitast kringum sig eins og honum liggi lítið á, reifar í stuttu máli hve vel dagurinn hafi lagst í sig, þeg- ar honum verður litið á eitthvert annað kvikindi sem líka er á veiðum. Það getur verið kría eft- ir síli, fálki með rjúpu, refur eða minkur með unga, bara eitthvað sem setur sögunni fagran ramma og leyfir veiðimanninum að undirbyggja sitt ævintýri vel: „sá ég þar að fleiri myndu að veiðum en ég þann daginn". 40 hornsíli I sumar veiddi ég meðfram bakka sem ég hef oft tekið fisk við. Það kom mér því ekki á óvart þegar ég fékk töku rétt við tærnar, og sá um leið að fískur- inn á færinu var bara dálaglegur 3ja punda urriði. Silfraður og spikfeitur. Hann tók fluguna letilega, færði sig hægt frá landi, gapti og valt á hliðina. Eg kippti honum nær, hann reyndi að rétta sig við, en gapti bara eymingjalega og valt með það sama upp á sandrifið þar sem ég stóð. Þetta var stutt og tilþrifa- minnsta barátta við urriða sem ég hef háð. Fiskurinn var hins vegar feiki- fallegur. Eg ályktaði sem svo að hann hlyti að vera sjúkur úr því hann barðist ekki hetjulega. Akvað að spretta upp á honum kviðnum og kanna hvort nokkuð væri komin upp ormaveiki, iðra- skemmd eða annað sem getur dregið góðan urriða til dauða. Onei. Ut úr honum valt horn- sílakökkur svo megn að ótrúlegt var. Fiskurinn var einfaldlega eins og ég á jólum: gjörsamlega úttroðinn og máttlaus á meltu. Veiðimaður sem ég hitti daginn eftir sagðist hafa talið 40 horn- síli úr kunningja þessa fisks. Eltingaleikur Fyrir framan mig þarna út undir bakkanum stóð sem sagt mikill eltingarleikur stórra fiska við litla. Mjög er það spennandi þegar við veiðimenn verðum hluti af baráttu lífs og dauða - sem þriðja aflið. Hér á ég við það þegar fískurinn sem við erum með á færinu verður óvart fórnarlamb enn stærri fisks, sem sér að nú er færi að næla sér í góða máltíð. Að þessu varð ég vitni eitt sinn í Vatnsdalsá. Veiðileysi var mikið og Iítið að gerast á færinu, þegar allt í einu var glefsað í fluguna; það var lítill ræfill sem hamaðist í vatninu og glampaði á silfraðan kvið þar sem ég kepptist \dð að kippa honum nær og iosa af önglinum. Þegar sá litli átti ófarna eina 2-3 metra að bakkanum skýst þá ekki und- an honum, einmitt þar sem ég stóð, þessi líka svarti og ógn- vænlegi skuggi sem þaut út og ætlaði að grfpa fískinn minn f sinn gráðugua kjaft. Sá stutti rykkti í færið og ætlaði að bruna frá, en stöngin vann á móti svo nú skaust hann nær. Svarti skugginn elti á fullri ferð. Nú þutu þeir um beint fyrir framan mig: sá stutti sem átti í höggi við tvo óvini, og þann verri sem nær honum var, og sá stóri sem vildi ekki fluguna mína, en frekar þennan dauðvona titt. Örvæntingin náði svo sterkum tökum á þeim Iitla að hann brunaði beint undir holbakkann þar sem ég stóð og hinn á eftir. Það fór í hönd feikileg tog- streita, þar sem ég togaði í fisk- inn, en eitthvað togaði mjög á móti, svo að línan fór í furðuleg strik inn undir bakkann og fæt- ur mér. Loks rykkti ég hressilega í og sá stutti þeyttist undan bakkanum, upp í loftið og small niður lengst úti í á. Hafa svo litlir fiskar tæplega komist í jafn svakalega tvöfalda lífshættu - og sloppið úr. Fleiri sagnir I Veiðimanninum, (des. 98) er sagt frá svipuðu atviki, nema nú náði sá stóri dauðataki á þeim litla. Þetta mun hafa gerst í Laxá í Mývatnssveit. Þar stóð mikil glíma veiðimanns við ógn- arstóran físk í heilar 20 mínút- ur. Átökin voru víst heljarleg og mikill íjöldi til vitnis um slag- inn: „Skyndilega sjáum við hvar réttist úr stönginni og upp úr vatninu og upp á bakka skrepp- ur vesæll tittur". Veiðimaðurinn sér þá hvar hann hefur Iandað steindauðum smátitti, alsettum tannaförum. Sá hafði tekið fluguna, en strax á eftir komið annar mun stærri og gleypt þann Iitla. Eftir langan og strangan slag sleppti hann tak- inu og lét þann litla lausan, en synti sjálfur frá. Má nærri geta að veiðimaðurinn hafi verið von- svikinn. Ráðið Hvað gerir maður við svona að- stæður? Fleiri sagnir eru um, og nú er það Dana Lamb, enskur veiðimaður, sem frá skýrir. Dag- urinn byrjaði óveiðilega, en nú var fiskur í augsýn: „Nfu þuml- unga tittur tók fluguna mína og ég djöflaði honum frá hinum bakkanum og út í miðjan straum, en ég gat ekki djöflað honum Iengra, honum varð ekki djöflað. Eitt augnablik varð ég undrandi, en svo gaf hann sig og kom nær, og var innan við tvo metra frá mér. Þá kom æðandi með Iátum á eftir honum úr strauminum svo stór urriði að hann virtist vera fjárhundur. Ógnvænlegasti urriði sem ég hef á ævinni séð, tók fískinn minn í kjaftinn og rauk af stað. Og (ég hef aldrei orðið fyrir neinu s\áp- uðu áður) það var ekkert sem ég gat gert. Svo ég fór og fékk mér bjór og viskí.“ Hvað annað? FLUGUR LMj Stefán Jón Hafstein skrifar KW(í: LAus x—' Æ.TT * Lmi EÁiiil WlSSA HIRB V PUaTlR. HLUTAR tJtT 'OZlbTS v ■ SKibL- Ahl KIN0IH f tf' AHMPS TtfcAfii pms hLu&A h'ATPÍ K 'r* 11111 iliil | Imi HRVOM iLA&Ail 7TWF LIT GLf.ÐI ! 1 AGEtffii 'MW ' J pdioi 6li/WÖI T jom 'ALPMÍ TRóbrA 'ÓTUL Ua- UK • 4. HRZLL- lR ._ EfiJA 5 HRfJHT m R'AlB LLú YTtiíT- uR 4> TbnT 10 • 'MÖF V£HJU H 'om MOAP nto LÆKKI aom 5T1?KK- u« : VOtiO- wte G0RT GRiHD GA ufl BL'A5A ss Wm HV'/li 5 PILID fLftCft PÍL A snm jf m 5TtRK KJMl % V 7KEL 5S5w- _, HmðT- UM 3 oms< mw K^pF LÍTUHS 51 GcTA KÆfíl T KYfc/V- Oý/f W WNA- 6-ftcfiqA mmt • X‘X'X<v/',\v D'A II Y£/Vju K'Am HVAf) p£ þÖKK DÍ66A oRka ft'RSK sw Jwidfc FÆ6A wr AFm GRlP LfílR 'MIiWJL. v. ■ VAM- ItlCill (k'm QF-LT GI5t ue 1MWL MRRÐ R'oTA S' > l M M QLÖCXc uR (? Vör fj/D- ufíu ií ‘ti L h ÖtíOLA MSK- UuH e H'ASA H Krossgáta nr. 128 Lausnarorðið er Nafn Heimilisfang Póstnúmer og staður Helgarkrossgáta 128 I helgarkrossgátunni er gerður skýr greinarmun- ur á grönnum og breiðum sérhljóðum. Lausnar- orð gátunnar á að skrifa á lausnarseðilinn og senda til Dags, Strandgötu 31, 600 Akureyri merktan: Helgarkrossgáta nr. 128. Einnig er hægt að senda símbréf í númer 460 6171. í verðlaun fyrir helgarkrossgátu 128 er bókin „Þeir vörðuðu veginn“ eftir Unni Karlsdóttur og Stefán Þór Sæmundsson. Bókaútgáfan Hólar gefur út. Lausnarorð helgarkrossgátu 126 var „skíða- snjór“. Vinningshafi er Steingrímur Vilhjálms- son, Laufhóli £ Skagafirði og fær senda bókina „Hverjir eru bestir? Gamansögur af íslenskum íþróttamönnum" eftir Guðjón Inga Eiríksson og Jón Hjaltason. Bókaútgáfan Hólar gefur út. Lausnarorð krossgátu nr. 127 verður tilkynnt ásamt nafni vinningshafa þegar helgarkrossgáta nr. 129 birtist.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.