Dagur - 13.03.1999, Síða 18
34 - LAUGARDAGUR 13. MARS 1999
reglumeðlimir," sagði Guðmunuur vigmr.
Frímúrarareglan hleypir ekki bara alls
ekki konum að, heldur er mjög ströng á
innvígslu karla. I atkvæðagreiðslum um
inngöngu nýs reglubróðurs nægir að einn
bróðir sé á móti til að vonbiðillinn sé úti í
kuldanum. I atkvæðagreiðslum eru not-
aðar hvítar og svartar kúlur og er lýðræð-
ið með þeim hætti að allar verða þær að
bera sama Iitinn til að umsókn geti talist
samþykkt.
Frímúrarar mótmæltu því harðlega að
vísað væri í skil^nði um að samkomuhús
yrðu að standa öllum opin og bentu á
vaxandi fjölda undanþága. Sérstaklega
bentu þeir á að undanþegin væru orlofs-
heimili I'aunþegasamtaka, þar sem ekki
yrði talið að um væri að ræða byggingar
reknar til almenningsnota. Þeir nefndu
einnig barnaheimili og væri útlokuð lög-
skýring að leggja fasteignaskatt á barna-
heimili „þó að börn ákveðins hóps manna
hefðu þar ein aðgang“.
Hæstiréttur klofnaði
Frímúrarar sögðu að fasteignin væri fé-
lagsheimili Frímúrarareglunnar, eignin
væri „miðstöð og grundvöllur allrar aðal-
starfsemi hennar og alger forsenda fyrir
sjálfstæðri tilveru hennar". Þótt enginn
ætti heimtingu á inngöngu í regluna og
hún ræki ekki áróður til að afla meðlima,
væri bræðralag manna og mannrækt
grundvallaratriði hjá reglunni.
Sparnaðarnefnd, Gjaldheimtan, borgar-
yfirvöld, yfirfasteignamatsnefnd og borgar-
fógeti féllu ekki fyrir mannræktar- og
bræðralagshugsjónum frímúrara; hinn Iok-
aði félagsskapur útvaldra karlmanna ætti
ekki heimtingu á undanþágu frá fasteigna-
skatti. Málið kom til kasta Hæstaréttar um
svipað leyti og þjóðin öll spurði: Hvað varð
af Geirfinni Einarssyni? Forvitnilegt að
hafa það í huga að á þessum tíma var
æðsti Ieiðtogi frímúrara, stórmeistari regl-
unnar, sjálfur saksóknari ríkisins Valdimar
Stefánsson, sem nýlega var tekinn við
tigninni af Asgeiri Ásgeirssyni forseta. Þá
má nefna að á þessum tíma var borgarlög-
maður frímúrarinn Páll Líndal.
Meirihluti Hæstaréttar, Benedikt Sig-
uijónsson, Einar Arnalds og Logi Einars-
son, dæmdi að Frímúrarahöllin væri ekki
félagsheimili. Minnihlutann mynduðu
þeir Magnús Þ. Torfason og prófessor
Arnljótur Björnsson. Þeir litu til þess að
frímúrarar hefðu lýst því yfir að fasteign-
in væri „eingöngu notuð til funda- og
samkomuhalds fyrir Frímúrararegluna“
og vildu fella lögtakið úr gildi. En meiri-
hlutinn ræður og Frímúrarareglan tapaði.
C'!doijj(jjss/\ j
pBjs|9qBp!8jg b jba pBq '!PJ!JP!1M! pBjS|a|/\| e ppas !pjaq xe|8|/\| Á9|ubjs ps ijjætj bjsbpjs i j6bs jba e60|6uey j 'uossjeujg mAp|eg o j 'n|s/iss9Ujy j ddsjqeuueuieunjH J!pun Bjfeq ||ofjje6u!|J9>| '6 !pj!jn|6is b BUJUJBy sppiujoq BJO[jsepujæAj|uiBjj
b[669aj jbuub ‘uupnpeiu ja uossuuppng jjaqoy '8 jjssAj u!|ps mas P!P|bjjs z jbs9s6o/\ 'g syi9j ssatj nöujuuam jn peAquis eufe pe pepæ mmpijeq jg mnpugi zv bjj suubuj 009 mn jn|9j ppojq |6jaq npuspg je >npj mss jeq ‘mnpjofjjs9/\
9 !j!pe6u!uu9m je pu^mdiAs ejs6 pe J9 jeuuuBpjjBqppfq >jejuu| q ye ejsæu e p||æmjen>|gj!U)su>| eddn epieq je6u|A96u!q nunm jetj us jpjejjssujeAesph J jujeAesgh e pfq !po6e6uiuj9AS9f| J!96joq -1? sspsjon uepjou ‘pjofje6e>is uepjaAue
-jsne pja ofs j jn jn6ua6 mss !pjgq jpq ejjam ZOZ J3 ipjgqjepjpd '£ 'jepjBfjsujeA 6o -jem|e>is !||!m J9 6o p6ua| e 'm>| n Js ‘n|sfejepuejjsepjeg j jn6aA||efj |js6u9| J9 !p!9qeuuem6u!c| 'Z 'snpue|si uoips 'uosb6|9h ba|ps mn oas !P0 m9S JBm|efH
-n|pg jba peq 'i e6u!pj!judoA !6e|9jdne>| (pjAjs jujeuie 6o sueq ije 6o ipjqeujon j ujgn e p9fjss6B|9jdne>| jba ‘sjppnen J!pej ‘uossjppnen Jnmu6sy , '!>|J!A|9A js uossjeug 's !|sjg 6o !S9uej>|v e jnpiwsejeq J9 uossiæsjy uueqpp, ')!9Asn6unj
Ji)!9q mss jbc| ‘!pj!je6e>is! !dd9jqBpBjss6u!)Xq e|me6 wnwq j jg jn>|æ|!mjeA , 'pX9jn>|v b sue|p>|seiuu9|A| uejS!amB|9>|s jba lönjBJB i mss suis eujéu|B jnuosjeuos J9 uosspunmpng jnpjnö^s , nuiN mn jnmneja g;Be| nöuns ubjsjs 6o !AXg ,
JJOrts
I sönnI
DOMSMAL
„Menn geta orðið
meðlimir án tillits
til stjórnmálaskoð-
ana og þjóðernis,
enda er bræðralag
manna eitt af
grundvallaratrið-
um reglunnar svo
og önnur sjónar-
mið, sem stuðli að mannrækt,
bæði þjóðfélagslega og sið-
ferðilega skoðað," sagði
Gunnar J. Möller í máli sem á
yfirborðinu snérist um fast-
eignaskatt, en undir niðri um
eðli Frímúrarareglunnar á ís-
landi.
Árið 1973 ákvaðu borgaryfirvöld og
Gjaldheimtan í Reykjavík að framvegis
skyldi leggja fasteignaskatt á Frímúrara-
höllina við Skúlagötu 53-55, sem þá var
nýlega reist og tekin til notkunar undir
leynilegar samkomur hinnar umdeildu
frímúrarareglu. Þessu undu frímúrarar
ekki.
Þeir höfðu fengið skattinn felldan nið-
ur árið áður - sögðu að fasteignin væri fé-
lagsheimili og þar með undanþegin fast-
eignaskatti. Fannst þeim að þeir ættu að
sleppa við skattinn eins og gilti með önn-
ur félagsheimili og t.d. barnaheimili. En
Gjaldheimtan stóð hörð á sínu frammi
fyrir hinum félagslyndu reglubræðrum og
Þorsteinn Thorarensen borgarfógeti
(tengdafaðir Davíðs Oddssonar) úrskurð-
aði að kröfu Gjaldheimtunnar lögtak til
tryggingar skuldinni í febrúar 1974.
Frímúrarar, með Gunnar J. Möller lög-
fræðing í broddi íylkingar (hann varð síð-
ar stórmeistari frímúrarareglunnar og var
forveri Davíðs Oddssonar í starfi fram-
kvæmdastjóra Sjúkrasamlags Reykjavík-
ur), undu þessu ekki og áfrýjuðu Iögtak-
inu til Hæstaréttar. Borgarfógeti hafði úr-
skurðað um lögtakið á grundvelli þess að
fasteign frímúrara gæti ekki fallið undir
undanþáguákvæði 5. greinar laga frá
1972, þess efnis að undanþegin fast-
eignaskatti væru „félagsheimili og sam-
komuhús, sem ekki eru rekin í ágóða-
skyni.“ Þegar málið kom fyrir Hæstarétt
Stefán og Eyvi. Fyrir tæpum áratug
sungu þeir kumpánar, Stefán Hilmars-
son og Eyjólfur Kristjánsson, saman
lag sem var framlag íslands í
Eurovision. Hvað hét lagið?
Landlæknirinn. Sigurður Guðmunds-
son tók við embætti landlæknis seint á
síðasta ári. Hver er afi hans og alnafni,
landsþekktur skólamaður á fyrri hluta
aldarinnar?
Frímúrarahöllin við Skúlagötu: Félagsheimili áhugamanna um bræðralag og mannrækt eða lokuð mið-
stöð félagsskapar útvaldra karlmanna?
hljóðaði rukkunin uppá um eina milljón
króna að núvirði, með vöxtum.
Jafn opið og barnaheimili!
14. febrúar 1973 ritaði þá nýorðinn borg-
arstjóri Reykjavíkur, Birgir Isleifur Gunn-
arsson, Frímúrarareglunni bréf og til-
kynnti reglubræðrum að framvegis yrði
lagður fasteignaskattur á Skúlagötuhúsið.
Greinargerð fyrir þessari ákvörðun kom
fram í erindi svonefndrar Sparnaðar-
nefndar Reykjavíkur til borgarráðs frá
mánuðinum áður. Frfmúrarar skutu þá
málinu til yfirfasteignamatsnefndar, en
töpuðu; fasteignaskatturinn skyldi greidd-
ur.
Skattyfirvöld voru með sitt á hreinu;
samkomuhús teljast aðeins þau húsa-
kynni sem standi almenningi opin til þess
að njóta þar fræðslu, lista og skemmtunar
og félagsheimili teljast aðeins þau sam-
komuhús, sem reist hafa verið og viður-
kenningu hafa hlotið sem slík. Guð-
mundur Vignir Jósefsson, lögfræðingur
og síðar gjaldheimtustjóri, var ekki í vafa
um að Frímúrarahöllin væri ekki sam-
komuhús í þess orðs eiginlegri merkingu:
„Til þess þyrfti það að vera opið almenn-
ingi, en það er aðeins opið meðlimum
Frímúrarareglunnar og fer því fjarri, að
hver og einn geti fengið inngöngu í þann
félagsskap. T.d. geta konur ekki orðið
í Skagafirði. Herdís Björnsdóttir á
Varmalæk í Skagafirði lokaði verslun
sinni um síðustu áramót eftir áratuga-
langan rekstur. Hvar nákvæmlega í
Skagafirði er Varmilækur?
Á Vesturlandi. Jóhann Ársælsson
náði 1. sæti í prófkjöri Samfylkingar á
Vesturlandi um sl. helgi og Gísli S. Ein-
arsson 2. sæti. Báðir eru þeir iðnaðar-
menn, en í hvaða greinum?
Halldór í pontu. Hver var faðir Hall-
dórs Ásgrímssonar utanrlkisráðherra
og hvar var hann kaupfélagsstjóri og
hver var afi Halldórs, sem einnig stýrði
kaupfélagi - en hvar?
LAND 06
ÞJÓÐ
Sigurður Bogi
Sævarsson
1. Hver orti svo um hvem „Heimspek-
ingur hér kom einn í húsgangsklæðum./
Með gleraugu hann gekk á skíðum./
Gæfuleysið féll að síðum.“?
2. Hvar á iandinu er Þingmannaheiði?
3. Hvar á landinu er Þórðarhöfði?
4. Hvar bjó sá frægi Þorgeir Ljósvetn-
ingagoði sem úrskurðaði fyrir þúsund
ámm að islendingar skyldu kristnir
vera?
5. Þjóðahátíð verður haldin á Vestfjörð-
um um aðra helgi. Hvert er inntak há-
tíðarinnar?
6. í Selvogi í Árnessýslu er nú aðeins
einn bær í byggð, en áður var þar blóm-
leg byggð. Hver er þessi bær, en við
hann er kenndur göldróttur prestur sem
þar sat fyrr á öldum?
7. Hvað heitir ágæt bók um Guðmund
skáld Böðvarsson á Kirkjubóli á Hvítár-
síðu sem Silja Aðalsteinsdóttir skráði
og kom út fyrir fáum árum?
8. Hver var kjörinn stjórnarformaður
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna fyrr í
vikunni og hvaða fyrirtæki stýrir hann?
9. Hvaða sveitarfélagi tilheyra Kerl-
ingarfjöll?
10. Hver af íslendingunum frægu sem
dvöidust í Kaupmannahöfn snemma á
síðustu öld er töluðu þar fyrir frelsi fóst-
urjarðarinnar gaf út blaðið Ármann á
Alþingi?
skrifar