Dagur - 01.04.1999, Blaðsíða 1

Dagur - 01.04.1999, Blaðsíða 1
Polití sk sprengj a á Vestfl ðroiuiiun Sýut þykir að framboð tveggja fyrrveraudi varaþmgmanna Fram- sóknar- og Sjálfstæðis- flokks fyrir Frjáls- lynda ílokkiim hleypi mikilíi hörku í kosn- ingabaráttuna á Vest- fjörðum. Framboð Guðjóns A. Kristjáns- sonar, fyrrverandi varaþing- manns Sjálfstæðisflokksins, og Péturs Bjarnasonar, fyrrverandi varaþingmanns Framsóknar, fyrir Frjálslynda flokkinn á Vestfjörð- um hefur valdið miklum titringi fyrir vestan. Ljóst þykir að fram- boð þeirra, sem nýtur stuðnings Magnúsar Reynis Guðmunds- sonar áhrifamanns í Framsókn- arflokknum, muni höggva skarð í fylgi bæði Framsóknar- og Sjálf- stæðisflokks og að einhverju Ieyti einnig í fylgi Samfylkingarinnar. Hvorki Einar Oddur Kristjánsson sem er í 2. sæti á lista Sjálf- stæðisflokks né Kristinn H. Gunn- arsson í efsta sæti hjá Framsókn eru taldir öruggir um þingsæti. Pétur Bjarnason bauð fram sér í síðustu kosningum og fékk þá rúm 700 at- kvæði, en Framsókn tæp 1100 og einn mann og Sjálfstæð- isflokkurinn tæp 1800 atkvæði og 2 þingmenn. „Það hefur enn ekki reynt á einhverja hörku fyrir vestan vegna þessa framboðs en það hefur aldrei annað staðið til en að taka þátt í þessari kosninga- baráttu af alefli,“ segir Einar Oddur. „Eg held að allir fram- bjóðendur eigi að líta þannig á að það sé ekkert sjálfgefið að þeir nái kosn- ingu,“ sagði hann aðspurður um hvort hann teldi sig í fallhættu. Taka frá ullum ilukkii iii Kristinn H. Gunn- arsson, sem sigraði Magnús Reyni í kosningu innan fulltrúaráðsins um efsta sætið á lista Framsóknarflokksins, mun eiga á brattann að sækja í kosningun- um. Ekki síst vegna þess að á síð- asta kjörtímabili var hann þing- maður Alþýðubandalagsins. Til- finningar framsóknarmanna til hans eru að vonum blendnar. Hann segir ekki gott að ráða í hvaða áhrif framboð Guðjóns og Péturs hafi. „Maður þarf lengri tíma en gefist hefur til að átta sig á því. Eg tel þó að þetta framboð sé meira tengt Sjálfstæðisflokkn- um enda eru þeir báðir, Guðjón og Pétur Bjarnason, að fara frá Sjálfstæðisflokknum í Frjáls- lynda flokkinn. Pétur lýsti yfir stuðningi við Sjálfstæðisflokkinn 1996. Annars er erfitt að spá í þetta,“ segir Kristinn. Skili fylgi Alþýðubandalags, Al- þýðuflokks og Kvennalista sér að stórum hluta til Samfylkingar- innar á Vestfjörðum ætti Sighvat- ur Björgvinsson að vera öruggur um að halda þingsæti sínu en hann segir að Guðjón og Pétur muni taka fylgi frá öllum flokk- um, líka Samfý'Ikingunni. - S.DÓR Guðjón A. Kristjánsson, efstu maður á nýja „sprengilistan- um“. Ketti þarí að merkja Eftir fólskulega árás kattar á lít- inn dreng í vesturbænum í vik- unni hefur heilbrigðisnefnd Reykjavíkurborgar brugðið skjótt við og ákveðið að banna með öllu Iausagöngu katta í borginni nema þeir séu skil- merkilega merktir með þar til gerðum merkiplötum sem fastar eru í hálsól kattanna. Helgi Pét- ursson, formaður nefndarinnar, segir það alvarlegt mál ef borg- aryfirvöld verði skaðabótaskyld gagnvart fórnarlömbum katta eins og útlit er fyrir í tilfellinu sem komst í hámæli í síðustu viku, en samkvæmt heilbrigðis- lögum ber sveitarfélagi að sjá til þess að íbúum stafi ekki hætta af meindýrum. Helgi segir í raun ekki eftir neinu að bíða í þessum efnum og strax eftir páska verði menn settir í að eyða villiköttum sem ekki hafa þessa sérstöku merkingu. Til að gefa fólki kost á að merkja kött- inn sinn strax verður í dag, skfr- dag, hægt að skrá ketti á sér- stakri skráningarstöð sem komið hefur verið upp í Ráðhúsinu. Góða veðrið mun leika við menn um land allt um páskana. Strax í gær voru fjölmargir komnir í páskafríið og þessir skíðamenn voru að sleikja sólina í Hlíðarfjalli síðdegis. Dagur fer nú líka í fríið og kemur ekki út á ný fyrr en miðvikudaginn 7. apríl. Gleðilega páska! - mynd: brink Fjölbreytt efni er í páskablaði Dags. Þjóðskáld eruekki lengur til „Þjóðskáld eru ekki lengur til í þeim skilningi sem lagður var í það orð. Það var svo fjarri því að ég liti á mig sem þjóðskáld að nokkrum sinnum hafnaði ég því algjörlega að yrkja ljóð eftir pöntun," segir Hannes Péturs- son í skemmtilegu viðtali við Kolbrúnu Bergþórsdóttur í helg- arblaði Dags. Þar segir Hannes frá skáldskap sínum og lýsir meðal annars áhrifum kalda stríðsins á það hvernig íslensk ljóðskáld voru metin. „Davíð Stef- ánsson var yndislegur frændi, ljúfur, blíður og einkar barn- Því við börn hans nánustu skyld- menna afar vel og hann var okk- ur kær frændi. Hann var kannski ekki allra, en vini átti hann marga, trausta og góða,“ segir Ragnheiður Stefánsdóttir á Akureyri um frænda sinn - skáldið Davíð Stefánsson - í helgarblaði Dags. „Prestar í faðmi náttúrunnar" nefnist viðtal helgarblaðsins við prestshjónin Gunnlaug Stefáns- son og Sjöfn Jóhannsdóttur, en þau búa á prestssetrinu á Hey- dölum í Breiðdal. Þessu til viðbótar er eitthvað í helgarblaði Dags fyrir alla, svo sem uppskriftir að páskamat að frönskum sið, stór krossgáta, bridgeþrautir, yfirlit um menn- ingarlífið um páskana, ábend- ingar um nýjar bækur um manninn Jesús og svo sérstakur „krakkadagur" fyrir yngstu les- endurna. Gleðilega púska! góður. kynntumst mmmmmmmmm^mmmmmmmmmmmmmmmammmá Afgreiddir samdægurs Venjulegir og demantsskomir trúlofunarhringar GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRi ■ SÍMI 462 3524 wtmowm exPRess EITT NÚMER AÐ MUNA 5351100

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.