Dagur - 09.04.1999, Blaðsíða 3

Dagur - 09.04.1999, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGVR 9. APRÍL 1999 - 3 rDj&ftr- FRETTIR Tólf þúsirnd hafa fj árhagsáhyggjur könnun áður en að þeim, sem báðu um könn- unina, var kynnt niðurstaða hennar. Eg á sæti í fram- kvæmdanefnd um ár aldraðra og það var sú nefnd sem bað um að þessi könnun yrði gerð hjá Gallup. Okkur hefur enn ekki verið kynnt niðurstað- an. Og hér er bara um að ræða tvær spurningar af mörgum sem við báðum um,“ segir Benedikt Davíðsson. „Þetta segir okkur hins vegar að um 4% ellilífeyrisþega hafa neitað sér um þá brýnu nauðsyn að fara til læknis eða kaupa sér nauðsynleg lyfaf fátæktar sökum, “ segir Benedikt Davíðsson. „Ráðherra fékk niöur stöðu skoðanakönn- iLiiar frá Gallup á und- an þeim sem háðu uiii könnunina,“ segir Benedikt Davíðsson. Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigð- is- og tryggingaráðherra, las upp niðurstöður úr óútkominni skoð- anakönnun um hagi aldraðra í ávarpi sínu á alþjóða heilbrigðis- deginum. Síðan hafa fleiri ráð- herrar vitnað í þessa skoðana- könnun þar sem niðurstaðan er sú að 60% hafi það gott og kvarti ekki. Líka að 95% hafi ekki þurft að neita sér um að leita læknis eða að kaupa lyf vegna ijárskorts. Benedikt Davíðsson er formaður Landssambands eldri borgara og hann var inntur álits á þessari niðurstöðu. „Fyrst af öllu vil ég segja það að mér finnst það nú bera svo Iít- ið skringilega að að ráðherra til- kynni niðurstöðu svara við spurningum í tiltekinni skoðana- Púsuiulir með fjárhagsá- hyggjur „En varðandi niðurstöðu þessara tveggja spurninga sem ráðherra las upp er það út af fyrir sig ánægjulegt að 60% af eldri borg- urum hafi það gott og kvarti ekki, en svarið við spurningunni segir okkur líka að 40% hafi fjár- hagslegar áhyggjur. Sá hópur er á milli 11 og 12 þúsund manns. Það má ekki bara Iíta á prósent- una heldur verðum við að líta á fólkið sem standur á bak við töl- una,“ sagði Benedikt. Hann segir að sú niðurstaða að 96% aðspurðra ellilífeyris- þega hafi sagt að þeir hafi ekki þurft að fresta því að leita lækn- is eða neita sér um að kaupa lyf af fátæktar sökum sé líka ánægjuleg. „En þetta segir okkur hins veg- ar að um 4% ellilífeyrisþega hafa neitað sér um þá brýnu nauðsyn að fara til læknis eða kaupa sér nauðsynleg lyf af fátæktar sök- um. Þetta er hvorki meira né minna en um eitt þúsund manns af öllum hópnum. Eitt þúsund manns hér á landi sem hefur orðið að neita sér um að leita Iæknis eða kaupa nauðsynleg lyf. Mér finnst nú að ráðherrar sem eru að hefja kosningaslaginn með svona upphrópunum þurfi að skoða heldur betur í kringum sig,“ segir Benedikt Davíðsson. -S.DÓR Valgerður Sverrisdóttir, alþingismaður. Fimdurtnn fjaUaði elíki umNATO Kröfu Rússa um að aðgerðir Rússa á Balkanskaga verði tekn- ar til umræðu á ráðstefnu þing- manna í Alta í Finnmörku í Nor- egi sem undirbúin er af Norður- Iandaráði og norska þinginu um málefni Barentshafsins, var tek- ið fálega af fulltrúum Norður- Iandanna, og búist við að beiðni varaforseta Dúmunnar, rúss- neska þingsins, Arturs Schiling- arov, um að aðgerðunum yrði mótmælt, yrði hafnað af fundin- um. Valgerður Sverrisdóttir, alþing- ismaður, segir að á fundi nefnd- ar sem fjallar um lokaskjalið hafi kröfu Schilingarov verið hafnað, en hún var fyrst kynnt á fundi forsætisnefndar á miðvikudag. Þessi fundur er upphaf frekara samstarfs á Barentssvæðinu milli þessara þjóða en þar eru fólgnar miklar auðlindir. - GG Deilt um fiskverö Útgerðarfélag Akureyringa hefur sætt gagnrýni vegna þess fiskverðs sem það greiðir sjómönnum sínum. Formaður Sjómanna- félags Eyjafjarðar seg- ir það alveg ótrúlegt að sjómennimir skuli vera gerðir ábyrgir fyrir því að öllu frysti- húsfólkinu verði sagt npp skrifi þeir ekki undir lægra fiskverð. Kjarasamningur sjómanna gildir til 15. febrúar árið 2000 en hann tók gildi með lagasetningu til þess að leysa deilu sjómanna og útgerðarmanna, sem var komin í harðan hnút. I vikunni fyrir páska samdi Útgerðarfélag Akur- eyringa viö áhafnir ísfisktogar- anna Kaldbaks, Harðbaks og Ar- baks um að fiskverð hækkaði um 12% að meðaltali, eða 5 pró- sentustiga Iækkun frá því sem Úrskurðarnefnd hafði ákveðið en hún tilkynnti 17% hækkun frá því sem samþykkt var í samn- ingnum árið 1995 og tekur sú hækkun gildi frá 14. janúar síð- astliðinn. „Fulltrúar áhafna togaranna gengu frá þessu samkomulagi með fyrirvara um samþykki áhafnanna sem nú hefur fengist. Það var snúið upp á hendurnar á sjómönnunum en þeir voru allir teknir á fund eftir að ákvörðun Úrskurðarnefndar lá fyrir og þar lögð fyrir þá alls konar súlurit og kökur af forstjóranum, ljármála- stjóranum og útgerðarstjóranum. Þessi samningur gildir til 14. apríl árið 2000. Það er alveg ótrúlegt að sjómennirnir skuli vera gerðir ábyrgir fyrir því að öllu frystihúsfólkinu verði sagt upp skrifi þeir ekki undir. Það er ljóst að þetta kerfi hefur gengið sér til húðar,“ segir Konráð Al- freðsson, formaður Sjómannafé- lags Eyjaljarðar. Guðbrandur Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri ÚA, segir að það sem formaður Sjómannafélags- ins hafi látið frá sér fara um þetta mál sé ekki í samræmi við það sem þar hafi farið fram. „Það voru engar hótanir af okkar hálfu, Iangt frá því. Það meðal- verð sem við erum að greiða að teknu tilliti til allra tegunda er hærra en gengur og gerist á markaðnum, líka í þorskinum," segir Guðbrandur Sigurðsson. - GG Seirn eitt debetkort á maim Fjöldi debetkorta í lok síðasta árs var kominn upp í 237.950 og fjölgaði um nær 15% á árinu. Með sama áframhaldi fara debetkortin upp í 275 þúsund í lok þessa árs og verða þá sem svarar einu debetkorti á hvern einasta landsmann í gangi. í lok síðasta árs voru 167 þús- und kreditkort í gangi og var aukningin þar „aðeins" 3,4%. Heildarvelta landsmanna með kreditkort jókst milli ára um 12,6%, en heildarveltan með debetkort jókst um 17%. Athygli vekur að heildarvelta tékka drógst ekki saman að ráði á síð- asta ári, eins og raunin hefur ver- ið öll síðustu ár eða frá þ\i korta- notkun var almennt innleidd. Það helst saman við mikla lán- töku og neysluaukningu lands- manna. - FÞG BSO vill byggja nýtt stöðvarhús Stjórn Bifreið- arstöðvar Odd- eyrar á Akureyri hefur sótt um að fá að byggja á lóðinni þar sem BSO er nú, og hafa þar að- albækistöð stöðvarinnar. Sótt er um leyfi til byggingar 2ja hæða stöðv- arhúss, sem yrði um 120 fermetrar að grunnfieti með aðstöðu fyrir verslanir, bens- ínsölu og annan skyldan rekstur. Umsókn BSO var tekín fyrir í bæj- arráði í gær og var lienni vísað til bygginga- og skipulagsnefnda. Samkvæmt skipulagi er gert ráð fyrir að BSO verði á þessum stað og segir Gústaf R. Oddsson, stjórnarmaður á stöðinni og einn þeirra sem undirrita umsóknina, að þeir hafi verið að berjast fyrir þva' í 10 ár að fá að útbúa sér almennilega aðstöðu á þessum stað. Gústaf segir hugmyndina að byggja nýja húsið alveg upp við núverandi stöðvarhús að sunnanverðu, og menn vilji hafa það á tveimur hæð- um til að nýta plássið sem best. Hugmyndin er að byrja á byggingar- framkvæmdum stra\ í haust og reyna að opna nýja húsið stra\ á næsta ári. Að sögn Gústafs er enn ekki búið að hanna húsið en samkvæmt þeirra áætlunum mun kostnaðurinn verða í kringum 20 milljónir. I byggingunni á að vera mikið af poliestergleri þannig að hún vdrðist opnari. Fyrsti sendiherraiui í Finn- landi Komelíus Sigmundsson sendiherra afhenti í gær Martti Ahtisaari forseta Finnlands trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Islands í Finnlandi. Kornelíus er fyrstí sendiherra Islands í Finnlandi sem fast aðsetur hefur þar í landi. Sigmundsson. Kornelíus BSO á Akureyri. Nýja húsið á að rísa fast við gamla húsið að sunnanverðu. nno- .Li.'irn i;<. I t •i <• ( 'T I 'í‘í'1 ftttí St? i » í^'f / tí>ifjrta r

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.