Dagur - 09.04.1999, Blaðsíða 1

Dagur - 09.04.1999, Blaðsíða 1
 82. og 83. árgangur - 66. tölublað Verð ílausasölu 150 kr. Það voru glaðir en þreyttir flóttamenn sem komu til landsins á níunda tímanum í gærkvöld frá Kosovo. Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra sagði meðal annars að fólkið mætti dveija á íslandi eins lengi og það kysi og vakti sú yfiríýsing fögnuð meðal flóttamannanna. mynd: hilli Tiittugu fyrstii fldtta- meunimir frá Kosovo komu í gærkvöld. Þörf á flóttamaiuia- búðum fyrir um 100 manns. Akureyri hef- ur boðið Skjaldarvík. Eiðaskóli líka nefnd- ur. „Við eigum von á 80 flóttamönn- um til viðbótar og við þurfum í raun og veru að koma upp flótta- mannabúðum í nokkrar vikur," segir Arni Gunnarsson formaður Flóttamannaráðs. Akureyri býður Skjaldarvík Engin ákvörðun hefur verið tekin um hvar þessar flóttamannabúð- ir verða staðsettar á landinu né heldur hvenær 80 flóttamenn frá Kosovo koma til landsins til við- bótar við þá rúmlega 20 sem komu í gærkvöld með flugvél Landhelgisgæslunnar. Arni Gunnarsson telur þó að koma þeirra geti orðið alveg á næstu vikum. Hann segir nokkra staði koma til greina sem flóttamanna- búðir og m.a. hefur Akureyri boðið fram húsnæðið í Skjaldar- vík. Auk þess hefur Eiðaskóli einnig verið nefndur, Reykjaskóli í Hrútafirði og raunar fleiri stað- ir. Hann segir að hugmyndin sé að allir flóttamennirnir sem koma hingað til lands frá Kosovo búi í þessum flóttamannabúðum um einhvern tíma, eða jafnvel allt að tveimur mánuðum. Skammtímadvöl Þessi tími verður m.a. notaður til að huga að líkamlegu ástandi fólksins, veita því áfallahjálp og hjálpa því að vinna úr þeim áföll- um sem það hefur orðið fyrir eft- ir þær raunir og hörmungar sem það hefur mátt þola síðustu daga og vikur. Þá hefur þetta fólk misst allar eigur sínar i stríðinu. Árni telur að eftir þennan tíma geti fólkið farið að ákveða hvað það vilji fara að gera. Hann bendir þó á að dvöl fólksins á landinu sé hugsuð sem skamm- tímadvöl. Það fer hinsvegar alfar- ið eftir ástandinu þar ytra hvað sá tími muni verða langur. Við- búið sé að einhverjir af þessum 100 flóttamönnum og jafnvel stór hluti þeirra muni óska eftir að dvelja hér á landi til framtíðar. önnur staða Formaður flóttamannaráðs minnir á að staða þessara flótta- manna sé sýnu öðruvísi en þeirra sem áður hafa komið til landsins frá Balkanskaga. Sá munur felst fyrst og fremst í því að fólkið frá Kosovo kemur nánast beint af vettvangi stríðsins, öndvert við hina sem höfðu dvalið í mislang- an tíma í flóttamannabúðum áður en þeir komu hingað. Þetta gerir það að verkum að fyrsta stig aðstoðar sem áður var fram- kvæmt í flóttamannabúðum ytra verður í verkahring þeirra inn- Iendra aðila sem taka á móti flóttafólkinu og annast það til að byrja með. Tvær vikur á gistikeimili 20 fyrstu flóttamennirnir frá Kosovo komu til landsins í gær- kvöldi með Fokkerflugvél Land- helgisgæslunnar. I þessum hóp eru íjórar Ijölskyldur, eða fimm karlmenn, fimm konur, tíu börn og þrír unglingar. Vegna veikinda urðu mæðgur eftir á grísku eyj- unni Korfu. Búist er við þvi að þær muni koma til landsins á næstu dögum. Flóttafólkið mun fyrst um sinn hafa aðsetur í gisti- heimili Guðmundar Jónassonar í Borgartúni. Ekki sé gert ráð fyrir því að það dvelji þar lengur en í tvær vikur. Eftir það verður því komið fyrir í flóttamannabúðum. - GRH AuMð eftírllt nauðsynlegt Nauðsynlegt er að fylgja samn- ingum sem Akureyrarbær hefur gert \ið Iþróttafélagið Þór og Leikfélag Akureyrar um fjár- hagsaðstoð og byggingarsamn- ingum við KA, Þór, Golfklúbb Akureyrar og Skautafélag Akur- eyrar eftir með því eftirliti sem í þeim samningum er boðað. Þetta er meðal þess sem fram kemur í greinargerð frá KPMG Endurskoðun Akureyri hf. með endurskoðuðum ársreikningi bæjarins. Þá er einnig bent á að auka mætti eftirlit með því að þeir sem fá styrki til ákveðinna verkefna verji styrkjunum raun- verulega til þeirra verkefna. - hi Ólafur Ólafsson. Nefndin hélt bara einn fund „Við erum samhljóma f þessu máli, ég og forseti íslands. Eg er mjög ánægður með að hann skyldi taka málið upp og sýna því eins djúpan skilning og fram kom í ræðu hans,“ sagði Olafur Ólafsson, fyrrverandi landlækn- ir og núverandi formaður Sam- taka aldraðra í Reykjavík, um gagnrýni forseta Islands á þann þrönga bás sem öldruðum er skipað á hér á landi. „Fyrir níu árum síðan lagði ég, sem landlæknir, fram tillögu um sveigjanlegan starfsaldur. Sú til- laga fór fyrir Alþingi og þingið samþykkti þingsályktunartil- lögu, sem borin var fram af þingmönnum allra flokka um að þetta yrði tekið til athugunar. Síðan var skipuð nefnd í málið. Nefndin hélt einn fund og síðan ekki söguna meir. Sögulok,“ hélt Ólafur áfram. ítarleg umfjöllun um ræðufor- seta Islands og viðbrögð við henni er ú bls. 8-9. Afgreiddir samdægurs 1 QA Venjulegir og gw demantsskomir trúlofunarhringar /"V. GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI ■ SÍMI 462 3524 WORU3W/DE EXPRESS “ EITT NÚMER AÐ MUNA 5351100

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.