Dagur - 09.04.1999, Qupperneq 6
22 - FÖSTUDAGVR 9. APRÍL 1999
Dwptr
Súkkat í Kaffileikhúsinu
Dúettinn í Súkkat heldur ærlega
söngskemmtun í Kaffileikhúsinu
annað kvöld ásamt stórsveit
sinni. Skemmtunin hefst kl. 21
með gömlu og nýju Súkkat-efni
en auk þess taka þeir gamla
slagara með sínum sérstaka
súkkatíska hætti. Súkkatmenn
eru að venju þeir Hafþór Ólafs-
son og Gunnar Örn Jónsson en
stórsveitina skipa Birgir Braga-
son á kontrabassa, Jens Hans-
son hljómborðs- og saxófónleik-
ari og Gunnar Erlingsson slag-
verksleikari. Miðaverð er 1200
kr.
Travolta í Háskólabíói
Um helgina
frumsýnir Há-
skólabíó mynd-
ina Málsókn (A
Civil Action) með
John Travolta,
upprisna kvik-
myndagoðinu,
og Robert Duvall
sem var raunar
tilnefndur til Ósk-
arsverðlauna fyrir
leik sinn í myndinni (en hún var valin besta mynd ársins af gagnrýn-
anda CNN). I Málsókn, sem byggð er á sannri sögu, segir frá fégráð-
ugum lögfræðingi er tekur að sér að krefjast skaðabóta fyrir þrenna
foreldra er misst hafa börn sín vegna mengunar í vatnsbóli bæjarins.
■ HVAfl ER Á SEYÐI?
Samfylking-
in í beinni
Samfylkingin opnaði fyrir
skömmu heimasíðu
(www.samfylking.is) og
verður bein útsending
þar frá Kosningahátíð
fylkingarinnar, sem haldin
verður í Háskólabíói á
morgun. Hátíðin hefst
kl. 14. Kynntirverða
frambjóðendur úr öllum
kjördæmum, Margrét
Frímannsdóttir talsmaður ávarpar gesti en meðal skemmtiatriða eru
Guðmundur Andri Thorsson sem flytur pistil og Polkasveitin Hringir
og Magga Stína. Sérstök barnadagskrá verður í anddyri, þar les
m.a. Össur Skarphéðinsson sögur fyrir börnin.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Leðurblakan
Operettan Ledurblakan eftir Jóhann
Strauss verður frumsýnd í lslensku
Operunni 16. apríl nk. Leðurblakan,
sem var fyrst frumsýnd í Vín árið
1874, telst til þekktustu og vinsælustu
Vínaróperetta. Þokkafullir valsar,
ögrandi sígaunatónlist og siðlaus saga
Leðurblökunnar þóttu mikil djörfung á
sínum tíma og verður verkið heimfært
upp á samtímann og þar með sett í
nýjan og spennandi búning. Sögusvið-
ið verður flutt í tíma og rúmi til
Reykjavíkur samtímans og spannar
einn dag í lífi borgarbúa sem lifa bæði
hratt og hátt. Miðpunktur sögunnar er
veisla í boði Rússans Orlofskis. Þangað
vilja allir komast og mæta útvaldir full-
trúar þotuliðs landsins og Islandsvinir í
samkvæmið - en enginn hefur upplifað
annað eins! Persónurnar í verkinu
flækjast í margfaldan lygavef, enda lát-
ast allir vera annað en þeir eru og eru
margfaldir í roðinu. Aður en yfir lýkur
eru flækjurnar þó leystar eins og vera
ber. Stuðst er við þýðingu Böðvars
Guðmundssonar á texta Haffner og
Genée sem byggður er á gamanleik
Meilhac og Halévy, Le Réveillon. Og
eins og í sönnum gamanleik vita áhorf-
endur alltaf aðeins meira en persón-
urnar á sviðinu - en þó kemur ýmislegt
á óvart! Leikstjóri uppfærslunnar er
David Freeman, heimskunnur leikhús-
og óperumaður og þekktur fyrir opin-
skáar og ekta uppfærslur.
Sellótónleikar í Salnum
Sigurður Halldórsson sellóleikari held-
ur tónleika í Salnum, sunnudags-
kvöldið 11. apríl 1999 kl. 20:30. Tón-
Ieikarnir eru fyrstu einleikstónleikar af
nokkrum sem félagar í CAPUT tónlist-
arhópnum standa íyrir á þessu ári, þar
sem merkum verkum frá þessari öld
verður gert hátt undir höfði. A efnis-
skrá Sigurðar verða verk eftir Zoltán
Kodály, Alfred Schnittke, Hans Abra-
hamsen, Svein L. Björnsson og Hafliða
Hallgrímsson.
Kaffíleikhúsið
Dúettinn Súkkat heldur tónleika í
Kaffileikhúsinu laugardaginn 10. apríl
kl. 21. Súkkatmenn eru þeir Hafþór
Ólafsson og Gunnar Örn Jónsson.
Gamlir og nýir slagarar verða á dag-
skránni og er miðaverð kr. 1200.
Kosningahátíð í Háskólabíói
Samfylkingin boðar til Kosningahátíð-
ar í Háskólabíói Laugardaginn 10.
apríl kl. 14:00. Kosningahátíðin mark-
ar upphaf formlegar kosningabaráttu
Samfylkingarinnar, sem mun á næstu
vikum kynna stefnu sína og nýja lífs-
sýn í upphafi nýrrar aldar á vinnu-
staðafundum, í fjölmiðlum, á heima-
síðu sinni, með útgáfu bæklinga og á
almenum stjórnmálafundum. A Kosn-
ingahátíðinni verða frambjóðendur
Samfylkingarinnar úr öllum kjördæm-
um kynntir, fjöldi Iandsþekktra Iista-
manna kemur fram og Margrét Frí-
mannsdóttir, talsmaður Samfylkingar-
innar, ávarpar hátíðargesti. Kynnar á
hátíðinni verða Ragnar Kjartansson,
myndlistarnemi og verslunarmaður, og
Eva Ósk Ólafsdóttir leikkona.
Gítartónleikar í Laugarneskirkju
Gítarleikarinn Kristinn H. Arnason
heldur tónleika í Laugarneskirkju Iaug-
ardaginn 10. apríl kl. 17.00. Á efnis-
skránni er m.a. verk eftir Sor, Bach,
Jón Ásgeirsson, Turina og Albeniz.
Kristinn hefur haldið tónleika víða um
land undanfarið og fengið mjög góðar
undirtektir.
Hitt Húsið
Síðdegistónleikar Hins Hússins og
Rásar 2 falla niður í dag vegna
söngvakeppni framhaldsskólanna.
Listaklúbbur Leikhúskjallarans
Mánudaginn 12. apríl verður boðið til
sérstæðrar dagskrár í Listaldúbbnum.
Gestum klúbbsins er boðið á umhverf-
isvænan listviðburð sem hlotið hefur
yfirskriftina: Þar sem hjartað slær!
hjartasögur af hálendinu og meðal
þeirra sem segja sögur eru: Elísabet
Jökulsdóttir, skáld, Harpa Árnadóttir,
leikkona, Haraldur Jónsson, myndlist-
armaður og Andri Snær Magnússon,
skáld. Dagskráin hefst kl. 20.30 en
húsið er opnað kl. 19.30. Aðgangseyrir
er kr. 800.
Síðasta sýning á Hafrúnu
Sunnudaginn 11. apríl verður síðasta
sýning á leikritinu Hafrúnu í Mögu-
leikhúsinu við Hlemm. Leiksýningin er
unnin af Ieikhópnum upp úr þremur
íslenskum þjóðsögum sem allar tengj-
ast hafinu. Sýningin hefst kl. 17.00.
Gangurinn
Jimm Butler, bandarískur listamaður
opnar sýningu sína í Gallerí Gangin-
um, Rekagrand 8 kl. 17.00 sunnudag-
inn 11. apríl. Á sýningunni eru mál-
verk og vatnslitamyndir sem sækja
uppruna sinn í raunsæishefðina í mál-
aralistinni. Myndirnar eru einskonar
uppstillingar í hefðbundinni merkingu,
en vegna vals og ásigkomulags hlut-
anna fá þær nýja merkingu. Sýningin
mun standa fram eftir sumri.
Nýlistasafhið
Laugardaginn 10. apríl kl. 16.00 verð-
ur opnuð samsýning átta myndlistar-
manna frá Glasgow í Nýlistasafninu,
Vatnsstíg 3b. Sýningin ber heitið: // /
ruled the world. Sýningarnar eru opnar
daglega frá kl. 14.00-18.00 og þeim
líkur 2. maí.
Gallerí Fold
Laugardaginn 10. apríl kl. 15.00 opnar
Einar G. Baldvinsson sýningu á olíu-
málverkum í baksal Gallerís Foldar,
Rauðarárstíg 14.
Einar G. Baldvinsson er fæddur í
Reykjavík 8. desember 1919. Hann
stundaði nám í Handfða- og myndlist-
arskólanum árin 1942-45 og í Kunst-
akademien í Kaupmannahöfn árin
1946-50. Einar hefur haldið margar
einkasýningar og tekið þátt í samsýn-
ingum hérlendis og erlendis. Verk hans
eru í eigu helstu safna hérlendis. Gall-
erí Fold er opið daglega frá kl. 10.00
til 18.00, laugardaga frá kl. 10.00 til
17.00 og sunnudaga frá kl. 14.00 til
17.00. Sýningunni lýkur sunnudaginn
25. apríl.
Húnvetningafélagið
Félagsvist í Húnabúð, Skeifunni 11,
laugardag kl. 13.00. Allir velkomnir.
Hádegisfundur á Sögu
Landsnefnd Alþjóðaverslunarráðsins
stendur fyrir hádegisverðarfundi á
Hótel Sögu, kl. 12.00 föstudaginn 9.
apríl. Fundarefni Rússland og Austur-
Evrópa. Framsögumenn Ágúst Þór
Jónsson, ráðgjafaverkfræðingur og Pet-
er Lowe, framkvæmdastjóri ICC
Commercial Crimes Services.
2000 lausnin: Menntun
Stefnuþing Menntar samstarfsvett-
vangs atvinnulífs og skóla verður hald-
ið á Hótel Sögu þann 12. apríl kl. 9
undir yfirskriftinni 2000 lausnin:
Menntun. Á þinginu mun Björn
Bjarnason, menntamálaráðherra halda
erindi um stöðu menntamála og full-
trúar stjórnmálaflokkanna munu ræða
stöðu og framtíð grunn- og símenntun-
armála fyrir atvinnulífið á lslandi.
Fundur um gagnagrunnsmálið
Mannvernd stendur íyrir fundi í Há-
skólabíói laugardaginn 10. apríl kl.
14.00. Allir velkomir meðan húsrúm
leyfir. Simon Mawer, heimsþekktur rit-
höfundur mun ræða m.a. um gagna-
grunnsmálið.
Rauða smiðjan og
gagnagrunnurinn
Rauða smiðjan - jafnrétti til lífs heldur
fund nk. laugardag í kosningamiðstöð-
inni að Suðurgötu 7. Fundurinn hefst
kl. 10. Fundarefni er miðlægur gagna-
grunnur á heilbrigðissviði. Framsögu-
menn verða Birna Þórðardóttir blaða-
maður sem ræðir lögin um miðlægan
gagnagrunn og réttindi sjúklinga og
Skúli Sigurðsson vísindasagnfræðingur
sem greinir frá þeirri umræðu sem átt
hefur sér stað erlendis um gagna-
grunninn meðal lærðra sem leikra; er-
lendra sem íslenskra vísinda- og fræði-
manna. Að loknum framsögum verða
umræður. Allir eru velkomnir.
Kjöt og flesk
Hökkuð hrossabjúgu kr. 449/kg
Hrossasaltkjöt, valið kr. 289/kg