Dagur - 09.04.1999, Blaðsíða 11

Dagur - 09.04.1999, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 9 . APRÍL 199 9 - 27 T^wr LÍFIÐ í LANDINU VEÐUR FOLKSINS Athugasemd vegna skrifa rnn stöðu Islenska safnaðarins í Noregi ÞÓRHALLUR GUÐMUNDSSON FORMAÐUR STJÓRNAR ÍSLENSKA SAFNAÐARINS í NOREGI 1996-97 SKRIFAR Undirritaður vil með þessu biðja um að fá að koma með athuga- semd í sambandi við grein sem birt var hér í blaðinu þann 24.03.99 um stjórnarskipti í Is- lenska söfnuðinum í Osló vegna hlutlægni blaðamanns í málinu og rangri frásögn á fleiri máls- atriðum. Það er ekki rétt að í viðtali tið mig hafi ég sagt að „ekkert Iát væri á illdeilum innan safnaðar- ins“. Hið sanna er að vitnað var í mig í grein í DV þann 21.03.99, þar sem ég harmaði að ekki hefði náðst að jafna deil- ur. Það eru ekki opnar illdeilur innan safnaðarins, heldur er málið að kirkjusókn hefur minnkað stórlega eftir að klofn- ingur átti sér stað á aðalfundi safnaðarins 15. mars 1998. Tóm kirkjusæti eru til marks um það að íslendingar halda sig frá íslenska söfnuðinum vegna þess ósamkomulags sem þar hefur ríkt og að mínu áliti einnig vegna óánægju með þátt prestsins í þessu ósamkomulagi. Blaðamaður Dags í Osló, Guðni Olversson, gerir sitt besta í grein sinni til að Iáta líta út fyr- ir að að það sé ég sem beri alla sök á ósamkomulaginu £ ís- lenska söfnuðinum. Þetta er að mínu viti rangt. Það er rétt að ég hef ekki verið að öllu leyti sáttur við störf Séra Sigrúnar hér í Osló en ég var reiðubúinn að vinna með henni. Að mínu áliti var það ekki síður óbilgirni hennar og einkum misviturra ráðgjafa hennar sem er orsökin fyrir því ósamkomulagi sem ríkt hefur. I greininni er margt rang- hermt. Undirritaður \dll með þessu leyfa sér að benda á tvö atriði: Gildi kæru til fylkismannsins (sýslumannsembættið) í Osló. Meirihluti þeirrar stjórnar sem sat fram til 15.03.98 kærði aðal- fund 15.03.99 til fylkismannsins í Ósló. Sáttir náðust milli aðila um nýja stjórn sem héldi uppi safnaðarstarfi og héldi nýjan að- alfund. Þó að kæran hefði verið dregin til baka, þá lagði einnig fylkismaðurinn í Ósló til að haldinn yrði nýr aðalfundur þar sem aðalfundurinn hafði verið ólöglegur að mati embættisins. Það er því rangt að „Fylkismað- ur gat ekld teldð afstöðu í mál- inu vegna þess að lög safnaðar- ins voru svo ófullkomin að ekki var hægt að fara eftir þeim". Ráðning á presti. Þremur prestum var boðið til viðtals og var séra Sigrún Óskarsdóttir ráðin af stjórn safnaðarins ein- róma eftir að enginn einn af umsækjendum fékk meirihluta innan stjórnarinnar. Það er ranghermt að: ...söfnuðurinn valdi sér prest þvert gegn vilja þáverandi formanns safnaðar- stjórnar, Þórhalls Guðmunds- sonar, og að það hafi komið til kosninga kom milli Arnar Bárðar og Sigrúnar Óskarsdóttur. Eftir að Dagur hefur birt grein Guðna Ölverssonar þar sem fag- legri vinnslu og málsmeðferð blaðamannsins er mjög ábóta- vant sem ber vott um þekking- arleysi og slælega gagnasöfnun, leyfir undirritaður sér að spyija ritstjóra blaðsins og lesendur hvort svona grein sé blaðinu til sóma. Athugasemd bluðamanns I fyrsta lagi er ekki við blaða- mann Dags að sakast þó DV hafi eftir Þórhalli Guðmunds- syni, rétti- eða ranglega, að ill- deilur séu í íslenska söfnuðinum í Ósló. Það er staðreynd að fylkis- maðurinn í Ósló treysti sér ekki til að taka afstöðu til kæru Þór- halls og fylgismanna hans þegar þeir kærðu aðalfundinn þar sem vantrausti var lýst á safnaðar- stjórn hans. Hvort fylkismaður hefur sagt Þórhalli, eftir á, að sennilega hafi fundurinn verið ólöglegur kemur þessu máli ekk- ert við. Astæða þess að ekki kom til kosninga milli séra Arnar Bárðar Jónsonar og Sigrúnar Óskars- dóttur var sú að mildll meiri- hluti safnaðarins hafði gert stjórninni ljóst að hann vildi Sigrúnu sem prest vegna starfa hennar í söfnuðinum með séra Jóni Dalbú Hróbjartssyni. I safnaðarstjórn var Þórhallur á móti Sigrúnu þó svo að stjórnin hafi á endanum sameinast um ráðningu hennar. Þórhallur Guðmundsson sak- ar mig um óvönduð vinnubrögð og að ég hafi verið „hlutlægur" í mínum skrifum. Það er einmitt það sem ég vil vera, hlutlægur en alls ekki hlutdrægur. Þórhall- ur segir að ég geri mitt besta til að láta Iíta út sem hann beri alla sök á ósamkomulaginu í ís- Ienska sölnuðinum. Það gera viðmælendur mfnir. M.a. fólk sem sat með honum í stjórn. Þegar ég vann grein mína tal- aði ég við sautján manns af báð- um kynjum. Þar með er talinn Þórhallur Guðmundsson. Þór- hallur taldi reyndar að blaða- maður hefði ekki talað við rétta fólkið og benti á tvær konur, á aðalfundinum, sem hann vildi að ég talaði við. Eg nafngreini fjóra einstaklinga í grein minni, þar sem ég reyndi að gera báð- um „skoðana hópum“ jafn hátt undir höfði. Bæði Þórhallur og Asgeir Bragason, sem sat með honum í stjórn, fengu tækifæri til að segja skoðanir sínar. Asgeir notfærði sér það en Þórhallur ekki þó hann væri margbeðinn um að skýra frá því hveija hann teldi orsök meintra illdeilna og hvað hann teldi athugavert við störf séra Sigrúnar. Þórhallur Guðmundsson valdi hinsvegar að slá sig til riddara með því að „berjast" fyrir skoð- unum annarra. Það er oft auð- veldara en að standa við sínar eigin skoðanir, ef einhverjar eru. GÞÖ Veðrið í dag... Norðaustanstinnmgskaldi norðvestantil, norðvestankaldi norðaustanlands en suðvestan- og vestankaldi sunnan til. Slydduél. Frost 1 til 5 stig norðantil en hiti 1 til 4 stig um landið sunnanvert. Blönduós Akureyri (C) mrr » . - -10 -5 -o 5- o- -5- -10- B Fhn Fös Lau Mlð j Flm Fös Þrt Mið (tv v / r s-v Egiisstaðir Bolunaarvík C) mrr r 15 2) mm -I 1 “-v"—“n—— J-rl*‘ ■-1 -10 ! ; o- ‘5 í -s- ho i-10i 11 Mán Þri Mið Fim Fös JJJ Stykkishólmur °C} miT l15 ! 101 2) mm ; ; - -10 5- ' 1 1 ■ ! -5 j 0- -0 -5- ■ ■■ „ I Fim Fös JJ ^ ffí Þri Miö Fim Föa VEÐURSTOFA ffe’ ÍSLANDS Veðurspárit \\ { Þri Miö 08.04.1999 Línurit: Lofthiti, spágildi fyrir miðnætti og hádegi. Súlurit: Úrkoma, uppsöfnuð i 12 klst. Vindörvar: Vindur blæs inn að punkti. Vindhraði er táknaður með skástrikum; heilt strik táknar 5 m/s en hálft 2.5 m/s. Þríhyrningur táknar 25 m/s. k Dæmi: • táknar norðvestanátt, 7.5 m/s. Afmæli Svartra íjaöra Af því að rétt skal vera rétt langar mig að leiðrétta það sem segir í inn- iendri fréttaklausu í Degi 31. mars að í lok mars væru liðin átta- tiu ár síðan Svartar fjaðrir, fyrsta bók Davíðs Stefánssonar, kom út. Tilefnið er að Erlingur Sigurðarson flutti ljóðin f bókinni í Davíðshúsi á Akureyri í dymbilvikunni. I rauninni mætti endurtaka þann afmælislestur síðar, því að full- víst er að bókin kom út seint á árinu 1919. - Um þetta leyti fyrir áttatíu árum var Davíð ekki að gefa út bók heldur að búa sig undir stúdentspróf sem hann lauk vorið 1919. Um sumarið er hann heima í Fagraskógi, kemur suður um haustið, sennilega nokkuð seint, og setur handritið í prentsmiðju. Hann innritar sig í Háskólann 11. nóvember, á af- mælisdegi Matthíasar Jochums- sonar, sem hefur verið talið táknrænn fyrirboði. Svartar fjaðrir koma ekki út fyrr en í desember, „rétt fyrir jólin,“ seg- ir í einum ritdómi, og fyrsti dómurinn birtist í Morgunblað- inu á Þorláksmessu. Þetta var svolítil ábending að gefnu tilefni. En vel sé Erlingi Sigurðarsyni fyrir að minnast Svartra fjaðra. Færð á vegum í gærkvöld voru allir helstu þjóðvegir landsins eru færir. Víða er farið að bera á aurbleytu, af þeim sökum eru þungatakmarkanir víða á veguni landsins.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.