Dagur - 09.04.1999, Qupperneq 8
24- FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 1999
Kristinn i Laugarneskirkju
Gítarleikarinn Kristinn H.
Árnason heldur áfram tón-
leikahaldi sínu en nú verður
hann með tónleika í Laugar-
neskirkju á morgun kl. 17.
Þar verður sama efnisskrá
og á tónleikum hans í Saln-
um í Kópavogi um síðustu
helgi, þ.e. verk eftir Sor,
Bach, Jón Ásgeirsson, Tur-
ina og Albeniz. í næstu viku
leggur Kristinn land undir
fót og leikur á tónleikum á
Norðuriöndum og f
Hollandi.
■ Á DAGSKRÁNIUI
_______________SJX&.
i'j 5r
Töfraflautan kynnt
Óperustúdtó Austurlands stefnir að
því að setja upp Töfraflautu Moz-
arts í júní. Hér er um viðamikla og
kostnaðarsama uppfærsiu að ræða
og nú um helgina munu nokkrir af
aðstandendum sýningarinnar
leggja í söngferðalag um Austur-
land, bæði til að kynna sig,
Töfraflautuna og afla fjár í fyrirtæk-
ið.
Söngdagskráin verður fyrst flutt í
Hafnarkirkju á Hornafirði í kvöld kl.
20.00. Á morgun verða tvennir
tónleikar fyrst f Djúpavogskirkju kl.
14.00, síðan í Stöðvarfjarðarkirkju kl. 18.00. Á sunnudag syngur hóp-
urinn í Valhöll, Eskifirði kl.14.00 og lýkur þessari tónleikaferð með tón-
leikum í Egilsstaðakirkju kl. 18.00.
Málverk Matthías-
ar Sigfússonar
I Byggðasafni Árnesinga stendur
riúyfir sýning á málverkum eftir
Matthías Sigfusson. Sýningin ber
beitið „Sýning á sarna sjónarhorninu
í fortíð og nútíð". Á sýningunni í
Byggðasafni Árnesinga í Húsinu á Eyrarbakka
eru valin verk sem kalla má bæjarmyndir Matthíasar en hann var oft
fenginn til að mála myndir af sveitabænum, ýmist þeim gamla niður-
rifna eftir gömlum Ijósmyndum eða þáfrá staðnum.
Sýningin verður opin til 16. maí og er safnið opið á laugardögum og
sunnudögum kl. 14-17. Á öðrum tímum er hægt að skoða safnið eftir
samkomulagi við safnvörð, sem er í síma 483 1504. Þá má einnig
finna nánari upplýsingar um safnið á Netinu. Slóðin er:
www.south.is/husid/
Stöö 2 -
föstudagur
kl. 22.45:
Eldgos í
Los Angeles.
Stöð 2 sýnir
bandarísku bíómyndina Eldfjall-
ið, eða Volcano, frá 1997. Hér
er á ferðinni þriggja stjarna stór-
slysamynd sem gerist í Los Ang-
eles. Líf borgarbúa gengur sinn
vanagang en undir sléttu yfir-
borðinu kraumar eldur. Eftir
harðan jarðskjálfta byrja eitur-
gufur að stfga upp úr jörðinni og
yfirmanni almannavarna f borg-
inni er tjáð að hugsanlega sé
eldgos yfirvofandi. Hann tekur
slíkum véfréttum með jafnaðar-
geði en skyndilega brýst mikill
hraunmassi fram og voðinn er
vís. I helstu hlutv^rkum eru
Tommy Lee Jones, Anne Heche
og Gaby Hoffman. Leikstjóri er
Mick Jackson.
Sýn - laugardagur kl. 22.00:
Prinsinn í boxinu - Naseem
Hamed. Prinsinn Naseem
Hamed, heimsmeistari WBO-
sambandsins í íjaðurvigt, stígur f
hringinn í Manchester á
Englandi í kvöld. Mótherji hans
er Evrópu- og Samveldismeistar-
inn Paul Ingle en bardagi þeirra
verður sýndur beint á Sýn.
Ingle, sem er 26 ára, er ósigrað-
ur líkt og Prinsinn en á færri
bardaga að baki. Hann varð
breskur meistari 1997 og bætti
Evrópumeistaratitlinum í safnið
eftir sigur á Bill Hardy í fyrra.
Prinsinn er að vanda kokhraust-
ur fyrir bardagann og segist
aldrei hafa verið í betra formi.
Stöð 2 - laugardagur kl.
22.35:
Dauðaklefinn á Stöð 2.
Bandaríski rithöfundurinn John
Grisham gefur út hveija met-
sölubókina á fætur annarri og
flestar, ef ekki allar, hafa orðið
kvikmyndaleikstjórum góður
efniviður. Stöð 2 sýnir nú
spennumyndina Dauðaklefinn,
eða The Chamber, sem er
einmitt gerð eftir einni af sögum
Grishams. Söguþráðurinn er á
þá leið að ungur lögfræðingur
Systur og bestu
vinkonur
Góðgæti í 100 ár
Vildi verða
gleðikona
Fluguveiði, krossgáta,
matargatið, bókahillan. bíó, o.m.fl.
Askriftarsíminn er 800-7080
Evrópusinni
^arphéðinsson í opnuviðtali Dags
fer til Mississippi til að taka að
sér mál kynþáttahatara sem á að
taka af Iífi fyrir að hafa myrt tvö
gyðingabörn þremur áratugum
áður. Hinn dæmdi er afi Iög-
fræðingsins unga og málið
snertir á viðkvæmum fjölskyldu-
málum úr fortíðinni. Með helstu
hlutverk í myndinni fara Chris
O’Donnell, Gene Hackman og
Faye Dunaway. Leikstjóri er
James Foley. Myndin er frá ár-
inu 1996.
Sýn - stuinudagur kl. 11.15
og 13.40:
Undanúrslitaleikir ensku
bikarkeppninnar. 1 dag er Ieikið
í undanúrslitum ensku bikar-
keppninnar og verða báðir Ieik-
irnir sýndir beint á Sýn. Bikar-
meistarar Arsenal mæta
Manchester United í fyrri Ieik
dagsins en liðin berjast einnig
um sigurlaunin í úrvalsdeild-
inni. Félögin hafa mæst þrisvar
á þessu keppnistímabili og hefur
Arsenal tvívegis sigrað 3-0 en
einni viðureign lauk með jafn-
tefli, 1-1. Frakkinn Nicolas An-
elka hefur skorað í öllum Ieikj-
unum. I seinni undanúrslita-
leiknum eigast við Newcastle
United, sem tapaði úrslitaleikn-
um f fyrra, og nýkrýndir deilda-
bikarmeistarar Tottenham
Hotspur.
Stöð 2 - sunnudagur kl.
21.25:
A framabraut? Frumsýning-
armynd sunnudagskvöldsins á
Stöð 2 er bresk úrvalsmynd frá
leikstjóranum Mike Leigh sem
sló eftirminnilega í gegn með
ljúfsáru gamanmyndinni Leynd-
armálum og lygum (Secrets and
Lies) árið 1996. Myndin sem nú
verður sýnd nefnist hins vegar Á
framabraut (Career Girls) og
fjallar um samband vinkvenn-
anna Annie og Hannah sem
leigðu saman íbúð á háskóla-
árum sínum. Þær hafa ekki hist
síðan þær brautskráðust en eiga
nú saman góða helgi í London.
Báðar hafa þær breyst og eru í
góðum störfum, fullar sjálfs-
trausts. Ymis mál úr fortíðinni
eru þó óuppgerð og dagarnir í
London verða afdrifaríkir. í
helstu hlutverkum eru Katrin
Cartlidge, Lynda Steadman og
Kate Byers.
Here I go ogain
You are not alone
The animal song
Why don't you get a job
Sometimes
Shepps goes to heaven
Einn meö þér
Step out
My strongerst suit
Lotus
That don't impress much
No scrubs
Bounce rock skate roll
Tarzan and jane
24 hours from you
Mother
Nothing really matters
The jock jam
Are you ready for the fallout
Stjómandí listans er
Þróinn Brjónsson
FLYTJANDI
Listinn er spilaður á föstudögum miUi kl. 20 og 22
Hlustaðu á Frostrásina í beinni á internetinu httpú/nett.is/frosrasin 1
E-maiL frostras@nett.is • Stjórnandi tistans er Þráinn Brjánsson
Eminem
Etipe
Modern talking
Savage garden
Offspring
Britney spears
Cake
Skitamórall
Tamperer
Spicegirls
Rem
Shania Twain
TLC
Baby dc & Imanji
Toy box
Next of kin
Era
Madonna
Varius artists
Fastball