Dagur - 24.04.1999, Blaðsíða 9

Dagur - 24.04.1999, Blaðsíða 9
Dí^wr LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1999- 25 innar. Er Samfylkingin endan- lega búin að taka Evrópumálin af dagskrá? „Evrópumálin eru á dagskrá og hljóta alltaf að vera það vegna þess að við erum í nánu samstarfi við Evrópulöndin. Samfylkingin hefur mjög skýra stefnu í þessu máli og hún er óbreytt og tekur ekki mið af „hjartans máli“ eins eða neins. Evrópumálin eru á dagskráog hljóta að verða það áfram enda er f stefnu Samfylkingarinnar er kveðið skýrt á um nauðsyn þess að vera með stöðuga fræðslu. Það hefur verið samkomulag milli allra flokka um þjóðarat- kvæðagreiðslu ef sótt yrði um aðild. Samfylkingin krefst þess einfaldlega að allur almenningur sé það vel upplýstur að hver ein- staklingur greiði atkvæði út frá þekkingu, ekki vegna þess að það hafi komið flokkslegar fyrir- skipanir." - Er þetta ekki skoðanaleysi? „Nei, þetta er ekki skoðana- leysi, en við viljum ekki segja nei eða já fyrir alla framtíð. Við vilj- um hafa forræði yfir auðlindum Islendinga og við viljum tryggja sjálfstæði þjóðarinnar. Við erum sammála um að miðað við ástandið í dag munum við ekki sækja um aðild að Evrópusam- bandinu á næsta kjörtímabili." - Nú eru komnar fram nýjar upplýsingar um að sjávarútvegs- stefna ESB sé ekki sú gríðarlega hindrun sem menn hafa talið hana vera? „Það hefur ekki fengist stað- fest mér vitanlega, en það væru ný tíðindi ef Island og önnur sambærileg ríki ættu eftir sam- þykkta aðild að Evrópusam- bandinu að fá að halda sínum óskoruðu yfirráðum yfir auð- Iindum hafsins án íhlutunar þess. Evrópusambandið er að endurskoða sína sjávarútvegs- stefnu. Þeirri vinnu er hvergi nærri lokið. Við skulum bíða og sjáum hvað út úr því kemur.“ Sæmir ekki forsætisráðherra - / kosningabaráttunni hefur Framsóknarflokkurinn slegið sér upp á eiturlyfjavandanum. Er Framsókn ekki að stela glæpnum afykkur? „Nei og ég spyr hverju hann ætti að vera að stela. Mér finnst dálítiðsérkennilegt að hlusta á formann Framsóknarflokksins bjóða fram til forystu í barátt- unni gegn aukinni vímuefna- neyslu hér á landi þar sem Framsóknarflokkurinn hefur farið með þessi mál síðustu fjög- ur ár, í heilbrigðisráðuneytinu og félagsmálaráðuneytinu. Menn hafa neitað að horfast í augu við vandann og hafnað til- lögum Samfylkingarfólks á Al- þingi um til dæmis auknar fjár- veitingar til Barnaverndarstofu og neitað að sjá til þess að for- eldrar ungra fíkniefnaneytenda njóti sömu réttinda og foreldrar langveikra eða fatlaðra barna. Þeir hafa hafnað því að setja aukið fjármagn í meðferð fyrir unga fíkniefnaneytendur þannig að fjölskyldur þeirra geti tekið þátt í meðferðinni en við höfum ítrekað farið fram á það að gert verði átak í þeim efnum. I raun hefur vímuefnaneysla barna og unglinga ekki verið viðurkennd sem heilbrigðisvandamál nema í orði, ekki á borði. Á þessu verð- ur að taka.“ - Davíð Oddsson hefur gagn- rýnt ykkur fyrir að vilja bara auka útgjöld ríkisins og hugsa ekkert um tekjuhliðina? „Þetta sýnir bara hvað hann og félagar hans eru hræddir og hvað þeir eru rökþrota. Og ég um. Spurningin nú er hvort Sjálfstæðisflokkurinn eða Sam- fylkingin fái forræði við Iands- stjórnina." - Ertu að tala um Vinstri- græna? „Eg er að tala um smærri framboðin og þar með Vinstri- hreyfinguna - grænt framboð og segi fuílum fetum að þeir sem greiða þeim atkvæði nú séu í raun að sitja hjá í þessum átök- um á milli hægri og vinstri afl- anna í þjóðfélaginu, jafnvel að leggja hægri öflunum lið. Vinstri menn hafa alltof oft farið fram undir því yfirskini að lýðræði felist í því að hafa sem mest um að velja í kosningum. Þetta hef- ur ekki skilað árangri. Það er kominn tími til að breyta. Það er mikil þörf á öflugum félags- hyggjuflokki í íslensku þjóðfélagi í dag. Hér eru að verða til stórir hópar fólks sem ekki njóta þessa svokallaða góðæris. Stjórnar- flokkarnir hafa komið núna, eins og iðrandi syndarar, og sagt „æ, æ, við ætluðum ekki að vera svona harðir, við hefðum ekki átt að skerða barnabæturnar og taka bílastyrkina af fötluðum, við hefðum átt að bregðast fyrr við eiturlyfjavandanum og við hefð- um átt að hækka ellilífeyrinn og örorkuh'feyrinn". Þetta hafa þeir uppgötvað á síðustu vikum og ætla að bæta um betur. Mér finnst bara sorglegt að það skuli vera fólk innan okkar raða sem horfir framhjá því að við erum sterkari saman. Tvískinningur- inn er náttúrulega rosalegur þeg- ar menn segja við samtök launa- fólks: „við erum sterkari saman, myndum stór samtök, sameinum BSRB og ASI“, en mæla á sama tíma gegn samvinnu í pólitísku starfi þar sem kjör fólks ráðast ekki síður en í kjarasamningum," segir hún og spyr: „Er það trú- verðugur málflutningur að á pólitískum vettvangi sé allt í lagi að kljúfa liðið og segja: sköpum sem flesta valkosti og látum lýð- ræðið ráða.“ Ekkert velt stólunum fyrir mér - Efvið leikum okkur aðeins með ráðuneytin eftir kosningar. Hvaða ráðuneyti myndir þú vilja, fjármálaráðuneytið eða kannski- dómsmálaráðuneytið? „Eg hef ekkert velt ráðherra- stól fyrir mér. Núna fer öll orkan í það að kynna stefnu Samfylk- ingarinnar og vinna henni fylgi. Það má vera sem heyrst hefur að þeir séu að Ieika sér að þessu í Sjálfstæðisflokknum og Fram- sóknarflokknum með mennta- málaráðuneytið og heilbrigðis- ráðuneytið og önnur ráðuneyti, jafnvel samninga um að Halldór fái að taka við forsætinu í lok næsta kjörtímabils haldi þeir áfram að mæra Sjálfstæðisflokk- inn og vinna með honum áfram. Ég held að við leyfum þeim að eyða tíma sínum í þess háttar umræður. Við höfum annað að gera núna.“ - En hver er ykkar forsætisráð- herraefni eftil kemur? „Davíð Oddsson ræðir þetta mál mikið í viðleitni sinni til að vera helsti skemmtikraftur þjóð- arinnar og kallar mig blaðafull- trúa og fleiri nöfnum til að reyna að lítillækka mig. Eg gæti með sama hætti kallað hann sjálfskipaðan bókmenntagagn- rýnanda þjóðarinnar, en í okkar huga sem stöndum að Samfylk- ingunni er þetta mál ekkert grfn. Það er alveg ljóst að ég hef verið valin til forystu í Samfylking- unni í kosningabaráttunni og verði Samfylkingin kölluð til stjórnarmyndunarviðræðna eftir kosningar mun ég leiða það ferli." menntamálum, heilbrigðismál- um, um velferðarkerfið, byggða- málum, atvinnumálum og um- hverfismálum, að ekki sé talað um fjölskyldu- og jafnréttismál. Við höfum líka lagt fram fjár- hagsáætlun ríkisins til fjögurra ára. Við höfum reiknað þetta út í krónum og aurum. Þess hefur verið krafist af okkur og við höf- um orðið við þeirri kröfu. Okkur finnst gott að við ein skulum sýna þessa ábyrgð. Við höfum sett fram tillögur um útgjöld, en fylgt þeim eftir með tillögum um tekjur á móti og uppstokkun á ríkiskerfinu sem hefur í för með sér hagkvæmari rekstur ríkisins. Mottóið er hallalaus fjárlög." aði sem þjóðin ber af nýting- unni. Fyrir utan sjávarútveg vil ég til dæmis nefna þau verð- mæti sem felast í erfðaefni ís- lenskrar náttúru og nú er verið að færa einkaaðilum að hluta til án eðlilegs endurgjalds. Við leggjum til að umhverfis- og mengunarskattar verði notaðir í ríkari mæli sem stýritæki og að þeir skili tekjum. Við viljum láta fara fram endurskoðun á verka- skiptingu og tekjustofnum ríkis og sveitarfélaga. Loks viljum við breyta tekjuskattskerfinu með fjölþrepatekjuskatti og breyta fjármagnstekjuskatti þannig að þeir borgi sem hafa raunveruleg- ar og miklar fjármagnstekjur." /E, æ, við ætluðum ekki... - Samfylkingin hefur komið illa út úr skoðanakönnunum að und- anförnu. Yrðir þú ánægð með 30 prósent atkvæða? „Það er náttúrlega fráleitt að segja að Samfylkingin hafi kom- ið illa út úr skoðanakönnunum undanfarið. Ætti stjórnmálaafl sem hefur þriðja hvern kjósanda með sér að kvarta undan slæmri útkomu? Kjósendur hafa trú á okkur. Auðvitað viljum við meira og þurfum til að geta breytt þjóðfélaginu. Eg tel mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir því að Samfylkingin er raunverulegt og öflugt mótvægi við frjálshyggj- una og hægri öflin í stjórnmál- verð að segja að það sæmir ekki forsætisráðherra þjóðarinnar að tala með þessum hætti. Við hljótum að gera þá kröfu að for- sætisráðherra landsins fari rétt með og ræði málefnalega í stað þess að gera fólki upp skoðanir og vera með eilífa útúrsnúninga. Eg hlýt að auglýsa eftir hans eig- in stefnuskrá sem enn hefur ekki birst og hvað hún muni kosta. Hann hefur ekki enn sagt okkur hvað loforðaflaumurinn frá síðasta landsfundi Sjálfstæð- isflokksins muni kosta, en fljótt á litið er þar ekki um að ræða tölu undir 40-50 milljörðum króna. Við höfum hins vegar lagt fram trúverðuga stefnuskrá í - Hvemig litur þessi fjárhagsá- ætlun út í stuttu máli? „Utgjöldin eru um 35 milljarð- ar á kjörtímabilinu, jafnt skipt niður á kjörtímabilið. Við reikn- um með 2,5 prósenta hagvexti og viljum ekki fara hærra af því að við teljum það óábyrgt og styðjumst þar við Þjóðhagsstofn- un. Við viljum hækka trygginga- gjald um eitt prósentustig á stærri fyrirtæki og teljum að það þurfi að skoða skattalegt umhverfi smærri atvinnufyrir- tækja til þess að styrkja stöðu þeirra. Við teljum eðlilegt að þeir sem nýta auðlindirnar borgi sanngjarnt leigugjald til þjóðar- innar og taki þátt í þeim kostn- - RÚV hefur verið mikið t um- ræðunni að undanförnu, ekki síst fyrir tilstilli Davíðs Oddssonar. Er ekki bara tímabært að einkavæða Ríkisútvarpið? „Eg held að það sé mjög nauð- synlegt að hafa öflugan ríkisfjöl- miðil sem segi fréttir og skýri þær án afskipta stjómvalda, fjölmiðil sem gegni álcveðnu öryggis- og menningahlutverki. Það getur vel verið að það sé tímabært að fara ofan í það hvert á að vera verk- efni ríkisfjölmiðils. Eftir að búið er að komast að niðurstöðu og rammafjárveiting er til staðar þá á auðvitað að láta fagfólk á þessum Qölmiðli um að reka hann, án af- skipta stjórnmálamanna." „Það er náttúrlega fráleitt að segja að Samfylkingin hafi komið illa út úr skoðanakönnunum undanfarið. Ætti stjórn- málaafl sem hefur þriðja hvern kjósanda með sér að kvarta undan slæmri útkomu?“ spyr Margrét.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.