Dagur - 27.04.1999, Qupperneq 1

Dagur - 27.04.1999, Qupperneq 1
I Iimflytj endur stofna samtök Guðjón Atlason og Annie kona hans. Hún hefur ótímabundið dvalarleyfi en var synjað um atvinnuleyfi. Þau hafa kært úrskurð Vinnumálastofnunar og félagsmálaráðu- neytisins til Umboðsmanns Alþingis. Iimíly tj enilafj ölskyld- ur stofna samtök. Eng- inn skUniiigur á stöðu okkar, segir Guðjón Atlason. Synjun á at- vinnuleyfi kærð til Um- boðsmanns Alþingis. „Við stefnum að þvf að halda stofnfund í næsta mánuði, en þess má geta að fyrirfram eru stofnfé- lagar orðnir 50 og því ljóst að und- irtektir eru góðar, enda um brýn hagsmunamál að ræða fyrir alla útlendinga á íslandi," segir Guð- jón Atlason í samtali við Dag, en hann er kvæntur erlendri konu og hefur leitt undirbúningsstarf að stofnun samtaka fyrir umbótum á stöðu útlendinga á Islandi. Flestir af þessum 50 tilheyra svokölluðum innflytjendafjöl- skyldum, þar sem Islendingur er giftur erlendum ríkisborgara, sem flust hefur til landsins. „I flestum tilvikum eru útlendingar af- greiddir sem einn hópur, en síðan eru dregnir út með sérumfjöllun og sérkjörum hópar eins og flóttafólk, EES-borgarar, pólitískir hælisleitendur, farand- verkafólk og fleiri. Venju- legir innflytjendur eru hins vegar meðhöndlaðir eins og farandverkafólk með glímu við alls kyns pappírsvinnu og reglugerðir frá tveimur eða fleiri ráðuneytum, sem flækist fyrir því að þetta fólk getur lifað eðlilegu lífi í þessu landi sem það hefur kosið að búa í. Það verður stærsta baráttumál samtak- anna að beijast fyrir því að dvalar- og atvinnuleyfi sameinist í eitt leyfi. Við viljum nýja og sam- ræmda innflytjendalöggjöf undir einu ráðuneyti og í einfaldleika sínum viljum við að þjóðfélagið viðurkenni að hér sé til töluverður hópur Ijölskyldna, þar sem ekki hafa allir íslenskt ríkisfang," segir Guðjón. Kært til Unihoðsiiianns Alþingis Guðjón segir að innflytjendafjöl- skyldur hafi „flestar lent í því að reyna að sannfæra starfsfólk skrifræðisins um að við sjálf, mak- ar okkar, foreldrar, böm og syst- kini séu bara alls ekkert farand- verkafólk né ótaldir útlendingar á nokkum hátt, heldur íbúar þessa lands. Það renna á mann tvær grímur þegar maður uppgötvar að engin lög eru til um okkur og eng- inn, alls enginn skilningur er á stöðu okkar hjá stjórnvöldum. Þvert á móti er gríðarleg mótstaða gegn okkur í kerfinu öllu, sem ein- kennist af geðþóttaákvörðunum starfsfólks stofnana, sem hefur mjög svo misgóðar forsendur til að úrskurða um mál sem okkar, mál sem eru svo mikilvæg að þau ákvarða á stundum ekki bara framtíð okkar og velferð heldur líf og örlög fólks,“ segir Guðjón, sem hélt erindi á fundi hjá Samfylking- unni um helgina um þessi mál. Hann segir álag á innflytjenda- fjölskyidur mikið þar sem það velt- ist um með umsóknir til verkalýðs- félags, útlendingaeftirlits, Vinnu- málastofnunar eða ráðuneytis og eru dæmi úm að innflytjendafjöl- skyldur hafi ekki staðist þetta álag. Guðjón og kona hans Annie hafa kært til Umboðsmanns Alþingis synjun Vinnumálastofríunar á at- vinnuleyfi fyrir Annie og staðfest- ingu félagsmálaráðuneytisins á synjuninni. — FÞG Greið leið að tóbakmu I könnun sem ITR, lögreglan og Tóbaksvarnanefnd efndu til um síðustu mánaðamót kom í ljós að unglingar gátu i 2 tilfellum af 3 keypt sér tóbak í verslunum borg- arinnar, þvert á lög og reglur um að óheimilt sé að selja eða af- henda yngri en 18 ára tóbak. Slá- andi munur er á útkomu verslana eftir hverfum. Starfsmenn ITR voru á ferð ásamt unglingum í 125 verslun- um borgarinnar og gátu ungling- amir keypt tóbak í 85 þessara verslana. Hæst voru hlutföllin í 34 verslunum í Sundahverfi og Hlíðahverfi, þar sem lög voru brotin i 31 þeirra eða 91 % þeirra. Hlutfallið var 76-79% í verslun- um Breiðholts og Arbæjar, en lægst var það í verslunum Selja- hverfis (17%), Bústaðahverfis (42%) og Grafarvogs (50%). Það er einmitt í þessum hverf- um með lægstu hlutföllin sem fé- lagsmiðstöðvar ÍTR hafa efnt til átaks, þ.e. farið með áróður í verslanir auk fleira. — FÞG Börnin í Laugarnesskóla létu ekki sitt eftir liggja til að fegra umhverfi sitt í gær. Þau hreinsuðu rusl fyrir framan skólann sinn og var það vel við hæfi í kjölfar nýliðins umhverfisdags. - mynd: teitur Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðis- ráðherra, segir 2-300 ný störf verða til með starfsemi miðlægs gagnagrunns. Gagnagruimur skapar 2-300 ný störf Ingibjörg Páimadóttir, heilbrigð- is- og tryggingaráðherra, segir að með tilkomu miðlægs gagna- grunns verði til 2-300 ný störf og þau verði hægt að vinna út um land, alveg eins og á höfuðborg- arsvæðinu enda um tölvuvinnslu að ræða. „Kári Stefánsson hefur sagt að hægt verði að dreifa þessum nýju störfum út á land, þar sem íyrst og fremst er um að ræða inn- færslu upplýsinga á tölvur og það skipti ekki máli hvar þau séu unnin. Nú þegar starfa um 250 manns hjá Islenskri erfðagrein- ingu og hér væri þvf um aðra eins viðbót að ræða. Og það er sá aðili sem fær leyfið til að setja upp miðlægan gagnagrunn sem mun standa straum af kostnaði við þessi störf,“ segir Ingibjörg. Ekkert nýtt Alþjóðasamtök lækna hafa sem kunnugt er tekið undir með Læknafélagi Islands og ályktað gegn gagnagrunninum. Ingibjörg segir ekkert nýtt hafa komið fram hjá alþjóðasamtökunum. „I sjálfu sér kom ekkert á þessum fundi Alþjóða læknasamtakanna okkur á óvart. Það kom enda ekkert nýtt fram,“ sagði hún. Ingibjörg telur ekki ástæðu til að ætla að gagnagrunnurinn og andstaðan gegn honum erlendis geti skaðað Islendinga að ein- hverju leyti. „Nei það tel ég alls ekki vera. Eg hefði aldrei lagt fram lagafrumvarpið að gagna- grunni á heilbrigðissviði ef ég hefði talið það geta skaðað okk- ur. Mér var það hins vegar alltaf ljóst að um gagnagrunninn væru skiptar skoðanir og ekkert við því að segja,“ sagði Ingibjörg Pálma- dóttir. - S.DÓR

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.