Dagur - 27.04.1999, Side 2

Dagur - 27.04.1999, Side 2
2 - FÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999 FRETTIR Friðrik Ólafsson stórmeistari hefur ekki gert mikið afþví að tefia undanfarin ár en nú hefur hann tekið að sér að sitja í 3 manna nefnd tii að hafa umsjón með fyrirhuguðu einvígi Kasparovs og Anand. Friðrik í stjóm skákeinvígisms Búið er að ákveða einvígi tveggja sterkustu skák- maima heims þeirra Garry Karparovs og Vishy Anans og er Friðrik Ólafs- son í þriggja manna eftir- litsnefnd með einvíginu. Friðrik Olafsson, skrifstofustjóri Al- þingis og fyrrum forseti FIDE, hefur verið vaíinn í þriggja manna nefnd sem á að hafa yfir umsjón með heims- meistaraeinvígi í skák seinna á þessu ári milli tveggja stigahæstu skákmanna heims, en það eru Garry Kasparov og Vishy Anand. Sem kunnugt er klofnaði FIDE fyrir nokkrum árum og Kasparov stofnaði þá stórmeistarasamband. Hann hefur aldrei tapað HM titlinum, sem hann vann áður en FIDE klofnaði. Karpov er nú kallaður heimsmeistari FIDE en sambandið er í hálfgerðri upplausn og enginn veit hvernig þau mál öll enda. Friðrik Óiafsson sagði í samtali við Dag að hann hefði verið beðinn um að koma í þessa eftirlitsnefnd en með honum í henni eru Bassel Kok, þekkt- ur belgískur skákfrömuður og WiIIiam Wirth en hann er Svisslendingur og hefur verið aðal skipuleggjandi þekktra skákmóta sem haldin eru í Biel í Sviss. Há verðlaun. Friðrik segir að enn hafi ekki verið ákveðið hvar einvígið fer fram. Hins vegar hefur Serge Grimaux, kanadísk- ur umboðsmaður skemmtikrafta, þeirra á meðal Rolling Stone hljóm- sveitarinnar, ákveðið að leggja fram 3 milljónir dollara í verðlaunafé. Sigur- vegarinn fær 2 milljónir en sá er tapar 1 milljón dollara. Friðrik Ólafsson segir að menn séu orðnir mjög óþolinmóðir að fá að sjá tvo bestu skákmenn veraldar tefla. Karpov sem er FIDE heimsmeistari sé ekki hátt skrifaður í skákheiminum um þessar mundir. „Það gengur hvorki né rekur hjá FIDE að leysa sín vandamál og hefur starfsemi þess að mestu legið niðri undanfarið. Mér skilst að vísu að unn- ið sé að því að koma á einhverri und- anrásakeppni á vegum FIDE í Las Vegas í sumar, en veit í raun ekkert meira um það mál,“ sagði Friðrik. Yflrburða skákmenn Friðrik segir að það sé Bessel Kok sem eigi hugmyndina að því að koma þessu einvígi Karparovs og Anands á svo að heimurinn geti fengið að fylgjast með tveimur bestu skákmönnum heims að tafli. Enginn dragi það í efa að þeir séu bestu skákmenn heims um þessar mundir. Það var Bessel Kok sem leitaði til Friðriks og bað hann að koma í þessa eftirlitsnefnd. Það er ekki bara að Friðrik hafi á sinni tíð verið einn besti skákmaður heims, heldur var hann eins og menn vita forseti FIDE og hef- ur oftar en einu sinni sinnt yfirstjórn sterkra skákmóta og einvíga. -S.DÓR FRÉT TA VIÐTALIÐ Svanur Kristjánsson stjóm- málafræðingur gaf Samfylk- ingunni góð ráð í Degi um helgina og benti þeim á að rétt væri að tefla alþýðuhetjmmi Jóhönnu Sigurðardóttur meira fram til að auka fylgið sem hefur verið heldur á nið- urleið ef marka má skoóana- Jóhanna kannanir. í heita pottinum er Sigurðardóttir. fullyrt að forvígismenn Sam- fylkingarinnar hafi haldið ftmd á föstudaginn um einmittþetta efni. Pottormarbúast við að sjá ogheyTa meira frá Jóhönnu það sem eftir cr fram að kosning- um en Jiingað til. Sagt var frá því í Degi í vikunni að starfsmenn RÚV væm óánægðir með ráðningu Vilhclms G. Kristins- sonar í stöðu fréttaþular frá og með 3. maí. I pottin- um var af þessu tilefni rifjað upp að Starfsmannafélag RÚV væri með ráðningu Halldóru Ingvarsdóttur lyrir Umboðsmanni Alþingis, þar sem kært var að mann- eskju með tilskilið háskólapróf, Margréti Oddsdótt- ur, var vikið til hliðar iyrir Hálldóru, sem aðeins liefði sótt endurmenntunamámskeið. í pottinum þótti mömium ljóst hvemig á því stæði að hún hreppti hnossið. Hún er nefnilega mágkona Davíðs Oddsson- ar. í hcita pottinum cr talsvcrt rætt um útnefningu bókar aldarinnar. Eins og við var að búast og verðskuldað þykir trónir nóbelsskáldið Halldór Laxness á toppnum með Sjálf- stætt fólk en ýmislegt annað á listanum þykir skiýtið m.a. fjarvera margra helstu skáld- jöfra þjóðarimiar. Þátttakan í valiuu var ekkert til að hrópa húrra yfir eða 3500 manns ogupplýst hefiu verið að um helmhigur hafi vcrið höm og unglingar. Það skýr- ir ýmislegt en í pottinum cr sagt að þama hafi skollið hurð næni hælum hjá bókaþjóðinni. Eða hvemig hefði upplitið verið á bókaþjóðimú ef t.d. Blautir Halldór Laxness. Þóróur Halldórsson fomiaðurFélags framleiðettda í lífrænum búskap. Staða bænda sem stunda lífræna ræktun eróviss. Stuðningurog leiðbeiningar eru afskomum skammti og andstaða í búgreinafélögum. Nærri 40 framleiðendur eru með lífræna vottun. Glapræði að stnnda lífræna ræktun hér - Hver er staða lífrænnar ræktunar innan landbúnaðarketfisins? „Hún er náttúrulega alveg jafn óviss eins og venjulega. Það sem hefur gerst er fyrst og fremst það að Alþingi hefur samþykkt tvær ályktanir. Annarsvegar ályktun sem samþykkt var í júní í fyrra um að unnið skuli að því að búa til einhverskonar stuðn- ings- eða styrktarkerfi til aðlögunar vegna þess að fyrstu árin eru alltaf erfiðust. I síð- asta mánuði samþykkti Alþingi að öll mat- vælaframleiðsla á Islandi skyldi vera í takt við sjálfbæra þróun. Þótt þetta sé almennt orðað sagði einnig í þessari ályktun eitthvað á þá leið að efla skyldi líka lífræna ræktun. A síðasta Búnaðarþingi var ennffemur sam- þykkt ályktun í svipuðum stíl um að unnið skyldi að því að efla stuðning við bændur sem vildu fara út í lífræna ræktun. í sfðasta búnaðarsamningi voru meira að segja eyrnamerktir nokkrir liðir sem eru ein- göngu fyrir lífræna geirann." - Eins og hverjir? „Það var í endurrækt á landi og þar mfeð talin garðlönd. Það var einnig fyrir ylrækt og síðan í beitingarnýtingu, landnýtingu og beitarstjórnun. Þetta er 5 ára samningur. Fjárhæðirnar sem þessir liðir fá byrja eitt- hvað í 5 milljónum króna á ári og enda síð- an í 8 milljónum." - Hvar liggur sóknin í lífrænni ræktun? „Hún er nú eiginlega hvergi í dag. Við sem erum í þessu hvetjum einfaldlega eng- an til að fara út í þetta vegna þess að það er glapræði við þessar aðstæður. Það er eng- inn stuðningur og nær engin leiðbeininga- þjónusta. í það minnsta er hún mjög tak- mörkuð. Það er ráðunautur hjá Bændasam- tökunum sem starfar á almennum nótum og er alls ekki búgreinatengdur. Þar vantar því alla leiðbeiningaþjónustu og þeir bænd- ur sem stunda lífræna ræktun gera það af eigin hyggjuviti." - Hvað eru þeir margir sem stunda þessa tegund húskapar? „Það er búið að votta 38 aðila sem eru um nær allt land. Þetta eru um 30 bændur og nokkur vinnslufyrirtæki. Félagsmenn í okkar félagi eru um 25. Það er auðvitað miður að það skuli ekki allir vera innan okk- ar raða. Við vitum að slagkraftur okkar eykst eftir því sem við verðum fleiri. Viðhorf lífrænnar ræktunar á hinsvegar ekki uppá borðið í búgreinafélögunum þar sem við erum allir félagsmenn. Þar eru menn að hugsa um allt aðra hluti vegna stöðunnar í landbúnaðinum. Hefðbundinn búskapur er aðþrengdur og menn horfa ekkert uppá það að ætla að ráðast í enn eina tilraunina í þeim efnum. Þessi staða stendur í veginum fyrir sókn í lífrænni ræktun. Hjá okkur eru bændurna í sauðfé, mjólkurframleiðslu, grænmetisræktun og ylrækt. Þama eru líka grasasöfnunaraðilar og einnig blóma- og trjáplönturæktendur. Þetta eru því enn sem komið er fáir aðilar og þróunin f þessu er lítil. Það er fyrst og fremst vegna þess að stuðningur við lífræna ræktun er svo tak- markaður. Þrátt fyrir þetta stöndum við frammi fyrir því að frá Englandi er komin pöntun á 200 tonnum af lambakjöti. Við erum kannski að senda einhver 200 tonn á fjórum til fimm árum og við eigum kannski einhver 10-15 tonn sem eru til og hægt er að ganga að.“ -grh

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.