Dagur - 27.04.1999, Side 12
ÍÞRÓTTIR
nýjfl bío
SALURB
SALUR A
Sýnd kl. 18.40 og 21
POWER SÝNING
Sýnd kl. 21
POWER SÝNING
Sýnd kl. 11.30
Sýnd kl. 23
RÁÐHÚSTORGI
SÍMI 461 4666
D I O I T A L
10SÉÉ
wmmMi
Fhx
Sýnd kl. 17
Sýnd kl. 17 og 19
Simi 462 3500 • Hólabraut 12 • www.nett.ia/borgarbio
LA VITA E BELLA - LIFE IS iSBpiiyp .
BEAÚTIFUL: NU ER HUN KOMIN FRÁBÆR GRÍNIVIYND UM FJÖL-
AFTUR EFTIR PASKAFRÍIÐ, 3 f' ■ itnumv vyixii'iiii i 11 \j vjiii i j \j l
SKYLDU SEM DVELUR NEÐJtN-
*OSKAR‘S-VERÐLAUN! BESTA JARÐAR í SPRENGJUSKYLI í 35
MYNDlN, BESTI LEIKARI í AR VEGNA ÞESS AÐ ÞAU HA®)A
KARLHLUTVERKI, BESTA KVIKMYNDATONLISTIN (DRAMA) AÐ KJARNORKUSPRENGJA ÍJAFI SPRUNGIÐ Á YEIRBORÐIJARÐAR.
aaant.Þl'ÍðjUCl. 1(1. 21. F Siðcistci svnimi syiinij Þriðjud. kl. 23.10^|
V' lir 1 f Douav I .*$■ D 1 G 1 T A L : í:-, nt"l 1 POtBY 1 DIGITAL
Falur og Airna
María valin
best í lokahófi
körfuknatt-
leiksmaima
Keflvfkingarnir Falur Harðarson
og Anna María Sveinsdóttir voru
valin leikmenn ársins í efstu
deildum karla og kvenna í loka-
hófi körfuknattleiksmanna um
helgina. Þetta er í sjötta skipti
sem Anna María er valin leik-
maður ársins, en hún er marg-
faldur bikar- og Islandsmeistari
með liði Keflvíkinga. Falur
Harðarson, sem leikið hefur frá-
bærlega vel með Keflvíkingum í
vetur, var aftur á móti valinn
Ieikmaður ársins í fyrsta skipti
og var það vel við hæfi eftir þann
frábæra leik sem hann sýndi í
úrslitaleiknum gegn Njarðvík sl.
fimmtudag.
Falur Harðarson.
Anna María Sveinsdóttir.
I lokahófínu var einnig valið
lið ársins í efstu deildum karla
og kvenna, efnilegustu nýliðarn-
ir, bestu þjálfararnir, besti og
efnilegasti dómarinn og einnig
bestu erlendu Ieikmennirnir:
Kvennalið ársins: Anna María
Sveinsdóttir, Keflavík, Guðbjörg
NorðQörð, KR, Hanna Kjartans-
dóttir, KR, Alda Jónsdóttir, ÍS og
Signý Hermannsdóttir, IS.
Karlalið ársins: Falur Harðar-
son, Keflavík, Friðrik Ragnars-
son, Njarðvík, Teitur Orlygsson,
Njarðvík, Herbert Arnarson,
Grindavík og Dagur Þórisson, IA.
Efnilegustu nýliðamir: Hildur
Sigurðardóttir, ÍR og Hlynur
Bæringsson, Skallagrími.
Bestu þjálfararnir: Friðrik Ingi
Rúnarsson, Njarðvík og Oskar
Kristjánsson, KR.
Besti dómarinn: Leifur Garð-
arsson, Haukum.
Efnilegasti dómarinn: Jón H.
Eðvaldsson, Keflavík.
Bestu erlendu leikmennirnir:
Damon Johnson, Keflavík og
Limor Mizrachi, KR.
Staðan í norska
boltanum
L U 1 T Mörk S
Molde 3 3 0 0 9-3 9
Lilleström 3 3 0 0 10-5 9
Odd Grenl. 3 3 0 0 7-4 9
Valerenga 3 2 1 0 6-1 7
Stabæk 3 2 0 1 10-4 6
Rosenborg 3 1 1 1 9-5 4
Tromsö 3 1 1 1 7-6 4
Bodö/Glimt 3 1 1 1 5-4 4
Viking 3 1 0 2 5-6 3
Strömsgod. 3 1 0 2 3-7 3
Brann 3 1 0 2 6-12 3
Kongsving. 3 0 0 3 7-10 0
Skeid 3 0 0 3 1-9 0
Moss 3 0 0 3 1-10 0
Rúnar Kristinsson, maður leiksins, og Heiðar Helguson, skoruðu báðir fyrir
Lilleström gegn Viking.
íslendingaveisla
í Stavanger
Frábær fostudagur
hjá Rúnari og Heið-
ari. Níu bónusstig fyr-
ir LiHeström. Ámi
Gautur í marki meist-
arauua. Stabæk vaku-
aði í seinui hálíleik.
Útlitið dökkthjá
Kougsvinger.
Lilleström, sem sumir spáðu
falli, hefur nú leikið við Brann,
Rosenborg og Viking, sem spáð
var hvað mestri velgengni á ný-
byrjaðri leiktíð, og unnið alla
leikina. Nú situr liðið í öðru sæti
deildarinnar, á eftir Molde, með
níu sannkölluð bónusstig sem
enginn hafði búist við nema
Ieikmennirnir sjálfir. A föstudag-
inn tók Viking í Stavanger á móti
Kanarífuglunum, sem Lil-
leström er kallað í Noregi, og
Vikingarnir komust að því að á
góðum degi geta kanarífuglar
breytt sér í ránfugla og það
gerðu leikmenn Lilleström. Með
Rúnar Kristinsson sem besta
mann vallarins Iéku kanarífugl-
arnir sér að Víkingunum og
komust í 0-4. Það var ekki fyrr
en Ríkharður Daðason kom inn
á hjá heimamönnum sem þeir
sáu einhverja ljósglætu í Ieik sín-
um. Ríkharður stimplaði sig inn,
eftir erfið meiðsl, með tveimur
mörkum og var lang bestur
heimamanna. En markaveislan
var f boði íslensku gestanna,
með mörkum frá bæði Rúnari og
Heiðari Helgusyni ásamt mörk-
um Ríkharðs. Rúnar er í liði
þriðju umferðarinnar.
íslendingamir standa sig
vel
Stabæk var Iengi að koma sér í
gang gegn botnliði Moss. Bikar-
meistararnir brutu loks ísinn á
síðustu mínútu fýrri hálfleiks
með marki úr hornspyrnu. I
seinni hálfleik hrukku heima-
menn loks í gang án þess að sýna
nokkurn stórleik. Þess þurftu
þeir ekki til að vinna gestina 3-1.
Flelgi Sigurðsson var besti mað-
ur vallarins og skoraði eitt marka
sinna manna.
„Þetta var erfitt hjá okkur í
byrjun. Við áttum lélegan leik
síðast og þá er oft erfitt að kom-
ast í gang eftir svoleiðis útreið.
Fyrri hálfleikurinn var mjög
slakur hjá okkur og þjálfarinn lét
okkur vita að ef við tækjum okk-
ur ekki á fyrstu tíu mínúturnar í
seinni hálfleik yrðu gerðar breyt-
ingar á Iiðinu. Það hafði áhrif þó
svo við værum ekki að spila eins
og við getum best,“ sagði Flelgi
Sigurðsson, sem kosinn var
maður Ieiksins á Nadderud.
Það gekk ekki eins vel hjá ís-
lendingaliðinu Kongsvinger sem
skrapp til Bergen og ætlaði sér
sín fyrstu stig í deildinni með
sigri á arfaslöku liði Brann.
Reyndin varð önnur og þrátt fyr-
ir að skora 4 mörk héldu gestirn-
ir tómhentir heim. Brann vann
sinn fyrsta leik, 5-4, og bauð upp
á sannkallaða kvöldskemmtun á
Brann Stadion. Heimamenn
þurftu þó að hafa fyrir sigrinum
því tvisvar í seinni hálfleik náðu
gestirnir forystu. Bjarki Gunn-
Jaugsson var ekki í leikmanna-
hópi Brann og Steinar Adolfsson
lék ekki fýrir Kongsvinger.
Arni Gautur í marki
meistarauna
Arni Gautur Arason hefur tekið
við af Jörn Jamtfall í marki
meistaranna í Rosenborg. Það
dugði þó hvorki til að halda
hreinu eða ná í þrjú stig gegn
Tryggva Guðmundssyni og félög-
um í Tromsö. Samheijar hans
voru steinsofandi og ótrúlegt að
ímynda sér að þar sé á ferð ijóm-
inn af norskum knattspyrnu-
mönnum. Eftir að Tromsö náðí
forystunni bitu heimamenn loks
í skjaldarrendur og náðu að snúa
leiknum sér í hag 2-1 þar til
komið var í viðbótartíma. Síð-
ustu spyrnu leiksins átti Rune
Lange hjá Tromsö og sú endaði í
bláhorninu hjá Arna Gauti, sem
annars átti fínan leik.
Stromgodset er eitthvað að
fatast flugið eftir fína byijun. Nú
var það hundleiðinlegt lið Váler-
enga sem vann sanngjarnan sig-
ur í Drammen. Bræðurnir Valur
og Stefán Gíslasynir áttu báðir
sæmilegan Ieik hjá Godset.
Toppliðið, Molde, þurfti að
hafa fyrir 2-1 sigri sfnum á
Bodö/Glimt. Andreas Lund skor-
aði að venju fyrir Molde og hef-
ur nú skorað 5 mörk í þrem
fyrstu leikjunum.
Odd Grenland vann nýliða-
slaginn, 2-1 gegn Skeid eins og
við var búist og er, ásamt Molde
og Lilleström, með fullt hús
stiga.
I þriðju umferðinni létu Is-
lendingarnir fara töluvert fyrir
sér og skoruðu 5 r"öiT He1"'
Sigurðsson var spurður um
frammistöðu Islendinganna til
þessa í deildinni.
„Skoruðum við fimm mörk?
Það er frábært og sýnir að við
erum að standa okkur mjög vel
hérna núna.“ — GÞÖ
Einkunnir Islendinganna:
Rúnar Kristinsson, Lilleström 7
Heiðar Helguson, Lilleström 6
Ríkharður Daðason, Viking 6
Helgi Sigurðsson, Stabæk 6
Tryggvi Guðmundss., Tromsö 5
Arni Gautur Arason, Rosenborg 5
Valur Fannar Gíslason, Strömg. 4
Stefán Gíslason, Strömgodset 4
Stefán Þórðarson, Kongsvinger 3
Auðun Helgason, Viking 3