Dagur - 28.04.1999, Blaðsíða 2

Dagur - 28.04.1999, Blaðsíða 2
2 - MIDVIKUDAGUB 28. APRÍL 1999 Tkyptr GeirZoéga frá ísaga afhenti fulltrúum MR 200 þúsund króna sigurlaun við sérstaka afhöfn í Hinu húsinu í gær. Auk ísaga stóð ís- lensk erfðagreining að fjármögnun á verðlaunafénu. Til viðbótar við þessi tvö fyrirtæki standa að Hugvísi menntamálaráðuneytið og Hitt húsið. myndir: hilmar Vetrarbraut MR vann í Hugvísi MR sigraði í hugmynda- samkeppni í vísindum og tækni og tekur þátt í Evr- ópukeppni í haust. Fjöl- brautaskóli Suðurlands og Menntaskólinn í Kópa- vogi fengu viðurkenn- ingu. Lið Menntaskólans í Reykjavík varð hlutskarpast í Hugvísi, hugmyndasam- keppni ungs fólks í vísindum og tækni. Verðlaunaverk þeirra nefnist „Vetrar- brautarþyrpingin, MS 1621 + 2640 og fyrir það voru veitt 200 þúsund króna peningaverðlaun. Auk þess mun sigur- liðið keppa fyrir Islands hönd í Evr- ópukeppni ungra vísindamanna, sem fram fer í Grikklandi n.k. haust. Ljós í geLmnuin Sigmundur Guðbjamason, fyrrverandi háskólarektor og formaður dómnefnd- Ungir og upprennandi vísindamenn, Tryggi Guðmundsson og Jóel Karl Friðriksson. ar, sagði að verkefni MR hefði falið í sér að vinna úr Ijósmyndum og beit- ingu þeirra við notkun eðlisfræði til að svara mikilvægum spurningum um nútíma eðlisfræði, þ.e. sveigjur ljóss í geimnum vegna þyngdarleysisáhrifa. Þessar ljósmyndir voru teknar af tveimur íslenskum vísindamönnum við norræna stjörnusjónaukann á Kanaríeyjum. Sigmundur sagði að þetta verkefni MR væri í senn afar vandað og metnaðarfullt, auk þess sem það hefði verið leyst af hendi á mjög fagmannlegan hátt. I liði MR voru þeir Jóel Karl Friðriksson, Páll Melsted, Sverrir Guðmundsson og Tryggv'i Þorsteinsson. Leiðbeinandi þeirra var Vilhelm Sigfús Sigmunds- son kennari og stjarneðlisfræðingur. Fjðr á fjölbraut Þá fékk verkefnið „Viðhorfskannanir á Internetinu“ sérstaka viðurkenningu, en það var sameiginlegt verkefni tveggja nemenda úr Menntaskólanum í Kópavogi og Verslunarskóla Islands. Auk þess fékk Fjölbrautaskóli Suður- lands sérstaka viðurkenningu sem og tvö verkefni frá nemendum skólans. Þar var annarsvegar um að ræða verk- efnið „Minnismálma" og hinsvegar verk sem nefnist „Húsið á sléttunni." Þá hefur verið opnuð sýning á þeim verkefnum sem komust í undanúrslit í Gallerí Geysi í Hinu húsinu við Ing- ólfstorg. -GRH FR É T TA VIÐTALIÐ í heita pottlnuin varð mönnum tíð- rætt um fylgistap Samfylkingarinnar sem skoðanakannanir hafa verið að sýna fram á hver á fætur annarri. í pottinum fyrir norðan er fullyrt að Samfylkingin sé enn á niðurleið en samkvæmt könnum Gallup og Há- skólans á Akureyri tyrir um mánuði hafði hún minna fylgi en VG framboð Stcingríms J. Sigfússonar í eystra norðurlandskjör- dæminu. Pottormar segja að í upphafi kosningabar- áttunnar hafi Samfylkingin tapað nokkuð fylgi í kjör- dæminu til Framsóknar og jafnvel Sjálfstæðisflokks en nú liggi leiðin frá henni til VG, sem sé stöðugt að sækja í sig veðrið. Er jafnvel talað utn að Framsóknar- og Sjálfstæðismenn séu orðnir verulega áhyggjufullir. Áhrif stjómsýslulaganna frá 1993 birtast í ýmsum myndum. Kona nokkur úti á landi sótti um starf hjá bæjarstofnun í heimabæ sínum og fékk bréf þess efn- is að hún hefði ekki orðið fyrir valinu. í bréfinu var hinsvegar ábending frá stofnuninm og komuuú bent á að hún ætti „kost á að óska eftir rökstuðningi íyrir ákvörðun þessari", með vísan til 20. greinar stjóm- sýslulaga iu. 37/1993. Ekki getur talist nema eðli- lcgt að pottverjar segi: Ha? Steingrímur J. Sigfússon. Ingibjörg Sólrún Viðtal sem birtist í blaði ungra Sam- fylkingarsinnar við Ingibjörgu Sól- rúnu Gísladóttur hefur valdið nokkm fjaðrafoki iiman Samíylking- ar, en eins og kumiugt er lýsti Ingi- björg Sólrún þar þeirri skoðun sinni að ísland ætti að sækja um aðild að ESB. Þetta er yfirlýsing sem mörgum í forystu Samfylkingar finnst óþægi- leg rétt fyrir kosningar. Þegar fréttist af viðtalinu fóm mcmi sem framarlega standa í Samfylkinguiuú fram á það við ungliðana að prentun blaðshis yrði stöðvuð og viðtalinu breytt. Þessu neituðu ungliðar og eftir mikið þref og þóf varð ekki af ritskoðun og viðtalið birtist óbreytt. Ljóst þykh að mikúl ágrehúngur sé imian SamfylMngar um Evrópumál og að ungliðar séu alls ekki á því að gefa umsóknaraðild upp á báthm og horfi til higibjargar Sólrúnar sem framtíðarleið- toga Samfylkhigar. Amason formaðurFélags íslenskra hljóm- íistarmanna, FÍH Eini listamannahópurinn í ASÍ. Vilja ekki íLandssam- hand verslunarmanna. And- staða við ákvörðun skipulags- nefndarASÍ. Gamall upp- vakinn draugur. Oft eins og síld í rjómatertu í ASÍ - Eru þið á leið inn í Landssamband versl- unarmanna? „Nei, þangað höfum við ekkert að gera. Við erum með beina aðild að ASI og höfum haft það í áratugi. Við teljum líka að við séum þeir einu sem getum flutt mál okkar og unnið að þeim innan Alþýðusambands íslands." - Hver verða ykkar næstu skref? „Við bíðum afskaplega rólegir og það er ekkert upphlaup af okkar hálfu. Menn verða að átta sig á því að ef þeir setja ein- hveijar ákveðnar reglur, þá er ekki víst að allir séu tilbúnir að fara eftir þeim. Við vor- um líka engan veginn sáttir við þetta þegar þetta var ákveðið að mig minnir á þingi ASI 1992 og ítrekað svo aftur á þinginu fyrir þremur árum. Það er alltaf verið að upp- vekja þennan gamla draug að félög með beina aðild fari inní landssambönd, burtséð frá því hvort þau hafa þangað eitthvað að gera eða ekki.“ - Hvaða afleiðingar Jteldurðu að þessar deiiur um skipuJagsmáJ hafi fyrir ASÍ? „Það fer alveg eftir því hvernig þeir taka á þessu sjálfir og hvort að reglurnar eigi að stjórna því hveijir fái að vera með eða ekki. Það er ekki víst að þær henti öllum. Þá verður fólk að taka sínar ákvarðanir út frá því. Það munum við gera ef þetta er endan- Iega afstaða að við eigum að vera í Lands- sambandi verslunarmanna." - Er þetta ekki endanJeg afstaða? „Ég þori ekki að segja til um það. Það hafa farið fram viðræður á milli okkar og ASI þar sem við höfum sagt að við séum ekkert sáttir við það sem er að gerast og þróast í þessum efnum.“ - Kemur ekki tiJ greina að þið verðið ein- faidlega fyrir utan ASÍ? „Jú, það kemur líka til greina. Við höfum unnið nær eingöngu sjálfir í okkar baráttu og það hefur enginn hjálpað okkur fram til þessa. Hinsvegar lítum við á samtök eins og ASI sem lífsnauðsynleg samtök fyrir launa- fólk í landinu. Það er ástæðan fyrir því að við erum innan þessara samtaka og viljum vera þar. Fyrst og fremst viljum við sjálfir vera málsvarar okkar.“ - Finnst þér kannski að skipuiagsmál ASÍ séu komin út í öngstræti? „Ég skal ekkert segja um það. Mér finnst þetta kannski spurning um það að reglurn- ar eigi að gilda gagnvart þeim sem eru að koma nýir inn en ekki þeim sem hafa verið innan sambandsins og eiga ekki samleið með öðrum. Við eigum ekkert frekar sam- leið með Sjómannasambandinu eða Lands- sambandi verslunarfólks. Við erum eini listamannahópurinn innan ASÍ og erum þar oft á tíðum eins og síld í rjómatertu. Okkar sjónarmið og málflutningur á kannski ekki alltaf heima þarna. Aftur á móti lítum við svo á að ASI hafi unnið að mikilvægum málefnum og sé nauðsynlegt launafólki." - Er það ekki áhyggjuefni að á sama tínm og brestir virðast vera komnir í ASÍ eru samtök atvinnurekenda að sameinast? „Jú og ég held að að íyrir það fyrsta ættu menn kannski að hugsa meira og tala minna og útkljá sín deilumál innan veggja en ekki í fjölmiðlum. Þetta er kannski hels- ta vandamálið, þótt ég sé ekki að mælast til þess að menn taki upp vinnureglur atvinnu- rekenda í þessum efnum.“ - Hvað eru margir féiagstnenn í FÍH? „Það eru um 800 manns og hefur fjölgað geypilega á undanförnum árum. Þótt að við séum að fara inní 21. öldina, þá erum við ennþá að berjast fyrir því að fá greidd laun samkvæmt okkar töxtum og að okkar samn- ingsbundnu réttindi séu virt." -GRH

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.