Dagur - 07.05.1999, Side 8
24- FÖSTUDAGUR 7. MAí 1999
Kaffitár á kosninganótt
Eins og venja er munu frambjóðendur og
stuðningsmenn fiokka og lista sem bjóða fram
til Alþingis, koma saman á kosningadag og
kosninganótt. Framsóknarmenn koma saman
á Fosshótel KEA á kosninganótt, fylgjast með
talningu og skemmta sér saman frá klukkan
21.00 og fram eftir nóttu. Sjálfstæðisflokkur-
verður með fjölskylduhátíð á Ráðhústorgi ki. 16.30 í
dag. Á kjördag verður kosningakaffi í Sjallanum kl. 15.00-17.30 og
kosningavaka í Kaupangi frá kl. 22.00 og framúr. Frjálslyndi flokkurinn
verður með opið hús á kosningaskrifstofu sinni við Ráðhústorg á
kjördag og fram eftir kosninganóttu. Samfylkingarmenn munu verða f
Húsi aldraðra eða „Gamla Allanum", þar sem hinir fjölmörgu sem að
kosningabaráttunni hafa komið munu fylgjast saman með talningu at-
kvæða frá kiukkan 22.00. Vinstrihreyfingin - Grænt framboð verður
með aðsetur á Fiðlaranum í Skipagötu, opið hús allan kosningadag-
inn og fram á nótt.
„Undan vetri“
Laugardaginn 8. mai klukk-
an 15.00 opnar Aðalheiður
S. Eysteinsdóttir sýningu í .
tjósmyndakompunni. Sýn-
ingin ber yfirskriftina „Und-
an vetri". Aðalheiður útskrif-
aðist úr málunardeild ;;
Wyndlistaskólans á Akureyri
1993. Síðan hefur hún
haldið nokkrar einkasýning-
ar og tekið þátt í samsýn-
ingum þar sem hún hefur
ýmist sýnt málverk eða tréskúlptúra. Að þessu sinni eru það Ijós-
myndir. Aðalheiður er með vinnustofu að Kaupvangsstræti 24 og hef-
ur rekið þar Ljósmyndakompuna siðastliðið eitt og hálft ár.
Ljósmyndakompan er opin frá þriðjudegi til laugardags klukkan
14.00-17.00. Allir velkomnir.
100. sýning Snuðruá Renniverk-
Möguleikhúsið sýnir
hundruðustu sýningu á
barnaleikritinu Snuðra og
Ttáa á Renniverkstæðinu
á Akureyri á sunnudaginn
kl.13. Einsog margir vita
þá er ieikritið byggt á
sögum Iðunnar Steins-
dóttur um systurnar
Snuðru og Tuðru, leiknar
af Drifu Arnþórsdó’.tur og
Aino Freyju Jarvela, en
systurnar éru fjörugar ;
stélpur semitaka upp á
fjölmörgum þrakkara-
strikum.
stæði
■ HVAD ER Á SEYDI?
HÖFUÐBORGIN
SÝNINGAR
Hönnun, kvæði og klæði - Ljóð
í litum!
Fatahönnuðir frá Gailerí Mót sýna
verk sin við íslensk samtímaljóð.
Ljóðin eru valin af Lindu Vilhjálms-
dóttur en nemendur úr Leiklistar-
skóla íslands leggja hönnuðunum lið
með framsetningu, módelstörfum og
flutningi Ijóða. Þema sýningarinnar
er: Ljóð í litum sumars. Hönnuðirnir
sem taka þátt í sýningunni eru: Alda
Kristín Sigurðardóttir, Ásta Guð-
mundsdóttir, Björk Baldursdóttir,
Guðrún Kristín Sveinbjörnsdóttir,
Heiðdís Jónsdóttir og Olga Gunnars-
dóttir. í dagskrárlok koma svo nem-
endur frá Myndlistarskóla íslands
með Myndlistar-Sjóv (ekki sýningu)!
Dagskráin hefst kl. 20:30 en húsið
opnað kl. 19:30. Aðgangseyrir er kr.
800,- og eru allir velkomnir.
Sigurrós í Listakoti
Sigurrós Stefánsdóttir, myndlistar-
konan opnar málverkasýningu í Gall-
erí Listakoti, Laugavegi 70, laugar-
daginn 8. maí kl. 14.00. Sigurrós
lauk prófum frá Myndiistaskólanum
á Akureyri 1997. Sýningin stendur til
30. maí.
Class of 99 Nema hvað
Class of 99 útskriftarnemar Mynd- og
handíðaskólans fylla Gallerí Nema
hvað, Skólavörðustíg 22c af hlutum.
Sýningin verður opnuð kl. 18:00 8.
maí og stendur til 16. maí. Sýningin
er í tengslum við útskriftarsýningu
myndlistarnema. Hún verður opin
fimmtudaga-sunnudaga 14:00-18:00.
Homo Grafikus
Laugardaginn 8. maí kl. 15.00 opnar
hópurinn Homo Grafikus mynlistar-
sýningu í 12 Tónum, á horni Baróns-
stígs og Grettisgötu. Að þessu sinni
taka sig saman 6 meðlimir klúbbsins
og sýna karllæga grafík. Samhliða
opnunni mun hljómsveitin
Akademískt kortér leika djass.
Kristján Davíðsson í Sævari
Karli
Kristján Davíðsson opnar sýningu á
nýjum olíumálverkum í sýningarsal
Sævars Karls í Bankastræti í Reykja-
vík sunnudaginn 9. maí kl. 15.00.
Síðustu sýningar á Leðurblök-
unni
Síðustu sýningar á óperettunni Leð-
urblökunni í ísiensku Óperunni verða
nú um helgina, laugardag og sunnu-
dag kl. 20.00. Uppfærslán hefur vak-
ið mikla athygli og umtal, bæði
gagnrýnenda og áhorfenda, enda er
uppsetningin nútímaleg! Flytjendur
hafa fengið einróma lof gagnrýnenda
og áhorfenda sem tekið hafa virkan
þátt í sýningunni með góðum undir-
tektum, dansi og ekki síst dúndrandi
lófaklappi.
TÓNLIST
Hátíðartónleikar í Hallgríms-
kirkju
Sinfóníuhljómsveit íslands spilar á
hátíðartónleikum í Hallgrímskirkju í
tilefni aldarafmælis Jóns Leifs.
Hljómsveitarstjóri á tónleikunum er
Anna Manson. Kór Schola Cantorum
syngur á tónleikurum en einsöngvar-
ar verða þau, Ingveldur Ýr Jónsdótt-
ir, Gunnar Guðbjörnsson og Loftur
Erlingsson. Kórstjóri er Hörður
Áskelsson. Tónleikarnir hefjast kl.
20.00.
Big Bandið
Big Band tónlistarskóla FÍH spilar á
Síðdegistónleikum Hins Hússins og
Rásar 2, föstudaginn 7. maí kl. fimm.
Big Bandið er skipað 18 hljóðfæra-
leikurum á aldrinum 16 ára og eldri.
Leikin verða stórsveitarlög. Stjórn-
andi er Edward Frederiksen. Tónleik-
arnir fara fram, að venju, á Geysi-
Kakóbar, Aðalstræti 2, Reykjavík.
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn
á meðan húsrúm leyflr.
Hitt Húsið og Félag Framhaldsskóla-
nema standa fyrir framboðsfundi fyr-
ir ungt fólk með ungum frambjóð-
endum strax eftir Big Band tónleik-
ana frá kl. 17.15. Flutt verður stutt
framsaga frá öllum flokkum og síðan
verða spurningar úr sal frá ungu
fólki. Ungt fólk er hvatt til þess að
mæta og láta í sér heyra.
Bubbi í tuttugu ár
Bubbi Morthens heldur upp á 20 ára
starfsferil sinn í tónlistarheiminum
með raðtónleikum á Fógetanum á
mánudags- og miðvikudagskvöld-
um. Þegar hafa verið haldnir tónleik-
ar tvö kvöld í þessari viku, en Bubbi
heldur áfram að rifja upp minningar
með tónleikagestum alveg fram til
23. júní. Allir tónleikarnir hefjast
stundvíslega kl. 22.00 og næsta
mánudag er „Kona“ m.a. á efnis-
skránni ásamt nýju efni.
Stúlknakórstónleikar
Laugardaginn 8. maí heldur Stúlkna-
kór Breiðholtskirkju tónleika í Breið-
holtskirkju í Mjódd kl. 16.00. Eftir
tónleikana verður hægt að kaupa
vöfflur og kaffi, en stúlkurnar eru að
safna fyrir ferð á barnakóramót sem
verður haldið í Finnlandi um miðjan
maí. Sóknarbúar og aðrir velunnarar
eru kvattir til að mæta og nota tæki-
færið og styðja starf kórsins.
Vortónleikar Tónskóla Eddu
Borg
Laugardaginn 8. maí kl. 11.00, 13.00
og 14.00 verða seinni vörtónleikar
Tónskóla Eddu Borg'í Seljakirkju í ■
Breiðholti.
MANNAMÓT
Vorhátíð Rimaskóla
í dag halda nemendur og starfsfólk
Rimaskóla í Grafarvogi sína árlegu
vorhátíð. Klukkan 14.00 spilar Skóla-
hljómsveit Gravarvogs. Skólahlaupið
hefst kl. 14.10. Svo verður skemmt-
un í íþróttasalnum kl. 15.00. Þar leik-
ur skólahljómsveitin aftur, kór Rima-
skóla syngur og ýmislegt fleira verð-
ur til skemmtunar. Nemendur skól-
ans hafa lagt mikla vinnu í að skreyta
skólann til þess að hátíðin yrði sem
best úr garði gerð.
Kosningavaka á Grandrokk
Á laugardagskvöld (Kosningakvöldið)
spilar hljómsveitin Kókos á
Grandrokk alhliða danstónlist eöa allt
frá disco til rokks. Leynigestur kemur
fram og tekur nokkur lög með Kókos.
í Kókos eru: Matthias Stefánsson,
gítar, Ingvi R. Ingvason, trommur, Árni
Björnsson, bassi Tómas Malmberg,
söngur. Hægt verður að fylgast með
kosningatölum þegar þær berast á
sjónvarpsskjá.
Bænastund vegna stríðsátak-
anna í Kosovo
Safnast verður saman í Háteigskirkju
í Reykjavík föstudaginn 7. maí, kl.
18.00 til stuttrar bænastundar vegna
stríðsátaknna í Kosovo. Beðið verð-
ur fyrir þeim sem líða vegna átak-
anna, öryggi þeirra og friði. Sýnum
samstöðu í bæn og leggjum þeim lið
sem búa við stríð og óöryggi með
því að safnast saman til bæna. Flýj-
um eril föstudagsins litla stund og
komum til bænastundarinnar í Há-
teigskirkju.
ELDRI BORGARAR
Asgarður Glæsibæ
Bridge í dag kl. 13.30, félagsvist I
kvöld kl. 20. Vorkvöld í Reykjavík í
kvöld kl. 20. Ferðaþjónustuaðilar á
Suðurlandi kynna þjónustu sína,
glæsilegir vinningar. Gestur
kvöldsins Raggi Bjarna, Hljómsveit
Birgis Gunnlaugssonar leikur fyrir
dansi. Gönguhrólfar fara í létta
göngu á laugardagsmorgun frá
Ásgarði kl. 10.00.
OG SVO HITT...
Getur bæn verið skemmtileg?
íslenska Kristskirkjan stendur fyrir
námskeiði um bænina laugardaginn 8.
maí. Kennari á námskeiðinu verður
séra Björn Peterson, lútherskur prestur
frá Glendale í Arizona, en hann hefur
um margra ára skeið verið brautryðj-
andi í bænastarfi. Hann er stofnandi og
framkvæmdastjóri Prayer Watch
International, stofnunar sem heldur al-
menn bænanámskeið víða um heim.
Margir halda að bæn sé þæytandi
skyldurækni, en þeir sem .sótt hafa
námskeið Petersons komast að því að
bænin er einmitt hið gagnstæða: Hún
er spennandi samstarf við Guð og get-
ur verið mjög skemmtiieg! Námskeiðið
verður haldið í húsnæði íslensku
Kristskirkjunnar, Bíldshöfða 10,2. tiæð,
hefst klukkan 10.00 og stendur til
klukkan 17.00. Þátttökugjald...er 800
krónur og er léttur hádegisverður inni-
falinn. Kennslan verður túlkuð á ís-
lensku. Skráning í síma 567-8800 eftir
hádegi í dag. Allir ern velkomnir.
Þátttaka foreldra í námi
Dr. Peter Rillero, Fulbright styrkþegi
við Háskólann á Akureyri, flytur fyrir-
lestur í boði Rannsóknarstofnunar
Kennaraháskóla íslands og Fræðslu-
miðstöðvar Reykjavíkur föstudaginn
7. maí kl. 14.30. Fyrirlesturinn nefn-
ist: Þátttaka foreldra i verklegu nátt-
úrufræöinámi. Fyrirlesturinn er fluttur
á ensku í stofu M-301 í aðalbygg-
ingu Kennaraháskóla Islands Við
Stakkahlíð og er öllum opinn.
Hlaðborð af kræsingum
Sunnudaginn 9. maí að lokinni
messu í Grensáskirkju kl. 15.00
verður kaffisala í Safnaðarheimilinu.
Þaö eru Kvenfélagskonur sem
standa fyrir kaffisölunni og hlaðborði
sem hreinlega svignar undan
allskyns kræsingum sem þær og vel-
unnarar hafa bakað og gefið til kaffi-
sölunnar. Öllum ágóðanum er varið
til kristilegs líknarstarfs og umbóta í
Grensáskirkju.
Opið hús í Ieikskólum og gæslu-
völlum
Laugardaginn 8. maí verður opið hús
í leikskólum og gæsluleikvöllum
Reykjavíkurborgar í Árbæjarhverfi,
Fellahverfi, Fossvogshverfi, Bústað-
arhverfi og Háleitishverfi. Leikskól-
arnir verða opnir á tímanum frá kl.
11.00 til 14.00. Foreldrar og aðrir
áhugasamir gestir geta kynnt sér af-
rakstur vetrarstarfsins með börnun-
um og þá blómlegu menningu sem
dafnar í leikskólunum.
LANDIÐ
TÓNLIST
Tvennir tónleikar
Laugardaginn 8. mai verða haldnir
tvennir tónleikar á vegum Tónlistar-
skóla Akureyrar. Fyrri tónleikarnir
verða haldnir í Safnaðarheimili Akur-
eyrarkirkju kl. 16.00, þar sem fram
koma píanónemendur. Seinni tónleik-
arnir verða á sal Tónlistarskólans kl.
18.00, þar sem fram koma yngri gítar-
nemendur. Vinsamlega athugið að
áður auglýstir tónleikar söngdeildar-
innar i kvöld kl. 20.30 falla niður.
KK á Dalvík, Hofsósi og Skaga-
strönd
KK (Kristján Kristjánsson) heldur
tónleika í Kaffi menningu á Dalvík í
kvöld kl. 21.00. Sunnudaginn 9. maí
verður svo KK með tónleika í Félags-
heimilinu Höfðaborg á Hofsósi kl.
20.30. Og mánudaginn 10. maí á
Skagaströnd í Kántrýbæ kl. 21.00.
Kosningar og kórtónleikar á
Dalvík
Húsabakkakórinn Góðir Hálsar, kór
grunnskólans í Svarfaðardal, heldur
tónleika láugardaginn 8. maí klukkan
14.00 í Dalvíkurkirkju. Á dagskrá eru
bæði íslensk og erlend lög. Stjórn-
andi kórsins er Rósa Kristín Baldurs-
dóttir og píanóleikari er-Daníel Þor-
steinsson. . Aðgangseyrir er 1.000
krónur fyrir 16 ára og eldri en börn
og unglingar á leikskóla- og grunn-
skólaaldri fá frítt. Allur ágóði af tón-
leikunum fer Í.Finnlandsferð kórsins
sem farin verður 12.-18. maí.
SÝNINGAR
Med danske ojne
Carsten Lyngdrup Madsen kveður
ísland eftir tveggja ára veru, með
myndlistarsýningu í Gallerí Svart-
fugli, Listagilinu á Akureyri, sem
hann kaliar „Med danske ojne“. Is-
land séð með dönskum augum
Carstens birtist í 40 verkum sem
skipt er i tvo flokka landslag og and-
lit og eru unnar með litblýanti, pastel
og bleki. Carsten kom sérstaklega til
íslands til þess að geta verið nálægt
fjölskyldunni, náttúrunni og listinni.
Sýningin verður opnuð á laugardag
kl. 14.00 og stendurtil 16. maí.
Listamaður mánaðarins
I Listfléttunni á Akureyri er verið að
kynna listamann maímánaðar, Helgu
Jóhannesdóttur. Hún sýnir verk unn-
in úr leir. Listfléttan er opin virka
daga frá kl. 11.00-18.00, laugardaga
frá kl. 11.00-14.00, en til kl. 16.00
núna á laugardaginn.
Jesús Kristur - eftirlýstur
Sýning um ímynd Jesús Krists í
myndgerð stendur yfir í Listasafninu
á Akureyri og er sett upp í tilefni af
1000 ára kristni á íslandi. Sýningin er
opin alla daga frá kl. 14.00-18.00
nema mánudaga.
MANNAMÓT
Vorhátíð Síðuskóla
Mikil hátíð verður haldin í Síðuskóla
á Akureyri á morgun. Börn í 7.-9.
bekk koma fram í ýmsum myndum
undir handleiðslu Arnar Inga. Veitt
verða verðlaun í myndlistarsam-
keppni nemenda í 8.-10. bekk þar
sem unnið var eftir þemanu „vímu-
varnir". Keppt verður í ýmsum leikj-
um, ýmsar uppákomur i mat, útigrill,
kaffihlaðborð, pizza, sælgætiskast,
hlutavelta, spákona og margt fleira.
Immanuel Kant í Deiglunni
Á morgun kl. 14.00 flytur dr.
Guðmundur Heiðar Frímannsson
fyrirlestur á vegum Félags
áhugafólks um heimspeki í Deiglunni
á Akureyri. I fyrirlestrinum verður
leitast við að skýra og skilja
siðalögmál Kants. Litið verður til
áherslu Kants á algildi siðalögmála.
Einnig verður reynt að svara því
hvernig ólíkar framsetningar Kants á
siðalögmálinu tengjast saman, hvort
um er að ræða eitt siðalögmál eða
fleiri. Guðmundur Heiðar er
forstöðumaður kennaradeildar
Háskólans á Akureyri og er
heimspekingur að mennt. Hann lauk
doktorsprófi í siðfræði frá
Háskólanum í St. Andrews í
Skotlandi og hefur skrifað greinar
um siðfræði á íslensku. Aðgangur er
ókeypis og allir eru velkomnir.
www.visir.is
FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR
Tönleikar, sýningar,
fyrirlestrar o.s.frv...
Sendu okkur upplýsingar á
netfangi, í símbrðfí eða hríngdu.
ritstjori@dagur. is
fax 460 6171
sími 460 6100
Útvörður upplýsinga
Áskrlftarsfminn er 800-7080