Dagur - 11.05.1999, Blaðsíða 1
Halldór og Davíð
lielja viðræður
Davíð Oddsson og
Halldór Ásgrímsson
fengn í gær umboð frá
þingflokkum sínum
til að hefja stjómar-
myndunarviðræður.
Fleiri mynstur munu
þó talin koma til
greina.
Ríkisstjórnarflokkarnir hafa
ákveðið að hefja stjórnarmynd-
unarviðræður. Davíð Oddsson
forsætisráðherra sagði eftir stutt-
an þingflokksfund sjálfstæðis-
manna í gær, að hann hefði feng-
ið víðtækt umboð þingflokksins
til að leiða stjórnarmyndunarvið-
ræður fyrir flokkinn til lykta.
Halldór Asgrímsson skýrði svo
frá því eftir tveggja stunda þing-
flokksfund framsóknarmanna að
hann og Finnur Ingólfsson
hefðu fengið umboð til að fara í
stjórnarmyndunarviðræður við
Sjálfstæðisflokkinn um samstarf
á svipuðum nótum og verið hef-
ur sl. 4 ár.
I þeim viðræðum verður að
sjálfsögðu rætt um nýjan mál-
efnasamning og skiptingu ráðu-
neyta. Víst má telja að ef þessir
flokkar halda ríkisstjórnarsam-
starfinu áfram verður ekki sama
ráðuneytaskipting og nú er ef
mið er tekið af landsfundarsam-
þykktum Sjálfstæðisflokksins.
Þingmenn sem Dagur ræddi
við í gær töldu allar líkur á að
ráðherrum yrði fjölgað um tvo ef
þessir flokkar halda áfram
stjórnarsamstarfi. Þá er talað um
að umhverfisráðuneytið verði
sér, sem og dóms- og ldrkjumála-
ráðuneyti.
Fleiri möguleikar
En það hafa fleiri stjórnarmynd-
unarmöguleikar verið ræddir
meðal stjórnmálamanna í gær-
dag. I hópi framsóknarmanna
hefur sá möguleiki verið nefndur
í fullri alvöru að Framsóknar-
flokkurinn myndi ríkisstjórn með
Samfylkingu og Vinstri-græn-
um. Það væri ríkisstjórn sem
hefði 35 þingmenn á bak við sig.
Framsóknarmenn telja hins veg-
ar að erfitt gæti reynst að halda
slíkri ríkisstjórn saman, auk þess
sem nokkrir þingmenn Samfylk-
ingarinnar eru ekki par vinsælir
hjá framsóknarmönnum.
Loks hefur sá möguleiki að-
eins verið nefndur að Sjálfstæð-
isflokkurinn myndi ríkisstjórn
með Vinstri-grænum og Fijáls-
lyndaflokknum, stjórn sem hefði
34 þingmenn á bak við sig.
Möguleikinn á að Sjálfstæðis-
flokkurinn og Samfylkingin
myndi stjórn er talinn vera úti-
lokaður en sú ríkisstjórn hefði
43 þingmenn að baki sér eða
svipað og stjórnarflokkarnir
höfðu á liðnu kjörtímabili.
Ráðherraxaunir
Það eru sjálfstæðismenn sem
mest tala um að fjölga ráðherr-
um um tvo. Davíð Oddsson, for-
maður flokksins, á í miklum erf-
iðleikum ef ráðherrar ríkisstjórn-
arinnar verða 10 áfram. Davíð,
Björn Bjarnason og Geir H.
Haarde verða áfram ráðherrar.
Eftir að Halldór Blöndal er orð-
inn 1. þingmaður Norðurlands
eystra verður tæplega við honum
hróflað, eins og talað hefur verið
um að til stæði. Þá er bara einn
ráðherrastóll eftir.
Konur gera kröfu um ráðherra.
Þær munu keppa um stólinn
Sólveig Pétursdóttir úr Reykjavík
og Arnbjörg Sveinsdóttir af Aust-
urlandi. En fleiri gera tilkall til
ráðherradóms. Þar skal fyrstan
nefna Árna Mathiesen, sem
leiddi D-listann til mikils sigurs
á Reykjanesi. Sturla Böðvarsson
mun gera kröfu um ráðherrastól,
Hjálmar Jónsson, sem orðinn er
1. þingmaður Norðurlands
vestra, gerir það líka. Gera má
ráð fyrir að Árni Johnsen banki
líka á dyrnar eftir góða útkomu á
Suðurlandi.
Framsókn líka
Framsókn á líka við ráðherraerf-
iðleika að etja. Af 12 þingmönn-
um flokksins munu eínir 9 gera
kröfu til ráðherradóms. Það eru
að sjálfsögðu núverandi ráðherr-
ar flokksins að Guðmundi
Bjarnasyni undanskildum. Fyrst-
an skal nefna eina oddvitann á
lista Framsóknarflokksins sem
jók fylgið en það er Guðni
Ágústsson. Staða hans er firna
sterk. Síðan eru það þau Val-
gerður Sverrisdóttir, Siv Frið-
leifsdóttir, Hjálmar Árnason og
Kristinn H. Gunnarsson, sem öll
gera kröfu um ráðherradóm.
Það myndi því koma sér afar
vel fyrir Framsóknarflokkinn,
ekki síður en samstarfsflokkinn,
að ráðherrastólunum yrði fjölg-
að. - S.DÓR
Sjá einnig bls. 8 og 9 og
forsíðu Akureyri/Norðurland
SIMM
Stórtjón /' Hamri, félagsheimili
íþróttafélagsins Þórs á Akureyri, á
kosninganótt. Brennuvargar ganga
iausir.
„Gífurlegt
áfall“
Stórtjón varð í Hamri, félags-
heimili Iþróttafélagsins Þórs á
Akureyri, í bruna á kosninganótt,
aðfaranótt sunnudags. Lögreglan
telur að um íkveikju af manna
völdum hafi verið að ræða. Mál-
ið er f rannsókn og er lögreglan
að kanna mannaferðir í grennd
við húsið þessa nótt.
Eldurinn kom upp í kjallara
hússins, nokkurs konar véla-
geymslu að sögn lögreglu.
Skammt frá var mikið magn sal-
ernispappírs og virðist eldurinn
hafa kviknað í pappírnum. Mats-
menn Sjóvár-Almennra komu frá
Reykjavík í gær til að meta tjón-
ið. Rætt er um margar milljónir í
þessu sambandi og er húsið
ónothæft sem stendur.
Fólk gisti í húsinu þessa nótt
eins og oft áður og létu íbúar vita
af eldinum. Þeir voru vakandi
þegar eldurinn kviknaði, en ekk-
ert bendir til að þeir hafi verið
viðriðnir eldsvoðann. Slökkvi-
starf gekk vel og var eldurinn
takmarkaður við vélageymsluna.
Hins vegar náðu skemmdir af
völdum sóts og reyks um allt hús.
Gífurlegt áfall
Svala Stefánsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Þórs, segir ljóst að
tjónið hafi orðið miklu meira en
séð varð í upphafi. Hins vegar
hafi góðar eldvarnir komið í veg
fyrir að ekki fór enn verr. „Þetta
er gífurlegt áfall og bruninn
kemur upp á versta tíma, þar
sem allt okkar sumarstarf er að
fara á fullt eftir aðeins hálfan
mánuð. Það er Ijóst að við erum
að tala um meira tjón en „aðeins"
nokkrar milljónir," segir Svala.
Við blasa skipti á loftefnum í
kjallara, rífa þarf niður loftræsti-
kerfi, skipta um málningu, sót-
skemmdir eru gífurlegar,
ljósalampar illa farnir og áhöld
vallarins ónýt o.s.frv. - bþ
Venjulegirog
demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI • SÍMI 462 3524
WORLDWIDE EXPRESS
EITT NÚMER AÐ MUNA
5351100
+