Dagur - 11.05.1999, Side 3
ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1999 - 3
FRÉTTIR
KÞ í alvarlegri
íj árhagskreppu
Stórtap á síöasta ári
veldur yfirtöku KEA
og Landsbankaus á
kjötvinnslu og mjólk-
urviinislu KÞ.
„Eg hef ekki fundið annað en að
starfsmenn standi á bak við
þessa ákvörðun en hvað varðar
umhverfið að öðru leyti er erfitt
að segja um. Ég hef ekki heyrt í
mörgum almennum félagsmönn-
um en ég vænti þess að þeir Iegg-
ist á árar með okkur,“ segir Hall-
dóra Jónsdóttir, stjórnarformað-
ur Kaupfélags Þingeyinga.
Kaupfélag Eyfirðinga og Kaup-
félag Þingeyinga, elsta kaupfélag
landsins, hafa gengið til sam-
starfs um stofnun einkahlutafé-
laganna Kjötiðjunnar ehf. og
MSKÞ ehf. Fyrrnefnda félagið
mun frá og með gærdeginum yf-
irtaka eignir og skuldbindingar
Kaupfélags Þingeyinga á sviði
slátrunar og kjöUánnslu en það
síðarnefnda mun yfirtaka eignir
og skuldbindingar Kaupfélags
Þingeyinga á sviði mjólkur-
\dnnslu. Rekstur KÞ hefur geng-
ið afar illa að undanförnu og má
líkja breytingunum við björgun-
araðgerðir.
Stofnun þessara tveggja einka-
hlutafélaga er liður í sameining-
arferli ofangreindra rekstrarein-
inga hjá kaupfélögunum tveim-
ur. Af hálfu KÞ er stofnun fyrir-
tækjanna tveggja jafnframt liður
í að verja stöðu KÞ en KEA og
Landsbanki Islands hf. hafa
gengið til liðs við KÞ til að verja
eignir og rekstur félagsins.
Kaupfélag Eyfirðinga er meiri-
hlutaeigandi í MSKÞ ehf. en
Kaupfélag Þingeyinga og Lands-
banld Islands hf. eiga hins vegar
meirihluta í Kjötiðjunni ehf.
Engin breyting verður á rekstrin-
um fyrst um sinn, þrátt fyrir yfir-
töku nýju félaganna tveggja á
þessum rekstrarþáttum KÞ.
Forráðamenn kaupfélaganna
tveggja binda miklar vonir við að
fyrirhuguð sameining rekstrar-
þátta KEA og KÞ á sviði kjöt- og
mjólkurvinnslu muni hafa mikla
hagræðingu í för með sér og
skapa ný sóknarfæri. I því sam-
bandi má geta þess að þegar eru
uppi hugmyndir um að efla slátr-
un og kjötvinnslu á Húsavík frá
því sem nú er. Kaupfélag Þingey-
inga á stóran hlut í Kjötumboð-
inu hf. í Reykjavík og Bautabúr-
inu á Akureyri en engar breyting-
ar verða á eignarhaldi þeirra fyr-
irtækja nú.
Ekki óskaatburðarás
„Ég minni á að Kaupfélag Eyfirð-
inga, Kaupfélag Þingeyinga og
Sölufélag Austur-Húnvetninga
hafa látið kanna hagkvæmni í
sameiningu ákveðinna rekstrar-
þátta hjá kaupfélögunum, ekki
sfst f mjólkur- og kjötframleiðslu.
Stofnun einkahlutafélaganna
tveggja kemur að mínu mati í
rökréttu framhaldi af þeirri at-
hugun. Þó má ljóst vera að at-
burðarás sfðustu daga er ekki sú
sem KEA hefði kosið til að þessi
sameining næði fram að ganga,“
segir Eiríkur S. Jóhannsson,
kaupfélagsstjóri KEA.
Óljóst með stjóraim
Halldóra Jónsdóttir, stjórnarfor-
maður Kaupfélags Þingeyinga,
segir mikilvægast af öllu að veija
hagsmuni starfsfólks, viðskipta-
vina og félagsmanna KÞ og þess-
ar aðgerðir miði að því. Aðspurð
hvort breytinga sé að vænta á
stjórn KÞ eða jafnvel hvort staða
Þorgeirs Hlöðverssonar sem
kaupfélagsstjóra sé til skoðunar
segir Halldóra að ekkert hafi ver-
ið ákveðið í þeim efnum. Að-
spurð um taptölur fyrirtækisins
segir hún að þær liggi enn ekki
fyrir að fullu. Hún segir þó að
tapið hafi verið töluvert meira í
fyrra en árið á undan.
Hefði rekstur KÞ verið vonlítill
að óbreyttu? „Það er spurning
um mat. Við ákváðum að heyja
varnarbaráttuna með þessum
hætti. Við erum fyrst og fremst
að gæta hagsmuna starfsfólks,
félagsmanna og viðskiptamanna
en það þýðir ekkert að vera með
neinar vangaveltur um kannski,
hvað og ef. Tíminn mun leiða í
Ijós hvernig tekst til,“ segir
stjórnarformaðurinn.
Halldóra segir enga fækkun
hjá starfsliði KÞ til að byrja með
að minnsta kosti, en erfitt sé að
spá fyrir um framtíðina. - Bt>
Enn er ekki séð fyrir endann á mála-
rekstri gegn Technopromexport sem
var í línulögn fyrir Landsvirkjun hér á
landi.
í mál við
Tedrno-
promexport
Rússarnir tveir og Ukraínumað-
urinn sem flúðu á náðir Félags
járniðnaðarmanna vegna hótana
Technopromexport (TPX) um að
segja þeim upp og senda þá
heim, hafa stefnt fyrirtækinu til
greiðslu vangoldinna launa og
eru kröfurnar frá 827 þúsund
krónum upp í 1,3 milljónir eða í
heild um 3 milljónir króna, auk
vaxta.
Landsvirkjun hefur staðfest
að hafa haldið eftir 3,5 milljón-
um króna af samningsgreiðslu
til TPX. I stefnu Félags járniðn-
aðarmanna fyrir hönd Yuriy
Fitts, Serguei Evgrafov og Boris
Moisseev kemur fram að eftir
töluverðan ágreining um launa-
mál hafi náðst samkomulag við
TPX 9. október sl., sem fyrirtæk-
ið hafi ekki efnt og svarað fyrir-
spurnum í litlu sem engu. Kröf-
ur þremenninganna fóru í lög-
innheimtu sem forsvarsmenn
TPX hafa í engu sinnt og því sé
málið höfðað. Þess má geta að
þeir Yuriy og Boris starfa hér á
landi enn, í Stálsmiðjunni, en
Serguei er haldinn af landi
brott. - FÞG
Kaldbakur kaupir
hlut í Snæfelli
INNLENT
Forstjóri Samherja
neitar orðrómi um að
Samherji sé að huga
aðkomu að rekstri
Vinuslustöðvariuuar
eða Básafells. Kaup á
hlutahréfum Akureyr
arhæjar í ÚA ekki á
dagskrá.
Kaupfélag Eyfirðinga hefur
ákveðið að selja 23,5% hlut í
sjávarútvegsfyrirtækinu Snæfelli
á Dalvík til Kaldbaks, sem er
fjárfestingafélag í eigu Samherja
og KEA. Eftir söluna á KEA um
70% hlutafjár í Snæfelli. Jafn-
framt hefur stjórn Kaupfélags
Eyfirðinga ákveðið að óska eftir
því að baldinn' verði hluthafa-
fundur í Snæfelli og á þeim
fundi verði lögð fram tillaga um
að auka hlutafé f Snæfelli um
500 milljónir króna. Fyrir liggur
ákvörðun um að KEA mun afsala
sér forkaupsrétti sínum á hinu
nýja hlutafé yfir til Kaldbaks.
Eftir hlutafjáraukninguna mun
Kaldbakur þá eiga rúm 40%
hlutafjár í Snæfelli en KEA rúm
50%.
Styrkir Snæfell í sessi
„Það er yfirlýst stefna stjórnar
Þorsteinn Már Batdvinsson, forstjóri
Samherja, telur Snæfell góðan fjár-
festingarkost og fyrirtækið vel stað-
sett miðað við höfuðstöðvar Samherja
á Akureyri.
KEA að létta skuldum af félag-
inu og sala þessa hlutaljár í Snæ-
felli er liður í því. Jafnframt tel
ég engan vafa á því að aukin
eignarhlutdeild Kaldbaks í Snæ-
felli muni styrkja Snæfell í sessi.
Síðast en ekki síst er ég mjög
ánægður með það að Samherji,
sem að mínum dómi er öflugasta
sjávarútvegsfyrirtæki á Islandi í
dag, sjái sér hag í því að tengjast
rekstri Snæfells með þessum
hætti,“ segir Eiríkur S. Jóhanns-
son, kaupfélagsstjóri KEA og
stjórnarformaður Snæfells.
Góður fjárfestingarkostux
Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja, telur Snæfell
góðan fjárfestingarkost og fyrir-
tækið vel staðsett miðað við höf-
uðstöðvar Samherja á Akureyri.
Þorsteinn Már segir að ekki
hefði verið fjárfest í Snæfelli ef
stjórnendur Samherja hefðu
ekki trú á því hægt væri að snúa
taprekstri undanfarinna missera
i hagnað. Uppsjávarveiðihluti
fyrirtækisins hefði gengið illa en
hann hefði nú verið seldur út úr
fyrirtækinu og eftir stæði að
hans mati ágæt eining.
„Það er ekki fleira á döfinni
hjá Kaldbaki, enda nóg í bili.
Samherji er heldur ekki að koma
að rekstri Vinnslustöðvarinnar í
Vestmannaeyjum þrátt fyrir
sterkan orðróm þar um, fjárfest-
ing í Snæfelli nægir okkur í bili.
Það sama á við um Básafell á
ísafirði og að verið sé að kaupa
hlutabréf Akureyrarbæjar í Ut-
gerðarfélagi Akureyringa. Eg hef
ekki einu sinni velt fyrir mér
kaupum í UA, þó slíkt stæði til
boða. Eg gæti líka neitað orð-
rómi um að við séum að hyggja
að frekari endurnýjun skipastóls
okkar en þegar stendur fyrir dyr-
um,“ segir Þorsteinn Már Bald-
vinsson. Verið er smíða öflugt
nótaskip fyrir Samherja. - GG
Yfir 100 kröfur vegna bruna Gallerís
Borgar
Tæknideild lögreglunnar í Reykjavík skilaði af sér niðurstöðum urn
brunann í Galleríi Borg \'ið Síðumúla um miðjan mars og hefur mál-
ið legið síðan hjá lögfræðideild embættisins til úrskurðar. Hjá trygg-
ingafélaginu VIS liggja á sama tíma fyrir kröfur frá á annað hundrað
manns um að tjón vegna nálægt 500 muna verði bætt. Að sögn Jóns
Trausta Guðjónssonar hjá VIS er lítið um málið að segja meðan
rannsókn þess stendur enn yfir. „Málið er umfangsmikið og verður
ekki hrist fram úr erminni. En ég hef ekki heimild til að greina frá
upphæðum þeirra krafna sem borist hafa,“ segir Jón Trausti, en sam-
kvæmt heimildum Dags er um töluvert háar upphæðir að ræða frá á
annað hundrað kröfuhöfum vegna nálægt 500 muna, málverka og
annarra listmuna. DV hefur greint frá því að Pétur Þór Gunnarsson
eigandi Gallerís Borgar hafi selt Bárði Halldórssyni rekstur gallerís-
ins, en húsnæðið við Síðumúla hefur verið afhent eftir endurbætur.
- FÞG
Hassfimdiir á ísafirði og þrjár húsleitir
Lögreglan á ísafirði hefur Iagt hald á rúmlega 76 grömm af hassi
ásamt tækjum til fíkniefnaneyslu sem fannst \ið húsleit í húsi í einu
af þorpum Isafjarðarbæjar. Ibúinn, rúmlega þrítugur að aldri, var
handtekinn og yfirheyrður hjá Iögreglunni á Isafirði og annar karl-
maður á svipuðum aldri var handtekinn í Kópavogi í tengslum við
rannsókn málsins og þar fundust áhöld til fíkniefnaneyslu. Þriðji
maðurinn var síðan handtekinn á Isafirði og yfirheyrður og húsleit
var gerð í Hafnarfirði, en án árangurs. - GG
Laun bótaþega hækki
Húmanistaflokkurinn krefst þess að laun elli- og örorkulífeyrisþega,
at\ innu 1 eysisbætur og Iágmarkslaun verði strax hækkuð til samræm-
is við það sem Kjaradómur hefur úrskurðað hástétt embættismanna,
þingmanna og ráðherra, eða um 30%. I ályktun flokksins kemur m.a.
fram að það mundi hækka mánaðarlaun elli- og örorkulífeyrisþega úr
67 þúsund krónum í 87 þúsund og Iágmarkslaun úr 70 þúsund í 91
þúsund á mánuði. Þá skorar flokkurinn á stjórnmálaflokkana að af-
nema fátækt í landinu. - GRH