Dagur - 11.05.1999, Page 5
PRIDJUDAGUR 11. MÁI 1999 - S
FRÉTTIR
Kj aradómur gefur
tónbm iim kröfur
Forseti ASÍ og formað-
ur BSRB gagnrýna úr-
skurð Kjaradóms.
Dónskapur og ögrun
við launafólk. Mánað-
arlaun toppanna
hækka um 66-130
þúsund krónur.
„Mér sýnist að þetta muni auð-
velda félögum mínum í aðildarfé-
lögunum og landssamböndunum
að átta sig á hvernig kröfugerðin
muni líta út. Þetta hefur gengið
heldur friðsamlega fyrir sig
þannig að ég ætla rétt að vona að
undirtektirnar verði það líka,“
segir Grétar Þorsteinsson, forseti
ASI. Þá gagnrýnir hann tímasetn-
inguna á úrskurði Kjaradóms og
telur hana vera ögrun við launa-
fólk.
Dónaskapur
Ogmundur Jónasson, nýkjörinn
þingmaður Vinstrihreyfingarinn-
ar - græns framboðs og formaður
BSRB, segir að tímasetningin og
aðferðafræðin sé fullkominn
dónaskapur. I stað Kjaradóms á
að semja um launin auk þess sem
þingið á að taka ábyrgð á launa-
hækkunum þingmanna með at-
kvæðagreiðslu. Þá mótmælir
hann röksemdum Kjaradóms um
hækkanir opinberra starfsmanna
og telur að þau rök standist ekki
nema að hluta til. I því sambandi
minnir hann á að það séu þús-
undir opinberra starfsmanna sem
hafa aðeins fengið lágmarks
Iaunahækkanir. Ögmundur segist
ekki ætla að afþakka þessa launa-
hækkun, enda sé hún almenns
eðlis. Hann minnir hinsvegar á
að hann hafi á sínum tíma hafn-
að þeirri sértæku 40 þúsund
króna Iaunabót sem þingmenn
fengu í formi skattfríðinda.
Úgmundur Jónasson: Fullkominn
dónaskapur.
13-30% launáhækkim
Helstu embættismenn þjóðarinn-
ar, þingmenn og ráðherrar fengu
umtalsverða launahækkun með
úrskurði Kjaradóms á kjördag.
Launahækkanimar eru á bilinu
13,5-30%. Þingmenn hækka t.d. í
Iaunum um 66 þúsund krónur,
eða úr 228.204 krónum í 295
þúsund krónur. Ráðherrar hækka
úr 409.517 krónum í 531 þús-
und, eða um 122 þúsund krónur.
Mánaðarlaun forsætisráðherra
hækka úr tæpum 451 þúsund
krónum í 584 þúsund krónur,
eða um rúmar 130 þúsund krón-
ur. Þá hækka skattlaus laun for-
seta íslands líka um 130 þúsund
krónur og fara úr 468.050 krón-
um í 598 þúsund krónur á mán-
uði.
MiMlvægustu störfíu
I rökstuðningi Kjaradóms kemur
m.a. fram að þingmenn og ráð-
herrar vinna mörg mikilvægustu
störfin í þjóðfélaginu og móta
stefnuna í þjóðmálum. Þá verður
að gæta þess vandlega að launa-
kjör þeirra verði ekki fyrirfram
hindrun sem fælir þá bestu og
hæfustu frá því að gefa sig að
þessum mikilvægu störfum og
séu ekki í hættu að verða öðrum
háðir vegna fjárhagsstöðu sinnar.
Þá sé eðlilegt að miða launaþró-
un embættismanna við opinbera
starfsmenn fremur en vinnu-
markaðinn í heild. Bent er á að á
tímabilinu frá 1. ársfjórðungi
1997 til 1. ársfjórðungs 1999
hækkuðu laun opinberra starfs-
manna og bankamanna um
26,4% og um 17% á almenna
markaðnum.
Fúnm í Kjaradómi
1 Kjaradómi sitja fimm manns, en
formaður hans er Garðar Garð-
arsson. Aðrir dómendur eru þau
Jón Sveinsson, Margrét Guð-
mundsdóttir, Óttar Yngvason og
Þorsteinn Júlíusson. - GRH
Áætlaður kostnaður við framkvæmd-
irnar í Krossanesi verður á bilinu 50 tii
60 milljónir króna.
Meiri meng-
unarvamir
Krossanes hefur lagt fyrir Holl-
ustuvernd tillögur til úrbóta í
mengunarvörnum verksmiðj-
unnar. í tillögunum er gert ráð
fyrir að verksmiðjan festi kaup á
búnaði sem ráðgjafar fyrirtækis-
ins telja að muni skila mestum
árangri í því að draga úr Iyktar-
mengun frá verksmiðjunni. Um
er að ræða eina bestu fáanlegu
tækni sem í boði er í heiminum
en þessi tækni hefur skilað við-
unandi árangri í mengunarvörn-
um þar sem henni hefur verið
beitt, m.a. á hinum Norðurlönd-
unum.
Ef Hollustuvernd fellst á fram-
komnar tillögur má gera ráð fyr-
ir að hægt verði að ljúka upp-
setningu búnaðarins í kringum
næstu áramót. Fyrirtækið áætlar
að kostnaður við þessar fram-
kvæmdir verði á bilinu 50 til 60
milljónir króna. Mengunaráætl-
un verksmiðjunnar verður kynnt
fyrir nágrönnum hennar. Rekstr-
arafkoma fyrirtækisins var á
tímabilinu mun verri en árið
áður. Gert er ráð fyrir að Krossa-
nes verði rekið með tapi. - GG
—
' ' ■
. . Jfi
Græni herinn gekk á land í Reykjavík í gær af varðskipinu Úðni. I móttökuliðinu var m.a. ungviðið frá Grænuborg sem tók
hernum fagnandi. mynd: eól
I strið við sóðaskap
Landganga Græna
hersins. Átak á lands-
vísu með Stuðmönn-
um. Herinn á Netið.
,;Við ætlum að útrýma sóðaskap á
Islandi áður en ný öld gengur í
gárð,“ segir Jakob Frímann
Magnússon, hershöfðingi og
Stuðmaður í Græna hernum.
Á landsvísu
Tæpum 60 árum eftir að breski
herinn gekk á Iand á Islandi, eða
1Ö. maí árið 1940, kom fyrsta
herdeild Græna hersins siglandi
með varðskipi og gekk á land á
Miðbakka í Reykjavík vopnuð
hrífum, skóflum og málning-
arpenslum. A hafnarbakkanum
biðu eðalvagnar hersins sem
Toyota umboðið lagði til. Um
leið og lagt verður til atlögðu við
sóðaskap landsmanna á 25 stöð-
um á landinu, verður í heiðri
haft 100 ára afmæli skógræktar á
Islandi með viðeigandi land-
græðslu. Þá ætla liðsmenn hers-
ins að beita málningarpenslum
af mikilli kostgæfni. Atakinu lýk-
ur svo á hverjum stað með dans-
Ieik Stuðmanna.
Herinn á Netið
Þetta átak gegn sóðaskapnum
hefst á Suðurnesjum í byrjun
næsta mánaðar og stendur yfir
um allt land fram undir lok
ágústmánaðar. Þá hefur verið
opnuð heimasíða hersins á Net-
inu, en slóðin er graeniherinn.is.
Þar geta landsmenn skráð sig til
þátttöku. Fjöldi hermanna verð-
ur takmarkaður við 50 á hverjum
stað. Að afloknum 6-7 stunda
vinnudegi bíður þeirra grillveisla
og boðsmiðar á dansleik með
Stuðmönnum. Helstu samstarfs-
aðilar hersins eru Olís, Samskip,
Toyota, Sparisjóðirnir, Aform,
umhverfisráðuneytið, sveitarfé-
Iög og umhverfissamtök margs
konar. - GRH
msm
Ókeypis fiskimjöl á allar lóðir Akureyringa!
Krossanesverksmiðjan á Akureyri hefur ákveðið að bjóða öllum íbú-
um Akureyrar sem þess óska að fá ókeypis fiskimjöl til að bera á
húsalóðir sínar. Mjölið verður afhent í mjölskemmu Krossaness
mánudaginn 17. maí og þriðjudaginn 18. maí frá kl. 08.00 til 12.00
og 13.00 til 17.00 báða dagana. Fiskimjölið verður afhent í pokum
en í hverjum poka er hæfilegt magn mjöls á lóð af hefðbundinni
stærð. Tryggingafélagið Sjóvá-Almennar styrkir þetta framtak verk-
smiðjunnar með því að leggja til pokana sem mjölið er afhent í. - GG
Konum fjölgar
Konum fjölgaði allverulega á Alþingi í kosningunum á laugardaginn.
Þær voru 16 eða fjórðungur þingmannanna en eru nú 22 eða 35%. I
26 manna þingflokki sjálfstæðismanna eru 8 konur en voru 4 af 25.
I 17 manna þingflokki Samfylkingarinnar eru 9 konur en þær voru 8
af 16. Þrír af 12 þingmönnun Framsóknar eru konur og 2 af 6 þing-
mönnum VG. Tvö kjördæmi eru hins vegar kvennmannslaus, Vest-
firðir og Norðurland vestra.
Vélstjórar fá lauuáhækkun
Meirihluti úrskurðarnefndar hefur ákveðið breytingar á hlutaskipt-
um vélstjóra á fiskiskipum með 1501 kílówatta aðalvél og stærri.
Samkvæmt því fá yfirvélstjórar á stærstu skipunum með 3000 kw og
stærri 40 þúsund króna launahækkun á mánuði og 1. vélstjóri 30
þúsund krónur. Yfirvélstjórar á skipum frá 1500 kw til 3000 kw fá 25
þúsund króna hækkun á mánuði og 1. vélstjóri 20 þúsund krónur.
Þessi ákvörðun meirihlutans í úrskurðarnefndinni er m.a. rök-
studd með því að umfang vélbúnaðar í fiskiskipum hefur aukist til
muna. Það hefur síðan leitt til þess að gerðar séu auknar kröfur til
þeirrar þekkingar sem vélstjórar þurfi að búa yfir til að geta borið
ábyrgð á vélstjórn og séð um rekstur, meðferð og viðhald á vélbúnaði
skips. Þá hefur fullvinnsla afla um borð í fiskiskipum krafist viðbót-
ar vélbúnaðar sem hefur aukið álag á vélstjóra.
Sem kunnugt er þá var ákveðið að setja þessa úrskurðarnefnd á
laggirnar með lögum sem bundu enda á verkfall sjómanna á fiski-
skipaflotanum í mars í fyrra. Þá var ein helsta krafa vélstjóra að auka-
hlutur vélstjóra á skipum með 1501 kw aðalvél og stærri yrði hækk-
aður. I niðurstöðum nefndarinnar kemur m.a. fram að fulltrúi LÍÚ í
nefndinni gat ekki sætt sig við breytingar á hlutaskiptum vélstjóra og
stendur því ekki að þessum úrskurði. Formaður úrskurðarnefndar-
innar var Guðrún Zoéga. - grh