Dagur - 11.05.1999, Side 6
6 - ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1999
-D^ur
ÞJÓÐMÁL
Útgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjóri:
Aðstoðarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Símar:
Netfang ritstjórnar:
Áskriftargjald m. vsk.:
Lausasöluverð:
Grænt númer:
Netfang auglýsingadeildar:
Sfmar auglýsingadeildar:
Símbréf auglýsingadeildar:
Símbréf ritstjórnar:
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEiNSSON
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
460 6100 OG 800 7080
riIstjori@dagur.is
1.800 KR. Á MÁNUÐI
150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
800 7080
omar@dagur.is
(REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason
(AKUREYR 1)460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
460 6161
460 617KAKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK)
Stj ómarmyndim
í fyrsta lagi
Það er vissulega rétt sem bent hefur verið á að ríkisstjórnin hélt
velli í kosningunum og stjórnarflokkarnir geta státað af góðum
meirihluta á Alþingi. Oddvitar framsóknar og Sjálfstæðisflokks
hafí enda túlkað niðurstöðuna á þann veg að eðlilegt sé að taka
upp viðræður um áframhaldandi samstarf. Sömu sögu er að segja
um þingmenn stjórnarflokkanna, þeir virðast flestir vilja halda
þessu stjórnarmynstri áfram. Frá bæjardyrum Sjálfstæðisflokks-
ins séð er þetta eðlileg afstaða, en það ætti síður en svo að vera
sjálfgefið fyrir framsóknarmenn að halda þessu samstarfí áfram.
í ððru lagi
Það er alveg sama hvaða skýringa menn grípa til, framsóknar-
menn komast ekki hjá því að horfast í augu við að þeir eru að
tapa fylgi á meðan samstarfsflokkurinn græðir. A landsbyggðinni
er Framsóknarflokkurinn að missa forustuhlutverk sitt til Sjálf-
stæðisflokksins og allt eru þetta skilaboð um að þetta samstarf
helmingaskipta skilar framsókn ekki sínum helmingi umbunar-
innar frá kjósendum. Fram hefur komið að sjálfstæðismenn
munu vilja fleiri ráðuneyti og meiri vigt í stjórnarsamstarfinu til
samræmis við breytt styrkleikahlutföll flokkanna á Alþingi. Því til
viðbótar er ljóst að í mikilvægum atriðum er munur á afstöðu
flokkanna, ekki síst varðandi einkavæðingaráform í heilbrigðis-
kerfinu og svo á fyrirtækjum eins og t.d. Landssímanum.
í þriðja lagi
Sjálfstæðisflokkurinn er því alls ekki sá sjálfsagði dansherra
framsóknar, sem þingmenn virðast telja. Samstarfið hefur vissu-
lega verið gott og á margan hátt árangursríkt, sem vegur þungt í
málinu. En það eru fleiri á þessu balli og Framsóknarflokkurinn
er sú prímadonna í stöðunni sem á raunverulegt val, sem er
meira en hægt er að segja um Sjálfstæðisflokkinn. Það væri því
óvarlegt af framsókn að fara sjálfkrafa og án fyrirvara inn í stjórn-
arsamstarf þar sem þeir eru frá fyrsta degi í hlutverki litla bróð-
ur. Það er engin hætta á að framsóknarmaddaman pipri þótt hún
taki sér umþóttunarfrest þegar henni er boðið upp í dans.
Birgir GuÖtnundsson.
Talsmeim vakna
Össur Skarp-
héðinsson.
Garri fær ekki betur séð en
þeim sé eitthvað farið að frjölga
talsmönnunum hjá Samfylk-
ingunni. Margrét var hinn eig-
inlegi talsmaður og sú eina
sem sást að einhverju ráði í
kosningabaráttunni. Þannig
var Garri næstum búinn að
gleyma að Ossur væri í fram-
boði, hvað þá Guðrún Og-
munds, eða
Bryndís
Hlöðversdótt-
ir. Svo var ein-
hver að tala
um að Sig-
hvatur Björg-
vinsson væri
enn á þingi,
sem raunar
hlýtur að vera
einhver mis-
skilningur því
hann er alveg
horfinn. Nema hvað í gær ger-
ist það, að skyndilega er allt
orðið fullt af talsmönnum og
það sem mest er um vert - það
er búið að finna Ossur.
Ómöguleg leiðsögn
Össur er farinn að tala um að
menn hafi ekki staðið sig nógu
vel í Reykjavík. Væntanlega
þýðir það að leiðsögnin hafi
ekki verið nægjanlega styrk hjá
Jóhönnu. Fyrir þá sem virki-
lega kunna að lesa í slíkar yfir-
lýsingar liggur í augum uppi
að Össur er þarna að benda á
hversu óheppilegt það hafi
verið að Jóhanna, en ekki
hann sjálfur, hafi staðið uppi
sem sigurvegari í prófkjörinu.
Össur hefði nú ekki gefið
svona slaka leiðsögn - ó aldeil-
is ekki. En nú á að breyta rétt
og nýir talsmenn eru að ganga
„út í vorið á veginum" og
vakna upp. Tfmi Össurar er að
koma - eins og hann raunar
Margrét Frí-
mannsdóttir.
lýsti yfir að myndi gerast þegar
hann var spurður á prófkjörs-
nóttina góðu.
Uppvakningar
Og talsmaðurinn Össur talar á
talsvert öðrum nótum en tals-
maðurinn Margrét. Þannig
lýsti Margrét því yfir strax á
kosninganótt-
ina að eðlilegt
væri að Sjálf-
stæðisflokkur
og Framsókn-
arflokkur
héldu áfram
stjórnarsam-
starfi sínu - til
þess hefðu
þeir fengið
umboð. Því
____ mótmælti að-
eins Stein-
grímur Sigfússon sem var eins
og hrópandinn í eyðimörkinni
þegar hann sagði úrslitin ákall
um breytingar. Nýi talsmaður-
inn, Össur, kemur nú fram og
tekur undir með Steingrími og
vill vinstristjórn. Þar með gerir
hann lítið úr yfirlýsingum
gamla talsmannsins, sem vildi
halda sig til hlés. Hvort Garri
á heldur að trúa nýja eða
gamla talsmanninum veit
hann einfaldlega ekki. Þess
vegna er trúlega vænlegast að
bíða þar til fleiri talsmenn
vakna til lífsins að nýju og sjá
hvort allir þeir uppvakningar
fylkja sér heldur um talsmann-
inn Margréti eða hvort þeir
taka undir með Össuri um að
hans tími sé í raun og sannleik
kominn.
- GARRI
JÓHANNES
SIGURJÓNS-
SON
skrifar
Glaðningur í góðærinu
Frambjóðendur hafa flestir tekið
úrslitum kosninganna af karl- og
kvenmennsku og lítt barmað sér.
Að vísu kom í ljós að sumir
þeirra áttu sér aðra höfuðand-
stæðinga en þá sem tekist var á
við í kosningabaráttunni, sem sé
fjölmiðla sem Iögðu umrædda
frambjóðendur í einelti.
En flestir tóku niðurstöðunum
með jafnaðargeði og reisn og
þeir sem urðu fyrir mótlæti tóku
því sem hverju öðru hundsbiti. Á
sunnudaginn urðu svo þeir sem
sigruðu í kosningum og komust
á þing, fyrir miklu áfalli. Þá
komu sem sé mjög „óvæntar"
fréttir um að kjaradómur hefði
ákveðið að hækka laun þing-
manna og ráðherra all verulega.
Steinhissa
Þetta kom ráðamönnum algjor-
lega í opna skjöldu og hafa þeir
vart átt orð til að lýsa undrun
sinni á þessum óvæntu tíðind-
um. Og þykir raunar stórmerki-
Ieg sú sérkennilega tilviljun að
fréttin um launahækkun þing-
manna og ráðherra fór í loftið
daginn eftir kosningar en ekki
En auðvitað eiga ráðamenn
ekki að undrast þessi tíðindi eða
afsaka. Eins og ráðherrar hafa
margsinnis lýst yfir þá ríkir veru-
daginn eða viku fyrir kosningar.
En ráðamenn hafa tekið þess-
um Ieiðu tíðindum af stakri ró -
og sagt sem svo að við þessu sé
ekkert að gera, þingmenn verði
að hlýða landslögum og taka við
þessum óvæntu kjarabótum
hversu óljúft sem það er þeim.
GnuiiímBÓBn’if.j -nio iógoi nignblIýlmGÍ? 61, Glíæ
Iegt góðæri í Iandinu. Og þeir
sem bera ábyrgð á góðærinu,
eiga að sjálfsögðu að fá að njóta
þess eins og aðrir þegnar þessa
Iands.
Hallærislegt
Margir Þingeyingar voru og
,Iil iÖTud bIIg íó’IgH HBfiIi:mmðil8
þeirrar skoðunar að mikið góð-
æri ríkti í landinu, eins og ráða-
menn hafa keppst við að telja
þeim trú um síðustu vikurnar.
Og það kom því vægast sagt flatt
upp á þá þegar þær fréttir bárust
í gær að Kaupfélag Þingeyinga, á
118. aldursári, riðaði á barmi
gjaldþrots og björgunarsveitir úr
öðrum héruðum væru mættar á
staðinn til að bjarga málum áður
en rekum yrði kastað.
Þingeyingar urðu eiginlega
enn meira hissa en ráðherrarnir
þegar þeir fréttu um úrskurð
kjaradóms. Og höfðu Þingeying-
ar þó gildari ástæðu til undrunar,
þar sem þeir héldu að góðærið til
sjávar og sveita sem skapaði svig-
rúm til að hækka laun alþingis-
manna hefði einnig jákvæð áhrif
um land allt. Að góðærinu fylgdi
árangur fyrir alla.
En kannski er góðæri eins
hallæri annars. Það gleymdist
bara að geta þess í kosningabar-
áttunni.
svairaö
Ertu sáttur/sátt við úr-
skurð Kjaradóms um
launahækkanir til æðstu
embættismanna og ál-
þingismanna?
Þórunn Sveinbjamardóttir
ttýr þingmaðwSamfyMngar.
„Eg verð að segja
einsog er að
tímasetningin
um tilkynningu
á þessum úr-
skurði Kjara-
dóms hafi komið
mér og fleirum í
opna skjöldu. Hinsvegar verð ég
að viðurkenna að ég hef lítið velt
fyrir mér kjörum þingmanna,
annað hefur mér verið ofar í huga
í kosningabaráttunni. Þingmenn
hafa ágæt laun, enda lít ég svo á
að þeim beri að greiða góð laun
einsog ýmsum hátt settum emb-
ættismönnum hjá ríkinu."
Ásta Möller
nýr þingmaðwSjálfstæðisflokksins.
„Skrítið væri ef
ég væri það ekki,
síðustu tíu ár hef
ég helgað mig
því að berjast
fyrir bættum
kjörum hjúkrun-
arfræðinga og
annarra háskólamenntaðra starfs-
manna. Ég hef alltaf fagnað þvf
þegar einstakir hópar fá launa-
bætur. Aldrei hef ég skilið rök-
semdir verkalýðsforingja sem
mótmæla þvf þegar laun hækka,
því það er hlutverk forystumanna
launafólks að berjast fyrir bættum
kjörum - en ekki tala fyrir Iág-
launastefnu. Um tímasetninguna
á því þegar þessi ákvörðun Kjara-
dóms var kynnt hef ég engar skoð-
anir.“
Sverrir Hermannsson
nýr þingmaðurFrjálslynda flolúisins.
„Um þennan úr-
skurð Kjaradóms
ætla ég að segja
að ég varð
lamaður af undr-
un þegar ég
heyrði þetta.
Mér fannst ekki
viðfelldið að tilkynna þetta daginn
eftir kosningar, hreinlegra hefði
verið að tilkynna þetta fyrr. Um
launahækkunina sjálfa skal ég
ekkert segja, hef engan saman-
burð. Annars ætla ég á Alþingi að
leggja til að lög verði sett um lág-
markslaun, tvístruð og veik verka-
lýðsforysta gerir fátt annað en að
telja peningaseðla og hlutabréf."
Kolbrún Halldórsdóttir
nýr þingmaðttr Vinstihreyfingarinnar ■
græns Jramboðs.
„Ég varð ákaf-
lega hissa þegar
ég heyrði þetta
og þótti tíma-
setningin skrítin.
Að öðru leyti hef
ekki forsendur
til að meta þetta.
En hjá mér, sem nýkjörnum þing-
manni, örlar á samviskubiti gagn-
vart fólkinu í landinu sem ég veit
að er að draga fram lífið á launum
sem eru ekki mannsæmandi. Hitt
vil ég líka segja að ég sóttist ekki
eftir sæti á Alþingi vegna laun-
anna, finnst að allir eigi að hafa
laun sem nægja til eðlilegrar
framfærslu."