Dagur - 11.05.1999, Side 10
«» o o r i *. M r r fl'r.u fiuinuirt
- ÞRIÐJUDAGUR 11. MAl 1999
SMÁAUGLÝSINGAR
Húsnæði í boði
Herbergi til leigu á Akureyri.
Upplýsingar i síma 462-4781.
Sveitastarf___________________________
Vantar mann yfir sauðburð frá 10. maí -
10. júní.
Þarf að vera vanur sauðburði og geta unnið
almenn sveitastörf.
Nánari upplýsingar í s. 464-3955, Sigurður
Þórarinsson.
Sumarbústaðir
Rotþrær 1500 I og uppúr.
Vatnsgeymar 300-30.000 lítra.
Flotholt til vatnaflotbryggjugerðar.
Borgarplast hf.
Seltjarnarnesi s: 561-2211.
Borgarnesi s: 437-1370.
Varahlutir - felqur_________________
Erum með mikið úrval notaðra varahluta
í flestar gerðir bíla. Eigum mikið úrval af
stálfelgum undir japanska og evrópska bíla.
Flytjum einnig inn altenatora, startara, aðal-
Ijós og fleira. Útvegum varahluti erlendis frá.
Bílapartasalan Austurhlíð, 601 Akureyri, sími
462-6512, fax 461-2040.
Opið 9-18.30 og 10-15 laugard.
HÁÞRÝSTIÞVOTTUR
OG SANDBLÁSTUR
Tökum að okkur lítil sem stór
verk þar sem hreinsun og
sandblástur leysa vandann.
Hreinsum af húsþökum,
veggjum, skipum o.fl.
Símar 894 5551: Jóhannes -
894 5376: Freyr.
Prílur______________________________
Prílur (tröppur yfir girðingar), einfaldar í
samsetningu, gagnvarið efni, vel unnið.
Vinsamlega pantið fyrir mánaðarmót.
Sími 554-0379, Árni, í hádeginu og á kvöld-
in.
Hey til sölu_______________
Súgþurrkuð taða, vélbundin.
Upplýsingar í síma 462-4947 eftir
kl. 20.00.
Ökukennsla________________________
Kenni á nýjan Mercedes Benz A-class
(litla Benzinn).
Útvega öll náms- og prófgögn. Kenni allan
daginn, á kvöldin og um helgar.
Anna Kristín Hansdóttir, ökukennari
Þingvallastræti 18
heimasími 462 3837
GSM 893 3440.
Bátar__________________________________
Fiskiker fyrir minni báta, gerðir 300-350 og
450. Línubalar 70-80 og 100 lítra m/traust-
um handföngum.
Borgarplast hf.
Seltjarnarnesi, s: 561-2211.
Kirkjustarf______________________
Askirkja
Opið hús fyrir alla aldurshópa kl. 10-14.
Léttur hádegisverður. Samverustund for-
eldra ungra barna kl. 14-16.
Grensáskirkja
Kyrrðarstund kl. 12:10. Orgelleikur, ritninga-
lestur, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eftir
stundina.
Hallgrímskirkja
Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10:30. Beðið fyr-
ir sjúkum.
Laugarneskirkja
Fullorðinsfræðsla kl. 20:00.“Þriðjudagur
með Þorvaldi" kl. 21:00. Lofgjörðarstund!
Seltjarnarneskirkja.
Foreldramorgunn kl. 10-12.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
AÐALHEIÐUR ÞÓRARINSDÓTTIR,
frá Hjaltabakka,
síðar húsmóðir á Ytra-Ósi, Steingrímsfirði,
verður jarðsungin frá Garðakirkju á Álfta-
nesi miðvikudaginn 12. maí kl. 13.30.
Þóra Magnúsdóttir, Rikarður Jónatansson,
Marta Magnúsdóttir, Svavar Jónatansson,
Nanna Magnúsdóttir, Hrólfur Guðmundsson,
Þórarinn Magnússon, Sigríður Austmann,
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn,
ÞORSTEINN ÁSGRÍMSSON,
frá Varmalandi,
Öldustíg 1, Sauðárkróki,
lést á Landspítalanum að kvöldi 8. maí.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ingibjörg Sigurðardóttir.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu við
andlát og útför,
ÓLAFS KRISTBJÖRNSSONAR,
Vfðivöllum 14, Selfossi.
Halldóra Kristrún Hjörleifsdóttir,
Unnar Ólafsson, María Óskarsdóttir,
Hjörleifur Þór Ólafsson, Sigríður Jónsdóttir,
Kristbjörn Ólafsson,
Valgeir Ólafsson,
barnabörn og langafabörn.
---rr
—O^tr
FRÉTTIR
Framsókn kom
illa undan vetri
EINAR
SVEIN-
BJORNSSON
BÆJARFULLTRÚI FRAM-
SÓKNARi GARÐABÆ
SKRIFAR
Næstlakasta útkoma flokksins
frá stofnun lýðveldis er stað-
reynd, ásamt því að farsælt og
langt forustuhlutverk Framsókn-
arflokksins í báðum Norður-
landskjördæmunum hefur tapast
yfir til Sjálfstæðisflokksins. Nið-
urstaða kosninganna eru Fram-
sóknarfólki vonbrigði, ekki síst í
Ijósi þess að samstarfsflokkurinn
vann á.
Hvað getur Framsóknarflokk-
urinn gert eftir þennan þunga
dóm kjósenda? Best væri fyrir
flokkinn að draga sig í hlé í bili
og fela hinum landsstjórnina, en
það er ekki svo einfalt. Afar ólík-
Iegt er að takist að mynda stjórn
án Framsóknarflokksins, þrátt
fyrir að hinir flokkarnir hafi yfir
80% fylgis. Vissulega er hægt að
endurnýja stjórnarsamstarfið, en
ef það verður raunin þarf hugar-
far og verklag í þeirri samsteypu-
stjórn að taka miklum breyting-
um og sýna þarf Sjálfstæðis-
flokknum meiri hörku, en í
þeirri fyrri. Hinn möguleikinn
sem ég vil benda á er að gefa
Sjálfstæðisflokknum færi á að
mynda minnihlutastjórn, sem
varin yrði vantrausti og veitt fjár-
lagahjálp ef svo mætti að orði
komast. Um öll önnur mál þyrfti
Sjálfstæðisflokkurinn síðan að
semja við aðra flokka til að koma
þeim í gegnum Iöggjafasamkom-
una. Minnihlutastjórnir eru al-
gengar á hinum Norðurlöndun-
um og hafa þær í flestum tilvik-
um gefist vel.
Með þessu móti vinnst eitt og
annað fyrir Framsóknarflokkinn.
Ekki aðeins að flokknum gæfist
v iu ivauui 11
verkin taíc
„Hvað getur Framsóknarflokkurinn gert eftir þennan þunga dóm kjós-
enda? Best væri fyrir flokkinn að draga sig í hlé í bili og fela hinum lands-
stjórnina, en það er ekki svo einfalt, “ segir Einar m.a. í grein sinni.
tími til að sleikja sár sín og end-
urmeta stöðu sína, heldur má
færa rök fýrir því að áhrif flokks-
ins yrðu síst minni á þingi, held-
ur en með beinni stjórnarþátt-
töku. Framundan eru úrlausnir
viðkvæmra mála sem deilt hefur
verið um í mörg ár. Hæst bera
sjávarútvegsmálin, víðtækri sátt
þarf að ná um breytingar í stjórn
fiskveiða. Stjórnarþátttaka með
vinstri flokkana tvo og Fijáls-
lynda í harðri stjórnarandstöðu,
myndi draga verulega úr Iíkum á
að slík sátt náist. A sama hátt
getur flokkurinn tekið forystu á
Alþingi í tillögugerð sem dregið
gæti úr byggðaröskun og tog-
streitu milli höfuðborgarsvæðis
og landsbyggðar. Einnig þarf að
er
ná farsælli Iendingu andstæ'ðra
sjónarmiða verndunar og lyting-
ar náttúruauðlinda. Ekkí’ —
heldur hægt í þessu sarrí|íéi
gleyma Evrópmálunum. ' j' "
Blikur eru á lofti í éifhahag
þjóðárinnar, góðærið stendut ef
til vill á brauðfótum. Ef hálla
tæki undan fæti og þörf yrði á
styrkri stjórn ætti Framsóknar-
flokkurinn vissulega að stuðla að
myndun meirihlutastjórnar, en
stuðningur við minnihlutastjórn
Sjálfstæðisflokks nú er kostur
sem skoða á í fyllstu alvöru. Nýj-
ar kosningar gætu líka verið
skemmra undan en marga grun-
ar vegna yfirvofandi kjördæma-
breytinga.
ARSFUNDUR
verður haldinn þriðjudaginn 25. maí 1999 kl. 17:15, A sal Hótel Sögu
LÍFEYRISSJÓÐUR LÆKNA
Kirkjusandup 155 Reykjavík
Sími: 560 8970. Myndsendir: 560 8910
Dagskrá:
1. Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins.
2. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins.
3. Onnur mál.
Tillögur til breytinga á samþykktum liggja frammi á skrifstofu
sjóðsins og geta sjóðfélagar nálgast þær þar eða fengið þær sendar í
pósti. Einnig er hægt að nálgast samþykktirnar á vefnum á slóðinni
www.vib.is undir lífeyrismál.
Sjóðfélagar eru hvattir til að fjölmenna á fundinnJ
Að fundi loknum verður boðið upp á léttan kvöldverð.
REKSTRARAÐILI:
VÍB • Kirkjusandi, 155 Reykjavík • sími: 560-8900 • myndsendir: 560-8910
netfang: vib@vib.is • veffang: www.vib.is