Dagur - 15.05.1999, Page 2
78
- LAUGARDAGUR 75. MAÍ 1999
HELGARPOTTURINN
Þó að lítið farí fyrír þeim ástsæla söngvara
Bergþóri Pálssyni akkúrat þessa stundina
þar sem hætt er að sýna Leðurblökuna þá
stendur það til bóta. Bergþór hefur nefnilega
látið Sigga Sigurjóns dobbla sig til að taka
þátt í kabarett, sem sýndur verður einhvern
tímann á næstunni f Loftkastalnum. Þar er
meiningin að vera með franska rauðvíns-
stemmningu með söng og dansi og heilli
djasshljómsveit. Samkvæmt slúðrinu verða
þátttakendur þekktir leikarar og tónlistar-
menn á borð við Pálma Gestsson, Jóhann Sigurðarson, Karl
Ágúst Úlfsson, Sigga Flosa, Kristján Eldjárn og Þorstein
Gauta Ekki amalegur félagsskapur það.
Bergþór Pálsson.
Það vakti töluverða athygli í síðasta þætti Stutt
í spunann um daginn hve myndarlegur mag-
inn á Evu Maríu er orðinn en hún auglýsti
óléttuna sína svo stolt í glæsilegum síðkjól í
síðasta þætti Spunans. Þá berst annað óléttu-
slúður ofan úr Sjónvarpi. Hún Erla Rut
Harðardóttir í Spaugstofunni (sú sem lék
svo skemmtilega pólsku konuna] hefur líka
verið með magann út í loftið síðustu mánuði
en þvf miður hafa engar fregnir borist af því
inn á ritstjórnarskrifstofur Dags hvenær von er
á barninu...
Og loks að prímadonnunni Súsönnu Svavarsdóttur, sem stjórnaði
Titringi svo skemmtilega í vetur með Þórhalli Gunnarssyni. Sögurnar
segja að ritstjórar DV líti Súsönnu girndaraugum og vilji fá hana í hús til
að rífa upp helgarblaðið og stjórna því af sinni alkunnu röggsemi en mál-
ið ku ennþá pikkfast í samningaviðræðum og ekkert að frétta, ekki enn
sem komið er. Það er líka alltaf spurning hvert formið verður, hvort við-
komandi er ráðin inn í heilsdagsstarf eða hvort hún fer ef til vill í „verk-
efni"...
Þegar sól hækkar á lofti fara söngfuglar á stjá og farfuglar streyma til
landsins. Bergþóra Árnadóttir trúbadúr er þessa dagana að ferðast
um landið með gítarinn sinn og sængina sína. Hún spilaði á Djúpavogi í
gærkvöldi og aftur í kvöld og spila þar með henni vísnavinir með Krist-
ján Ingimarsson í broddi fýlkingar. Þau Kristján eru einnig viðskipta-
félagar en Bergþóra flytur hákarlalýsi frá fyrirtækinu Kraftlýsi inn til Dan-
merkur þar sem hún býr en Kristján er framkvæmdastjóri þess. Meðal
þeirra sem koma fram með Bergþóru eru Magnús Stefánsson á Fá-
skrúðsfirði og Garðar Harðar blúsari frá Stöðvarfirði. Bergþóra verður
svo á Rjótsdalshéraði í lok mánaðarins, en þar ætlar barnabarn hennar
Neptúnus að syngja með henni.
Holtarar, eða þeir sem bjuggu í Holtahverfi á
árunum 1940 -70, ætla að hittast í Versölum í
kvöld og rifja upp gamla daga. Forsprakki
hópsins er Þórleifur V. Friðriksson og að
sjálfsögðu verður fjöldi þjóðkunnra skemmti-
krafta úr hverfinu sem stíga á stokk Ómar
Ragnarsson mun flytja Holtarabrag sem
hann samdi árið 1997, þegar Holtarahátíð var
síðast haldin. Pétur Kristjánsson poppari
Pétur Kristjánsson. sem vg|. me^a| annars f hljómsveitunum Pops
og Pelican mun hefja upp raust sína, og einnig hefur heyrst að Ragnar
Bjarnason stórsöngvari mæti á svæðið. Aðgöngumiðasala hefur geng-
ið vel en þeir sem ekki hafa ennþá tryggt sér miða i forsölu geta fengið
miða við innganginn.
Og meira um tónlistarbransann. í versluninni Spútnikkvið Hverfisgötu er
mikið líf svo að ekki sé meira sagt því að versiunareigandinn hún Þura
er allsendis óhrædd við að ýta fötunum til hliðar og slá upp tónleikum
þegar sá gállinn er á henni. Þura stóð fyrir því á miðvikudagskvöldið að
hljómsveitirnar Mínus, Bisund og Gyllinæð spiluóu í búðinni og vöktu
feikna lukku. Krakkarnir sem mættu á tónleikana skiptu hundruðum
enda fá þau hvergi annars staðar að vera...
Nýjasta æðið hjá unglingum allt niður í 14 ára
og ungum konum upp í þrrtugt er svokölluð
„Wonderbra" hárbönd, nefnd eftir wonderbra
brjóstahaldaranum enda eru hárböndin ekk-
ert annað en hlíri af brjóstahaldara, sem hægt
er að stækka og minnka. Hlírarnir fást í öllum
regnbogans litum, öllum þó í daufara lagi, og
þykir flottast að láta brjóstahaldaraklemmuna
sjást í hárinu. Líka er hægt að fá þá með glim-
merskrauti og emalíusteinum. Wonderbra hár-
böndin fást í Skarthúsinu fýrir litlar 390 til 490
krónur efti'r skrauti. Á meðfýlgjandi mynd með sjá Gíslínu Dögg Bjarkar-
dóttur, 24 ára, með wonderbra hárband í hárinu (eins og venjulega].
Gíslína D. Bjarkard.
Kanntu meinlaust slúður og skemmtisögur úr félags-
lífinu? Þekkirðu athyglisvert fólk? Sendu okkur fréttir og
ábendingar til birtingar í Helgarpottinum.
Dagur c/o helgarpotturinn, Þverholti 14, 105 Reykja-
vík eða á netfangið: ritstjori@dagur.
Leifélag Keflavíkur sýnir á stóra sviði Þjóðleikhússins á morgun! Stæltu stóðhest
arnir heitir verkið sem hlaut nafnbótina: Áhugaleiksýning ársins.
Sjötta árið í röð hefur Þjóðleikhús-
ið valið áhugaleiksýningu ársins og
varð sýning Leikfélags Keflavíkur
fyrir valinu, „Stæltir stóðhestar“
eftir Stephen Sinclair og Anthony
McCarten í leikstjóm Andrésar Sig-
urvinssonar. I umsögn dómnefndar
segir m.a. að sýningin hafi verið
afar kraftmikil og skemmtileg, leik-
stjóranum hafi tekist óvenju vel að
vinna með ungu leikurunum sem
eru í burðarhlutverkum (þ. á m. er
einn sem þreytti inntökupróf í vor
og er á leið f Leiklistarskólann í
haust), dansatriðin þóttu ákaflega
vel heppnuð og sýningin í heild
bera vott um metnað og alúð. Eftir
að hafa lesið þessa lofsamlegu
dóma hringdi blaðið í formann leik-
félagsins til fimm ára, hana Guð-
nýju Kristjánsdóttur leikskólakenn-
ara.
Ekki Full Monty
Til hamingjul
„Takk.“
- \Jm hvað er þetta leikrit?
„Þetta er um nokkra félaga sem
eru atvinnulausir og ákveða að gera
eitthvað í málinu. Þeir finna Ieið til
að fá skjótan gróða og fara að æfa
stripp."
- Er þetta þá unnið upp úr Full
Monty?
„Nei! Málið er að Ómar Ólafsson
og Júlíus Guðmundsson þýddu
þetta upp úr nýsjálenska leikritinu
Lady’s Night og þeir sem sömdu
það leikrit eru núna í málaferlum
við þá sem gerðu myndina Full
Monty og vilja meina að þeir hafi
stolið hugmyndinni frá Lady’s
Night. Við erum sem sagt ekki að
sýna Full Monty.“
- Eru þetta mjög Itkar sögur?
„Nei, ég myndi ekki segja það.
Eins og gagnrýnandi frá Mogganum
sagði þá fannst honum þetta betra
en myndin því þarna kynnistu
karakterunum betur, það er ofsa-
lega vel unnið með hvern karakter
fyrir sig í þessu verki,“ segir Guðný
en hún telur að góður leikur og það
hve sýningin er skemmtileg hafi
ráðið úrslitum um val þeirra í Þjóð-
leikhúsinu. „Eg er búin að sjá hana
í næstum því öll skiptin [verið sýnt
17 sinnum] og ég hlæ alltaf jafn
mikið. Og ég er ekkert með af-
brigðilegan húmor...“
Mikill áhugi
Leikfélag Keflavíkur telur um 120
manns, er 32 ára gamalt og hefur
sett upp verk á nánast hvetju ári. Að
sögn Guðnýjar gengur alltaf jafn vel
að fá fólk til að taka þátt en allir að-
alleikararnir að þessu sinni eru
ungir menn á aldrinum 20-25 ára.
„Við vorum svolítið hrædd við að
manna þetta stykki fyrst en það
gekk æðislega vel. Við erum með
pottþéttan mann í hverju einasta
burðarhlutverki."
- Þurfa þeir að fara úr?
„Þeir þurfa að fara svona smá,
svolítið, úr.“
- Smá svona, soldið alveg?
„Jaaa, það kemur í Ijós. Það er
undir árvekni Ijósamannsins komið
hversu mikið fer.“
- Gekk eitthvað treglega að fáfólk
t þetta vegna þessa?
„Við vorum að hafa áhyggjur af
því að það gæti orðið en það varð
ekki raunin og það gera þetta allir
af stökustu snilld. Engin feimni í
gangi. En þetta er ekki klám - bara
flott kroppasýning!"
FJALL VIKUNNAR FÆR AÐ VERA FJALL...
Þorlákur Jónasson bóndi í Vogum í Mývatnssveit er einn þeirra sem tókst á við opinbera báknið um hið eina rétta nafn á frægum sprengigíg þar í sveit - Hverfjall - en Landmælingar íslands höfðu tekið upp á þeirri ósvinnu að kalla það aðeins Hverfell. Eftir margra ára slag hafð- ist fullur sigur í vikunni; Örnefnanefnd lagði fýrir Land- mælingar að á landabréfum þess skyldi það svo sannar- lega heita Hverfjall. Vissulega sigur vikunnar fyrir fjall vikunnar!
-■5 /H
Hverfjall.