Dagur - 15.05.1999, Side 10
EJÍlMjýUJjUy.
26 - LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1999
nB............. , afna en sá yngri heitir í höfuðið á Bjarna Hafþóri. Þeir
-----------------—
Fengsælir félagar. Eggert Skúlason og
Bjarni Hafþór ánægðir með afla úr Vík-
urá á Ströndum, þar sem þeir hafa
stundum rennt saman fyrir fisk.
Daguir
Vinátta og veiðiskapur
Bjarni Hafþór Helgason
og Eggert Skúlason eru
vinir í blíðu og stríðu.
Veiða saman, spjalla
saman og eru svo miklir
vinir að ekki kom annað
til greina hjá Eggerti en
láta son sinn heita í höf-
uðið á vini sínum.
„Hreinræktað veiðiblóð í
Eggerti,“ segir Bjarni.
„Strax þegar við hittumst í fyrsta
sinn var einsog við hefðum
þekkst alla tíð. Við smullum
saman,“ segir Bjarni Hafþór
Helgason, framkvæmdastjóri
Utvegsmannafélags Norður-
lands, um vináttu sína og Egg-
erts Skúlasonar fréttamanns.
Þeir félagar hafa þekkst í um
áratug, en kynni þeirra hófust
þegar báðir störfuðu sem frétta-
menn á Stöð 2. Þeir segja að
margt hafi orðið til þess að sam-
eina þá, svo sem áhugi á veiði-
skap, hvort heldur er með stöng
eða byssu, en einnig séu þeir að
eðlisfari tilfinningaríkir menn og
þau viðfangsefni sem þeir sinni
taki þeir með krafti.
Réttlætiskennd
og traustir vinir
„Fljótlega eftir að ég hóf störf á
Stöð 2 vorið 1990 fór Páll
Magnússon að tala um það við
mig hve líkur ég vaeri Bjarna
Hafþóri, sem þá var okkar mað-
ur á Akureyri. Fyrst gaf ég nú
ekki mikið fyrir þetta, fannst
þetta í raun fíflaleg umræða,“
segir Eggert, en hann fann þó
strax að Páll hafði sitthvað til
síns máls, þegar þeir Bjarni Haf-
þór hittust í fyrsta sinn snemma
árs 1991. Strax þá tókust með
þeim góð kynni og margt hafa
þeir í gegnum árin brallað sam-
an.
Eggert segir að Bjarni Hafþór
sé manna tryggastur og vinur
vina sinna af heilum hug. Hið
sama segir Bjarni um Eggert;
segir hann hafa ríka réttlætis-
kennd. „Ef sú kennd í brjósti
Eggerts er særð þá getur hann
orðið virkilega reiður, ég man
eftir dæmi í þá veruna þegar
maður úti í bæ ætlaði að mis-
nota Eggert sem fréttamann.
Ekki hefði ég viljað vera í spor-
um þess mann þegar upp
komust svik og Eggert svaraði
fyrir sig,“ segir Bjarni. - Eggert
segir að það hefði verið gott að
eiga Bjarna Hafþór að sem
tryggan vin, þegar hann tók á
sínum tíma sæti í stjórn Islenska
útvarpsfélagsins og var fyrir vik-
ið rekinn frá Stöð 2. Málið leyst-
ist þó farsællega um síðir „...en
þarna fann ég virkilega hve
traustan vin ég átt í Bjarna Haf-
þóri.“
Tilfinning fyrir bráð
og kringumstæðum
Það er þó áhugi á veiðiskap sem
einkum hefur sameinað þá fé-
laga. I gegnum árin hafa þeir
farið saman til veiða í ljölmörg-
um ám, svo sem Fáskrúð í Döl-
um, Sandá í Þistilfirði, Laxá í
Kjós og ýmsar fleiri ár - en eftir-
læti þeirra beggja er þó Laxá í
Aðaldal. „Þar er Bjarni Hafþór
búinn að veiða lengi og kenndi
mér á hana. Höfum við átt sam-
an margar skemmtilegar stundir
við veiðiskap í Æðarfossum, við
Hólmavaðsstíflu og á Óseyri.
Það er hreint ævintýri að veiða
þarna og ekki spillir það fyrir
þegar við fáum föður hans,
Helga Bjarnason, með okkur,
sem er annálaður veiðimaður,"
segir Eggert.
„Það er hreinræktað veiðiblóð
í Eggerti og hann hefur mörgum
öðrum veiðimönnum betur ríka
tilfinningu fyrir bráð og kring-
umstæðum og heldur ró sinni á
hverju sem gengur í veiðiskapn-
um,“ segir Bjarni Hafþór.
„Einmitt þessa eiginlega hefur
hann líka í fréttamennskunni,
tilfinningu fyrir bráð og kring-
umstæðum, og hefur líka þá
hæfileika að geta sjálfur aðlagað
sig að lögmálum og þörfum
hverrar fréttar. Þetta hefur gert
hann að einhveijum besta og
trúverðugasta fréttamanni þjóð-
arinnar, að mínum dómi.“ - Þeir
félagar hafa í sumar á stefnu-
skránni að bregða sér eitthvað
saman í veiðiskap, hafa meðal
annars bókað ferð til Færeyja.
„Síðan er líka gaman að tala við
Bjarna, sem er í senn bæði lista-
maður og heimspekingur - ekki
síst er gaman að tala við hann
þegar heimspekingurinn tekur
yfirhöndina," segir Eggert.
Hafþór var nafnið
I desember 1994 eignaðist Egg-
ert með konu sinni, Önnu Guð-
mudsdóttur, sitt fyrsta barn. Son
sem gefið var nafnið Hafþór. Er
hann einmitt skírður í höfuðið á
Bjarna Hafþóri, og kom fátt
annað til greina hjá foreldrum
hans. Bæði þótti þeim nafnið
fallegt og skemmtilega íslenskt
„...en síðan var Bjarni Hafþór
mér líka ofarlega í huga. Bjarni
kallar son minn alltaf nafna og
eru þeir tveir miklir félagar.
Þetta hefur síðan spunnið út frá
sér og ég hnýtti einhverju sinni
laxaflugu úr hári stráksins sem
heitir að sjálfsögðu Nafni. Hún
hefur gefið vel og á hana hef ég
fengið nokkra laxa, til dæmis í
Laxá í Leirársveit og í Sandá.“
„Það sem ég dáist mest að
varðandi Eggert er hve hann er
fljótur að sofna þegar við erum
saman f veiðiferðum. Hann
sofnar hvar sem er og hvenær
sem er, þetta er nokkuð sem ég
get alls ekki,“ segir Bjami Haf-
þór, sem stundum festir varla
blund, að sögn Eggerts, ef skóg-
arþrestir syngja fyrir utan glugg-
ann. „Einhveiju sinni vorum við
saman í Vökuholti, veiðihúsinu
við Laxá í Aðaldal, þegar Eggert
byijaði á setningu sem hann
sofnaði úr frá hálfsagðri: „Það
gerðist rétt fyrir hádegi...“ byij-
aði Eggert og síðan hneig hann
út af. Vaknaði næsta morgun og
mundi ekki hvað hann var að
byrja að segja kvöldið áður. Og
ég hef enn ekki fengið að vita
hvað gerðist rétt fyrir hádegi,"
segir Bjarni Hafþór Helgason.
-SBS.
Félagar saman í veiðiferð. „Það er hreinræktað veiðiblóð í Eggerti og hann hefur mörgum öðrum veiðimönnum betur ríka til-
finningu fyrir bráð og kringumstæðum og heidur ró sinni á hverju sem gengur í veiðiskapnum, “ segir Bjarni Hafþór.