Dagur - 19.05.1999, Blaðsíða 3
ÞRIDJUDAGU R 18. MAÍ 1999 - 19
LÍFIÐ í LANDINU
L
Djasslífhefur staðið íblóma
áAkureyri í nokkuráren það
hlé sem verða mun á starf-
semi Sumarháskólans áAk-
ureyri mun hafa áhrifá
stærsta djassviðburð sum-
arsins. Djassararláta þó ekki
deigan síga.
Sumarháskólinn á Akureyri hefur staðið
fyrir djassnámskeiðum síðustu sumur
undir forystu Sigurðar Flosasonar og var
ætlunin að halda annað námskeið í sum-
ar. Jazzklúbbur Akureyrar var ekki beinn
þátttakandi í námskeiðunum en hefur
hinsvegar staðið fyrir reglulegum djass-
kvöldum. Meðal þeirra sem haldið hafa
tónleika á Akureyri er hið heimsþekkta
Robin Nolan Trio. Akveðið var í fram-
haldi af tónleikum tríósins á liðnu hausti
að tríóið kæmi aftur til Akureyrar í sum-
ar, spilaði á tónleikum og héldi námskeið
í nafni Sumarháskólans. Samningar voru
gerðir í góðri trú en nú er komið á daginn
að Sumarháskólinn mun ekki starfa
formlega í sumar vegna breytinga á starf-
seminni og óvíst er um framtíð hans.
Orð skulu stauda
„Búið var að ganga frá samningi við
Robin Nolan Tríóið um að koma hingað í
júlí, þegar raunveruleg ákvörðun var tek-
in um að Sumarháskólinn yrði ekki starf-
ræktur í sumar,“ segir Jón Hlöðver As-
kelsson forsvarsmaður Jazzklúbs Akureyr-
ar. „Það kemur sér mjög illa í sambandi
við framvindu á svona starfsemi, að þegar
kominn er ákveðinn vísir að vel heppnuð-
um námskeiðum á síðustu tveimur árum
og möguleiki er að bæta við og auka, að
þá skuli vera tekin ákvörðun um að fella
þetta niður f sumar."
Samningar skulu hinsvegar standa og
Robin Nolan Trio kemur til Akureyrar í
júlí. Námskeiðið verður haldið og Jón
Hlöðver rær nú eins konar lífróður til að
geta staðið við sitt fyrir hönd Jazzklúbbs-
ins. „Við eigum engra kosta völ að okkar
mati ef við viljum ekki hundar heita.
Tríóið hefur sett upp glæsilega heimasíðu
fyrir þetta námskeið, sem er þar að auki
alveg feikilega góð kynning á Akureyri ef
það er skoðað þannig. Þetta er vefsíða
sem fjöldamargir hafa skoðað og við höf-
um fengið margar fyrirspurnir að utan í
sambandi við námskeiðið vegna vefsíð-
unnar, þannig að þetta hefur vakið at-
hygli.“
Meðal úrræða Jazzklúbbs Akureyrar er
að leita eftir styrk frá bæjarfélaginu, en
menningarmálanefnd Akureyrar hefur
aðeins séð sér fært að styrkja starfsemi
klúbbsins með fjörutíu þúsund krónum
fyrir tónleika frá áramótum til júní þetta
ár. Menningarmálanefnd hefur í raun
tekið upp ný vinnubrögð og tengir nú út-
hlutanir á styrkjum mun meira við ein-
stök verkefni en venjan hefur verið. Sú
breyting eykur á óvissu í starfsemi félaga
og erfitt að gera áætlanir fram í tímann
við þær aðstæður en er að sögn Þrastar
Ásmundssonar formanns menningar-
málanefndar Akureyrarbæjar gerð af illri
nauðsyn. A undanförnum árum hefur
menningarsjóður sem þessir peningar
koma úr rýrnað talsvert og minna fé úr að
spila. Hér sé ekki um að ræða bendingu
um að þessir styrkir hafi verið misnotaðir
eða illa notaðir.
Blikur á lofti
Þrátt fyrir góðan vilja til að halda uppi
öflugri starfsemi eru blikur á lofti varð-
andi framtíð djasslífs á Akureyri. Það hlé
sem verður á starfsemi Sumarháskólans á
Akureyri spilar þar inní ásamt fleiru.
Jón Hlöðver Áskelsson er í forsvari fyrir Jazzklúbb Akureyrar. „Viljum við hafa þennan valmöguleika fyrir bæjarbúa? Viljum við gefa fólki kost á því að
hiýða á djass með ekki alltoflöngu millibili, og þá ekki eingöngu afplötum, heldur lifandi djass? Þetta er sú lína sem klúbburinn hefur fylgt."
mynd: brink
„Ég held að það sé mjög lítill vandi að
venja menn af öllum sköpuðum hlutum,“
segir Jón Hlöðver. „Það er hægt að venja
menn af kaffi. Það er líka hægt að venja
menn af djassi, það er hægt að venja
menn af því að sækja leikhús ef verkast
vill. Þetta er valkostur sem við stöndum
andspænis. Viljum við hafa þennan val-
möguleika fyrir bæjarbúa og ferðamenn?
Viljum við gefa fólki kost á því að hlýða á
djass með ekki alltof löngu millibili, og þá
ekki eingöngu af plötum, heldur lifandi
djass? Þetta er sú lína sem klúbburinn
hefur fylgt.“ Klúbburinn hefur
staðið fyrir „Heitum
fimmtudögum" á Lista-
sumri tvö undanfarin
sumur og ætlar að halda
því áfram. Boðið verður
upp á djasstónleika í
hverri viku á meðan Lista-
sumar stendur yfir. Að
meðtöldu vetrarstarfinu
hefur klúbburinn staðið
fyrir 12-14 tónleikum á
ári. „Ef maður skoðar það í
samhengi við annað þá er
þetta gríðarlega
starf,“ segir Jón Hlöðver.
komandi Listasumri verð-
um við með um fimmtíu
tónlistarmenn sem munu
koma fram á „Heitum
fimmtudögum“. Yfir allt árið
eru kannski sextíu til sjötíu
manns sem koma fram á tón-
leikum á vegum Jazzklúbbs-
lista, skóla og annars, hliðstætt því sem
best gerist. En við megum heldur ekki
gleyma því að einn af valkostunum sem
fólk stendur andspænis þegar það er að
velja sér búsetu og finna sér starf, er að
það eigi möguleika á að velja, jafnvel þótt
það síðan noti sér ekki valið.“
Vilji menn síðan bjóða upp á þetta val
fylgir því ákveðinn kostnaður sem menn
þurfa sameiginlega að standa straum af,
vilji menn á annað borð bjóða upp á það
besta, að sögn Jóns Hlöðvers. Hann
bendir á að markaðs-
Hðfuðstaður eða ekM?
Jón Hlöðver fullyrðir að hlutur menning-
ar í því að gera bæjarfélag að spennandi
kosti fyrir fólk sem stendur frammi fyrir
því að velja sér búsetu sé mikill og í því
sambandi tvinnist saman staða djassins
og staða Akureyrar.
„Við erum að bjóða fólki upp á að það
eigi þess kost að njóta menningarlífs og
svæðið
á Akureyri sé um tíu sinnum minna en á
Höfuðborgarsvæðinu en til að fá djass-
leikara til Akureyrar þurfi að greiða meiri
aukakostnað, svo sem ferðir, gistingu og
fæði. Þannig verði kostnaðurinn um
tvisvar til þrisvar sinnum meiri en f
Reykjavík. Undir þeim kostnaði geti
áheyrendur ekki staðið.
„Við höfum leyst þetta mál með því að
leita til bæjarins og annarra um styrki og
það verður að segjast eins og er að þetta
er afskaplega erfiður þáttur í starfinu og
mest lýjandi fyrir þá sem eru í forsvari, að
ganga fyrir stjórnendur fyrirtækja og biðja
um styrki í þetta og hitt. Það er því mjög
mikilvægt að bæjarfélög standi myndar-
lega að því að styrkja þessa starfsemi. Það
verð ég að segja eins og er að mér hefur
fundist að við höfum ekki notið nægjan-
legs skilnings. Auðvitað má alltaf deila
um það hver nægjanlegur skilningur er,
en við erum að halda 12-14 tónleika á ári
og ég held að styrkur bæjarins hafi numið
sem svarar kostnaðinum af tvennum tón-
leikum.
Það er mín skoðun að við verð-
um að gera það upp við okkur hér
á Akureyri hvort við ætlum að
vera leiðandi höfuðstaður hér
norðanlands og þegar ég tala um
höfuðstað þá á ég við að við bjóð-
um upp á allt það besta sem slík-
ur höfuðstaður á að gera.
Ég hef lagt fram mjög fram-
sækna áætlun um djasstónleika
á Listasumri. Það sem ber hæst
á þessu sumri er að við fáum að
njóta heimsóknar djasstríós sem
heitir Robin Nolan Trio og hef-
ur leikið djass sem við höfum
kallað Django djass vegna þess
að þeir hafa mótast af tónlist
Django Reinhards. Þeir komu
hér á síðasta hausti og eru
orðnir heimsþekktir á sínu
sviði. Meiningin er að halda
umrætt námskeið dagana 15.-
17. júlí í tengslum við þessa
heimsókn. Þetta námskeið er fyrir allt
áhugafólk um tónlist og er meiningin að
mynda þarna brú milli þeirra sem eru í
klassískri tónlist, djasstónlist, dægurtón-
Iist og fleiri tegundum.“
Til að undirstrika áhrif og ferskleika
Robin Nolan Trio má benda á að trfó sem
mun leika á Akureyri 5. ágúst, Gítar
islancio, varð til í beinu framhaldi af því
að Gunni Þórðar, Björn Thoroddsen og
Jón Rafnsson heyrðu í Robin Nolan Trio.
Þeir spila nú saman djass undir áhrifum
Robin Nolan Trio. - Hi