Dagur - 25.06.1999, Qupperneq 4
4r - FÖSTUDAGUR Íí. JÚNÍ 1990
FRÉTTIR
L
ISAFJARÐARBÆR
Breyting á bæjarstjóm ísafjarðarbæjar
Pétur H. R. Sigurðsson hefur beðist lausnar frá störfum sem bæjarfull-
trúi Isaíjarðarbæjar, þar sem hann hefur flutt búferlum úr Isaljarðar-
bæ. Sæti Péturs í bæjarstjórn tekur Þorsteinn Jóhannesson, yfirlæknir
við Fjórðungssjúkrahúsið á Isafirði, en hann hefur áður átt sæti í bæj-
arstjórn, m.a. sem forseti bæjarstjórnar. Forseti bæjarstjórnar, Birna
Lárusdóttir, bar kveðjur til bæjarfulltrúa frá Pétri H. R. Sigurðssyni og
færði Pétri þakkir fyrir vel unnin störf fyrir Isafjarðarbæ.
Höfmin laimahækkana
hafnað
Þorsteinn Jóhannesson lagði fram tillögu á
fundi bæjarstjórnar nýverið um launahækk-
anir. Þar segir m.a.: „Legg til við bæjarsljórn,
að í kjölfar hækkunar á þingfararkaupi komi
ekki til sjálfvirkra hækkana á Iaunagreiðslum
bæjarsjóðs Isafjarðarbajar, hvorki til bæjar-
fulltrúa, nefndamanna né annarra starfs-
manna bæjarfélagsins." Tillaga Þorsteins var
felld með 4 atkvæðum gegn 3. Tillaga um að
garðyrkjustjóra verði veittur 40 þúsund
króna styrkur til kynnisferðar um Danmörku
og Svíþjóð var felld.
Nýr gruimskóli í Holti
TiIIaga iTæðslunefndar um að Grunnskóli Önundaríjarðar verði rekinn
eitt ár til viðbótar með svipuðu fyrirkomulagi og síðustu tvö ár og að á
sama tíma verði kannaðir möguleikar á „nýjum" skóla í Holti, var sam-
þykkt af bæjarstjórn með 6 atkvæðum gegn 1 en Sigurður R. Ólafsson
gerði grein fyrir hjásetu sinni. Þorsteinn Jóhannesson gerði svohljóð-
andi grein fyrir atkvæði sfnu: „Greiði atkvæði gegn þessari tillögu, þar
sem ég hef ekki aðrar upplýsingar um kostnað, sem samþykki þessa til-
lögu hefur í för með sér, en minnisblað skóla- og menningarfulltrúa.
Þar kemur fram, að kostnaður við verkefnið „yrði ekki mikið meiri en
Iaunakostnaður við Grunnskóla Önundarfjarðar 1998-1999.“ Sam-
kvæmt ársreikningi ísafjarðarbæjar 1998 var launakostnaður Önundar-
fjarðarskóla um 20 milljónir króna."
Þorsteinn Jóhannesson,
bæjarfulltrúi.
Hestameimska í Engidal
Lárus G. Valdimarsson lagði fram bókun á bæjarstjórnarfundi undirrit-
aða af öllum bæjarfulltrúum, þar sem segir m.a. að undirritaðir bæjar-
fulltrúar óski eftir, að bókað verði með formlegum hætti sú afstaða
þeirra að tekið verði tillit til þarfa og óska þeirra sem vilja stunda aðra
tegund útivistar en hestamennsku, í skipulagi Engidals. Bæjarstjórn
ísafjarðarbæjar hefur samþykkt að Golfklúbbi Isafjarðar verði veittur
greiðslufrestur á kaupverði Fitjageigs 6, Hnífsdal. Um er að ræða 800
þúsund krónur, sem settar verða á skuldabréf til 5 ára. Málinu síðan
vísað til endurskoðunar á íjárhagsáætlun.
Austurvegi 11 afsalað tH
Tónlistarfélagsins
Bæjarstjórn hefur samþykkt að til viðbótar við tvær efri hæðir hússins
við Austurveg 11, sem afsalað var samkvæmt samningi 26. júní 1997,
verði öllu húsinu við Austurveg 11 afsalað til Tónlistarfélags Isafjarðar
gegn því að ísafjarðarbær hafi aðstöðu til smíðakennslu og annarra at-
hafna í kjallara hússins í 5 ár frá afsalsdegi. Þá mun Isafjarðarbær
greiða 7 milljónir ltróna á 5 árum frá og með árinu 2000.
KjeU Hymer ráðiim félagsmálastjóri
Bæjarstjórn hefur samþykkt, með tilliti til einróma niðurstöðu félags-
málanefndar, að ráða Kjell Hymer í stöðu félagsmálastjóra ísafjarðar-
bæjar í stað Jóns Tynes, sem horfið hefur til starfa á Grænlandi. Ráðn-
ingin verður tímabundin vegna fyrirhugaðra breytinga á félagsmála-
sviði. Samþykkt hefur verið að ganga til samninga við Vesturleiðir um
rekstur upplýsingamiðstöðvar á ísafirði sumarið 1999. Jafnframt að
styrkja rekstur upplýsingamiðstöðvarinnar um 1.250.000 krónur. Jafn-
framt hafnar bæjarstjórn beiðni um styrk vegna Kristnihátíðar Vest-
fjarða.
Framtíð Orkubús
Vestfjarða
rædd
Bæjarstjórn ísafjarðarbæjar hefur
falið bæjarstjóra, Halldóri Halfdórs-
syni, að kalla saman forsvarsmenn
sveitarfélaga á Vestfjörðum til við-
ræðna um framtíðareignarform sveit-
arfélaganna í Orkubúi Vestfiarða.
Halldór Halldórsson.
Félagsmálanefnd skilar ekki skýrslum
Barnaverndarstofa hefur gert alvarlegar athugasemdir við félagsmála-
nefnd Ísaíjarðarbæjar vegna skorts á upplýsingum frá félagsmálayfir-
völdum í Isafjarðarbæ. Þrátt fyrir margítrekaðar tilraunir, munnlega
sem skriflega, hefur stofnun ekki sent Barnarverndarstofu skýrslu um
störf sín síðan á árinu 1994. Málið er í höndum bæjarstjóra, en vænt-
anlega mun nýráðinn félagsmálastjóri, Kjell Hymer, leggjast undir feld
og skila skýrslunum. — GG
Starfsemi Barna- og unglingageðdeildar fer nú að mestu fram í húsnæði við Dalbraut, en nú stendur til að opna
bráðamóttöku á geðdeild Landspítalans.
Bráðamóttaka
geðveikra bama
80 böm í hverjuin ár-
gangi þurfa á meðferð
að halda vegna geð-
rænna vandamála.
Stjórnendur Landspítalans hafa í
samráði við heilbrigðisráðuneyt-
ið ákveðið að setja á fót bráða-
móttöku fyrir börn og unglinga
sem eiga við geðræn vandamál
að stríða. Bráðamóttakan verður
rekin á geðdeild Landspftalans
og notuð verða til þess tvö rúm.
Starfsemi Barna- og unglinga-
geðdeildar fer nú að mestu fram
í húsnæði við Dalbraut. Magnús
Pétursson forstjóri Sjúkrahús-
anna í Reykjavfk segir að stefnan
sé að tveggja rúma bráðamóttak-
an verði tilbúin í september. „Við
vitum að þetta er ekki fullnægj-
andi lausn til langs tíma en þetta
er þó vísir að sérstakri bráðamót-
tökudeild sem stefnt er að koma
upp í framtíðinni. Starfsemi
Barna- og unglingageðdeildar-
innar hefur oft verið erfið en nú
er spítalinn að reyna að leggja
sitt af mörkum til að mæta þeirri
þörf sem er fyrir hendi í þessum
málum“, segir Magnús. Ólafur
Guðmundsson yfirlæknir á
Barna- og unglingageðdeild
Landspftalans tekur undir að
mikil þörf sé á svona bráðamót-
töku. „Um 10-20% barna eiga við
einhver geðræn vandamál að
stríða og um 7-10% eru á því
stigi að þurfa að leita til sérfræð-
ings og loks eru um 2% af öllum
börnum sem þurfa á meðferð
Barna- og unglingageðdeildar að
halda, hvort sem um er að ræða
göngudeild eða innlögn", segir
Ólafur. Þessi 2% eru um 80 börn
í hveijum árgangi. — ÁÁ
Leynd um starfs-
lokakjör Fridriks
Ýmsar getgátur hafa
veriö iiiii tiiginilljóiia
króna starfslokakjör
Friðriks Pálssonar í
SH, en iiiikil leynd er
imi allar tölur í þessu
samhandi.
Það vakti mikla í umræðu í ís-
lensku viðskiptalífi þegar Friðrik
Pálsson var látinn fara úr for-
stjórastól SH og Gunnar Svav-
arsson frá Hampiðjunni var
fenginn í staðinn. Þetta gerðist
rétt eftir að Róbert Guðfinnsson
hafði framkvæmt hallarbyltingu
í SH, sem fólst í því að Jón Ingv-
arsson tapaði kosningunum um
stjórnarformannsembættið fyrir
Róbert. Það er þekkt þegar for-
stjórar stórfyrirtækja eru látnir
fara að ríflegir starfslokasamn-
ingar séu gerðir við þá og vakna
því spurningar um starfslok
Friðriks Pálssonar en getgátur
hafa verið um tugi milljóna
króna í því sambandi.
Friðrik Pálsson segir að ekki
Friðrik Pálsson fyrrum forstjóri SH.
hafi verið gerður sérstakur
starfslokasamningur í kjölfar
brotthvarfs síns úr forstjórastól
SH. „I mínum ráðningarkjörum
frá árinu 1987 var gert ráð fyrir
því með hvaða hætti starfslok
mín yrðu eftir því hvað ég ynni
lengi hjá SFI og þau samningsá-
kvæði héldust nú óbreytt þegar
ég hætti. Þessum samningi var
því á engan hátt breytt þegar ég
hætti,“ segir Friðrik.
Nefnir engar tölur
„Þegar ég gerði þennan samning
árið 1987 var venjan að sérstak-
ir eftirlaunasamningar væru
gerðir en ég fór ekki fram á það
heldur gerði ég samning sem var
mikið ódýrari fyrir félagið heldur
en þessir sérstöku eftirlauna-
samningar sem voru hvað al-
gengastir í þá daga,“ segir Frið-
rik. Hann segir að í kjölfar brott-
hvarfs síns frá SH hefði verið
rætt um breytingar á samningn-
um en ekki hefði náðst sam-
komulag um það og því stóð
þessi samningur frá árinu 1987
óbreyttur. Friðrik vildi alls ekki
nefna neinar tölur í þessu sam-
bandi og sagði þær vera einka-
mál sitt, stjórnar SH og skatts-
ins. Róbert Guðfinnsson, stjórn-
arformaður SH, segir í samtali
við Dag að það komi ekld til
greina að ræða starfslok starf-
manna SH við fjölmiðla og vildi
ekkert tjá sig um málið. Stjórn-
armenn SH vildu einnig ekki tjá
sig um málið og sömuleiðis
Bjarni Lúðvíksson, fram-
kvæmdastjóri fjármála hjá SH,
sem sagði málið vera algjörlega í
höndunum á Róbert og Friðrik.
- ÁÁ