Dagur - 25.06.1999, Page 13

Dagur - 25.06.1999, Page 13
l^u- FÖSTtJD'A'GUR 2 S. JÚ NÍ 19 9 9 - 13 ÍÞRÓTTIR Verða Spurs meistarar í nótt? SA Spurs geta tryggt sér NBA-meistaratitil- iim í nótt. Knicks spila með hjartanu og eru ekki húnir að gef- ast upp þó að vonir uin að vinna titilinn hafi dofnað. San Antonio Spurs er komið með aðra höndina og þijá fingur á NBA-meistaratitilinn eftir sig- ur á New York Knicks í fyrrinótt, 89-96. Það verður að teljast harla ólíklegt að Knicks nái að vinna þrjá leiki röð og þar af tvo á heimavelli Spurs, en það er eini möguleiki þeirra til að vinna titilinn. Knicks byrjuðu leikinn illa og Spurs náði 7 stiga forskoti strax í byijun, en Knicks náði að koma til baka og unnu leikhlutann 29- 27. Annar leikhluti var mjög jafn en staðan í hálfleik var 46-50 Marío Eiie og Latrell Sprewell voru sterkir með sínum liðum í leik 4 í fyrrinótt Spurs í vil. Hræðileg byrjun Knicks í þriðja leikhluta kom þeim í koll en þeir náðu ekki að skora fyrr en rúmlega þrjár mín- útur voru búnar af leikhlutan- um. Knicks neituðu samt að gef- ast upp og náðu að minnka mun- inn í 1 stig þegar 5 mínútur voru eftir af Ieiknum. Þá fór Spurs vélin í gang og þeir náðu að tryggja sér sigurinn á síðustu mínútunum. Spila með hjartanu Leikmenn Knicks sýndu ótrúlegt keppnisskap og spila svo sannar- lega með hjartanu, því eins og Einar Bollason sagði í útsend- ingunni þá voru þeir búnir að tapa leiknum nokkrum sinnum en neituðu alltaf að gefast upp. Latrell Sprewell fór fyrir heima- mönnum og skoraði 26 stig, en hann spilaði í 46 mínútur sem er mjög mikið. Mario Elie var mjög sterkur hjá Spurs og var næst stigahæstur hjá liðinu með 18 stig, á eftir Tim Duncan sem gerði 28 stig. Það kom greinilega í ljós í 3. leiknum að lykillinn að því að stöðva Spurs er að halda Dunc- an niðri og það er nánast ómögu- Iegt að sigra Iiðið þegar hann skorar yfir 25 stig. Þó að Spurs sé komið í afar góða stöðu þá er nokkuð ljóst að Knicks eru ekki búnir að gefast upp frekar en fyrri daginn. Þeir koma eflaust dýrvitlausir í 5. leikinn sem fram fer í New York í nótt, þó að fátt geti komið í veg fyrir sigur Spurs í seríunni. Spurningin er aðeins hvort þeir vinni 4-1 eða tryggi sér titilinn á heimavelli 4-2. - AÞM Júgóslavar einir ósigraðir Júgóslavar ósigraðir eftir riðlakeppni Evr- ópumóts landsliða í körfubolta sem lauk í fyrradag. Bosmumenn og Grikkir fallnir úr leik. Riðlakeppni Evrópumóts lands- liða í körfubolta lauk í fyrradag og við það féllu íjögur lið úr keppni. Þau lið sem þurfa að fara heim eru Makedónía, Ungveija- land, Grikkland og Bosnía, en það hlýtur að teljast óvænt að tvö síðastnefndu liðin hafi fallið út svo snemma. Tékkar, Tyrkir, Rússar og Júgóslavar unnu sína riðla, en Júgóslavía er eina liðið sem komst ósigrað út úr riðla- keppninni og sannar það hversu sterkt liðið er. I hinum riðlunum þremur voru þrjú lið með jafn marga sigra og þurfti innbyrðis- hlutfall að ráðu endanlegri nið- urröðun riðilsins. Keppni í milliriðlum hófst í gær með eftirfarandi Ieikjum: Frakkland-Spánn, Lítháen-Tyrk- land, Slóvenía-Júgóslavía, Téklc- land-Króatía, Italía-Þýskaland og Rússland-Israel. Nokkrir athygl- isverðir leikir eru þarna á meðal og ber helst að nefna leiki Lit- háen gegn Tyrklandi og Tékk- lands gegn Króatíu, en lið Tékka og Tyrkja hafa komið einna mest á óvart í keppninni. Þau lið hafa mjög efnilega og frambærilega Ieikmenn innanborðs, sem eru innan við tvítugt og hafa heldur betur velgt „stóru köppunum" undir uggum. Allir leikirnir fara fram á lau- gardaginn og munum við birta úrslit í þriðjudagsblaðinu. Fyrir þá sem vilja fylgjast með úrslit- um strax eftir að þau eru ljós, þá er bent á vefsíðurnar eurobas- ket99.com og eurobasket.com. - AÞM Vlade Divac og Júgíslavar eru enn ósigraðir. Andri Þór Magnússon Að vera eða ekki vera - stuðnings- iiiíiður Ef þú ert ekki að styðja liðið þitt, hvað ertu þá að gera sem stuðningsmaður? Hvernig get- ur þú kallað þig KA-mann, KR-ing, Valsara eða hvað sem er annað ef þú nennir ekki einu sinni að mæta á leiki til að styðja þitt lið? í Mogganum í gær var grein frá Keflvíkingum þar sem var verið að kvarta undan áhorfend- um sem voru að bijóta niður sína eigin liðsmenn. Hvað eru þessir menn að hugsa? Halda þeir að liðið þeirra spili eitthvað betur ef að einhverjir náungar úti í bæ, sem oft hafa ekki hundsvit á knattspyrnu, fari að segja þeim til og skamma þá og svívirða ef illa gengur. Þótt alltaf sé gott að frá hrós fyrir það sem maður hefur gert vel eða þegar manni gengur vel, er jafnvel betra að fá stuðning þegar að illa gengur. Það getur gert gæfumuninn. Prófið þið stuðningsmenn að leggja auðvelda spurningu fyrir sjálfa ykkur: Það eru tveir menn/tvö Iið þar sem ekki geng- ur mjög vel. Annað liðið hefur fengið óbilandi stuðning á með- an hitt liðið fær ekkert nema sví- virðingar og á endanum hættir fólk að mæta á leiki þess. Hvort liðið er líklegra til árangurs? Þetta er sáraeinfalt og ætti ekki að vefjast fyrir neinum, svarið liggur augum uppi. Ég Iegg því til að þið stuðnings- menn sem sitjið heima í sófa of fussið svo og sveiið þegar þið heyrið að liðinu gengur illa, rífið ykkur upp af rassgatinu og mæt- ið á leik til tilbreytingar. Og þið sem svívirðið og móðgið ykkar eigin leikmenn- ja, ég er ekki viss um að ég hafi nokkuð ráð fyrir ykkur, athæfi ykkar er hreint út sagt forkastanlegt. Golf í iiiidnæt urs úlinni á A kureyri Fyrstu keppendiir í Arctic Open mótinu voru ræstir út í gær. Mótið er orðið afar vinsælt í íþróttaheim- inum og hafa útlend- ingar hafa aldrei verið fleiri og koma allt frá Norðurlöndunum og alla leið frá Japan. Hið árlega Arctic Open, golfmót Golfklúbbs Akureyrar, þar sem leikið er golf í miðnætursólinni, var sett á miðvikudagskvöldið og voru fyrstu keppendurnir ræstir út í gær. Mótið er orðin afar vin- sæll viðburður í íþróttaheiminum og sækja margir golfarar Akureyri heim til þess að taka þátt í mót- inu. Fyrstu keppendur í Arctic Open voru ræstir út í gær. Að sögn Höllu Sifjar Svavars- dóttur, framkvæmdastjóra GA, hafa erlendir keppendur aldrei verið fleiri á mótinu, en þeir eru um 60 talsins í ár. Flestir þeirra koma frá Bandaríkjunum, en þeir sem koma lengst að koma frá Suður-Afríku og Japan, en jap- anski keppandinn er að koma annað árið í röð. Halla sagðist ekki óttast að miðnætursólin myndi ekki sýna sig mótsdagana, hún hafi alltaf sýnt sig til þessa og það væri eiginlega komin hefð fyrir því. Vegna fjölda þátttakenda voru íyTstu keppendur ræstir út klukk- an þrjú í gær, en venjan hefur verið að hefja mótið síðar. Því hefur þó verið komið þannig fyr- ir að erlendu keppendurnir verða ræstir út þannig að þeir geti leik- ið í miðnætursólinni, það er ef veðurguðirnir sýna miskunn og hleypa sólinni að. - AÞM

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.