Dagur - 09.07.1999, Blaðsíða 1
Föstudagur 9. júlí 1999
Áhugaverðar
rústir 1 Reykholti
Fomleifafræðmgar
sem vinna að upp-
greftri í Reykholti í
Borgarfirði eru komn-
ir uiður á minjar sem
þeir telja áhugaverð-
ar.
Um er að ræða leifar sem eru lík-
lega frá sextándu öld og jafnvel
eldri. „Við höfum einbeitt okkur
að svæðinu þar sem jarðgöngin
sem liggja frá Snorralaug koma
inn á gamla bæjarstæðið en gróf-
um líka eina prufuholu inni í
garðinum vestan við það þar sem
síðasti bærinn stóð. Þar höldum
við að við höfum fundið torfvegg
með landnámsgjósku í. Land-
námsgjóskan féll 871-2.
Veggurinn er að öllum líkind-
um hlaðinn ekki allt of löngu eft-
ir það þó ekki sé hægt að segja
hversu löngu eftir. Hann virðist
vera gerður bara úr torfi sem er
merki um háan aldur. Gólflag
virðist tengjast þessum vegg.
Þetta verður skoðað betur áður
en við hættum í sumar,“ segir
Guðrún Sveinbjarnardóttir forn-
leifafræðingur sem stjórnar upp-
greftinum.
Auk hennar taka ijórir íslensk-
ir fornleifafræðingar þátt í rann-
sókninni ásamt fornleifafræðing-
um frá Bretlandi, Danmörku og
Kanada. Það nýmæli er við þenn-
an uppgröft að á staðnum er sér-
stakur starfsmaður frá Þjóð-
minjasafninu til að taka á móti
ferðamönnum og veita þeim
fræðslu um framgang fornleifa-
rannsóknarinnar. Með þessu vill
safnið koma á móts við þann
mikla áhuga sem er í landinu á
fornleifarannsóknum og nýtur
þetta verkefni styrks úr Nýsköp-
unarsjóði námsmanna.
Fornleifarannsóknin nú er
framhald rannsókna sem hófust
sumarið 1987. 'Árið 1997 var
gerð áætlun um umfangsmiklar
fornleifarannsóknir í Reykholti.
Ríkissjóður hefur veitt fé til
rannsóknanna og hófust þær af
fullum krafti sumarið 1998.
Meðal þeirra mannvistarminja
sem fundist hafa á uppgraftar-
svæðinu eru leifar gangabæjar
frá 17.-18. öld og eldstæði og
veggjabrot frá miðöldum, auk
hinna þekktu jarðganga sem lágu
frá Snorralaug að Reykholtsbæn-
um. I sumar er áfram grafið á
sama svæði með það fyrir augum
að fá mynd af eldri búsetu á
staðnum. OHR
Þórir Úlafsson, skólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands, segir að í nýrri fjarkennslumiðstöð FVA verði fyrst og
fremst kennsla sem ekki sé í boði í hinu almenna skólakerfi. - mynd: ohr
Fjarkeimsluiniðstöð í FVA
Sjávargarður enn
á dagskrá
Sjávargarður á Akra
nesi er enn til um-
ræðu.
Bæjarstjórn setti nefnd í fyrra í
það að skoða þau gögn sem
áhugahópurinn hafði skilað til
bæjarins. I nefndinni sitja;
Guðbjartur Hannesson formað-
ur, Elínbjörg Magnúsdóttir og
frá áhugahópnum Ævar Harða-
son arkitekt. Björn S. Lárusson
er starfsmaður hópsins.
Þessi nefnd hefur einkum
skoðað Ijármögnunarmöguleika
og áhuga hagsmunahópa til að
koma slíkum sjávargarði á Iagg-
, irnar.
. „Sú hugmynd sem nefndin
vinnur með er að Sjávargarðurinn
(kynningarmiðstöð um lífríki
hafsins og nýtingu auðlinda þess)
verði tæki til að kynna Islending-
um og útlendingum hvernig við
göngum um auðlindina og hver
hún er,“ segir Bjöm Lárusson.
Nefndin hefur komist að þeirri
niðurstöðu að til að hann geti
orðið að veruleika þurfí ríki og
hagsmunasamtök að koma að
verkefninu. Bæjarstjórn hefur
þess vegna samþykkt að kynna
það fyrir þeim ráðherrum sem
um þessi mál fara og kynna það
nánar fýrir þingmönnum Vestur-
lands. Fyrirhugað er að gera þetta
í haust.
Til stendur að setja
upp fjarkenusluuiið-
stöð í Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akra
uesi (FVA).
Bæjarráð Akraness hefur sam-
þykkt fjárveitingu að upphæð
680 þúsund krónur til kaupa á
Ijarkennslubúnaði og hefur bæj-
arritara verið falið að ganga frá
samkomulagi við skólann um
húsnæði og rekstur búnaðarins.
Að sögn Gísla Gíslasonar bæjar-
stjóra verður skólanum afhent
fjárhæðin við gott tækifæri í
haust.
Þórir Olafsson skólameistari
FVA segir að þar muni fyrst og
fremst verða kennsla sem ekki sé
í boði í hinu almenna skólakerfi,
námskeið og endurmenntun á
háskólastigi. „Einnig er fýrirhug-
að að nota aðstöðuna til að styrkja
kennslua í framhaldsskólanum
ekki síst á kennslustöðum FVA
utan Akraness,“ segir hann.
Fjarkennslubúnaðurinn með
ISDN tengingum kostar um
1.100 þúsund krónur. Þórir segir
starfsemina að mestu ómótaða
þannig að erfitt sé að svara því
hvað verði af starfsfólki. „En
væntanlega mun starfsemin kalla
á aðkomu einhverra nýrra starfs-
manna einkum við námskeiða-
hald þó hún verði að miklu Ieyti
borin uppi af starfsmönnum
FVA.“ OHR
Þessi skemmtilega mynd er meðal
þess sem sjá má á vef
Búnaðarsamtaka Vesturlands.
Búnaðarsam
tökVesturlands
ávefinn
Búnaðarsamtök Vest-
urlands hafa opnað
vef á Netinu og er
slóðin www.vestur-
land.is/buvest
Á vefnum er að finna upplýsing-
ar um markmið og starfsemi
samtakanna, stjórn þeirra og
starfslið. Þá eru birtar niður-
stöður úr skýrsluhaldi í naut-
gripa- og sauðfjárrækt auk al-
mennra upplýsinga um hrossa-
og jarðrækt.
Þegar er talsvert af gögnum
komið á vefinn, sem eins og all-
ir góðir vefir á Netinu, er í
stöðugri vinnslu. Meðal þess
sem lesa má um á vefnum eru
afurðahæstu búin á Vesturlandi,
bestu Iambhrútar og veturgaml-
ir hrútar, afurðahæstu kýrnar,
stóðhestar á Vesturlandi, niður-
stöður heyefnagreininga, og
þannig mætti lengi telja.
Vefurinn er unninn af
Vefsmiðju Vesturlands og Hall-
grími Sveinssyni hjá Búnaðar-
samtökunum, sem sér um við-
hald og uppfærslur vefsins.
Lá á á ball
Utlit er fyrir að ungum mönnum
er dvöldust í Húsafelli hafí Iegið
á að komast á Stuðmannadans-
leik í Borgarnesi sl. Iaugardags-
kvöld.
Á sunnudeginum kom í ljós að
grafa hafði horfíð frá Húsafelli
og fannst hún við Baulu í Staf-
holtstungum. Hafði verið tengt
framhjá og gröfunni startað án
lykla.
Óli Jón í stól
bæjarstjóra?
Tólf umsækjendur sóttu um
starf bæjarstjóra í Stykkishólmi,
þar af tvær konur. Bæjarstjórn
hefur ákveðið að j>anga til
viðræðna við Ola Jón
Gunnarsson fv. bæjarstjóra í
Borgarbyggð um stöðuna.
Aðrir umsækjendur voru: Ar-
inbjörn Sigurgeirsson, ^ Eygló
Gunnarsdóttir, Friðrik Óskars-
son, Guðmundur Þór Guð-
mundsson, Gunnar O. Sigurðs-
son, Lilja Tryggvadóttir, Marías
Sveinsson, Öskar Thorberg
Traustason, Pétur Oddsson,
Stefán Ólafsson og Valbjörn
Steingrímsson.