Dagur - 09.07.1999, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 1999 - 3
VESTURLAND
Nýr vegur milli
Hólmavíkiir oe'
Giisijaröar?
Myndina tók Sólrún Geirsdóttir og sýnir hún erJónas Guðmundsson, sem stóð fyrir söfnuninni, afhenti sam-
gönguráðherra, sem jafnframt er 1. þingmaður Vesturlands og Einari K. Guðfinnssyni, 1. þingmanni Vestfjarða
iistana, í Úsvör við Bolungarvík. Einnig var viðstaddur Einar Oddur Kristjánsson, 5. þingmaður Vestfjarða.
„Ég tel að þessi vegur komi vel til
greina og að hann geti orðið á
næstu vegaáætlun. Þessi leið
þjónar Vestfirðingum og tengir
saman Vesturland og Vestfirði og
styrkir byggðina á Ströndum og í
Dalasýslu. Þannig mun Gilsfjarð-
arbrúin nýtast mjög vel fyrir Vest-
firðina og Ieiðin suður verða
styttri," sagði Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra í samtali við
Dag-Vesturland.
Nýlega voru honum afhentir
undirskriftalistar og stuðningsyf-
irlýsingar sem safnað hafði verið
á netinu. Yfir þúsund einstakl-
ingar höfðu sett nöfn sín á list-
ana, en þeim fylgdi áskorun um
að sem fyrst yrði hafist handa við
vegarlagningu milli Hólmavíkur
og Gilsfjarðar um Arnkötludal og
Gautsdal.
Jónas Guðmundsson, sýslu-
maður í Bolungarvík, sem stóð
fyrir undirskriftasöfnuninni segir
nýjan veg á þessari leið mundi
stytta vetrarleiðina milli norðan-
verðra Vestfjarða og norðan-
verðra Stranda og Suðvestur-
lands um 40 kílómetra auk þess
að tengja saman byggðir á norð-
anverðum Ströndum og við
Breiðafjörð.
Of löng léið
Jónas ritaði grein um málið í
Bæjarins besta í vetur og sagði
þar m.a.:
„A milli Isafjarðar og Reykja-
víkur er vetrarleiðin nú um 520
km og þýðir sjaldnast að ætla sér
minna en 7 klst. að aka hana.
Eftir slíkan akstur er yfirleitt Iítil
orka eða tími afgangs til að er-
inda í höfuðborginni eða sinna
krefjandi málum á heimavelli.
Miklir möguleikar eru hins vegar
á að stytta Ieiðina. Má þar nefna
veglagningu um Þorskafjarðar-
heiði eða Kollafjarðarheiði eða
gerð vegganga milli Arnarfjarðar
og Dýrafjarðar, sem tæpast verð-
ur af alveg í bráð. Þá er nauðsyn
að taka upp snjómokstur á Eyrar-
fjalli, sem stytti leiðina um 34 km
eða tæpa hálfa klst. Sú leið sem
sýnist þó eins og sakir standa ætti
að geta komið að mestum notum
í þessum efnum er leiðin á milli
Hólmavíkur og GilsQarðar um
Arnkötludal og Gautsdal. Þótt
þessi leið hafi ekki verið könnuð
til hlítar er ekki kunnugt um
neinar ytri aðstæður sem aftra
ættu því að vegur verði lagður
þarna um. A hinn bóginn hefði
það fjölmarga kosti í för með
sér.“
Jónas
bendir á
að vegur
milli
Hólmavík-
ur og Gils-
fjarðar yrði
um 25 km.
langur og
lægi að-
eins á 3
km. kafla í
meira en
300 metra
hæð yfir
sjávarmáli.
Leiðin
stytti leið-
ina milli
Reykjavík-
ur og
norðan-
verðra
Vestfjarða
og norðan-
verðra
Stranda
um 40
km. eða
svipaða
vegalengd
og Hval-
fjarðar-
göng gera.
Á um-
ræddu
svæði eru
um 6500
íbúar.
Þó þessi
leið sé
rúmlega
10 km
lengri frá
norðan-
verðum
Vestíjörð-
um til
Reykja-
víkur en
leiðin um
Þorska-
fjarðar-
heiði, sem
er mjög snjóþung, er hún mun
Iægri.
Hann bendir á að þessi leið
tengi byggðirnar á norðanverðum
Ströndum annars vegar og Dali
og Reykhólasveit hins vegar, en
þessi svæði séu að verulegu leyti
einangruð hvort frá öðru yfir vet-
urinn. Þessi tenging ætti að leiða
til aukinnar samvinnu þessara
sveitarfélaga og e.t.v. sameining-
ar í framtíðinni segir Jónas.
Þessi Ieið mun auka umferð til
og frá norðanverðum Vestljörð-
um um Hólmavík þar sem mjög
líklega mun draga úr sumarum-
ferð um Þorskafjarðarheiði. Þá
mun þeim fjölga sem velja þann
kost að aka á milli Vestljarða og
höfuðborgarsvæðisins eftir því
sem vegalengdir styttast.
Hin mikla fjárfesting sem ligg-
ur í Gilsfjarðarbrú nýtist mun
betur öllum til hagsbóta.
Aform um vegarlagningu þessa
leið ættu að hraða bættum veg-
um um Svínadal og Bröttu-
brekku íbúum Vestfjarða svo og
Dalamönnum til mikils hagræðis
og ætti jafnframt að leiða til auk-
ins samgangs milli svæða innan
hins væntanlega nýja Vesturkjör-
dæmis.
Jónas fullyrðir að þetta sé sá
vegarkafli sem ólokið er milli
norðanverðra Vestfjarða og
Reykjavíkur sem nýttist flestum
mest og bendir á að skjót vegar-
Iagning þessa leið sé í mestu
samræmi við niðurstöðu Fjórð-
ungsþings Vestfjarða í sam-
göngumálum frá 1997.
„Meðan sem mestum Ijármun-
um yrði varið í að ljúka vegar-
lagningu þessa leið mætti hægja
á framkvæmdum í Isafjarðar-
djúpi og huga betur að vegar-
lagningu frá Gilsfirði vestur
Barðastrandarsýslu í Vatnsfjörð
og þaðan norður til Isafjarðar,"
segir Jónas.
Ennfremur segir hann: „Þótt
auðvitað megi leiða líkur að því
að vegarlagning þessa leið hægi á
vegagerð milli Hólmavíkur og
sunnanverðra Stranda verður í
þeim efnum einfaldlega að fórna
meiri hagsmunum fyrir minni. A
leiðinni milli Hólmavíkur og
Brúar í Hrútafirði eru enn um 50
km ómalbikaðir en þessi leið yrði
um 25 km og því líklega nokkru
ódýrara að fara hana en að ljúka
við núverandi leið um Strandir."
Myndin sýnir afstöðu vegstæðisins á landsvísu.
Myndin sýnir hvar hugmyndin er að vegurinn liggi.
• JIMNY fékk gullverðlaunin '98 í Japan
fyrir útlit, gæði, eiginleika og möguleika!
• Ódýrasti ekta 4x4 jeppinn á íslandi
• Hátt og lágt drif - byggður á grind
• Sterkbyggður og öflugur sportjeppi
ALLIR SUZUKI BÍLAR ERU MEÐ:
• vökvastýri • 2 loftpúða •
• aflmiklar vélar • samlæsingar •
• rafmagn I rúðum og speglum •
• styrktarbita í hurðum • ^
• samlitaða stuðara •
I
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is
$ SUZUKI
SUZUKIBÍLAR HF
fmm
FRAMillll
mm