Dagur - 21.08.1999, Page 3
—„n-
GÖMLU HÚSIN
FREYJA
JÓNSDÓTTIR
SKRIFAR
Framhald
af bls. 1
Bryde kaupmaður verður eig-
andi húsanna árið 1885. Hann
byggði tvílyft hús við austurenda
búðarinnar. I nýja húsinu setti
Bryde upp sölubúð sem á þeim
tíma var með glæsilegustu inn-
réttingu allra verslana á landinu.
I innréttingunni voru margar
litlar og stórar skúffur ásamt
hólfum og hillum.
Árið 1907 lét Bryde rífa gamla
pakkhúsið og byggja í stað þess
nýtt tvílyft hús við vesturenda
gömlu sölubúðarinnar, 14x14
álnir að grunnfleti. Um leið var
húsnæði gömlu búðarinnar lengt
til vesturs að nýja húsinu. Við
þetta fékk húsið á sig þá lögun
sem það hefur enn í dag. I raun-
inni eru þetta þrjú sambyggð hús
og er hluti miðbyggingarinnar
elstur en það er húsið sem byggt
var fyrir gamla Fálkahúsið.
I brunavirðingu sem gerð var í
september 1907 segir: „Hús
þetta er tvílyft með 7 álna risi,
byggt af bindingi, klætt utan
með plægðum 5/4 borðum,
pappa og járni þar yfir bæði á
þaki og veggjum. I húsinu eru
loft og gólf úr plægðum 5/4“
borðum og þiljað innan. Undir
húsinu öllu er kjallari með steyp-
tu gólfi 4 'A alin á hæð sem
hólfaður er í tvennt. Við norður-
hliðina á þessu húsi er skúr,
14x6álnir, byggður úr samskon-
ar efni. Við austurgaflinn á þess-
um skúr er byggður annar skúr, í
honum eru tvö herbergi og gang-
ur, allt þiljað og málað. Við aust-
urgaflinn á síðast nefndum skúr
er annar skúr sem er hólfaður í
þrennt, þiljaður og málaður að
innan. Kjallari með steinsteypu-
gólfi er undir skúrnum öllum.“
I þessari brunavirðingu voru
ekki tekin til virðingar tvö eldri
húsin þ.e. miðhúsið, byggt 1868
og austasta húsið byggt 1885.
H.P. Duus kaupir alla eignina
árið 1915. Sama ár selur H.P.
Duus, O. Johnson & Kaaber
húsin við Hafnarstræti. O. John-
sen og Kaaber, fyrsta heildversl-
un landsins, stofnuð áriðl906 í
Lækjargötu 4 og var þar til húsa
þar til O. Johnson kaupir Fálka-
húsið. Verslun Ó. Johnson &
Kaaber hafði með höndum mik-
inn útflutning á árunum 1910 til
1915. Ull var flutt út til Banda-
ríkjanna sem keypt var frá
bændaverslunum og kaupfélög-
um víða um land. Einnig seldi
fyrirtækið saltkjöt til Noregs,
saltaðar sauðargærur til Evrópu-
landa og hesta til Danmerkur.
Framleiðsla á lýsi sem selt var til
Bandaríkjanna hófst 1923.
Árið 1924 var sett á fót kaffi-
brennsla og 1932 bætti Ó.
Johnsson & Kaaber við kaffibæt-
isverksmiðju. Árið 1961 flutti
fyrirtækið starfsemina í Sætún
og byggt var yfir kaffibrennsluna
á Tunguhálsi.
I gegnum tíðina hafa verið
gerðar ýmsar útlitsbreytingar á
búsinu, eins og að gluggar hafa
verið stækkaðar í nokkrum
áföngum. Árið 1976 fær Islensk-
ur heimilisiðnaður leyfi til þess
að breyta milli innréttingum í
plássi sínu í miðbyggingunni. Is-
lenskur heimilisiðnaður var með
verslun í húsinu í þrjá áratugi og
hafði sölubúð á neðri hæð og
tt-r Tíðak . f ■ SVf,'* K.«£A3>VfKJ-I?'
LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999 -111
FáJkahúsió
Hafnarstræti 1 til 3
/ gegnum tíðina hafa verið gerðar ýmsar útlitsbreytingar á húsinu, eins og að gluggar hafa verið stækkaðar í nokkrum áföngum.
lager og verslun í risi. Þar sem
Islenskur heimilisiðnaður var er
nú veitingastaðurinn, Kaffi Vict-
or, sem var stofnaður 22. júlí í
sumar, af fjórum harðduglegum
ungum mönnum. Þegar eigend-
ur kaffihússins endurbættu
plássið settu þeir upp sterklegar
stoðir til styrktar loftinu sem
ekki hafði lengur sama styrk og í
upphafi og var farið að síga tals-
vert. I gegnum tíðina höfðu
milliveggir verið teknir og vant-
aði undirstöður. I skotum undir
súð á rislofti sem áður voru hill-
ur með lopa og garni, eru nú
dúnmjúk sæti fyrir gesti staðar-
ins. Ekki verður annað sagt en
eigendum Kaffi Victor hafi tekist
vel til við að endurgera húsnæð-
ið. Plötur sem settar voru í loftið
og huldu upphaflega burðarbita
voru fjarlægðar og bitarnir púss-
aðir upp, einnig voru gömlu gólf-
fjalirnar pússaðar og lakkaðar og
gerir þetta húsnæðið hlýlegt og
minnir á forna hefð. Hringstig-
inn sem liggur upp í risið heldur
sinni tign en hann er líklega elsti
hringstigi sem settur hefur verið
í hús á Islandi. I hinum enda
millibyggingarinnar var annar
hringstigi en ekki er vitað hvað
varð af honum. Á sama stað hef-
ur annar mun breiðari stigi, ver-
ið settur, til að gera aðgengi að
risinu betra. Ferðaskrifstofa
bænda er í vesturhúsinu sem
Vörugeymsiuop með tvöföldum hlera er á vesturgafli efri hæðar á vestur-
byggingunni en þar uppi var lager fyrir þá sem ráku verslun niðri. Út-
skurðurinn á húsinu er verk Stefáns Eiríkssonar, myndskera.
áður hýsti veiðafæraverslunina
Geysi þar til verslunin flutti sig
yfir götuna í Aðalstræti 2. Næst
á eftir var þar búsáhaldaverslun-
in Hamborg sem verslaði þar á
fjórða áratuginn. Hamborg flutti
á Klapparstíg og heldur áfram að
sjá borgarbúum fyrir búsáhöld-
myndir frá því að Ó. Johnson &
Kaaber voru í húsinu. I kjallar-
anum var einu sinni ávaxta-
geymsla núna hefur listamaður
gert plássið upp og er þar með
vinnustofu og gallerí.
Mikið og fallegt skraut ein-
kennir húsið. Á þaki miðhússins
Mikið og fallegt skraut einkennir húsið. Á þaki miðhússins er víkingaskip
sem siglir í öldusjó.
um. í austurhúsinu er verslun
Víkurprjóns, en eins og kunnugt
er var Víkurprjón stofnað í Vík í
Mýrdal og þar er verksmiðjan til
húsa ásamt sölubúð. Verslunin
er sniðin eftir þörfum ferða-
manna og selur allskonar ullar-
vörur, vélpijónaðar, handprjón-
aðar og ofnar. Einnig er þar mik-
ið úrval af minjagripum og
landslagskortum. Þar er lögð
áhersla á að vera með íslenska
minjagripi og er það mun
skemmtilegra en sjá austur-
lenska skrautfugla, þó að fallegir
séu, í hillum íslenskra minja-
gripaverslana. Einnig einkennir
þessa verslun mikið úrval af
sokkum sem framleiddir eru í
verksmiðjunni í Vík í Mýrdal. í
plássi Víkurprjóns var áður álna-
vöruverslunin Seyma. Á Ioftinu
yfir er aðstaða fyrir starfsmenn
Kaffi Victors, auk þess snotur
stofa fyrir gesti og á veggjum
stofunnar eru skemmtilegar
er víkingaskip sem siglir í öldu-
sjó. Á húsunum sín hvoru megin
eru sitjandi fálkar á burstum, á
milli fálkanna er skrautleg slá. Á
stöfnum húsanna eru útskornar
syllur og fyrir ofan glugga á efri
hæðum er tréskraut. Vöru-
geymsluop með tvöföldum hlera
er á vesturgafli efri hæðar á vest-
urbyggingunni en þar uppi var
lager fyrir þá sem ráku verslun
niðri. Utskurðurinn á húsinu er
verk Stefáns Eiríkssonar, mynd-
skera.
Á árunum 1960 til 1970 var
verslun með gardínur í miðbygg-
ingunni og í skúr á baklóðinni
var Ljóri. Þar var voru framleidd-
ar rúllugardínur.
Fyrir nokkru seldi fírma Ó.
Johnson & Kaaber eignina og
leigja núverandi eigendur hús-
næðið út.
Heimildir ern frú Árbæjarsaftti
og Borgarskjalasafni.