Dagur - 27.08.1999, Qupperneq 2

Dagur - 27.08.1999, Qupperneq 2
n \J n /v a I 2 - FOSTVDAGUR 27. AGÚST 1999 , FRÉTTIR L ^ Eyj abákkagróður elua ræktaoiir upp Gróðurfar eins og á Eyja- biikkiun getur enginn ræktað upp en uppgræðsla 5.700 hektara Mðaðs lands á hálendi gæti kost- að um 400 miUjónir. „Það er eins gott að menn geri sér grein fyrir því að það getur enginn mannlegur máttur ræktað upp sams konar gróður- far eins og faeri undir vatn á Eyjabökk- um - aðstæður þar, rakastig og loftslag verða ekki ekki búnar til. I mínum huga er þetta mjög merkilegur gróður. En að rækta upp 5-6 þúsund hektara mela einhvers staðar annars staðar og klæða þá gróðri, er í sjálfu sér auðvelt, ef ekki skortir peninga,11 sagði Sveinn Runólfs- son, landgræðslustjóri, spurður hvað Landgræðslan yrði Iengi að rækta upp álíka svæði og fara myndi undir vatn á Austurlandi ef áformaðar virkjanir verða að veruleika. Landgræðslan hefur m.a. 19 ára reynslu af að græða upp land í stað þess sem sökkt var við virkjun Blöndu. 5 7 ferldlóinetrar undir vatn? Nær 2/3 þess 43 ferkílómetra lands sem færu undir vatn við Eyjabakkavirkjun eru gróið Iand, eða 27 ferkílómetrar, samkvæmt upplýsingum Helga Bjama- sonar, sem stýrir umhverfissviði hjá Landsvirkjun. Og undir 50 ferkílómetra lón við Kárahnjúkavirkjun færu rúmir 30 ferkílómetrar gróins lands, en þær tölur séu að vísu í endurskoðun. Þannig að alls eru það 57 ferkílómetrar (5.700 hektarar) gróins lands sem kunna að hverfa undir þessi tvö uppistöðulón. Til samanburðar bendir Helgi á að um 50 ferkílómetrar gróins lands fóru undir 56 ferkílómetra Blöndulón. Blöndu-ræktim gengið vel Landgræðslustjóri segir það hafa gengið framar öllum vonum að klæða land gróðri í 500 metra hæð á Auðkúluheiði og Eyvindarstaðaheiði. „Það hefur ekki verið nein uppákoma, ekkert kal eða slíkt. En þama vom forsendurnar þær að það ætti að framleiða fóður (beiti- Iand), svo það er ennþá verið að bera þarna á land vegna þess. Værum við að græða upp í þessari hæð og ætluðum bara að ldæða landið gróðri - og það væri friðað fyrir beit - þá giska ég á að hægt væri að græða upp 5.000 til 6.000 ha á einu ári, bera á það allt þijú ár í röð og síðan á 5. ári og kannski 8. ári og þá ætti Iandið að vera orðið gróið, við venjulegar aðstæður í 500 m hæð. Þá mundi ég ætlast til þess ?ð grösin sem sáð var mundu smátt og smátt deyja út og hálendisgróðurinn smátt og smátt taka yfir.“ Kostnað við sáningu á hálendi fjarri mannabyggðum og síðan áburð 4 sinn- um á einbveiju árabili áætlar Sveinn gróflega kringum 70.000 kr. á hektara, sem gæti þó breyst vemlega eftir að- stæðum. Það þýddi um 400 milljónir miðað við álíka svæði og það gróna land sem færi undir vatn við Eyjabakka og Kárahnjúka, auk girðingarkostnaðar. HEl FRÉTTAVIÐTALIÐ Jón Arnar Magnússon. í pottinum var verið að ræða frammistöðu ís- lensku kcppendanna á HM í frjálsum íþróttum í Sevilla á Spáni, eða öllu hcldur „frammistöðuleysi". Allt gekk á afturfótunum hjá þeim Völu, Þóreyju Eddu, Guðrúnu og Jóni Am- ari. Spaugsamir pottverjar töluðu um að HM stæði ekki fyrir HeimsmeistaraMót heldur Hættur-Meiddur! Pottverj ar voru að að velta því fyrir sér hvort betur hefði verið heima setið en af stað farið og komust að þeirri niðurstöðu við handauppréttingu að svo væri. Eins fannst pottverjum það kæruleysi hjá tugþrautarkappanum að spóka sig í sólinni í Portúgal innan um bitflugur, skömmu fyrir mót. Slíkt kunni greinilega ekki góðri lukku að stýra... Pottverjar voru hins vcgar ekki í vafa mn hveijir hefðu staðið sig best íslendhiga í Sevilla. Langbestum árangri hefðu þeir náð íþróttafrétta- menniniir Ingólfur Hannes- son og Samúel Öm Erlings- son. Sjónvarpið veðjaði greinilega á þann hest að íslensku keppendumir næðu að slá í gegn og sendi því sína bestu mcnn á svæðið. Þeir hafa náð toppárangri og m.a. upplýsti Samúel Öm sjónvarpsáhorf- endur um það að tugþrautar- kappinn Thomas Dvorak hefði ekki náð að sýna sitt besta í stangarstökkinu, þar sem hann hefði skorið sig á flngri við fiskskurð heima í eldhúsinu... Ingólfur Hannesson. Samúel Örn Erlingsson. í pottinum kom til umræðu stanslaus fundahöld norrænna ráðherra hér á landi í sumar. Ekkert lát virðist vera á og nú um helgina verður t.d. fundað á Akureyri og á Egilsstöðum. Pottveijar liöfðu á orði að þetta væri nýr þáttur í byggðastefnunni, að dreifa fundunum um landið og auka þar með hag ferðaþjónustunnar... Áki Ármann Jónsson veiðistjóri Veiðiskýrslur vegm gæsa- og rjúpnavertíðarinnar 1998 hafa enn ekki skilað sérinn aðfullu ogþví á Veiðistjóra- embættið erfitt með að gera sérgreinfyrirástandi áður- nefndra stofna. Frekar að Mða grágæs en rjupu Áki Ármann Jónsson, veiðistjóri, segir að þrátt fyrir það séu komnar mjög góðar vís- bendingar um heildarveiðina. Það sé hins vegar ekki verjandi fýrir veiðimenn að skila ekki inn veiðikortum fýrir 1. febrúar sl. en margir vakni upp við vondan draum þegar þeir eru á leið á gæsaveiðar að nýju og eiga eftir að útvega sér nýtt veiðikort hjá Veiði- stjóraembættinu. Þá fyrst skili kortið sér. - Er það bæði tttikil skriffinnska og trassaskapur að veiðimenn skila ekki veiði- kortunum á tilsettum tíma? „Það er lítil skriffinnska því samfara að skila veiðikorti. Þetta er bara hinn Iandlægi, íslenski trassaháttur. Það er í Iagi að vera þetta á eftir með skil á veiðikortum því við erum ekki að nota þær upplýsingar til að ákveða hvort friða eigi ákveðinn fuglastofn. Ekki heldur tæki til fylgjast með stofnum en merkingar og talningar koma líka inn í þetta dæmi. Litið er á 10 ára tímabil til að átta sig á hvort viðkomandi stofn er á upp- leið eða niðurleið." - Gæsaveiðin hófst 20. ágúst sl. Hvert er ástand gæsastofnanna í dag? „Grágæsastofninn var í kringum 80 þús- und fuglar eftir skotveiði haustið 1998 og heiðargæsastofninn var í kringum 220 þús- und fuglar. Stofninn á að þola um 30% veiðiálag, þó ekki meira því þá er verið að skjóta alla nýliðun úr stofninum. Veiðin var um 30% á grágæs en aðeins um 5% á heið- argæs enda er heiðargæsastofninn verulega vannýttur. Við höfum raunverulega meiri upplýsingar um það að grágæsastofninn sé ofnýttur en rjúpnastofninn. Ef ráðast ætti í friðunaraðgerðir ætti frekar að byrja á grá- gæsinni en ijúpunni, en Veiðistjóraembætt- ið hefur ekki lagt neitt slíkt til. I gangi er fimm ára rannsóknaráætlun á grágæs og heiðargæs og við bíðum eftir niðurstöðum áður en við getum úttalað okkur almenni- lega um hversu alvarlegt ástandið er. Við höfum þó hvatt veiðimenn til þess að færa sig úr grágæsaveiðum í heiðargæsaveiðar. Ég geri mér þó grein fyrir að það er mun erfiðara að sækja hana, hún er uppi á há- lendinu á gífurlegu landflæmi og miklu styggari en grágæsin, sem hægt er að finna á láglendi á ákveðnum túnum." - / umræðunni hefur verið að stytta rjúpanveiðitímann til þess að draga úr veiði. Ertufylgjandi því? „Það er ekki vænlegur kostur að stytta rjúpaveiðitímann. Margir veiða ákveðinn fjölda rjúpna og ná því hvort sem tímabilið er ein eða tvær vikur eða þrír mánuðir. 80% veiðinnar er á tveimur fýrstu vikunum svo stytta þyrfti tímabilið niður í viku til þess að það hefði áhrif. Það er umhverfisráðherra, Siv Friðleifsdóttir, sem gæti tekið ákvörðun um það eftir umsögn frá Náttúrufræði- stofnun, Veiðistjóraembættinu og rágjafa- nefnd um villt dýr. Vissar vísbendingar eru um að rjúpan sé ofveidd á Suðurlandi en það þurfa að fara fram meiri rannsóknir áður en hægt er að koma með fullyrðingar þess efnis. Það gæti komið til greina að friða viss svæði í rannsóknarskyni til að kanna hvern stofninn bregst við.“ - Er þér kunnugt utn hversu mikil veiði er áfriðuðum fuglum? „Á veiðskýrslunni eru reitur þar sem menn geta játað syndir sínar í þessum efn- um og yfírleitt „játa“ menn, enda betra að vita af því. Það er helst að menn séu að skjóta súlu vegna þess að um tíma var leyft að veiða hana. Það má veiða súluunga og oft misskilja menn lögin, halda að það megi veiða súlu, en það nær aðeins til súluung- anna. Við höfum ekki fengið veiðar á fálka og erni á skýrslu en ef þeir finnast eru þeir sendir í röntgenmyndatöku og þá kemur í ljós hvort í þeim eru högl. Örn sem fannst á Vestfjörðum í fyrra var með högl í sér.“ GG

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.