Dagur - 27.08.1999, Blaðsíða 4

Dagur - 27.08.1999, Blaðsíða 4
4 - FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1999 Dggur FRÉTTIR L Jökull á Raufarhöfn selur eignir JökuII á Raufarhöfn hefur gengið frá sölu á innfjaroarrækjubátunum Oxarnúp ÞH-162 og Reistarnúp ÞH-273, ásamt rækjukvóta félagsins í Oxarfirði. Kaupandi er útgerðarfélagið Hólmsteinn Helgason á Raufarhöfn. Þá hefur dótturfélag Jökuls, Brimnir, selt togarann Brimi ÞH-10 úr landi. Rekstur Brimis hefur gengið erfiðlega undanfarin misseri og hefur hann verið á söluskrá um nokkurt skeið. Rekstur Oxarnúps og Reist- arnúps hefur hins vegar gengið vel en sala þeirra er Iiður í að lækka skuldir Jökuls og einfalda reksturinn. Söluverðmæti framangreindra eigna er um 277 milljónir króna og lækka skuldir samstæðunar sam- svarandi. Vegna sölunnar og niðurfærslu á bókfærðum innfjarðar- rækjukvóta í Skjálfandaflóa verður bókfært tap um 120 milljónir króna. Að teknu tilliti til hlutdeildar minnihluta í tapi Brimnis verð- ur tap samstæðu Jökuls um 90 milljónir króna. — GG Áfram þúsund kall í stakar ferðir Stefán Reynir Kristinsson, framkvæmdastjóri Spalar, og Gisli Gíslason, stjórnarformaður Spalar, kynna hér nýju gjaldskrána á blaðamannafundi að Vallá á Kjalarnesi. - mynd: þök Stjórn Spalar hefur kynnt nýja gjaldskrá í Hvalljarðargöngin sem tek- ur gildi 1. september næstkomandi. Eins og komið hefur fram í beiðni fyrirtækisins til aðallánveitandans, John Hancock tryggingar- félaginu, verður áfram rukkaður þúsund kall fyrir stakar ferðir fólks- bíla. Helsta nýjungin er að 10 ferða kort verður í boði þar sem hver ferð kostar 700 krónur. Einnig geta stórnotendur orðið sér úti um 100 ferða áskriftarlykil, þar sem hver ferð kostar 400 krónur. Verð á 40 ferða lykli lækkar niður í 500 krónur hverja ferð. Veggald fyrir stóra bíla lækkar einnig. Sendiherra í Moldóvu Jón Egill Egilsson sendiherra afhenti í gær Petru Lucinschi, forseta Moldóvu, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Islands í Moldóvu, með aðsetur í Moskvu. Ársþing SSNV hefst í dag Ársþing Sambands sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, SSNV, hefst á Siglufirði í dag, föstudag. Auk hefðbundinna þingstarfa mun Björn Bjarnason, menntamálaráðherra, flytja erindi um menntakerfið og landsbyggðina, Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, erindi um Ijarkennslu á háskólastigi, Ingunn Helga Bjarnadóttir, landfræðingur á þróunarsviði Byggðastofnunar, erindi um atvinnulíf og menntun og Hörður Ríkharðsson hjá Inþróunarfélagi Norður- lands vestra mun fjalla um fjarkennsluverkefnið f Norðurlandskjör- dæmi vestra. A laugardag mun Páll Pétursson, félagsmálaráðherra, ræða um framkvæmd þjónustusamnings um málefni fatlaðra á Norðurlandi vestra. Auk þess verða fjármál sveitarfélaga og þróun byggðar á dag- skrá, og fjallað um reynsluna af sameiningu sveitarfélaga í Skagafirði og Vestur-Húnavatnssýslu. — GG UtanríMsráðherrar á Egilsstöðum Haustfundur utanríkisráðherra Norð- urlandanna, undir formennsku Hall- dórs Asgrímssonar, verður haldinn á Egilsstöðum dagana 29. og 30. ágúst. Sem fyrr sitja fundinn kollegar frá Eystrasaltsríkjunum og sérstakur gest- ur verður utanríkisráðherra Kanada, Lloyd Axworthy. Meðal umræðuefna verða norrænar áherslur og samstarf innan alþjóða- og svæðisbundinna stofnana. Island fer sem kunnugt er með formennsku í Evrópuráðinu, Noregur í ÖSE og Finnland í ESB. Eftir fundinn er ráðgert að undirrita yfirlýsingu, þar sem þátttaka barna og ungmenna undir 18 ára aldri í her- mennsku verði bönnuð. Halldór Ásgrímsson. „Launakerfið í landinu veldur því að sumir hópar sjá sér ekki hag af því að fara út á vinnumarkaðinn, “ segir m.a. í nýlegri úttekt á vegum stéttarfélaga og félagsmálaráðuneytis á orsökum og tillögugerð að úrræðum vegna at- vinnulausra kvenna í Reykjavík. „Kauplausar“ í fulíu starfi Ráðstöfimartekjur heimilis aukast ekki imi krónu við að at- vimmlaus eiginkona ráði sigí 155.000 króna starf og borgi fyrir 2 böm í leik- skóla. Auknar launatekjur skila heimil- inu hreint ekki alltaf meiri ráðstöf- unartekjum og geta m.a.s. stund- um minnkað þær. Gift kona sem borgar heilsdags leikskólagjöld fyr- ir 2 af þremur bömum sínum eyk- ur til dæmis ekki ráðstöfunartekj- ur heimilisins um eina krónu með því að vinna fyrir 70.000 kr. mán- aðarlaun. Og njóti hún fullra at- vinnuleysibóta (69.500 kr./mán.) þarf hún að fá a.m.k. 155.000 kr. á mánuði til að koma ekki út í hreinu tapi. I þessum dæmum er þó einungis litið til áhrifa á skatta, bamabætur, vaxtabætur, iðgjöld í Iffeyrissjóð og leikskólagjöldin. En ekki til annars kostnaðar sem óhjákvæmilega fylgir því að stunda vinnu. Dæmin geta verið fróðleg fyrir ýmsa þá sem ekki skilja af hverju auraráð heimilisins virðast ekkert aukast þótt þeir reyni að vinni meira og meira. Ekki alltaf hagur af vinnu „Launakerfið í Iandinu veldur því að sumir hópar sjá sér ekki hag af því að fara út á vinnumarkaðinn,11 segir m.a. í nýlegri úttekt á vegum stéttarfélaga og félagsmálaráðu- neytis á orsökum og tillögugerð að úrræðum vegna atvinnulausra kvenna í Reykjavík. Höfundar báðu Eddu Rós Karlsdóttur, hag- fræðing ASI, að reikna út hvenær það væri hagstæðara fyrir bæði hjón að vinna úti f stað þess að annað sé heimavinnandi og þiggi atvinnuleysisbætur. Ekkert eför af 155.000 krónum Edda Rós gaf sér raunhæft dæmi; hjón/sambýlisfólk með 3 börn hvar af 2 eru yngri en 7 ára, sem greitt er fyrir á leikskóla, með systkinaaf- slætti, í Reykjavík. Miðað er við 200.000 kr. mánaðartekjur úti- vinnandi maka og 69.500 króna atvinnuleysisbætur hins heima- vinnandi og að hjónin skuldi 4 milljónir í húsnæðislánum. Nið- urstaðan var sem sé sú, að at- vinnulausi makinn þarf að fá a.m.k. 155.000 kr. mánaðarlaun til þess að fjölskyldan hafi sömu ráðstöfunartekjur og áður. ...allt í skatta og lægri bætur Af þeim 85.500 krónum sem laun- in eru hærri en atvinnuleysisbæt- urnar færu: 30.400 kr. í hærri skatt og 6.200 kr. í lífeyrissjóð. Barnabæturnar Iækkuðu um 9.000 krónur og vaxtabætumar um 4.900 krónur. Þegar svo búið er að borga 34.150 krónur í leik- skólagjöld er ekki ein einasta króna eftir af þessum 85.500 króna „viðbótartekjum" heimilis- ins - t.d. upp í ferðakostnað til og ífá vinnu, fljótlegri mat og annan aukakostnað, sem oftast íylgir því að foreldrar ungra barna vinna úti allan daginn. Tímakaupið 30-100 krónur Dagur bað Eddu Rós að reikna út samsvarandi dæmi m.v. að heima- vinnandi makinn hefði engar at- vinnuleysisbætur. Hvað hann þyrfti í þá að fá í laun til þess að koma ekki út í mínus. Og niður- staðan er, að heimilið hefði ekki einni krónu meira úr að spila íyrr en launin færu yfir 70 þús. krónur á mánuði. Má af þessu ráða að margar konur sem telja sig vera að afla heimili sínu aukinna tekna með vinnu fyrir 80-100 þúsund krónur á mánuði halda kannski aðeins eftir kringum 5-15 þúsund krónum - og eru því í rauninni að þræla sér út fyrir 30-100 krónur á tímann. - HEi „Kjúkling;ilekum“ enn til atliugunar Mánuður síðan heil- brígðisnefndiu ákvað að óska eftir rannsókn. Heíiir verið „til athug- imar“ í tvær vikur. Rannsókn á því með hvaða hætti skýrsla heilbrigðiseftirlits Suður- lands komst í hendur fjölmiðla miðar hægt eftir því sem næst verður komist. Nú eru liðnar rúm- ar tvær vikur frá því beiðnin um rannsóknina barst til sýslumanns- embættisins á Hvolsveíli en þang- að kom hún frá Ríkislögreglu- stjóra, sem fékk beiðnina upphaf- lega. Nú er um mánuður síðan Heilbrigðisnefnd Suðurlands ákvað að óska eftir rannsókn á málinu. Einu upplýsingarnar sem fást hjá sýslumannsembættinu á Hvolsvelli eru að málið sé í rann- sókn og lítið annað um það að segja. I heild virðist rannsókn málsins erfið og óvíst hvort eitt- hvað kemur út úr henni. Skýrsla hefur verið tekin af Birgi Þórðar- syni heilbrigðisfulltrúa og spurður um það hvort hlutaðeigandi menn væru orðnir óþreyjufullir eftir nið- urstöðu segir hann að vissulega væri best ef hægt væri að hraða rannsókninni sem mest svo menn liggi ekki undir ámæli í sínum störfum. Guðmundur Ingi Gunn- laugsson formaður Heilbrigðis- nefndar Suðurlands segist bíða ró- Iegur eftir niðurstöðu rannsóknar- innar. Beðið eftir ráðimeytinu Annar angi málsins er að heil- brigðisnefndin óskaði eftir því við umhvefisráðuneytið að það léti í té álit sitt á því hvort starfsmenn hafi farið út fyrir heimildir sínar sam- kvæmt stjómsýslulögum og lögum um hollustuhætti. Matthías Garð- arsson, framkvæmdastjóri heil- brigðiseftirlits Suðurlands, hefur verið til yfirheyrslu hjá ráðuneyt- inu og Birgir Þórðarson heilbrigð- isfulltrúi hefur skilað greinargerð til ráðuneytisins. Birgir Þórðarson, heilbrigðis- fulltrúi Suðurlands, sem einnig situr í stjórn Neytendasamtak- anna, segir tilhneigingu hjá kerfis- mönnum og Iögfræðingum til að túlka lög um hollustuhætti og mengunarvarnir fyrirtækjum í hag en ekki neytendum, meðal annars sé vísað til fra m 1 ciðs 1 uIeyndarmá 1 a en slíkt eigi bara alls ekki við varð- andi öll mál. — HI

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.