Dagur - 27.08.1999, Qupperneq 6

Dagur - 27.08.1999, Qupperneq 6
7 \ .-'jeífefe't 'f v*. iin »-■ .Vs H 'i aKriaTO's 6 - fÖSTUUAUUH 2 / . ÁQÚST 1999 ÞJÓÐMÁL Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson Ritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Aðstoðarritstjóri: birgir guðmundsson Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson Skrifstofur: strandgötu si, akureyri, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK Sfmar: 460 6ioo OG 800 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjaid m. vsk.: 1.800 KR. Á MÁNUÐI Lausasöluverð: 150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ Grænt númer: 800 7080 Netfang auglýsingadeildar: omar@dagur.is Símar auglýsingadeildar: CREYKJAVÍK)563-i6i5 Ámundi Ámundason CAKUREYRI)460-6191 G. Ómar Pétursson OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161 Símbréf ritstjórnar: 460 6171CAKUREYRI) 551 6270 CREYKJAVÍK) Fé á glæ kastað í íyrsta lagi Þeim gífurlegu fjármunum sem stofnanir á borð við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn og Alþjóðabankann og vestrænar stórþjóðir hafa mokað í rússnesku hítina er á glæ kastað. Sífellt berast nýjar fréttir af því hvernig þessir peningar lenda inn á leynileg- um bankareikningum stjórnmálamanna og mafíósa. Nú síðast er fullyrt að jafngildi meira en þúsund milljarða íslenskra króna hafí verið komið undan með aðstoð banka í New York - þar af líklega um 7-8 hundruð milljörðum af þeim peningum sem Al- þjóða gjaldeyrissjóðurinn lánaði Rússum. Það fylgir sögunni að fjölskylda Jeltsíns forseta og nánir ráðgjafar hans hafí þar átt hlut að máli ásamt kunnum rússneskum glæpaforingja. í öðru lagi Þessar nýjustu fréttir frá Rússlandi staðfesta aðeins það sem lengi hefur verið vitað, að náið samstarf hefur verið og er á milli ýmissa þeirra mafíuhópa sem blómstrað hafa þar eystra frá falli kommúnismans og ráðandi stjórnmálamanna. Engu að síður, og þrátt fyrir ítrekaðar aðvaranir, hafa þeir sem ráða mál- um á vesturlöndum mokað peningum í rússnesku spillingarhít- ina. Astandið í landinu hefur lítið batnað við þann Qáraustur einfaldlega vegna þess að mestur hluti fjármagnsins hefur far- ið í vasa mafíósa cg spilltra stjórnmálamanna eða inn á erlenda bankareikninga þeirra, en ekki til að byggja upp efnahags- og atvinnulíf Rússlands. í þriðjalagi Þótt einn njósnaforinginn hafi tekið við af öðrum sem forsæt- isráðherra í ríkisstjórn Jeltsins hefur ekkert breyst í innri mál- um í Rússlandi. Þvert á móti bendir margt til þess að spill- ingaröflin hafí enn frekar styrkt síg í sessi með þessum nýjustu mannabreytingum. Það er kominn tími til að stjórnendur al- þjóðastofnana og vestrænna stórvelda taki mið af veruleikan- um í Rússlandi og hætti að henda þúsundum milljarða króna á rússneska spillingarbálið. Það kynni loksins að knýja Rússa til að hreinsa rækilega til í því glæpasamfélagi sem leyst hefur rússneska stórveldið af hólmi. Elias Snæland Jónsson KR-ÁKRÁ! * „Á Fram KRá? Á Fram KRá?!“ Þannig munu áhangendur KR örugglega hrópa næst þegar Reykjavíkurfélögin KR og Fram leiða saman bykkjur sín- ar á fótboltavellinum. Því stað- reyndin er sú að þó bæði þessi félög hafi nú hlutafélagavætt meistaraflokka sína, þá er KR komið miklu Iengra í rekstrar- legu tilliti. KR á nefnilega krá en ekki Fram. KR keypti krána Rauða Ijónið og KR er að verða fjölmiðlaveldi, rekur út- varpsstöð og gefur út blað. Garra finnst eins og gerst hafi í gær þá hann var að fylgj- ast með æskuástinni sinni KR, þegar með liðinu léku menn á borð við Ellert Schram, Garðar Árna- son og þeir Felixsynirn- ir Gunnar, Hörður og Bjarni. Þetta voru sann- ir áhugamenn sem létu mæður sínar bursta fót- boltaskóna, spörkuðu hátt og langt og sköll- uðu níðþunga reima- bolta af karlmennsku. Og þá var engin krá í Reykjavík. Móralskur nið- urgaugur? En nú á KR krá. Og leikmenn þiggja Iaun fyrir að gera það sem Felixsynir og Schramar- inn gerðu frítt og raunar með ærnum persónulegum til- kostnaði, sjálfum sér og áhorf- endum til jmdisauka. Gamlir aðdáendur KR telja ýmsir að þessar „Fram-farir“ séu í raun afturför eða móralskur niður- gangur. En Garri er ekki á sama máli. Það sem KR-sport er að gera er að fylgja kalli tímans, reyna að ná árangri í veröld þar sem peningar eru afl þeirra hluta sem gera skal, líka á fótbolta- vellinum. Manchester United á krá, rekur útvarps- og sjón- varpsstöð og gefur út blað. KR er Manchester United Islands. Og það sem Tjallinn getur, það getum við. OKRA ogFBA Garri fylgdist á dögunum af ánægju með úrslitaleikjum Fram og KR á Islandsmóti 5. flokks. Og þar var reyndar ekki hrópað: ,Á Fram krá?!“ Af því að KR í 5. flokki og öllum hin- um yngri flokkunum, á enga krá. Hlutafélagið KR-sport á sem sé krá, en það á ekki alla litlu og efni- Iegu KR-strákana sem urðu Islandsmeistarar í 5. flokki. Það liggur því fyrir að þegar þessir strákar vaxa úr grasi, þá ganga þeir ekki sjálfkrafa upp í meistaraflokkinn sem KR-sport rekur. KR- sport verður að kaupa þá af KR. Og þessvegna getur Reyn- ir Þorlákshöfn eða Þróttur Neskaupstað fengið hina ungu KR-inga til Iiðs við sig, ef Iiðin bjóða betur en KR-sport, (sem reyndar er ekki líklegt). Heitnir ungmennafélagslim- ir snúa sér ugglaust við í gröf- um sínum yfir allri þessari kaupsýslu sem tröllríður fót- boltanum og mun aukast á næstu árum. En þetta er þró- unin og henni verður vart við snúið. Eða hvernig var það annars, var það ekki dótturfyrirtæki KR-sport, O-KR-A, sem keypti hlutabréfin í FBA? HA? GARRI BIRGIR GUÐMUNDS- SON skrifar Þorgerður Ragnarsdóttir, fram- kvæmdastjóri vímuvarnaráðs, segir í frétt Dags í gær að aukin áfengissala sé áhyggjuefni. Hún kallar líka eftir betri tölfræði um þessi mál, tölfræði þar sem fram kemur í hvaða aldurshópum aukningin hefur orðið og hvort ölvunartengdum slysum og af- brotum hafi fjölgað í takt við aukna áfengisneyslu. Undir þetta má gjarnan taka með Þor- gerði því það er gríðarlega nauð- synlegt að geta fylgst með þróun- inni í þessum efnum og brugðist við ef mönnum sýnist allt stefna í óefni. Það er þó miklu mikil- vægara varðandi unglingadrykkj- una og ofbeldið að skoða hinar óopinberu sölutölur á áfengi - sölutölur yfir Ianda og smygl. Rannsóknir sýna að stærstur hluti áfengis sem unglingar eru að drekka kemur frá þessum óopinberu uppsprettum. Af áfiengisneyslu Ekki stórfelldur kvíði Sölutölur ÁTVR sýna hins vegar miklu frekar neyslumynstur hins almenna borgara, sem nú virðist vera farinn að drekka meira en nokkru sinni fyrr. Þó alltaf megi auð- vitað hafa áhyggjur af aukinni áfengis- neyslu, þá sýnist mér nú sem þær tölur sem birtust í fréttum blaða í gær gefi ekki tilefni til stórfellds kvíða. Samkvæmt Dags- fréttinni drekkur meðal-Jóninn 3 bjóra, 3 sterka sjússa og hálft annað vínglas í viku hverri. Hvort það er mikið skiptir kannski ekki svo miklu máli. Þetta er í það minnsta í lægri kantinum miðað við það sem gerist hjá öðrum þjóðum. Það sem þetta meðaltal hins vegar undirstrikar er að meðal-Jóninn er hættur að liggja í sterku vín- unum bara til að verða fullur. Is- lendingar eru á hraðferð yfir á annað tilvistarstig í drykkjunni. Menn eru að skemmta sér eða gera glaðan dag og drekka um leið, en eru hættir að skemmta sér með þvf að drekka. Menn fara síður svona gagngert á fyllerí en þeir gerðu áður. Siðmeimingin Þessi breyting sést líka þegar skoðuð er sú tölfræði sem þó má finna í þessum gögnum. Lands- menn eru farnir að drekka miklu meira rauðvín. Salan á því jókst um 27%! Þetta er fólk að drekka með siðfáguðum hætti með mat. Sama er uppi á teningnum ef aðrir hástökkvarar í sölu eru skoðaðir. Koníak, (með kaffinu eftir matinn) rýkur upp sölulist- ann með 22% aukningu. Líkjörar koma þar fast á eftir með 19% aukningu. Á hinn bóginn kemur í ljós að menn eru hættir að drekka brennivín í kók með sítrónu. Brennivínið er nú nán- ast eingöngu notað sem snafs, eins og sjá má af því að enn minnkar sala þess um 13%! Allt ber þetta að sama brunni. Þrátt fyrir að áfengissalan hafi aukist - og ástæða sé til að hugleiða hætturnar af því - þá eru góðu fréttirnar þær að vínmenningin tekur stórstígum framförum. Eftir standa þær áhyggjur sem við öll hljótum að deila með Þor- gerði og vímuvarnarráði - að ekk- ert lát virðist á hinni óopinberu sölu og neyslu, sem er bæði mikil og ómenningarleg. ----'-ituwaCT Hvað veldur stór- aukinni áfengisneyslu íslendinga? Guðlaugur Þór Þórðarson borgaifulltrúi. „Inni í þessu er neysla ferða- manna, sem er að fjölga ár frá ári. Við höfum ekki, eðli máls- ins samkvæmt, tölur yfir heimabrugg, en það er líklegt að góðærið leiði til þess að fólk kaupi frekar áfengi eftir hefð- bundnum leiðum þegar vel árar. Ekki kemur á óvart að neysla léttra vína sé að aukast, það eru áhrif erlendis frá þar sem vín er partur af matarmenningu. Sjálf- sagt er að vinna gegn því að börn og unglingar noti áfengi og sömuleiðis misnotkun hinna fullorðnu á því. Hinsvegar verð- um við að horfast í augu við að áfengisneysla hefur fylgt fólkinu í gegnum aldir og því verður ekki breytt nú.“ Haukur Tryggvason veitingatmðurá Pollinum á Akureyri. „Ég held að ástæðan sé mikil fjölgun vínveitinga- staða og auð- veldara aðgengi fólks að áfengi almennt. Þá hefur opnunartími vínveitinga- staða verið að rýmkast. Þetta eru helstu skýringarnar, þó ég telji aftur á móti að vandamál sam- hliða drykkju séu ekkert meiri í dag en þau hafa verið.“ Katrín Fjeldsted alþingismaður. „Ég vil ekki fullyrða að þetta sé vanda- mál, því svo margt annað kemur inní myndina. Áfengisneysla hér er t.d. minni en í nágrannalöndum okk- ar og aukningin er fyrst og fremst í drykkju léttra vína, en ekki þeim bölvaldi sem brenni- vínið er. Vonandi er minna drukkið af landa og vínmenning okkar Islendinga hefur stórlega batnað. Við skulum samt ekki gleyma að Bakkus er harður hús- bóndi og hóflega drukkið vín gleður mannsins hjarta.“ Bjöm Mikaelsson yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki. „Þessu veldur aukið aðgengi að áfengi mið- að við hvað var. Vínveitinga- stöðum hefur íjölgað, opnun- artími hefur lengst, úrvalið af drykkjum er meira og þannig gæti ég haldið áfram. Bót er þó í máli að þeim sem verða ofurölvaðir á almanna- færi hefur fækkað og það kom með bjómum. Að mínu mati er erfitt að sporna gegn þeirri þróun í áfengismálum sem á sér nú stað, meðal annars vegna krafna ferðaþjónustunnar."

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.