Dagur - 27.08.1999, Blaðsíða 12
iM■ ■ »■ ■ wli■ ■■ ■ ■ a=ii.i,■H&fJ■ lfH*1Ifl11H Ilu i iinfiii n i n n 111111111111111111111111111 y n 111 m i
12 - FÖSTUDAGUR 2 7. ÁGÚST 19 9 9
ro^ir
Sími 462 3500 • Hólabraut 12 • www.nett.is/borgarbio
NATTURaN KALLAOI
CETTU HVER SVARAÐI
FÖStUd. kl. 21 & 23
m\ mmmmjALÆff/
\mVWU!4RRKENIVD OG GEÐVE/K/
<1|i FÖStud. Föstud. m
kl. 21 - B.i.16 $ QD^J' D 1 G 1 T A L kl. 23 ■ E.I.1G D I G 1 T A L
STAR WARS
Vinsælasta
mynd í
kvikmynda-
húsum í dag.
Nú hafa 4000
manns séö
þessa mynd í
Nýja bíói á
Akureyri.
Sýnd kl. 15,18,21
og POWERSÝNING
KL. 23.30
THE PHANTOM MENACE
1
lutaHob.fhOSHmhCrínl
NottingHifl 7|
Notting Hill - næstvinsælasta
mynd í kvikmyndahúsum í dag.
Nú hafa 7000 manns séð þessa
mynd í Nýjabíói á Akureyri.
Sýnd kl.19,21 og 23:30
Sýnd kl. 15 og 17
í tilefni af menningarnótt á Akureyri,
býður Síminn GSM þér í bíó á stórmynd-
ina Notting Hill laugardaginn 28. ágúst
kl.4.40,7,9 eða 11.30
SÍMINN GSM
ÍÞRÓTTIR
L
í liði Anderlecht eru margir frábærir einstaklingar sem skemmtu oft með
leikni sinni.
Anderledit vann
Evrópu-
dráttuTÍnn
I gær var dregið í riðla í Meist-
aradeild Evrópu. Sterkasti riðill-
inn í keppninni er án efa B-rið-
ill, þar sem Barcelona, Fiorent-
ina, Arsenal og AIK Stokkhólm-
ur Ieika. Evrópumeistarar Man.
United lentu í heldur léttari
riðli, með Marseille, Kroatía Za-
greb og Sturm Graz.
A-riðill: Lazio, Bayern Leverkusen,
Dynamo Kiev og Maribor Teatanic.
B-riðiIl: Barcelona, Fiorentina,
Arsenal ogAIK Stokkhólmur.
C-riðiIl: Bor. Dortmund, Feyenoord,
Rosenborg og Boavista.
D-riðiII: Man. United, MarseiIIe,
Króatía Zagreb og Sturm Graz.
E-riðill: Real Madrid, Porto,
Olympiakos og Molde.
F-riðill: Bayern Miinchen, PSV
Eindhoven, Valencia og Rangers.
G-riðiII: Spartak Moskva, Girondins,
Sparta Prag og Willem II.
H-riðilI: AC Milan, Chelsea,
Galatasaray og Hertha Berlin.
KR-ingar ur leiJk
KR-ingar féllu í gærkvöld úr
Evrópukeppninni í knattspyrnu,
þegar þeir töpuðu seinni leikn-
um gegn skoska liðinu
Kilmarnock 2-0 í Skotlandi.
Staðan eftir venjulegan leiktíma
var 1-0 fyrir Skotana og því
þurfti að framlengja leikinn.
Kilmarnock bætti síðan við einu
marki í framlengingunni og
komst því áfram í keppninni á
einu marki, þar sem KR-ingar
unnu fyrri leikinn 1-0 á KR-vell-
inum.
Onnur úrslit í gærkvöld:
Landssimadeild kvenna:
Fjölnir - ÍA 3-6
ÍBV - Valur 0-2
Breiðablik - Stjarnan 2-1
KR - Grindavík 15-0
1. deild karla
ÍR - Skallagrímur 4-1
FH - Stjarnan 1-1
Leiftur og Anderlecht léku
seinni leikinn í undankeppni
UEFA-keppninnar á Akureyrar-
velli í gær. Anderlecht vann 3-0
sem voru nokkuð sanngjörn úr-
slit eftir gangi leiksins. Leiftur
hóf leikinn af nokkrum krafti en
strax á annarri mínúti lék Ander-
lecht skemmtilega gegnum vörn
Leifturs sem endaði með skoti
frá Patrick van Diemen sem
söng í netinu aftan við Jens
Martin Knudsen, 1-0. Leifturs-
menn misstu þó ekki móðinn en
það var hins vegar Anderlect
sem þyngdi stöðugt sóknina og
leikurinn fór stöðugt meira fram
á vallarhelmingi Leifturs.
Hættulegasta færi Leifturs kom
á 28. mínútu er vörn Anderlecht
bjargaði naumlega í horn eftir
langt innkast Páls Gíslasonar.
Á 41. mfn. braut Þorvaldur
Guðbjörnsson á Jan Köller og
var dæmt víti sem Par Zetterberg
skoraði úr, 2-0. Zetterberg skor-
aði svo 3-0 úr víti á 63. mínútu
er Jens Martin felldi einn besta
Ieikmann Anderlecht, EIos
Ekakia Elonga, er hann var kom-
inn einn í gegn, en við hraða
þessa leikmanns, sem kom inn á
í síðari hálfleik, réðu varnar-
menn Leifturs illa. Anderlecht
vann því samanlagt 9-1 í leikjun-
um tveimur. Besti leikmaður
Leifturs var tvímælalaust Hlyn-
ur Birgisson, sem hafði risann í
Iiði Anderlecht í strangri gæslu.
Einnig varði Jens Martin vel, t.d.
einu sinni maður gegn manni.
Páll Guðlaugsson, þjálfari
Leifturs, sagðist eftir leikinn
vera ánægður með vörnina en
þeir hefðu verið að spila gegn
klassaliði, og hann væri ánægður
með hlut þeirra Júlíusar
Tryggvasonar og Hlyns Birgis-
sonar í vörninni. Aimé Anthuen-
is, þjálfari Anderlecht, sagði
leikinn hafa verið fremur prúð-
mannlega leikinn, en hann hefði
verið hræddur við meiðsli vegna
mjög stífs leikjaprógrams liðsins
á næstunni. Völlurinn væri held-
ur ekki nógu sléttur sem hugs-
anlega hefði komið í veg fyrir
meiri markaskorun. - GG
Algjört ragl á norska
leikmaimamarkaönum
Ekki raunhæft að
norsk lið kaupi leik-
iiiann fyrir fjórðitng úr
milljarði. Rosenborg
eina norska félagið
sem rekið er með hagn-
aði. Laun leikmanna
alltof há.
„Því miður eru nokkrir umboðs-
menn knattspyrnumannanna í
Noregi ekkert annað en englar
með skftuga vængi. Þeir hugsa
hvorki um hag leikmanna eða lið-
anna heldur aðeins um sína pers-
ónulegu afkomu og hvað mikið
þeir fái í vasann fyrir hveija sölu.
Ef salan á John Carew, sem Ros-
enborg keypti á 250 milljónir, á að
vera viðmiðunartala í norska bolt-
anum, ganga varla fleiri Ieikmenn
á milli liða í Noregi,“ sagði Olav
Boksasp, framkvæmdastjóri
Molde. Hann segir að þeir hjá
Molde hafi nú lagt allar sínar hug-
myndir um kaup á leikmönnum á
hilluna og ætli sér að bíða þar til
ró kemst á markaðinn á ný.
Eftir söluna á Carew hafa marg-
ir forráðamenn úrvalsdeildarlið-
anna fengið dollaramerki í augun
og eru ekki til viðræðu um sölu á
leikmönnum nema tugir milljóna
skipti um eigendur. Bjartsýniskast
forráðamannanna hefur nú leitt
til þess að þau félög, sem geta selt
leikmenn til Englands og annarra
landa, ætla að bíða með sölurnar
þar sem þau eiga ekkj möguleika á
að rétta við bágan fjárhag þurfi
þau að kaupa norska leikmenn í
stað þeirra sem seldir verða. Oll
liðin í norsku úrvalsdeildinni,
nema Rosenborg, eru rekin með
tapi og fjárhagur margra þeirra er
allt annað en glæsilegur.
Lairn eftir árangri
Anders Krystad hjá Válerenga,
heldur því fram að staða margra
liða sé orðin það slæm að nú sé
komið að því að Iækka laun leik-
manna. Hann nefndi þá hugmynd
að hugsanlegt væri að breyta
Iaunakerfinu í þá átt að borga
meira eftir árangri en nú er gert.
„Það er útilokað að lið geti keypt
Ieikmenn fyrir milljónir og borgað
þeim svimandi laun án þess að
þeir komi til móts við félögin og
sýni að þeir séu peninganna virði.
Það segir sig sjálft að þegar þessar
stjörnur leggja sig ekki fram verð-
ur gengi liðanna í réttu hlutfalli
við vinnuframlag þeirra. Það þýð-
ir einfaldlega að áhorfendum
fækkar og minna kemur í kassann
hjá liðunum sem greiða launin.
Það er því spurning, sem er vel
þess virði að menn velti fyrir sér,
hvort leikmennirnir eigi ekki að fá
laun í réttu hlutfalli við vinnu sína
og hve marga áhorfendur þeir
tr> !:kja á völlinn.
Hvað er edlilegt verð?
„Það er alla vega ekki 50 til 150
milljónir eins og sumir halda
núna. Ekkert félag í Noregi getur
greitt slíkar upphæðir fyrir Ieik-
menn öðruvísi en að til komi mun
meira fjármagn í rekstur liðanna
og áhorfendafjöldinn verður
a.m.k. þrefaldast," segir Boksasp.
Hann bætir því við að toppliðin í
deildinni ættu að geta borgað á
milli 20 og 50 milljónir fyrir leik-
menn sem keyptir eru á milli liða
í landinu.
Mörg hinna svokölluðu „litlu
liða“ ráða ekki við að kaupa leik-
menn fyrir meira en 20 milljónir.
Staða margra þeirra er með þeim
hætti að óvíst er hvort þau nta
árið af eða ekki. Bæði Brann og
Viking eru talin til hinna stóru í
norska boltanum. Þau eiga samt
við veruleg fjárhagsvandræði að
stríða og hafa einungis nokkurra
mánaða frest til að bjarga sér úr
klóm gjaldþrots. Þau eru neydd til
að selja þó þau geti ekki keypt.
Rosenborg, Molde og Stabæk eru
einu félögin sem hafa peninga af-
lögu til leikmannakaupa. Fátt
bendir þó til að þau ætli sér mikla
hluti á heimamarkaðnum. Ef
marka má orð Lars Petter Fos-
dahl, eins umboðsmanns norskra
og íslenskra knattspyrnumanna,
er Island álitlegri kostur, nokkurs
konar rúmfatalager fyrir norsku
félögin. — GÞÖ