Dagur - 28.08.1999, Síða 1
Á
Heimdellingar
skamma Davíð
Heimdellmgar gagn-
rýna Davíð Oddsson
harðlega á vefsíðu
sinni. Davíð vill nú
ekki selja 51% hlnt
einum aðila.
Það hefur vakið mikla athygli að
undanförnu að þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins, sem ekki eru
sammála því sem Davíð Oddsson
forsætisráðherra hefur sagt um
málefni Fjárfestingarbankans
(FBA) að undanförnu, hafa þor-
að að lýsa þessum skoðunum
sínum opinberlega, sem er alveg
nýtt í samskiptum þeirra við
Flokksformann sinn.
En það eru ekki bara þing-
mennirnir sem eru óánægðir.
Ungliðarnir í Sjálfstæðisflokkn-
um hreinlega hella sér yfir for-
sætisráðherra á vefsíðu
Heimdallar, sem kallast Frelsar-
inn.
Þar segir í grein sem heitir Fá-
tækleg orð:
„Ummæli forsætisráðherra
hafa kostað eigendur FBA held-
ur marga aura. Gengi á bréfum
bankans hefur fallið og þar sem
ríkið á 51% í bankanum hefur
ríkið orðið af rúmlega milljarði.
Það eru ekki fá-
tækleg orð.
En hvað er
þetta með FBA?
Frelsarinn er
ekki sammála
forsætisráðherra
þegar hann segir
að einhveijir að-
ilar hafi eyðilagt
hitt og þetta,
viðskipti hafi
verið siðlaus eða
jafnvel ólögleg
og ríkisstjórnin
þurfi að hugsa
ferlið uppá nýtt.
Hvað er að því
þegar einn aðili
ákveður að selja
öðrum aðila, á frjálsum markaði,
sinn hlut í ákveðnu fyrirtæki?
Skilur forsætisráðherra ekki
hvað frjáls viðskipti ganga út á?
Og svo í ofan á lagt svertir hann
orðstír fyrirtækis, sem byggir
meðal annars viðskipti sín á
trausti viðskiptavina til þess.
Þetta er ólíðandi af manni sem
er forystumaður framkvæmda-
valdsins.
Og þrátt fyrir
að fjórir einstak-
lingar, sem hver
um sig eiga 7% í
einum banka á Is-
landi og eru í for-
svari fyrir hóp
íjárfesta, þá er lít-
il hætta á ferðum.
Það má alls ekki
rýra trú almenn-
ings á frjálsum
markaði og skil-
virkni hans.
Kannski er ekki
hægt að segja að
bankastarfsemi sé
eins og hver önn-
ur þjónusta,
rekstur þeirra
verður að lúta ákveðnum lögmál-
um og keðjuverkun getur leitt til
óstöðugleika og bankakreppu, en
almennt gildir sama um eignar-
hald þeirra og annarra fyrir-
tækja. Viðskiptavinir geta leitað
annað og það er auðvelt fyrir er-
lenda banka að opna útibú hérna
ef bankar í eigu fárra aðila ætla
sér að misnota aðstöðu sína. Nú
þegar geta fyrirtæki leitað út fyr-
ir landsteinana í bankaviðskipt-
um sínum.“
Ekki ei n 11 in aðila
Stefna forsætisráðherra í FBA
málinu er sögð uppspretta gagn-
rýninnar á hann í flokknum. I
gær lýsti Davíð Oddsson því hins
vegar yfir að hann vildi selja hlut
ríldsins í einu lagi. Hins vegar
vildi hann ekki selja hann einum
aðila. Þetta er sama afstaða og
komið hefur fram hjá Halldóri
Ásgrímssyni. Þá svaraði Davíð
Oddsson því til í gær, aðspurður,
að frétt Dags um að tilboð hafi
komið í FBA áður með blessun
hans, væri röng. Hins vegar
hefðu margir haft samband við
hann vegna áhuga á kaupum í
FBA og það væri hið besta mál. I
ljósi þess hve nálægar heimildir
Dags fyrir fréttinni voru þessu
máli, kemur þessi fullyrðing
Davíðs mjög á óvart. - S.DÓr/bg
Davið Oddsson forsætisráðherra
sætir nú gagnrýni samflokks-
manna.
BjáLkahús
í Strýtu
Verið er að reisa um 320 fer-
metra finnskt-rússneskt bjálka-
hús á skíðasvæði Akureyringa í
Hlíðarfjalli. Undir húsinu er
steyptur kjallari, síðan kemur
hæð og loks 80 fermetra kvistur.
Ekki reyndist erfitt að koma efn-
ishlutum hússins á staðinn en
þó þurfti að draga þangað
steypubíla með jarðýtu. Húsið
rís á efra svæðinu uppi í Strýtu
og Ieysir af hólmi tvo gömul hús
þar sem verða rifin. ívar Sig-
mundsson, forstöðumaður í
Hlíðarfjalli, segir að nýja húsið
verði notað sem veitingahús og
þar verði snyrtingar en einnig
nýtist það sem þjónustuhús fyr-
ir skíðamót og er kvisturinn ætl-
aður til þess. I vetur verður m.a.
Vetraríþróttahátíð og einnig
FÍS-mót í Hlíðarfjalli og Andrés-
ar andar leikarnir verða 25 ára.
Byggingarkosfnaður er áætlaður
um 30 milljónir króna. - GG
Lágskýjað var á Akureyri í gær þannig að útsýnið frá bjálkahúsinu I Strýtu var ekki sem skyldi. Á myndinni má sjá
menn vinna við uppsetningu hússins. mynd: brink
Þmgið axli
ábyrgð á
virkjiminiii
„Ég hef enga trú á að Ossur,
Steingrímur J., Sighvatur og fleiri
hafi skipt um skoðun. Hins vegar
finnst mér það rétt hugsað, og al-
veg sjálfsagt, að þingið taki á ný
ábyrgð á áformum um Fljótsdals-
virkjun, vegna þess að þingið
ákvað, með samþykki allra flokka,
að virkjunin skyldi ekki fara í um-
hverfismat. Leyfið til að virkja er
einnig samþykkt Alþingis." Þetta
segir Valgerður Sverrisdóttir, al-
þingismaður, í helgarviðtali Dags.
Þar fjallar hún um þau mál sem
efst eru á baugi og væntanlega
innkomu sína í ríkisstjórnina.
Hommar fæddir 1925 áttu
ekkert sældarlíf vegna kyn-
hneigðarinnar. Annað hvort fóru
þeir úr landi, sökktu sér í drykkju
eða gripu til þess örþrifaráðs að
stytta sér aldur. Hommar fæddir
1975 eru hins vegar Iífsglaðir og
öruggir með sig og bera höfuðið
hátt. Eygló
Jóna Gunnars-
dóttir hefur
gert könnun á
aðstæðum
homma á mis-
munandi tím-
um. Hún segir
frá niðurstöð-
um sínum í við-
tali við helgar-
blað Dags.
„Svo framarlega sem hitastig
fæðu er skaplegt og styrkur
krydds ekki yfirdrifinn er ekkert
að því að nota líkamann af og til
í stað leiðigjarns leirtaus," segir
Ragnheiður Eiríksdóttir, kynlífs-
sérfræðingur Dags, í vikulegum
pistli sínum í helgarblaðinu.
Svo er nýr skammtur af sönn-
um íslenskum dómsmálum,
spurningaþáttur, bíórýni, bóka-
hilla, poppsíða, krossgáta, veiði-
þáttur, matargat og margt margt
fleira skemmtilegt í helgarblað-
inu.
Góða helgi!
Eygló Jóna
Gunnarsdóttir.