Dagur - 28.08.1999, Page 4

Dagur - 28.08.1999, Page 4
4- LAUGARDÁGUR 28. ÁG'ú'ST 19 9 9 FRÉTTIR L. Úrskurdamefndin vestitr Urskuráarnefnd þjóðkirkjunnar hefur farið vestur í Onundarfjörð og rætt við sóknarprestinn, sr. Gunnar Björnsson í Holti, og sóknar- nefndarmenn í sóknunum þar vegna ásakana sóknarnefnda um að ekki sé hægt að starfa með sóknarprestinum. Nefndin mun skila áliti til biskups Islands, hr. Karls Sigurbjörns- sonar, en nefndin hefur fjórar vikur til stefnu eftir að gagnaöflun lýk- ur en henni er enn ekki formlega lokið. Reiknað er með að skýrslan muni liggja fyrir um miðjan októbermánuð. I framhaldi af því mun biskup væntanlega taka ákvörðun í málinu. — GG Háskóli 21. aldarinnar Við setningu Sam- vinnuskólans á Bif- röst á morgun mun Björn Bjarnason menntamálaráðherra opna nýtt upplýsinga- og fjarskiptakerfi á Bifröst. Jafnframt mun samgönguráð- herra, Sturla Böðv- arsson, opna nýjan GSM-sendi sem tengjast mun kerfinu. Uppbygging kerfis- ins, sem nefnt hefur verið „Háskóli 21. aldarinnar11, er samstarfsverk- efni háskólans og nokkurra fyrirtækja á sviði upplýsinga- og tölvu- tækni. Kostnaður við verkefnið er áætlaður 40-50 milljónir króna. Um 170 nemendur verða á Bifröst í vetur, þar af eru um 30 í fjarnámi með aðstoð Internetsins. — BJB Goethe-hátíð í Borgarleikhúsi Haldin verður í Borgarleikhúsinu kl. 16 í dag samkoma í tilefni af 250 ára ártíð þýska skáldsins Goethe. Artúr Björgvin BoIIason hefur haft með skipulagningu samkomunnar að gera, sem ber yfirskriftina Raddir úr lífi skálds. Heiga Jónsdóttir leikstýrir samkomunni en fram koma leikararnir Erlingur Gíslason, Hjalti Rögnvaldsson, Rósa Guð- ný Þórsdóttir, Þór Túliníus og Kristín Arngrímsdóttir. Verða þar með- al annars fluttar ýmsar raddir samferðarmanna þessa mikla skálds og eins hans sjálfs. - SBS Stórfelld tæknibylting er aö fara fram á Bifröst. Brúarfoss hluti af víðneti Tekið hefur verið í notkun nýtt og fullkomið staðarnet í Brúarfossi, skipi Eimskipa. Það er sagt vera sambærilegt við það sem tíðkast á skrif- stofum félagsins. Netkerfi félagsins nær til 22 skrif- stofa í 11 löndum, sem allar eru tengdar saman á einu víðneti í gegnum Immarsat gervihnattasamband. Stefnt er að því að skip félagsins verði hluti af þessu víðtæka upplýsingakerfi og er Brúar- foss fyrsti áfanginn. Þá hef- ur verið tekið í notkun nýtt öryggisstjórnunarkerfi um borð í Brúar- fossi. Ennfremur hefur Eimskip samið um kaup á MarStar hugbún- aði frá Netverki. Með þessum búnaði um borð í Brúarfossi verður allt upplýsingaflæði mun betra eins og t.d. fyrir sendingar á farmskrám og upplýsingum um röðun gáma. — GRII Stórfelld tæknibylting er að fara fram á Bifröst. Margir íbúar á Bíldudal eru að spá í hinar og þessar nýjungar til að efla atvinnu í þorpinu og fá nýjar víddir í annars einhæft atvinnulífið. FLeira en fiskur á Bíldudal Nýtt iðnfyrirtæki. Malar te og kaffi. Vestfirskar jurtir og grös. Spáð í nýjungar í atvinnulífi. Nýtt iðnfyrirtæki er í þann veg- inn að taka til starfa á Bíldudal. Það mun einbeita sér að því að mala te og kaffi. Fyrst í stað verður framleiðslan miðuð við innanlandsmarkað. Þetta er í fyrsta skipti sem einhver iðn- rekstur er starfræktur í þorpinu síðan hinar landsfrægu Bíldu- dals-grænar baunir báru hróður þess um land allt. Bíldu dals-Fj alli Það eru þau Guðrún Helga Sig- urðardóttir og Haukur Kristins- son sem stofnað hafa þetta fyrir- tæki sem heitir Bfldudals-Fjalli. Þá hafa sérfræðingar á Iðn- tæknistofnun verið þeim til að- stoðar og ráðgjafar um stofnun fyrirtækisins, markaðssetningu og þann þátt sem snýr að um- búðum utan um afurðirnar. Ný- verið áskotnaðist þeim forláta tekvörn, sem þau fengu frá Englandi með aðstoð Iðntækni- stofnunar. Guðrún Helga segir að meðal íbúa á Bíldudal séu margir sem séu að spá í ýmsar nýjungar í atvinnulífinu, sem hingað til hefur aðeins snúist um fisk og aftur fisk. Jurtir og grös Fyrst um sinn verða þau Guðrún Helga og Haukur eina starfsfólk- ið. Hinsvegar er ekki útilokað að fleiri bætist í hópinn ef fram- leiðslan vindur uppá sig. Guðrún Helga segir að allt hráefni til teframleiðslunnar séu jurtir og grös sem þau hafa tínt í Arnar- firði og á heiðum uppi í nágrenni Bíldudals. I byrjun verða fram- leiddar þrjár tegundir af kaffi, en hráefnið kaupa þau frá Kaffi- brennslu Hafnaríjarðar. I einni kaffitegundinni verður boðið uppá heimatilbúna blöndu af kaffi og vestfirskum jurtum. I teinu verður í fyrstu framleitt al- mennt heilsute. Talið sé að markaður sé fyrir það meðal er- lendra ferðamanna og banda- rískra hermanna á Keflavíkur- flugvelli, auk landsmanna. — GRH 20 þúsund imdirskríftir Alla hafa safnast um 20 þúsund undirskriftir gegn áformum borg- aryfirvalda að heimila 14 þúsund fermetra nýbyggingu Landssíma- húss og 6 þúsund fermetra bygg- ingu kvikmynda- og leiktækjasalar í Laugardalnum. Árdís Þórðar- dóttir hjá Samtökum um verndun Laugardalsins segir að þetta sé um fjórðungur þeirra sem var á kjörskrá í Reykjavík við síðustu kosningar. Hún segir að undirskriftasöfn- uninni verði framhaldið eitthvað fram á haustið. Enn sé mikill áhugi á því meðal almennings að ljá nöfn sín gegn áformum borg- aryfirvalda og því sé öruggt að undirskriftum eigi eftir að fjölga verulega frá því sem nú sé. Hún segist ekki trúa öðru en að borgin muni hætta við þessi áform sín þegar Ijóst sé hve andstaðan sé mikil gegn þeim. Ef borgin ætlar hinsvegar að hunsa vilja þessa mikla fjölda sé viðbúið að menn muni hugsa sinn gang um hvað þá eigi til bragðs að grípa. I það minnsta sé mikill baráttuhugur í þeim sem vilja ekki að þessi stór- hýsi rísi í Laugardalnum og skerði þá möguleika sem þar séu til úti- vistar og íþrótta. - GRH Bændur, sveitarfélög, verktakar. Raf- og dísillyftarar, allar stærðir. Rafstöðvar fyrir sumarhúsið,bújarðir, sveitarfélög, rafveitur, frá 4 kW-1200 kW. LYFTARAR EHF. r [1 r,- Vatnagörðum 16, Simar 581 2655/581 2770 Bíil: 852 2506 / 892 2506 JML Fax: 568 8028 NOVKLTtsn Postfang: Iyftar3r@mrnedia.ts SRmjöl selur í Kftin Þormóður rammi - Sæberg hf. á Siglufirði og Genís ehf. hafa keypt öll hlutabréf SR-Mjöls í efnaverksmiðjunni Kítín ehf. á Siglufirði. Eignarhlutur hvors fé- lags er nú þannig að Genís á 26,09% og Þormóður rammi - Sæberg 73,91%. Söluverð bréf- anna nam 85 milljónum króna. Að gefnu tilefni Að gefnu tilefni skal tekið fram að dagskrárliður svokallaðrar Ak- ureyrarakademíu á Menning- arnótt á Akureyri, þar sem til- nefndir eru menn aldarinnar á ýmsum sviðum, er ekki á vegum Akureyrarbæjar þrátt fyrir að merki bæjarins hafi verið notað sem myndskreyting með frétt um málið hér í blaðinu í vikunni.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.