Dagur - 28.08.1999, Síða 4
4- LAUGARDÁGUR 28. ÁG'ú'ST 19 9 9
FRÉTTIR
L.
Úrskurdamefndin vestitr
Urskuráarnefnd þjóðkirkjunnar hefur farið vestur í Onundarfjörð og
rætt við sóknarprestinn, sr. Gunnar Björnsson í Holti, og sóknar-
nefndarmenn í sóknunum þar vegna ásakana sóknarnefnda um að
ekki sé hægt að starfa með sóknarprestinum.
Nefndin mun skila áliti til biskups Islands, hr. Karls Sigurbjörns-
sonar, en nefndin hefur fjórar vikur til stefnu eftir að gagnaöflun lýk-
ur en henni er enn ekki formlega lokið. Reiknað er með að skýrslan
muni liggja fyrir um miðjan októbermánuð. I framhaldi af því mun
biskup væntanlega taka ákvörðun í málinu. — GG
Háskóli 21. aldarinnar
Við setningu Sam-
vinnuskólans á Bif-
röst á morgun mun
Björn Bjarnason
menntamálaráðherra
opna nýtt upplýsinga-
og fjarskiptakerfi á
Bifröst. Jafnframt
mun samgönguráð-
herra, Sturla Böðv-
arsson, opna nýjan
GSM-sendi sem
tengjast mun kerfinu.
Uppbygging kerfis-
ins, sem nefnt hefur verið „Háskóli 21. aldarinnar11, er samstarfsverk-
efni háskólans og nokkurra fyrirtækja á sviði upplýsinga- og tölvu-
tækni. Kostnaður við verkefnið er áætlaður 40-50 milljónir króna.
Um 170 nemendur verða á Bifröst í vetur, þar af eru um 30 í fjarnámi
með aðstoð Internetsins. — BJB
Goethe-hátíð í Borgarleikhúsi
Haldin verður í Borgarleikhúsinu kl. 16 í dag samkoma í tilefni af
250 ára ártíð þýska skáldsins Goethe. Artúr Björgvin BoIIason hefur
haft með skipulagningu samkomunnar að gera, sem ber yfirskriftina
Raddir úr lífi skálds. Heiga Jónsdóttir leikstýrir samkomunni en fram
koma leikararnir Erlingur Gíslason, Hjalti Rögnvaldsson, Rósa Guð-
ný Þórsdóttir, Þór Túliníus og Kristín Arngrímsdóttir. Verða þar með-
al annars fluttar ýmsar raddir samferðarmanna þessa mikla skálds og
eins hans sjálfs. - SBS
Stórfelld tæknibylting er aö fara fram á Bifröst.
Brúarfoss hluti af víðneti
Tekið hefur verið í notkun
nýtt og fullkomið staðarnet í
Brúarfossi, skipi Eimskipa.
Það er sagt vera sambærilegt
við það sem tíðkast á skrif-
stofum félagsins. Netkerfi
félagsins nær til 22 skrif-
stofa í 11 löndum, sem allar
eru tengdar saman á einu
víðneti í gegnum Immarsat
gervihnattasamband. Stefnt
er að því að skip félagsins
verði hluti af þessu víðtæka
upplýsingakerfi og er Brúar-
foss fyrsti áfanginn. Þá hef-
ur verið tekið í notkun nýtt öryggisstjórnunarkerfi um borð í Brúar-
fossi. Ennfremur hefur Eimskip samið um kaup á MarStar hugbún-
aði frá Netverki. Með þessum búnaði um borð í Brúarfossi verður allt
upplýsingaflæði mun betra eins og t.d. fyrir sendingar á farmskrám og
upplýsingum um röðun gáma. — GRII
Stórfelld tæknibylting er að fara fram á
Bifröst.
Margir íbúar á Bíldudal eru að spá í hinar og þessar nýjungar til að efla atvinnu í þorpinu og fá nýjar víddir í
annars einhæft atvinnulífið.
FLeira en fiskur
á Bíldudal
Nýtt iðnfyrirtæki.
Malar te og kaffi.
Vestfirskar jurtir og
grös. Spáð í nýjungar
í atvinnulífi.
Nýtt iðnfyrirtæki er í þann veg-
inn að taka til starfa á Bíldudal.
Það mun einbeita sér að því að
mala te og kaffi. Fyrst í stað
verður framleiðslan miðuð við
innanlandsmarkað. Þetta er í
fyrsta skipti sem einhver iðn-
rekstur er starfræktur í þorpinu
síðan hinar landsfrægu Bíldu-
dals-grænar baunir báru hróður
þess um land allt.
Bíldu dals-Fj alli
Það eru þau Guðrún Helga Sig-
urðardóttir og Haukur Kristins-
son sem stofnað hafa þetta fyrir-
tæki sem heitir Bfldudals-Fjalli.
Þá hafa sérfræðingar á Iðn-
tæknistofnun verið þeim til að-
stoðar og ráðgjafar um stofnun
fyrirtækisins, markaðssetningu
og þann þátt sem snýr að um-
búðum utan um afurðirnar. Ný-
verið áskotnaðist þeim forláta
tekvörn, sem þau fengu frá
Englandi með aðstoð Iðntækni-
stofnunar. Guðrún Helga segir
að meðal íbúa á Bíldudal séu
margir sem séu að spá í ýmsar
nýjungar í atvinnulífinu, sem
hingað til hefur aðeins snúist
um fisk og aftur fisk.
Jurtir og grös
Fyrst um sinn verða þau Guðrún
Helga og Haukur eina starfsfólk-
ið. Hinsvegar er ekki útilokað að
fleiri bætist í hópinn ef fram-
leiðslan vindur uppá sig. Guðrún
Helga segir að allt hráefni til
teframleiðslunnar séu jurtir og
grös sem þau hafa tínt í Arnar-
firði og á heiðum uppi í nágrenni
Bíldudals. I byrjun verða fram-
leiddar þrjár tegundir af kaffi, en
hráefnið kaupa þau frá Kaffi-
brennslu Hafnaríjarðar. I einni
kaffitegundinni verður boðið
uppá heimatilbúna blöndu af
kaffi og vestfirskum jurtum. I
teinu verður í fyrstu framleitt al-
mennt heilsute. Talið sé að
markaður sé fyrir það meðal er-
lendra ferðamanna og banda-
rískra hermanna á Keflavíkur-
flugvelli, auk landsmanna. — GRH
20 þúsund imdirskríftir
Alla hafa safnast um 20 þúsund
undirskriftir gegn áformum borg-
aryfirvalda að heimila 14 þúsund
fermetra nýbyggingu Landssíma-
húss og 6 þúsund fermetra bygg-
ingu kvikmynda- og leiktækjasalar
í Laugardalnum. Árdís Þórðar-
dóttir hjá Samtökum um verndun
Laugardalsins segir að þetta sé
um fjórðungur þeirra sem var á
kjörskrá í Reykjavík við síðustu
kosningar.
Hún segir að undirskriftasöfn-
uninni verði framhaldið eitthvað
fram á haustið. Enn sé mikill
áhugi á því meðal almennings að
ljá nöfn sín gegn áformum borg-
aryfirvalda og því sé öruggt að
undirskriftum eigi eftir að fjölga
verulega frá því sem nú sé. Hún
segist ekki trúa öðru en að borgin
muni hætta við þessi áform sín
þegar Ijóst sé hve andstaðan sé
mikil gegn þeim. Ef borgin ætlar
hinsvegar að hunsa vilja þessa
mikla fjölda sé viðbúið að menn
muni hugsa sinn gang um hvað
þá eigi til bragðs að grípa. I það
minnsta sé mikill baráttuhugur í
þeim sem vilja ekki að þessi stór-
hýsi rísi í Laugardalnum og skerði
þá möguleika sem þar séu til úti-
vistar og íþrótta. - GRH
Bændur, sveitarfélög, verktakar.
Raf- og dísillyftarar,
allar stærðir.
Rafstöðvar fyrir sumarhúsið,bújarðir,
sveitarfélög, rafveitur, frá 4 kW-1200 kW.
LYFTARAR EHF.
r
[1 r,-
Vatnagörðum 16,
Simar 581 2655/581 2770
Bíil: 852 2506 / 892 2506
JML Fax: 568 8028
NOVKLTtsn Postfang: Iyftar3r@mrnedia.ts
SRmjöl
selur í Kftin
Þormóður rammi - Sæberg hf. á
Siglufirði og Genís ehf. hafa
keypt öll hlutabréf SR-Mjöls í
efnaverksmiðjunni Kítín ehf. á
Siglufirði. Eignarhlutur hvors fé-
lags er nú þannig að Genís á
26,09% og Þormóður rammi -
Sæberg 73,91%. Söluverð bréf-
anna nam 85 milljónum króna.
Að gefnu tilefni
Að gefnu tilefni skal tekið fram
að dagskrárliður svokallaðrar Ak-
ureyrarakademíu á Menning-
arnótt á Akureyri, þar sem til-
nefndir eru menn aldarinnar á
ýmsum sviðum, er ekki á vegum
Akureyrarbæjar þrátt fyrir að
merki bæjarins hafi verið notað
sem myndskreyting með frétt um
málið hér í blaðinu í vikunni.