Dagur - 28.08.1999, Síða 5
LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1999 - S
FRÉTTIR
L.
Skerða kjör hjá
láglaimakonuin
Alnienn og niikil óá-
nægja í flugeldhúsi
Flngleiða á Keflavlk-
nrflngvelli. Ókeypis
akstur til og frá vinnu
aflagðnr. Strætó í
staðinn. í samræmi
við kjarasamninga.
Mikil og almenn óánægja er
meðal starfsfólks í flugeldhúsi
Flugleiða á Keflavíkurflugvelli
vegna þeirrar ákvörðunar fyrir-
tækisins að hætta að aka starfs-
fólki til og frá vinnustað frá og
með næstu mánaðamótum.
Sumir starfsmenn segjast ætla að
bregðast við þessu með því að
vinna ekki aukavaktir né auka við
sig á álagstímum. Vigdís Sigur-
jónsdóttir, trúnaðarmaður starfs-
manna, segir að þarna sé um
kjaraskerðingu að ræða fyrir
starfsmennina sem þurfa eftir-
leiðis að greiða um 300 krónur í
strætó frá Reykjanesbæ hvern
vinnudag. Um 70-80 konur
starfa í eldhúsinu. Einar Sigurðs-
son fram-
kvæmdastjóri
hjá Flugleiðum
segir að fyrirtæk-
ið hafi ákveðið
að hætta þessum
akstri í ljósi bæt-
tra almennings-
samgangna á
svæðinu. Það sé
f samræmi við
ákvæði aðal-
kjarasamnings.
Sótt í næstu
samningiun
Trúnaðarmaður
starfsmanna,
sem flestir eru í
Verkalýðs- og
sj ómannafélagi
Keflavíkur og
nágrennis, segir
að hefð sé fyrir
því að Flugleiðir sjái um að keyra
starfsfólkið til og frá vinnu. Hún
segir að flestir starfsmennirnir
hafi skrifað undir mótmælaskjal
vegna þessa. Þótt engar skipuleg-
ar aðgerðir séu á dagskrá hjá
starfsfólkinu sé viðbúið að hver
og einn muni hugsa sinn gang.
Einar Sigurðsson framkvæmda-
stjóri hjá Flugleiðum segir að fyrir-
tækið hafi ákveðið að hætta þess-
um akstri í Ijósi bættra almenn-
ingssamgangna á svæðinu.
Hún segir það
skjóta heldur
skökku við að á
sama tíma og
laun flestra séu
að hækka í þjóð-
félaginu, skuli
Flugleiðir skerða
kjör láglauna-
kvenna sem fá
um 75 þúsund
krónur í mánað-
arlaun eftir
skatta. Af þeim
sökum sé viðbú-
ið að starfsfólkið
muni fara að líta
í kringum sig
eftir annarri
vinnu, enda
virðist vera mikil
eftirspurn eftir
starfskröftum, ef
marka má at-
vinnuauglýsingar. Vigdís segir að
Flugleiðir séu hinsvegar ekki að
brjóta nein ákvæði í kjarasamn-
ingum með þessari ákvörðun
sinni. Aftur á móti sé einsýnt að
reynt verði að ná þessari kjara-
skerðingu til baka í næstu samn-
ingum.
Almenningssamgöngur
Einar Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri hjá Flugleiðum, segir að
þessi breyting sé vegna þess að
almenningssamgöngur séu að
komast á milli flugv'allarins og
nágrannasveitarfélaga. Hann
bendir á að í aðalkjarasamningi
sé ákvæði sem segir að þegar ekki
sé um almenningssamgöngur að
ræða, þá hafi atvinnurekendur
það hlutverk að sjá til þess að
koma starfsfólki til og frá vinnu.
Þegar almenningssamgöngur séu
loksins að komast á á milli flug-
vallarins og sveitarfélaga í ná-
grenni hans, þá hafi það alltaf
verið vitað að Flugleiðir mundu
hætta að aka starfsfólki á milli.
Enda í fullum rétti til þess. Hann
bendir m.a. á að í kjaarsamningi
við Verslunarmannafélag Suður-
nesja sé sérstök bókun þess efnis
að þessum akstri verði hætt um
leið og almenningssamgöngur
séu fyrir hendi. Þá telur hann að
hægt sé að fá mun ódýrari far-
gjöld með strætó en 300 krónur
til og frá vinnu með því að kaupa
kort. - GRH
í lögreglu-
yfirheyrslu
Stjórnarmenn
Félags til vernd-
ar hálendis
Austurlands,
þau Hrafnkell A.
Jónsson, Þór-
hallur Þorsteins-
son og Karen
Erla Erlingsdótt-
ir, sem stöðvuðu
för stjórnarmanna Landsvirkj-
unar á Bessastaðaárbrú í vik-
unni og lásu þeim pistilinn, voru
í gær tekin til Iögregluyfir-
heyrslu á Egilsstöðum. Tekin var
skýrsla af þremenningunum.
Hún verður síðan send til full-
trúa sýslumanns, sem svo ákveð-
ur hvort ákært verður í málinu.
„Okkur var sagt að verið væri
að rannsaka orðróm um hugsan-
legt brot okkar á umferðarlög-
unum. Eg svaraði því til að fyrst
og fremst hafi þarna verið um
táknrænan atburð að ræða, um
þá stöðu sem komin er í umræð-
una um Fljótsdalsvirkjun. Ég
hafnaði því að sjálfsögðu að hafa
heft för fólksins, því að um leið
og ég var beðinn um að færa bíl-
inn af brúnni, þá gerði ég það.
Eg viðurkenndi að sjálfsögðu að
hafa sett hann á brúna,“ sagði
Þórhallur Þorsteinsson í samtali
við Dag í gær. Ymsa umhverfis-
vemdarsinna grunar að hraðinn
og vinnugleði Iögreglunnar
vegna þessa atburðar sé til kom-
inn vegna tilmæla frá æðstu
stöðum. - S.DÓR
Þórhallur Þor-
steinsson.
StórauMð eftírllt
Norrænu ráðherrarnir á Akureyri í gær. Danski heilbrigðisráðherrann var
farinn áleiðis tii Danmerkur og íslenski félagsmálarðaherrann, Páll Péturs-
son, á leið til Siglufjarðar á ársþing SSNV. mynd: brink
Dómsmálaráðherrar
funda nú í fyrsta
skípti um vímu-
vamarúrræði með
heilbrigðis- og félags-
málaráðhemun.
Heilbrigðis-, dóms- og félags-
málaráðherrar Norðurlandanna
ásamt embættismönnum fund-
uðu á Fosshótel KEA á Akureyri
í gær. Ingibjörg Pálmadóttir,
heilbrigðisráðherra, segir að
fyrst og fremst séu menn að bera
saman bækur sínar hvað varðar
reynslu og upplýsingar hvað
varðar vímuvamir. Það sé afar
mikilvægt því löndin standi mjög
mismunandi vel að vígi hvað
varðar þennan málaflokk. Heil-
brigðis- og félagsmálaráðherrar
hafa áður fundað um þessi mál,
en þetta er í fyrsta skipti sem
dómsmálaráðherrar Norður-
landa funda um þessi mál. Til-
gangurinn með því er sá að sýna
mikilvægi þess að hnýta saman
alla þætti eftirlitsins, þ.e. toll-
gæslu, lögreglu, dómsmál, for-
varnastarf, meðferðarstarf o.fl.
Af Islands hálfu sátu fundinn
ráðherrarnir Ingibjörg Pálma-
dóttir, Sólveig Pétursdóttir og
Páll Pétursson ásamt embættis-
mönnum.
„Samþykkt var á þessum fundi
að norræna vímuvarnanefndin
fái það hlutverk að kanna um-
fang, áhrif og kostnað hvað varð-
ar aukið eftirlit með vímuefna-
sölum og vímuefnaneytendum,
og um sameiginlegt verkefni er
að ræða,“ segir Ingibjörg Pálma-
dóttir, heilbrigðisráðherra.
„Samstarfið mun styrkjast veru-
lega með þessari samþykkt.
Kostnaður við þetta verkefni er
enn ekki ljós, en hann verður
töluverður af þessu aukna eftir-
liti. Fjármagnið kemur úr sam-
eiginlegum, norrænum verk-
efnasjóðum. Ljóst er að hér er
geysilega mikið verk að vinna en
ég er mjög ánægð með hvað
tekst að virkja marga í barátt-
unni gegn vágestinum og það er
mikill hugur í mönnum, sagði
Ingibjörg ennfremur. - GG
250 störf í Qarvtnnslu
íslensk miðlun gerir ráð fyrir því
að í lok næsta árs verði störf f
fjarvinnslu fyrirtækisins á lands-
byggðinni um 250. Þegar eru
starfsmennirnir orðnir um 60
með opnun starfsstöðva á Vest-
fjörðum og á Austfjörðum. Þá
hafa fjölmörg sveitarfélög lýst
yfir áhuga á samstarfi við fyrir-
tækið um stofnun starfsstöðva í
fjarvinnslu.
Auk starfa við símatorg Is-
Iandssíma munu starfsmenn Is-
lenskrar miðlunar á Vestfjörðum,
þ.e. Þingeyri, Suðureyri og ísa-
firði, sinna verkefnum við sölu-
og markaðsmál, gerð mark-
aðskannana, skráningu gagna og
fleira. Meðal annars hefur fyrir-
tækið gert samning við Pricewa-
ter-Coopers um gerð mark-
aðskannana og á í viðræðum við
fleiri fyrirtæki um verkefni. Þá
hefur Iðntæknistofnun með
stuðningi forsætisráðuneytis og
Byggðastofnunar unnið að því að
kanna hvaða verkefni sé hægt að
vinna á Iandsbyggðinni með fjar-
vinnslu. Þar á meðal sé skráning
gagna og þjónusta á vegum
stjórnsýslunnar, skráning gagna
á heilbrigðissviði, vegna rann-
sókna og menntamála, þjónustu-
verkefni fyrir opinbera þjónustu
og hugbúnaðar-, fjarskipta- og
markaðsmál fyrirtækja. - GRH
MeiriWutinu vill þjóðaratkvæði
Ríflegur meirihluti þeirra sem greiddu at-
kvæði um spurningu Dags á Vísi.is er fylgj-
andi því að fram fari þjóðaratkvæða-
greiðsla um framtíð Eyjabakka.
Spurt var: Á þjóðin að greiða atkvæði
um framtíð Eyjabakka? Munurinn á af-
stöðu þeirra sem fóru inn á vefinn og
greiddu atkvæði var mikill. Hátt í tveir
þriðju eða 63 prósent vildu þjóðaratkvæði, en 37 prósent voru á móti.
Nú er hægt að greiða atkvæði um nýja Dags-spurningu á Vísi.is.
Hún er svohljóðandi: Áttu íslenskir frjálsíþróttamenn erindi á HM í
Sevilla? Slóðin er: www.visir.is
Samtök um nýtingu orkuauðlinda
Samtök um nýtingu orkuauðlinda til atvinnuuppbyggingar á Austur-
landi verða stofnuð á Egilsstöðum í dag. I fundarboði segir meðal
annars að samtökin verði mótvægi við „áróður öfgasinna og málsvari
meirihluta Austfirðinga." Smári Geirsson, formaður Sambands sveit-
arfélaga á Austurlandi, ætti að eiga samhljóm með þessum nýju sam-
tökum því í setningarræðu hans á aðalfundi sambandsins í gær sagði
hann að af umræðunni í Qölmiðlum um virkjanir og stóriðju á Aust-
urlandi mætti ráða að þar búi ekki fólk heldur eingöngu hreindýr og
heiðargæsir. Á aðalfundinum var samþykkt að skora á stjórnvöld að
hefja virkjunarframkvæmdir á Fljótsdal. Með þessari ályktun greiddi
41 atkvæði en 2 voru á móti.
Orðhengilsháttur þingfulltrúa en
ekki framkvæmdastjóra LK
Guðbjörn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda,
segir það rangt að hann hafi viðhaft þau orð að landbúnaðarráðherr-
arnir Guðmundur Bjarnason og Guðni Ágústsson hafi stundað orð-
hengilshátt í stað þess að svara erindi kúabænda um innflutning fóst-
urvfsa úr norskum kúm. Þau orð hafi verið viðhöfð af þingfulltrúum
á aðalfundi Landssambands kúabænda, og gott betur, þegar umræð-
an var sem heitust. - GG
Reiöhjólaslys á Akureyri
Reiðhjólaslys varð á Glerárgötu á móts við Grænugötu á Akureyri á
öðrum tímanum í gær. Tólf ára gamall drengur var að fara yfir götuna
á gangbraut þar sem bíll hafði numið staðar fyrir honum, en annar
bíll kom svo úr sömu átt og virti ekki stöðvunarskyldu og ók á dreng-
inn. Hann var fluttur á slysadeild FSA, með meiðsli á fótum og í baki.