Dagur - 28.08.1999, Page 8

Dagur - 28.08.1999, Page 8
8- LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1999 FRÉTTA SKÝRING rD^ftr Bæj aryfirvöld skipa nefnd til að meta og gera tillögur imi fram- tíð hátíðarinnar Halló Akureyri. Unglinga- drykkja áherandi áhyggjuefui þeirra sem koma að hátíð- inni. Héraðslæknir viH ekki að verslunar- mannahelgarhátíðir fari aftur „út í móa“. I sfðustu viku var haldinn fundur helstu aðila sem komu að og störfuðu í tengslum við hátíðina Halló Akureyri í sumar. Var sá fundur liður í markvissu starfi að- standenda og bæjaryfirvalda við að meta hvernig hátíðin gekk fyr- ir sig, hvort endurskoða þurfi skipulag einstakra þátta hátíðar- innar eða jafnvel endurskoða há- tíðina í heild. A þessum fundi voru lagðar fram skriflegar grein- argerðir ýmissa aðila. I kjölfar þessa fundar ákvað bæjarráð Ak- ureyrar í fyrradag að skipa sér- stakan starfshóp á vegum bæjar- ins sem skoði málið og skili bæj- arráði síðan greinargerð og tillög- um um framtfð hátíðarinnar. Þennan starfshóp eiga að skipa fulltrúar frá sex nefndum bæjar- ins. SMptar skoðanir Af þeim greinargerðum sem lagð- ar voru fram á fundinum í síðustu viku og voru síðan kynntar í bæj- arráði í fyrradag er greinilegt að skoðanir þeirra sem að hátíðinni koma eru afar skiptar og lýsingar þeirra á ástandinu eru nokkuð ólíkar. Þeir sem lögðu ffam grein- argerðir voru Ferðamálafélag Eyjafjarðar, Islensk verkefna- stjórnun, Héraðslæknir Norður- lands, Foreldravaktin á Akureyri og Friðrik Vagn Guðjónsson, heimilislæknir og íbúi í grennd við KA svæðið. Almennt virðast menn þó sammála um að skipu- lag og framkvæmd hafi verið í góðu lagi og miðað við aðstæður hafi aðstandendur gert það sem hægt var að ætlast til, og jafnvel enn meira. Allir virðst hins vegar sammála um að hátíðin dragi fram og jafnvel magni upp ákveð- in vandamál sem þegar séu til staðar í samfélaginu. I þeim flokki er unglingadrykkjan, fíkni- efnaneyslan og það sem því fylgir, mest áberandi. Dagur gluggaði aðeins í umsagnirnar sem fyrir liggja. Betri en áður Ólafur Hergill Oddsson, héraðs- læknir Norðurlands, segir í sinni greinargerð að í heild sinni hafi hátfðin verið betri en undanfarin ár. Hann gerir samanburð við úti- hátfðir fyrr á árum sem hann þekkir til (Saltvík 1971, Melgerð- ismela 1998, Húnaver 1989) og telur að út frá sjónarhóli heil- brigðisþjónustunnar komi Halló Akureyri frekar vel út. Um versl- unarmannahelgina nú hafi „ein- ungis þurft að sinna 60 tilfellum á Slysadeild FSA umfram venju- lega sumarhelgi og verður það að teljast kraftaverk að svo lítið komi upp miðað við að íbúatala bæjar- ins tvöfaldist11. Héraðslæknirinn segir ýmsar fleiri góðar fréttir vera af því hvernig til tókst, en bendir síðan á að það sé „alltaf jafn ömurlegt að sjá ungmenni í blóma lífsins niðurlægja sjálf sig með áfengisdrykkju og vímuefna- notkun eigrandi um og veifandi flöskum". Ólafur bendir á að í ljós hafi komið að þrátt fyrir þetta hafi unglingar virst geta aðlagað sig að þeim kröfum sem gerðar voru, t.d. í Sundlauginni, en þar var áfengi bannað og leitað í tösk- um. Veltir Ólafur því upp hvort ekki sé hægt að taka upp svipað kerfi víðar og í ríkari mæli, t.d. í miðbænum á meðan dagskrá er skipulögð. Girða mætti miðbæ- inn af og fólk fengi ekki að fara þangað inn með áfengi. Vímaí viku Síðan segir í greinargerð héraðs- læknis: „Halló Akureyri endur- speglar alvarlegan vanda en skap- ar hann ekki. Fylleríið á börnum og fullorðnum á Islandi er áber- andi allar helgar ársins. Það nær hámarki sínu um verslunar- mannahelgina og stendur þá vím- an hjá mörgum samfellt í tæpa viku með tilheyrandi skaða á sál og líkama. Önnur vímuefni en áfengi virðast vera í umferð í auknum mæli. Aukinn fjöldi til- fella, nú á FSA þar sem fólk var stjarft af fíkniefnaneyslu bendir til þess að lögreglan hafi ekki að- eins uppgötvað fleiri mál heldur sé neysla ólöglegra vímugjafa al- mennari en áður var.“ Ólafur Hergill Oddsson telur að verði Halló Akureyri haldin aftur um næstu verslunarmannahelgi beri að auka löggæslu um helming að minnsta kosti. Hins vegar má segja að niðurstaða Ólafs - sem helst vill leggja niður verslunar- mannahelgina í núverandi mynd - felist í eftirfarandi: „Verði þessi helgi hins vegar áfram um sinn tel ég útilokað annað en að takast á við verkefnið í þéttbýli. Þetta má ekki aftur fara út í móa, eins og áður var með ófullkominni löggæslu og heilbrigðisþjónustu og þar sem almenningur sér ekki ástandið. Hins vegar álít ég að við á Akureyri höfum þegar fengið of stóran bita af vandræðamálaköku Islands um þessa helgi. Fleiri þurfa að koma inn í dæmið og teldi ég rétt að Reykjavík hafi t.d. útitónleika um þessa helgi til að létta á álaginu annars staðar.“ Mjilg góð hátíð Framkvæmdastjóri hátíðarinnar, Magnús Már Þorvaldsson hjá Ferðamálafélagi Eyjafjarðar, sendi Iíka inn greinargerð. Niður- staða hans er sú að hátíðin hafi verið mjög góð í mörgum skiln- ingi, þó hún hafi ekki verið galla- Iaus. Hann bendir á að hún hafi komið nafni bæjarins á framfæri með æ jákvæðari hætti; hátíðin hafi fært hagsmunaaðilum og Ak- ureyrarbæ miklar tekjur; hún hafi aukið fjölbreytileika mannlífsins; hún hafi eflt samvinnu ólíkra hópa; hún hafi hvatt fólk til að sækja Akureyri heim á öðrum tímum árs en um verslunar- mannahelgi; og hafi verið kveikja að frjórri umræðu um skemmta- hald Islendinga almennt, einkum um verslunarmannahelgi. Síðan segir Magnús: „Undirritaður fyll- ir þann hóp er ekki sættir sig við unglingadrykkjuna, hún setur svartan blett á hátíðarhaldið en yfirgnæfir myndina þó hvergi. Unglingadrykkja endurspeglar vandamál íslensks samfélags þar sem agaleysi tröllríður samfélag- inu... Halló Akure^ri hefur alla möguleika á að dafna í sátt við samfélagið og framkvæmdaaðilar munu ekki firra sig ábyrgð gagn- vart íbúum Akureyrar og athuga- semdir verða skoðaðar af fullri al- vöru. Abyrgðin er ekki minni þeg- Magnús Már Þorvaldsson: Komið verði á samstarfi við Áfengis- og vímuvarnarráð og Tóbaksvarnar- nefnd. ar kemur að unglingadrykkjunni, er það tillaga framkvæmdastjóra að komið verði á samstarfi við Áfengis- og vímuvarnarráð og Tó- baksvarnarnefnd þegar hugað verður að undirbúningi næstu hátíðar." Magnús metur það svo að há- tíðin hafi verið happafengur fyrir athafnalíf Akureyrar, en framlag hagsmunaaðila þyrfti að vaxa til að tryggja megi bætta fram- kvæmd. Fleiri og alvarlegri bamavemdarmál Guðrún Sigurðardóttir, deildar- stjóri ráðgjafadeildar bæjarins, segir í sinni greinargerð að hátíð- I/igdís Steinþórsdóttir: Það getur enginn gert sér þessar aðstæður í hugarlund nema uppiifa þær sjálfur. in í ár hafi skorið sig úr miðað við fyrri hátíðir hvað verkefni barna- verndarvaktarinnar voru miklu fleiri og alvarlegri. Alls komu upp 26 mál vegna 28 barna. Skipting málanna er þannig að fíkniefna- mál voru 10, áfengismál 5, nauðganir 2, óspektir/slagsmál 7, sjálfsmorðstilraun 1 og annað 1. Fram kemur í greinargerð Guð- rúnar að samvinna við lögreglu var góð, en að mati barnaverndar- nefndarinnar var áberandi hve margt ungt fólk var drukkið í bænum. „Það virtist einnig vera mikið um fíkniefnaneyslu og við- horf unglinganna sem voru tekin með eða undir áhrifum fíkniefna var á þann veg að draga má þá Ólafur Hergill Oddsson: Þetta má ekki aftur fara út í móa, eins og áður var með ófullkominni lög- gæslu og heilbrigðisþjónustu.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.