Dagur - 28.08.1999, Page 11
LAVGARDAGUB 28. ÁGÚST 1999 - 11
ERLENDARFRÉTTIR
Rússar búast viö
frekari átökum
Rússneskir hermenn í Dagestan.
Vladiniir Putin fðr til
Dagestau í gær og lof-
ar íbúum aðstoð við
uppbyggingu eftir
stríðið.
Vladimir Putin, hinn nýi forsæt-
isráðherra Rússlands, hélt í gær
til átaksvæðanna í Dagestan.
Lofaði hann því að þau þorp sem
orðið hafa iyrir skemmdum af
völdum bardaga rússneska hers-
ins við íslamska skæruliða fái
verulega aðstoð frá ríkinu til
uppbyggingarstarfs.
Þann 7. ágúst hertóku íslamsk-
ir skæruliðar, sem flestir komu
frá nágrannalandinu Téténíu,
a.m.k. sex þorp í vesturhluta
Dagestans. Rússneski herinn
hefur háð nokkrar landorustur
við skæruliðana og haldið uppi
nánast stöðugum loftárásum
undanfarnar \ikur. A miðviku-
daginn yfirgáfu svo skæruliðarnir
flestir hverjir Dagestan og hafa
Rússar lýst yfir áfangasigri í
stríðinu.
Bardögum var að mestu leyti
lokið strax á fimmtudag þótt
smærri skærur hafi áfram átt sér
stað. Ekki er þó ljóst hvort Rúss-
ar hafi verið að berjast við skæru-
liðana innan Dagestan eða hand-
an landamæranna í Téténíu.
Rússar hafa tekið sér aðferðir
Nató í Kosovo til fyrirmyndar og
lagt aðaláherslu á loftárásir en
forðast bardaga á jörðu niðri.
Eins og í Kosovo hafa skemmdir
á jörðu niðri orðið gífurlegar og
standa íbúarnir frammi fyrir
miklu starfi við uppbyggingu.
Talið er að um 10.000 óbreytt-
ir borgarar hafi flúið frá átaka-
svæðunum, en þeir hafa ekki
fengið leyfi til að snúa aftur enn
vegna þess að rússneski herinn
mun vera að hreinsa svæðið af
jarðsprengjum sem skæruliðarnir
eru sagðir hafa skilið eftir sig.
Grænfrið-
ungar hand-
teknirí
Danmörku
Danska lögreglan handtók í gær
26 meðlimi umhverfisverndar-
samtakanna Greenpeace, sem
höfðu frá því á miðvikudag lok-
að höfn dönsku stálsmiðjunnar í
Frederiksværk til að mótmæla
díoxínmengun frá fyrirtækinu.
Grænfriðungarnir lokuðu
höfninni með skipi sínu, Green-
peace, sem þeir Iétu vera í hafn-
armynninu. Skipið var dregið
burt í gær eftir að grænfriðung-
arnir höfðu verið handteknir. A
miðvikudaginn voru fimm græn-
friðungar einnig teknir til yfir-
heyrslu eftir að þeir höfðu fest
sig með keðju við krana á höfn-
inni og breitt úr borða með
áletrunum.
Greenpeace fullyrðir að stál-
verksmiðjan valdi meiri díoxfn-
mengun en nokkurt annað fyrir-
tæki í Danmörku, en í verk-
smiðjunni er stunduð endur-
vinnsla á brotajárni og fram-
leiddar úr því stálplötur og
stengur, sein aðallega fer í út-
flutning.
Rússar segja að um 70 rúss-
neskir hermenn hafi fallið í átök-
unum. Jafnframt segja Rússar að
allt að 2.000 skæruliðar hafi lát-
ist, en skæruliðarnir segjast sjálf-
ir aðeins hafa misst 37 menn. A
hinn bóginn hafa Rússar Iíka
fullyrt að þegar mest var hafi
ekki verið nema 2000 skæruliðar
að beijast í Dagestan.
Rússnesk stjórnvöld segjast
eiga von á því að skæruliðarnir
láti að nýju til skarar skríða inn-
an skamms og hafa því orðað það
svo að sigur hafi einungis unnist
í fyrsta áfanga stríðsins.
íslömsku skæruliðarnir hafa
barist fyrir því að Dagestan verði
sjálfstætt íslamskt ríki, og telur
rússneski herinn að þeir hafi
ekki gefið það markmið upp á
bátinn.
HEIMURINN
Liðsinönituin Öcalans boðin sakar-
uppgjöf
TYRKLAND - Tyrkneska þjóðþingið samþykkti í gær Iög, sem nefnd
hafa verið „iðrunarlög", um að veita meðlimum í skæruliðasamtökum
Kúrda, Verkamannaflokki Kúrdistans (PKK), almenna sakaruppgjöf
að því tilskyldu að þeir hafi ekki tekið þátt í vopnuðum átökum, bafi
ekki drepið tyrkneska hermenn og leggi niður vopn sín. Hafa þeir sex
mánaða frest til þess að tryggja sér sakaruppgjöf. Þeir sem þegar sitja
í fangelsi geta auk þess fengið lægri refsingu ef þeir veita upplýsing-
ar um PKK.
Sjálfsmorð í Péturskirkjimni
ÍTALÍA - 64 ára gamall ítali framdi sjálfsmorð í Péturskirkjunni í
Róm með því að stinga byssuhlaupi upp í munninn á sér og hleypa
af skoti. Páfagarður hélt þegar í stað sérstaka athöfn til þess að vígja
kirkjuna að nýju, en atburður á borð við þennan er talinn „afhelga"
kirkjuna. Ekki er \átað til þess að neitt þessu líkt hafi áður gerst í Pét-
ursldrkjunni.
Pinochet ekki saksóttur í Chile
CHILE - Afrýjunarréttur í Santiago f
Chile hefur hafnað því að málsókn á
hendur Augusto Pinochet, fyrrverandi
einræðisherra, fari fram í Chile, enda
nýtur hann friðhelgi sem þingmaður til
æviloka samkvæmt stjórnarskrá lands-
ins. Saksóknari í Chile hefur fyrir
nokkru höfðað mál á hendur nokkrum
hershöfðingjum vegna atburða sem
urðu árið 1973, þegar 72 pólitískir
fangar voru myrtir skömmu eftir valda-
töku Pinochets. Meiningin var að sækja
Pinochet til saka í leiðinni, því æðsti
ráðamaður þjóðarinnar á þessum tíma
telst hann bera ábyrgð á þessum morð-
Augusto Pinochet.
Söimunargögn eyöileggjast
TYRKLAND - TyrKneskir lögfræðingar og byggingarfræðingar hafa
varað við því að hreinsunaraðgerðir eftir jarðskjálftann verði Iátnar
ganga of hratt fyrir sig, þar sem með þeim eyðileggist sönnunargögn
gegn verktökum í byggingariðnaði sem unnu verk sín af vítaverðu
kæruleysi. Aður en rústirnar verða hreinsaðar þyrftu sérfræðingar að
meta skemmdirnar með tilliti til málaferla sem orðið gætu.
Veðrið í dag...
Suðvestanátt 8 -13 m/s og skúrir sunnan og vestantil
en þurrt og sunis staðar bjartviðri á Norðaustur- og
Austurlandi. Fer að rigna með suðaustur- og
austurströndinni er líður á daginn en dregur úr skúrum
vestantil á landinu.
Hiti á bilinu 8 til 17 stig, hlýjast austantil.
Blönduós
• *—7 I 1 M J 1 T
Akureyri
„ Ifií---------------------------------------------------mqL
Fös Lau Sun Mán Pri Mk> Hm
SNV77^ J M \ J I
Egilsstaðir
rci mm
aAaaAa;; 1 i . .... i m m m m m .
Fös Lau Sun Mán AV /- / 7 i i Þri Miö Fim \J r j i
Reykjavík
fC) mm
1 1 ■ 1 ■
Fös Lau Sun Mán Þri Miö Frn
mj;j j
Bolungarvík
■ ■ ■ !■ - - ■ 18 ■ ■
Fðs Lau Sun Mán Þri Miö Fim
Kirkjubæjarklaustur
■ !,■ ■ I ■ ■ ■
Fös Lau Sun Mán Þri Miö Rm
\ M7 / j /
Stykkishólmur
\\M j^a \\)J.) \
Stórhöfði
fy V7.
fyj u jy
VV VEÐURSrOFA
^ ÍSLANDS
Veðurspárit
27.08.1999
Línurit: Lofthiti, spágildi fyrir miðnætti og hádegi.
Súlurit: Úrkoma, uppsöfnuð i 12 klst.
Vindörvar: Vindur blæs inn að punkti. Vindhraði er táknaður
með skástrikum; heilt strik táknar 5 m/s en hálft 2.5 m/s.
Þríhyrningur táknar 25 m/s.
■ fy
Dæmi: » táknar norðvestanátt, 7.5 m/s.
Færð á vegum
Helstu vegir um hálendið eru færir.
Þó vegir um hálendið séu sagðir færir er yfirleitt
átt við að þeir séu færir jeppum og fjallabílum.
Vegirnir um Kjöl, Kaldadal og í Landmannalaugar
frá Sigöldu eru þó færir öllum bílum.