Dagur - 28.08.1999, Qupperneq 11

Dagur - 28.08.1999, Qupperneq 11
LAVGARDAGUB 28. ÁGÚST 1999 - 11 ERLENDARFRÉTTIR Rússar búast viö frekari átökum Rússneskir hermenn í Dagestan. Vladiniir Putin fðr til Dagestau í gær og lof- ar íbúum aðstoð við uppbyggingu eftir stríðið. Vladimir Putin, hinn nýi forsæt- isráðherra Rússlands, hélt í gær til átaksvæðanna í Dagestan. Lofaði hann því að þau þorp sem orðið hafa iyrir skemmdum af völdum bardaga rússneska hers- ins við íslamska skæruliða fái verulega aðstoð frá ríkinu til uppbyggingarstarfs. Þann 7. ágúst hertóku íslamsk- ir skæruliðar, sem flestir komu frá nágrannalandinu Téténíu, a.m.k. sex þorp í vesturhluta Dagestans. Rússneski herinn hefur háð nokkrar landorustur við skæruliðana og haldið uppi nánast stöðugum loftárásum undanfarnar \ikur. A miðviku- daginn yfirgáfu svo skæruliðarnir flestir hverjir Dagestan og hafa Rússar lýst yfir áfangasigri í stríðinu. Bardögum var að mestu leyti lokið strax á fimmtudag þótt smærri skærur hafi áfram átt sér stað. Ekki er þó ljóst hvort Rúss- ar hafi verið að berjast við skæru- liðana innan Dagestan eða hand- an landamæranna í Téténíu. Rússar hafa tekið sér aðferðir Nató í Kosovo til fyrirmyndar og lagt aðaláherslu á loftárásir en forðast bardaga á jörðu niðri. Eins og í Kosovo hafa skemmdir á jörðu niðri orðið gífurlegar og standa íbúarnir frammi fyrir miklu starfi við uppbyggingu. Talið er að um 10.000 óbreytt- ir borgarar hafi flúið frá átaka- svæðunum, en þeir hafa ekki fengið leyfi til að snúa aftur enn vegna þess að rússneski herinn mun vera að hreinsa svæðið af jarðsprengjum sem skæruliðarnir eru sagðir hafa skilið eftir sig. Grænfrið- ungar hand- teknirí Danmörku Danska lögreglan handtók í gær 26 meðlimi umhverfisverndar- samtakanna Greenpeace, sem höfðu frá því á miðvikudag lok- að höfn dönsku stálsmiðjunnar í Frederiksværk til að mótmæla díoxínmengun frá fyrirtækinu. Grænfriðungarnir lokuðu höfninni með skipi sínu, Green- peace, sem þeir Iétu vera í hafn- armynninu. Skipið var dregið burt í gær eftir að grænfriðung- arnir höfðu verið handteknir. A miðvikudaginn voru fimm græn- friðungar einnig teknir til yfir- heyrslu eftir að þeir höfðu fest sig með keðju við krana á höfn- inni og breitt úr borða með áletrunum. Greenpeace fullyrðir að stál- verksmiðjan valdi meiri díoxfn- mengun en nokkurt annað fyrir- tæki í Danmörku, en í verk- smiðjunni er stunduð endur- vinnsla á brotajárni og fram- leiddar úr því stálplötur og stengur, sein aðallega fer í út- flutning. Rússar segja að um 70 rúss- neskir hermenn hafi fallið í átök- unum. Jafnframt segja Rússar að allt að 2.000 skæruliðar hafi lát- ist, en skæruliðarnir segjast sjálf- ir aðeins hafa misst 37 menn. A hinn bóginn hafa Rússar Iíka fullyrt að þegar mest var hafi ekki verið nema 2000 skæruliðar að beijast í Dagestan. Rússnesk stjórnvöld segjast eiga von á því að skæruliðarnir láti að nýju til skarar skríða inn- an skamms og hafa því orðað það svo að sigur hafi einungis unnist í fyrsta áfanga stríðsins. íslömsku skæruliðarnir hafa barist fyrir því að Dagestan verði sjálfstætt íslamskt ríki, og telur rússneski herinn að þeir hafi ekki gefið það markmið upp á bátinn. HEIMURINN Liðsinönituin Öcalans boðin sakar- uppgjöf TYRKLAND - Tyrkneska þjóðþingið samþykkti í gær Iög, sem nefnd hafa verið „iðrunarlög", um að veita meðlimum í skæruliðasamtökum Kúrda, Verkamannaflokki Kúrdistans (PKK), almenna sakaruppgjöf að því tilskyldu að þeir hafi ekki tekið þátt í vopnuðum átökum, bafi ekki drepið tyrkneska hermenn og leggi niður vopn sín. Hafa þeir sex mánaða frest til þess að tryggja sér sakaruppgjöf. Þeir sem þegar sitja í fangelsi geta auk þess fengið lægri refsingu ef þeir veita upplýsing- ar um PKK. Sjálfsmorð í Péturskirkjimni ÍTALÍA - 64 ára gamall ítali framdi sjálfsmorð í Péturskirkjunni í Róm með því að stinga byssuhlaupi upp í munninn á sér og hleypa af skoti. Páfagarður hélt þegar í stað sérstaka athöfn til þess að vígja kirkjuna að nýju, en atburður á borð við þennan er talinn „afhelga" kirkjuna. Ekki er \átað til þess að neitt þessu líkt hafi áður gerst í Pét- ursldrkjunni. Pinochet ekki saksóttur í Chile CHILE - Afrýjunarréttur í Santiago f Chile hefur hafnað því að málsókn á hendur Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra, fari fram í Chile, enda nýtur hann friðhelgi sem þingmaður til æviloka samkvæmt stjórnarskrá lands- ins. Saksóknari í Chile hefur fyrir nokkru höfðað mál á hendur nokkrum hershöfðingjum vegna atburða sem urðu árið 1973, þegar 72 pólitískir fangar voru myrtir skömmu eftir valda- töku Pinochets. Meiningin var að sækja Pinochet til saka í leiðinni, því æðsti ráðamaður þjóðarinnar á þessum tíma telst hann bera ábyrgð á þessum morð- Augusto Pinochet. Söimunargögn eyöileggjast TYRKLAND - TyrKneskir lögfræðingar og byggingarfræðingar hafa varað við því að hreinsunaraðgerðir eftir jarðskjálftann verði Iátnar ganga of hratt fyrir sig, þar sem með þeim eyðileggist sönnunargögn gegn verktökum í byggingariðnaði sem unnu verk sín af vítaverðu kæruleysi. Aður en rústirnar verða hreinsaðar þyrftu sérfræðingar að meta skemmdirnar með tilliti til málaferla sem orðið gætu. Veðrið í dag... Suðvestanátt 8 -13 m/s og skúrir sunnan og vestantil en þurrt og sunis staðar bjartviðri á Norðaustur- og Austurlandi. Fer að rigna með suðaustur- og austurströndinni er líður á daginn en dregur úr skúrum vestantil á landinu. Hiti á bilinu 8 til 17 stig, hlýjast austantil. Blönduós • *—7 I 1 M J 1 T Akureyri „ Ifií---------------------------------------------------mqL Fös Lau Sun Mán Pri Mk> Hm SNV77^ J M \ J I Egilsstaðir rci mm aAaaAa;; 1 i . .... i m m m m m . Fös Lau Sun Mán AV /- / 7 i i Þri Miö Fim \J r j i Reykjavík fC) mm 1 1 ■ 1 ■ Fös Lau Sun Mán Þri Miö Frn mj;j j Bolungarvík ■ ■ ■ !■ - - ■ 18 ■ ■ Fðs Lau Sun Mán Þri Miö Fim Kirkjubæjarklaustur ■ !,■ ■ I ■ ■ ■ Fös Lau Sun Mán Þri Miö Rm \ M7 / j / Stykkishólmur \\M j^a \\)J.) \ Stórhöfði fy V7. fyj u jy VV VEÐURSrOFA ^ ÍSLANDS Veðurspárit 27.08.1999 Línurit: Lofthiti, spágildi fyrir miðnætti og hádegi. Súlurit: Úrkoma, uppsöfnuð i 12 klst. Vindörvar: Vindur blæs inn að punkti. Vindhraði er táknaður með skástrikum; heilt strik táknar 5 m/s en hálft 2.5 m/s. Þríhyrningur táknar 25 m/s. ■ fy Dæmi: » táknar norðvestanátt, 7.5 m/s. Færð á vegum Helstu vegir um hálendið eru færir. Þó vegir um hálendið séu sagðir færir er yfirleitt átt við að þeir séu færir jeppum og fjallabílum. Vegirnir um Kjöl, Kaldadal og í Landmannalaugar frá Sigöldu eru þó færir öllum bílum.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.