Dagur - 21.09.1999, Blaðsíða 1

Dagur - 21.09.1999, Blaðsíða 1
I J I t 1 Kínverski skiptineminn Jin Shi lærði að hjóla íAðastræti áAkureyri. Þegarhann ætl- aði að reyna sig í umferðinni þá datt hann á höfuðið en hjálmurinn bjargaði honum. Jin Shi er 17 ára drengur frá Sjanghæ sem býr í vetur á Akureyri sem skiptinemi og stundar nám við Menntaskólann. Hann kom til Islands 23. ágúst og því lá beint við að hann fengi íslenska nafnið Agúst. Þegar Agúst kom frá Kína til Islands hafði hann aldrei stigið á reiðhjól, en hann kom inn á heimili þar sem bjó hjólafólk og fjöl- skyldan lánaði honum hjól. Hann segir að ekki hafi verið mjög erfitt að Iæra kúnsti- na að hjóla. Það hafi tekið hann ríflega hálftíma á Aðalstrætinu þar sem er frekar lítil umferð. Þegar hann ætlaði síðan að fara út í umferðina þá byrjuðu vandræðin. „Eg var að hjóla eftir Þórunnarstræti og var að prófa hvað hjólið kæmist hratt. Þar er mjög kröpp beygja og ég reyndi að bremsa, en það var sandur og möl á vegin- um og ég rann til og beint á höfuðið." Agúst segir bílstjóra sem áttu leið hjá hafa verið mjög hjálplega. Hann meiddist lítilega en það hafi bjargað honum að hann var með hjálm á höfðinu. „Pabbi vildi endilega að ég væri með hjálm. Mér fannst það hálf furðulegt vegna þess að í Kína eru það bara þeir sem stunda hjól- reiðar sem íþrótt sem eru með hjálma.“ Líður eins og á bókasafni Agúst er frá Sjanghæ. I Kína mega hjón bara eignast eitt barn. Faðir hans vinnur í öðrum borgarhluta sem er það langt í burtu frá heimilinu að það borgar sig ekki fyrir hann að koma beim úr vinnunni nema á tyllidögum og um helgar. „Eg var þarna í menntaskóla sem í eru 2500 nem- endur og um 300 kennarar. Þar vakna ég fyrir klukkan sex á morgnana. Ég fer síðan Agúst segir að ekki hafi verið mjög erfitt að læra kúnstina að hjóla. Það hafi tekið hann ríflega með skólabílnum klukkan hálf sjö í skól- hálftíma á Aðalstrætinu þar sem er frekar lítil umferð. Þegar hann ætlaði síðan að fara út í um- ann og er þar til klukkan fjögur á daginn. ferðina þá byrjuðu vandræðin. mynd: brink. Það verður örugglega öðruvísi að vera í Menntaskólanum á Akureyri. Það búa 14 milljónir manna í Sjanghæ, sem eru talsvert fleiri en á Akrureyri. Mér líður eins og ég sé á bókasafni þegar ég geng hérna um göturnar. Það er mjög gott en stundum kann ég hinsvegar mjög vel við mig þegar það er fullt af fólki i kring- um mig. Það er mjög gott að ganga eftir götu þar sem er fullt af fólki." Notar timann Ágúst hefur ekki miklar áhyggjur af norðlenskum vetri. I Sjanghæ fer hita- stigið sjaldan niður fyrir fimm gráður á Celsíus. Þar er alltaf Iogn og þó að það snjói stundum tekur fönnina fljótt upp. Ágúst fór í réttir á dögunum og þar var rigning og kuldi. „Það var mjög skemmti- leg reynsla. Það kom mér mest á óvart hversu búskapur hérlendis er náttúru- Iegur. Bændurnir gera allt á náttúruleg- an hátt. Þeir láta kindurnar ganga á fjöll og sækja þær á hestum og Iáta þær síðan ganga heim í hús. Það var mjög gaman að sjá þetta.“ Það er mikill munur á íslensku og kín- versku. Ágúst byrjaði strax og hann kom til Akureyrar að huga að því hvernig hann gæti best lært tungumál inn- fæddra. Hann fór á bókasafnið og útveg- aði sér kennslubækur í íslensku fyrir út- lendinga. Hann segir það vera mjög slæmt að íslenskar orðabækur séu ekki ætlaðar fyrir útlendinga, að ekki sé til brúkleg ensk-íslensk, íslensk-ensk orða- bók sem væri hugsuð fyrir enskumæl- andi fólk. „Ég ætla að nota tfmann vel meðan að ég dvel hérna. Það verður gaman að læra nýtt tungumál. Svo er ég líka í íþróttum. Bræður mínir hérna á íslandi spila fót- bolta, körfubolta og stunda Tae Kwon Do. Það er kórenösk sjálfsvarnaríþrótt. Sjálfs- varnaríþróttir eru mikið stundaðar um alla Asíu, þær eru hins vegar ekki vinsælar í Kína. Ég er vanur að hlaupa mikið úti en hef ekki mikla reynslu af boltaíþróttum. Tíminn er dýrmætur en aðalmálið et held ég, að hafa nóg fyrir stafni og sóa honum ekki.“ -PJESTA i'L'JMir.iiifc Vesturfand: Hljómsýn, Akranesi. Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi. E Kf. Steingrimsfjaröai; Hólmavík. Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvei Fáskrúösfiröi. KASK, Höfn, KASK Djúpavogi. SuAuríand: Mosfell, Hellu. / w 3 ára ábyrgð Örugg þjónusta Blákalda Heiti Brútto Lítrar Hæð sm. Breidd sm. Dýpt sm. Körfur sem fylgja Læsing Einangrun þykkt í mm. Rafnotkun m/v 18°C umhv.hita kWh/24 klst. Tllboðsverð stgr. HF 120 132 86 55 61 1 Nei 55 0,60 20.900 HFL 230 221 86 79 65 1 Já 55 0,84 33.000 HFL290 294 86 100 65 1 Já 55 1,02 35.000 HFL 390 401 86 130 65 2 Já 55 1,31 39.000 EL 53 527 86 150 73 3 Já 60 1,39 46.900 EL 61 607 86 170 73 3 Já 60 1,62 63.000 jík RÖDIO Gaislagötu 14 • Sími■/ B R Æ Ð m ORMSSON Lágmúla 8 • Sími 530 2800 Hallgrímsson, Grundarfirði. Ásubúö, Búöardal. Vastfirðin Geirseyrarbúðin, Patreksflrði. Rafverk, Bolungarvík. Straumur, ísafiröi. Pokahorniö, Tálknafiröi. Norðuríand: Radionaust, Akureyri. lingabúð, Sauöátfkróki. Urð, Raufarhöfn. Austuriand: Sveinn Guðmundsson, Egilsstööum. Kf. Vopnafirðinga, Vopnafirði. Kf. StööFiröinga. Verslunin V(k, Neskaupstað. Kf. Fáskrúðsfiröinga, * “ “ ............... rg, Grindavík. íSgéi- * Þorlákshöfri.; Brimnes, Vestmannaeyjum. Klakkur, Vík. Reykjanes: eflavík. Rafborg,'

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.